Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hart slegist
um gullin
Framkvæmd í lakara lagi
HESTAR
llarAarból viö Bcrlin
ALÞJÓÐLEGA SKEIÐ-
MEISTARAMÓTIÐ
Hið árlega alþjóðlega skeiðmeistara-
mót var haldið á búgarðinum Harð-
arbóli í nágrenni Berlínar í Þýska-
landi dagana 26. til 29. september
sl. Keppt var í A-flokki gæðinga,
slaktaumatölti, 150 og 250 metra
skeiði, skeiðmeistarakeppni á þess-
um vegalengdum báðum, gæðinga-
skeiði og 100 metra fljúgandi skeiði.
SKEIÐMEISTARAMÓT þau sem
haldin hafa verið fram að þessu
hafa verið með ýmsu móti hvað
framkvæmd varðar en hestakostur
að öllu jöfnu góður og keppnin oft-
ast æsispennandi. A Harðarbóli
voru saman komnir ágætir hestar
og kappsfullir knapar sem lögðu
allt í sölurnar til að ná sem bestum
árangri.
300 metra
hringvellir að koma
Gæðingakeppnin fór fram á
beinni braut eins og tíðkast hefur
á þessum mótum. Sá er þetta skrif-
ar hef-ur margsinnis lýst þeirri skoð-
un sinni að þetta fyrirkomulag sé
hundleiðinlegt fyrir áhorfendur og
ekki hvað síst þegar áhorfendur
þurfa að standa nánast fast upp
við brautina eins og þarna var.
Hlutskipti dómaranna var hið sama
-etida má segja að dómar séu lítt
traustvekjandi í sumum tilfella við
slíkar aðstæður. Heyra mátti að
víða á meginlandinu sé áhugi fyrir
að stækka hringvelli upp í 300
metra eins og notaðir eru hérlendis
í gæðingakeppni og má því ætla
að hægt verði að flytja gæðinga-
keppnina af beinni braut.
Góður árangur Störtal
hrossanna
að gera það gott á mótum ytra í
sumar og verður spennandi að sjá
hvoit honum tekst að bianda sér í
baráttuna um sæti í Þýska landslið-
inu á næsta ári. Næstu tvö, þau
Uli Reber Þýskalandi og Ladina
Sigurbjörnsdóttir frá Sviss, deildu
einnig með sér næstu tveimur sæt-
um, Uli á Þræði frá Hvítárholti en
Ladina á Þorra frá Meðalfelli.
I gæðingaskeiðinu var keppnin
hörð milli Uli Reber og Jóhanns
R. Skúlasonar sem búsettur er í
Danmörku. Eftir forkeppnina var
Jóhann með naumt forskot en
missti það niður í úrslitum fyrir
tóman klaufaskap eins og hann
orðaði það sjálfur. En svona er nú
keppnin, ekkert má klikka í barátt-
unni á toppnum. Uli var á Vini frá
Brautartungu en Jóhann á Redda
frá Lykkegarden. Annars voru ís-
lendingar fyrirferðarmiklir í þessari
grein þótt ekki ynnist þar sigur,
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ANNAÐ árið í röð sigrar Jóhann G. Jóhannesson í slaktaumatölti
á sama hestinum Blængi frá Störtal.
skeiðmeistarakeppnin fór fram. í
150 metrunum sigldi Angantýr á
Stóra Jarpi í fyrsta spretti lygnan
sjó, vann fyrstu þrjá sprettina og
var þá búinn að tryggja sér sigurinn
og er það í þriðja sinn sem hann
leikur þann leik á skeiðmeistara-
móti og alltaf með sama hestinn;
Stóra-Jarp.
Hjónaslagur
í 250 metrunum
Ekki var þetta eins auðvelt hjá
Hinriki sem hafði þó sigur fyrir
rest í 250 metra skeiðmeistara-
keppninni. Var það helst kona hans
Hulda Gústafsdóttir sem var að
narta í hann. Skiidu þau jöfn að
stigum með ellefu stig. Hinrik vann
reyndar fyrstu tvo sprettina og virt-
ist allt ætla fara á sama veg og í
150 metrunum en í þriðja spretti
varð Hinrik þriðji en Hulda varð
önnur og hafði verið það líka í öðr-
um spretti og munaði fimm stigum
og Hinrik fór síðasta sprettinn á
hesti konu sinnar, Víði frá Brim-
nesi, en Hulda var á hesti Hinriks,
Eitli. Munaði fimm stigum á þeim
fyrir sprettinn og varð Hulda að
sigra í síðasta spretti meðan stykki
upp hjá Hinriki eða hann yrði síðast-
ur. Þetta gekk eftir og voru þau
jöfn að stigum, bæði með 11 stig.
Þá réð besti tími úrslitum og honum
hafði Hinrik náð í fyrsta spretti á
Eitli, 22,7.
Skeiðmeistarakeppnin getur boð-
HJÓNIN Hulda og Hinrik voru í harðri keppni þar sem frúin sótti
á með hverjum spretti og urðu þau jöfn að lokum. Hinrik fékk
þó sigurinn þar sem hann hafði náð betri tíma. Marion Kounafa
mótsstjóri afhendir verðlaunin.
ÞEIR hafa marga hildina háð á skeiðmeistaramótum Jóhann G.
sem hér situr Ægi frá Störtal og Angantýr Þórðarson sem situr
Stóra-Jarp frá Akureyri. Angantýr hafði sigur í 150 metra skeið-
meistarakeppninni og er það í þriðja sinn sem hann hreppir titilinn.
LOKKA frá Störtal og Jóhann G. Jóhannesson
sigruðu í A-flokki gæðinga, voru efst eftir for-
keppni og sigruðu í úrslitunum.
HERBERT Ölason og Sputnik frá Hóli sigruðu
í samanlögðum stigum þótt ekki hlytu þeir sigur
í einstakri grein.
ULI Reber sigraði í gæðingaskeiði en hér situr hann
Þráð frá Hvítárholti í úrslitum slaktaumtatöltsins.
MÖKKUR frá Varmalæk kom vel út hjá Reyni
Aðalsteinssyni í forkeppninni.
Svo vikið sé að keppninni sjálfri
þá stóð glæsihryssan Lokka frá
t Störtal efst eftir bæði forkeppni og
úrslit. Knapi var Jóhann G. Jóhann-
esson. Þessi hryssa stóð sem kunn-
ugt er efst í kynbótadómi á síðasta
. heimsmeistaramóti. í forkeppni
hlaut Lokka góðar einkunnir fyrir
allar gangtegundir, besta þó fyrir
skeið. Úrslitakeppnin var nokkuð
söguleg því mótsstjórn flýtti henni
um eina klukkustund og var það
afar illa kynnt. Höfðu sumir þeirra
sem þar áttu að mæta með hest
ekki hugmynd um þetta og mátti
‘ litlu muna að Angantýr Þórðarson
j sem keppti á Breka missti af keppn-
; inni af þessum sökum. Kom hann
■ of seint en fékk að ríða tvær um-
ferðir á tölti til að ná keppinautun-
um og fór svo að lokum að hann
í vann sig upp í annað sæti. Reynir
| Aðalsteinsson var með góða sýn-
■ ingu á Mekki frá Varmalæk í for-
í "^Veppninni í annað sætið en í úrslit-
um var hann felldur niður fyrir fjór-
takt í skeiðinu og urðu þeir að gera
sér fimmta sætið að góðu. Miklar
sviptingar urðu í úrslitunum og
voru aðeins tveir hestar í sama
sæti að loknum úrslitum og þeir
höfðu verið í að lokinni forkeppni.
Mökkur góður hjá Reyni
Jóhann G. var einnig í sigursæti
í slaktaumatölti á Blængi frá Stör-
tal en hrossin frá Störtal komu
mjög vel út á þessu móti. Verður
jn efa fróðlegt að fylgjast með
ræktuninni þar á næstu árum.
Reynir og Mökkur voru í fyrsta
sæti að lokinni forkeppni. Var
Reynir þar með feikna góða sýningu
við góðar undirtektir áhorfenda.
Deildu þeir Mökkur og Reynir öðru
sætinu með Daniel Berres Þýska-
landi á Mátti frá Króki að loknum
flrslitum. Daniel þessi hefur verið
voru fimmtán af tuttugu í úrslitum.
Fyrirkomulagið á gæðingaskeiðinu
var með ágætum. Allir keppendur
fóru einn sprett en síðan fengu 22,
áttu að vera 20, að fara seinni
sprettinn. Væri vel athugandi að
taka upp þetta fyrirkomulag hér á
landi á stærri mótum þar sem mik-
il þátttaka er í greininni. Myndi
slíkt flýta mjög fyrir framkvæmd
dagskrár.
Þriðji meistarasigur Týra
í 150 metra skeiði sigraði Lothar
Schenzel Þýskalandi á Gammi frá
Krithóli á 14 sekúndum en hann
náði þessum tíma í fyrsta spretti
og síðan ekki söguna meir því klár-
inn lá ekki hina þijá. Virðist vera
þar eitthvert styttingsvandamál á
ferðinni. Lothar gaf eftir sæti sitt
í skeiðmeistarakeppninni en fjórir
fremstu höfðu réttinn. Kom því Jói
G. inn í staðinn á Ægi frá Störtal.
Hinrik sigraði í 250 metrunum á
Eitli frá Akureyri á 22,4 sekúndum
en Irene Reber, kona Uli Reber, var
skammt undan á hryssunni Lögg
frá Bakka á 22,5.
Þótt veður liafi sloppið nokkuð
vel mótsdagana gerði dálitlar vind-
hviður á sunnudeginum og dró það
nokkuð úr stemmningunni þegar
ið upp á mikla spennu og skemmti-
lega keppni fyrir áhorfendur. Gamla
góða stemmningin sem oft hefur
ríkt í þessari grein náðist aldrei
almennilega upp og vann þar saman
frekar óhagstætt veður meðan á
keppninni stóð og eins léleg aðstaða
fyrir áhorfendur.
Góðir tímar en slök
framkvæmd
Þótt vissulega sé alltaf gaman
að fylgjast með skeiðmeistaramót-
um er ekki hægt að horfa framhjá
því að mót þetta var í lakari kantin-
um bæði hvað varðar aðstöðu og
sér í lagi framkvæmd. Áðurnefnd
breyting á dagskrá þegar úrslitum
í A-flokki var flýtt flokkast nánast
undir hneyksli því eftir keppnina
kom eins til tveggja tíma hlé og
var ekki að sjá neina þörf hefði
verið á að gera þetta. Keppendur
kvörtuðu mjög undan háu verðlagi
á öllu sem viðkom þátttöku í keppn-
inni, há skráningagjöld, leiga á að-
stöðu fyrir hrossin og fóður var
afar dýrt svo eitthvað sé nefnt. Var
talið að þetta hefði fælt marga frá
þátttöku en hún var mun lakari en
almennt hefur verið á þessum mót-
um þegar þau eru haldin í Þýska-
landi. Vallaraðstaða var það sem
viðunandi mátti kallast. Skeiðbraut-
in gaf góða tíma og ekki var annað
að sjá en hringvöllurinn væri í góðu
lagi. Á Harðarbóli er verið að
byggja upp gamalt og niðurnítt
býli í gamla Austur-Þýskalandi og
lofar uppbyggingin góðu, það sem
komið er, en líklega hefði farið bet-
ur á því að halda mót sem þetta
einu til tveimur árum seinna en
gert var. Um frekari úrslit á mótinu
vísast til þriðjudagsblaðs Morgun-
blaðsins en þar birtust heildarúrslit
mótsins.
Valdimar Kristinssori