Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
Rafmagnssala
frá Nesjavöllum
Hagsmunum Reykvíkinga fórnað
NÝLEGA var sam-
þykktur í Borgarráði
og stjórn Landsvirkjun-
ar samningur um fram-
leiðslu og sölu raf-
magns frá Nesjavöll-
um. Frá því að farið var
að undirbúa virkjun á
Nesjavöllum fyrir Hita-
veitu Reykjavíkur hefur
verið haft í huga að
jafnframt varmavinnsl-
unni yrði þar framleitt
rafmagn. Rafmagn er
verðmæt aukaafurð,
þar sem hægt er að
framleiða það með .
ódýrum hætti, ef það Guðrun Zoega
er framleitt í takt við varmavinnsl- markaður
una. Hagkvæmni raforkuvinnslunn-
ar byggist meðal annars á því að
nýta þær fjárfestingar sem þegar
eru komnar vegna hitaveitunnar. Á
þeim tíma sem liðinn er frá því að
1. áfangi virkjunarinnar var tekinn
í notkun hefur verið nóg raforka til
í landinu og því ekki þörf fyrir raf-
magn frá Nesjavöllum né heldur vilji
til að heimila Hitaveitu Reykjavíkur
að framleiða rafmagn inn á markað-
inn í samkeppni við Landsvirkjun.
Nú hafa skipast veður í lofti, stækk-
un álvers í Straumsvík er langt kom-
in, og nýtt álver á Grundartanga
þarf á mikilli orku að halda, sem
fijótlegast er að fá frá Nesjavöllum.
Sóun orku
Þegar ákvörðun var tekin um
virkjun á Nesjavöllum lá fyrir mat
sérfræðinga um end-
ingartíma svæðisins.
Þeir töldu að það stæði
undir 300 MW varma-
orkuveri í a.m.k. 30 ár.
Margt bendir til að hér
hafi verið um varfærn-
islegt mat að ræða og
að svæðið muni endast
lengur. Það breytir þó
ekki því að auðlindin
er takmörkuð og ber
að nýta hana sem best
og varast sóun. Mest
verðmæti fást með því
að framleiða rafmagn
samhliða vinnslu á
varma til hitunar, ef
er fyrir hvort tveggja.
Nýting orkunnar er jafn góð ef ein-
göngu er virkjað til hitunar. Hins
vegar nýtist aðeins brot af þeirri
orku sem afla þarf, ef eingöngu er
virkjað til rafmagnsframleiðslu, og
gufunni, sem kemur frá rafmagns-
hverflunum, er fleygt. Til þess að
framleiða það rafmagn, sem kveðið
er á um í samningnum, þarf að keyra
orkuverið á fullu afli í 11 mánuði á
ári. Þar sem hitunarþörf er mismun-
andi eftir árstíma og tíðarfari er
ekki hægt að fullnýta varmaorkuver-
ið jafn lengi og verður orkuverið því
rekið eingöngu fyrir rafmagn-
svinnslu í marga mánuði á ári. Það
hefur í för með sér mikla sóun á
orku og styttir endingartíma jarðhit-
ans. Það er reyndar óskiljanlegt að
Landsvirkjun skuli hafa sótt það svo
fast að kaupa svona mikið rafmagn
Honda Civic 1.5 DXi Sedan ‘95, steingrár, 5 g.,
ek. 26 þ. km., spoiler, samlitir stuðarar. Fallegur
bíll.
Bílamarkaöunnn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími
567-1800
Löggiid bflasala
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig
Opið laugard. kl.10-17
og sunnud. kl. 13-18
Nýr bíll: Suzuki Sidekick 5 dyra JXi
rauður, 5 g., ek. 1 þ. km. V. 1.850 þús.
V.W. Golf 1.4 CL 3ja dyra ‘94, rauður, 5 g.,
30 þ. km. V. 930 þús.
Einnig: V.W. Polo 1.4 5 dyra ‘96, blár, 5 g.,
9 þ. km. V. 1 millj.
ek.
Plymouth Voyager Grand ‘93, hvítur, ek. 81 þ.
km., 7 manna, 6 cyl. (3,3). V. 1.890 þús. Sk.
ód.Góður staðgreiðsluafsiáttur.
Daihatsu Cuore 5 dyra ‘90, hvítur, sjálfsk., ek.
48 þ. km. V. 290 þús.
MMC Colt GLXi ‘91, rauður, 5 g., ek. 96 þ. km.,
rafm. í rúðum, hiti í sætum o.fl. V. 680 þús.
Hyundai Elantra 1.8 GT Sedan ‘94, blár, sjálf-
sk., ek. 28 þ. km., rafm. í öllu, 2 dekkjag. o.fl.
V: 1.090 þús.
Nissan Double Cap m/húsi bensín '94, blár, 5
g„ ek. 40 þ. km„ álfelgur, 33" dekk, geislasp.
o.fl. V. 1.730 þús.
Grand Wagoneer Ltd. ‘93, grænn, m/viðarkl„
sjálfsk., ek. 100 þ. km„ rafm. í öllu, leðurkl., sól-
lúga, álfelgur o.fl. V. 3,1 millj.
Nissan Sunny 2.0 GTi ‘91, rauður, 5 g„ ek. 81
þ. km„ sóllúga, ABS bremsur, álfelgur, rafm. í
öllu. V. 980 þús.
Citroen XM 2.0i ‘91, leðurinnr., sjálfsk., ek.
aðeins 84 þ.km. Rafm. í rúðum, álfelgur o.fl.
Toyota Corolla XL Sedan ‘92, brúnsans., sjálf-
sk„ ek. 66 þ. km„ grjótgrind o.fl. V. 790 þús.
Mazda 626 GTi 16 v Coupé ‘88, 5 g„ ek. 97 þ.
km„ spoiler, álfelgur o.fl. V. 690 þús.
Nissan Micra LX 5 dyra ‘94, 5 g„ ek. 43 þ. km.
V. 740 þús.
Grand Cherokee Laredo V-6 ‘93, græns ans, 5
gíra, ek. aðeins 59 þ.km. m/öllu. V. 2.780 þús.
Hyundai Accent GSi ‘95, grænsans., 5 g„ ek. 9
þ. km„ 15" álfelgur, loftpúðar o.fl. V. 990 þús.
Bíll fyrir vandláta: BMW 520i station ‘96,
svartur, 5 g„ ek. 25 þ. km„ rafm. í öllu, álfelgur.
Sem nýr. V. 3.280 þús.
MMC Lancer GLXi station ‘93, hvítur, sjálfsk.,
ek. 54 þ. km„ rafm. í rúðum, hiti í sætum, 2
dekkjag., dráttarkúla. Toppeintak. V. 980 þús.
(bein sala).
Ath. eftirspurn eftir árg.
‘93-’97.Vantar slíka bíla á
skrá og á staðinn.
Bílar á tilboðsverði
Citroen BX 14 ‘87, hvítur, 5 g„ ek. 103 þ.
km„ nýskoðaður. Gott eintak. V. 290 þús.
Tilboð 190 þús.
Mazda 323 LX ‘89, rauður, 3ja dyra, ek. 150
þ. km„ álfelgur, 5 g„ mikið yfirfarin. V. 380
þús.
Nissan King Cap m/húsi 4x4 ‘83, svartur, 5
g„ 2000 vél. V. 390 þús. Tilboð 270 þús.
Mazda E-2200 ‘87, sendibíll með kassa,
diesel, ek. 135 þ. km„ bíll í toppstandi. V. 690
þús. Tilboð 540 þús.
Toyota Carina 2000 GLi Executive ‘90,
hvítur, ek. 110 þ. km„ 4ra dyra. sjálfsk., rafm.
í öllu. V. 920 þús. Tilboð 810 þús.
Hyundai Pony LS ‘93, 3ja dyra, 5 g„ grænn,
ek. aðeins 63 þ. km. V. 620 þús. Tilboð 500
þús.
Ford Scorpion 2000 GL ‘86, drapplitur, 5 d„
5 g„ ek. 124 þ. km. mikið yfirfarin. V. 590
þús. Tilboð 460 þús.
Ford Lincoln Continental ‘90, blásans., ek.
83 þ. km„ V-6 (3.8). Einn með öllu. Verð
1.490 þús. Tilboð 1.290 þús.
Renault Clio RN ‘92, rauður, 5 g„ ek. 120 þ.
km. (vél uppt.). V. 540 þús. Tilboð 470 þús.
MMC Lancer 4x4 GLX station ‘87, gott ein-
tak. V. 490 þús. Tilboð 390 þús.
Málsmeðferð hefur,
segir Guðrún Zoega,
einkennst af leynd
og fljótfærni.
af Hitaveitunni, því ef orkuverið á
Nesjavöllum er skynsamlega rekið
er rafmagnsframleiðsla mest á vet-
urna, þegar almenna notkunin er
mest, en minnst á sumrin, þegar
Landsvirkjun hefur sjálf nóg raf-
magn.
Orkuverð trúnaðarmál -
líka gagnvart seljendum
í fréttum hefur komið fram að
orkusölusamningur milli Landsvirkj-
unar og Columbia-álversins er trún-
aðarmál og hefur ekkert fengist upp
gefið um efni hans. I samningnum
milli Reykjavíkurborgar og Lands-
virkjunar skuldbindur Hitaveitan sig
til að selja Landsvirkjun orku á 79%
af því verði sem Columbia-áiverið
kaupir orkuna á. Það er að segja
Hitaveitan ætlar að selja rafmagn á
79% af einhveiju sem ekki er vitað
hvað er! Heyrst hefur að fyrstu árin
sé orkuverð til Columbia mun lægra
en síðar verður, en þegar leitað var
upplýsinga um þetta hjá Hitaveit-
unni fengust þau svör að þetta væri
svo mikið trúnaðarmái að fulltrúar
Hitaveitunnar hafa ekki fengið að
vita hve afslátturinn verður mikill
fyrstu árin.
Hagsmuna borgarinnar
ekki gætt
Hvernig getur borgin þá metið
arðsemi virkjunarinnar? Þegar
spurst var fyrir um þetta fengust
þau svör að matið byggðist á út-
reikningum Landsvirkjunar, enda er
hún eini aðilinn sem hefur upplýs-
ingar um orkuverð. Það lýsir ótrú-
legum barnaskap að treysta í blindni
upplýsingum kaupanda, sem hefur
augljósra hagsmuna að gæta af því
að kaupa rafmagnið á sem lægstu
verði. Því miður virðist enginn hafa
gætt hagsmuna Hitaveitunnar og
viðskiptavina hennar í þessum samn-
ingum. Það eina sem sagt er um
orkuverð í samningum Landsvirkj-
unar og borgarinnar er, að fyrir það
rafmagn sem Landsvirkjun kaupir
fyrir almennan markað, mun hún
greiða 16 mill (107 aura) fyrir kíló-
vattstundina, sem hún getur síðan
selt aftur til Rafmagnsveitu Reykja-
víkur fyrir þijár krónur!
Engin arðsemi af sölu
til Landsvirkjunar
Eins og sjá má af framansögðu
er erfitt að meta afkomu virkjunar-
innar, þar sem orkuverð er ekki
þekkt. Þó má leiða líkur að því að
Hitaveitan eigi virkjunina skuldlausa
að afskriftatímanum loknum, ef
Rafmagnsveita Reykjavíkur greiðir
jafn mikið fyrir orkuna frá Hitaveit-
unni og hún þyrfti að greiða Lands-
virkjun og að rafmagnsframleiðsla
sé mun meiri en varmavinnslan gef-
ur tilefni til, en það hefur orkusóun
í för með sér, eins og áður er sagt.
Hugsanleg arðsemi byggist því ekki
á viðskiptum við Landsvirkjun. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Hitaveit-
unni er reiknað með að raforkuverið
greiði um 100 milljónir króna á ári
fyrir gufu. í skýrslu um raforku-
vinnslu á Nesjavöllum frá september
1995 reiknar verkfræðistofa Guð-
muhdar og Kristjáns með því að
kostnaðarverð gufunnar til fram-
leiðslu rafmagns sé um 30 aurar á
kWh, eða um 140 milljónir króna á
ári, fyrir þá raforku sem hér um
ræðir, ef raforkuvinnslan er í takt
við varmavinnsluna. Miðað við það
rekstrarfyrirkomulag, sem hér er
gert ráð fyrir, yrði kostnaður við
gufuöflun fyrir rafmagnsframleiðsl-
una mun meiri. Ekki er reiknað með
öðrum kostnaði við að reka virkjun-
ina né heldur að þörf sé á að halda
henni við. Miðað við þá útreikninga
sem kynntir hafa verið, 25 ára af-
skriftartíma og 5,5% vexti, er rekstr-
arútkoman neikvæð fyrstu tuttugu
árin, og það er ekki fyrr en eftir að
samningstímanum við Landsvirkjun
lýkur að hagnaður verður af
rekstrinum. Virðast þó ýmsir kostn-
aðarliðir vera vanmetnir.
Vanhæfir fulltrúar
Því hefur verið haldið fram að
samningsstaða borgarinnar hafi ver-
ið svo sterk að Landsvirkjun hafi
verið í gíslingu hennar. Á hinn bóg-
inn má segja að Reykjavíkurborg
hafi verið stillt upp við vegg og
ábyrgðin á því hvort hér verður
byggt nýtt álver eða ekki sett á
hennar herðar. í ljósi þess sem á
undan er sagt er augljóst að í þess-
um samningum hafa hagsmunir
Landsvirkjunar vegið mun þyngra
en borgarinnar. Tveir af þremur
fulltrúum borgarinnar í stjórn
Landsvirkjunar sitja jafnframt í
borgarráði, auk þess sem borgarrit-
ari, sem er staðgengill borgarstjóra
og situr fundi borgarráðs, er stjórn-
arformaður Landsvirkjunar. Þau eru
því vanhæf til að fjalla um þennan
samning, hvort sem er í stjórn
Landsvirkjunar eða í borgarráði.
Þessir fulltrúar virðast fremur hafa
litið á sig sem fulltrúa Landsvirkj-
unar en borgarinnar. Þetta vekur
enn upp þá spurningu, hvort ekki
sé tímabært að slíta tengslin milli
Reykjavíkurborgar og Landsvirkj-
unar. Þátttaka borgarinnar í þessu
fyrirtæki átti rétt á sér á sínum tíma,
en nú hafa forsendur breyst.
Leynd og fljótræði
Ég tel vel koma til greina að selja
Landsvirkjun rafmagn frá Nesjavöll-
um, en samningar um það þurfa að
vera þannig að báðir aðilar hafi hag
af. Svo er ekki í þessum samningum.
Málsmeðferð hefur einkennst af
leynd og fljótfærni, og hefur leyndin
verið svo mikil að seljendur orkunn-
ar hafa ekki fengið að vita á hvaða
verði þeir muni selja. Það hefði þurft
að kanna tæknilegar og fjárhagsleg-
ar hliðar málsins miklu betur en
gert hefur verið, en hér hefur verið
farið fram af meira kappi en forsjá.
Þetta er enn eitt dæmið um þau
„opnu og lýðræðislegu" vinnubrögð
sem R-listinn þóttist ætla að viðhafa
við stjórn borgarinnar.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Engum úthýst
á menntaþingi
Á VEGUM mennta-
málaráðuneytisins hef-
ur um margra mánaða
skeið verið unnið að því
að undirbúa mennta-
þing, sem haldið verður
laugardaginn 5. októ-
ber í Háskólabíói og
Þjóðarbókhlöðu. Hefst
þingið klukkan 9.30 og
er öllum opið. Er það
haldið undir kjörorðinu:
Til móts við nýja tíma.
Ráðuneytið kynnti
áform sín um þingið
síðastliðið vor og var
þá strax ákveðið, að
það yrði 5. október, til
þess að hinir fjölmörgu aðilar í
menntakerfinu, sem efna til haust-
funda gætu tekið mið af þeirri dag-
setningu í störfum sínum.
Jafnframt var ákveðið, að þingið
yrði í raun tvískipt. í fyrsta lagi
skyldi efnt til funda og umræðna. í
öðru lagi skyldu skólar, félög nem-
enda og aðrir hvattir til þess að
kynna starfsemi sína í anddyri Há-
skólabíós og Þjóðarbókhlöðu.
Óvæntar óskir
Ráðuneytið auglýsti aðstöðuna til
kynningarstarfs og brugðust margir
við og mun margt fróðlegt verða til
sýnis á menntaþingi. Einnig var leit-
að til fjölda ræðumanna, þátttak-
enda í pallborðsumræðum og fund-
arstjóra, sem allir tóku málaleitan
um þátttöku í menntaþingi vel.
Undir lok síðustu viku og byijun
þessarar kom í ljós, að
meðal námsmanna-
hreyfinganna voru uppi
óskir um, að þær kæmu
sjónarmiðum sínum á
framfæri með öðrum
hætti en aðrir. Vildu
námsmenn efna til sérs-
taks fundar til að ræða
málin á sínum forsend-
um.
Þessar óvæntu og
síðbúnu óskir komu í
opna skjöldu, sérstak-
lega vegna þess, að til-
mæli höfðu borist frá
ýmsum samtökum
Björn Bjarnason námsmanna um sýn-
ingaraðstöðu með öðrum og hafði
að sjálfsögðu verið tekið frá rými í
samræmi við þær. Er rangt, að
námsmenn hafi átt að vera afsíðis,
eins og gefið hefur verið til kynna.
Með hliðsjón af þeim ákvörðunum,
sem teknar höfðu verið um nýtingu
húsnæðis í Háskólabíói, taldi
menntamálaráðuneytið sér ekki fært
að verða við óskum um sérstaka
fundaraðstöðu fyrir námsmenn í því
húsi. Jafnframt hefði af sanngirnis-
og jafnræðisástæðum átt að bjóða
öðrum hið sama.
Góð lausn
Námsmenn dóu ekki ráðalausir,
þegar þessi niðurstaða lá fyrir, heldur
ákváðu að setja upp tjald milli Há-
skólabíós og Þjóðarbókhlöðu og bjóða
mönnum að koma þangað til að kynn-
ast því, sem þeir hafa fram að færa,
Allir eru velkomnir á
menntaþing á meðan
húsrúm leyfir. Björn
Bjarnason hvetur
alla til að sækja
þingið á laugardag.
þegar rætt er um menntun undir
kjörorðinu: Til móts við nýja tíma.
Með þessum hætti tengja náms-
menn fundarstaði menntaþings í
Háskólabíói og Þjóðarbókhlöðu sam-
an og fundahöld þeirra falla vel að
þeirri skipan, sem ákveðin var á
menntaþingi, að síðdegis laugardag-
inn 5. október yrði efnt til funda um
margvísleg málefni. Er gert ráð fyr-
ir því, að menn sæki þessa fundi,
hver í samræmi við sitt áhugasvið.
Engum hefur verið úthýst á
menntaþingi. Þangað eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Framtak námsmanna hefur orðið til
þess að vekja meiri athygli á þinginu
en ella hefði orðið.
Ég vil þakka þann jákvæða hug
námsmannahreyfinganna í garð
menntaþings, sem kemur fram í
Morgunblaðsgrein hinn 2. október
og hvetja alla til að sækja þingið á
laugardag.
Höfundur er
menntamálaráðherra.