Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 63
\
J
J
I
i
I
f
1
1
:
i
)
i
í
.
i
í
(
(
<
i
(
(
i
(
i
(
(
Morgunblaðið/Ásdís
Gæsir á snúrunum
TVÆR grágæsir og urtönd
héngu með þvottinum á snúr-
um við Bólstað á Eyrarbakka
þegar blaðamenn áttu leið þar
um í vikunni. Guðmundur Em-
ilsson sagðist hafa fengið tvær
endur þá um morguninn, en
þetta er í fyrsta skipti sem
hann fer á gæsaveiðar í haust.
Endurnar þurfa að hanga í
fjóra til fimm daga. Móðir
Guðmundar sagðist ekki vera
beint hrifin að hafa endurnar
á snúrunum, en hún yrði að
fyrirgefa stráknum því þetta
gerðist svo sjaldan.
Andri Áss
Grétarsson
skákmeistari
Hellis 1996
niunda og slðasta umferð á
Meistaramóti Hellis 1996 var tefld
þriðjudaginn 1. október. Það var
Andri Áss Grétarsson, formaður
Hellis, sem sigraði á mótinu og
hlaut 7 lh vinning í níu skákum.
Hann hlýtur þar með titilinn Skák-
meistari Hellis 1996. Bragi Þor-
fínsson, sem einungis er 15 ára;
varð í 2. sæti með 6V2 vinning. I
3.-4. sæti urðu Kristján Ó. Eð-
varðsson núverandi meistari Skák-
skóla íslands og Björn Þorfinsson.
Þeir sem lentu í sjö efstu sætunum
eru allir félagsmenn í Helli.
Meistaramót Hellis var nú háð
í 5. skipti. Skákmeistari félagsins
1995 var Snorri G. Bergsson.
Þetta er í annað skiptið sem Andri
Áss Grétarsson hreppir þennan
titil, en han sigraði einnig á fyrsta
meistaramóti Hellis, 1992.
Þátttakendur í mótunum voru
20, þar af sex með yfir 2.000 skák-
stig. Stigahæstu keppendurnir
voru Jón Garðar Viðarsson
(2.365), Andri Áss Grétarsson
(2.285), Magnús Pálmi Örnólfsson
(2.195) og Kristján Eðvarðsson
(2.175). Þeir Magnús og þó sér-
staklega Jón Garðar voru þó langt
frá sínu besta á mótinu. Þannig
hlaut Jón Garðar einungis ‘/2 vinn-
ing í síðustu fjórum umferðunum,
eftir að hafa verið í forystusveit-
inni fram að því.
Vegna þess hvað margir sterkir
skákmenn tefldu á mótinu var
óvenju góð æfing fyrir yngstu
skákmennina sem fengu umtals-
vert sterkari andstæðinga en þeir
eiga að venjast. Enginn nýtti sér
þetta tæfifæri þó eins vel og Þórir
Júlíusson (14 ára). Hann hafði
1.450 stig fyrir mótið, en meðal-
stig andstæðinga hans voru 1.928
stig. Þrátt fyrir nærri 500 stiga
mun náði Þórir 40% viningshlut-
falli og hækkar fyrir vikið um 150
stig, segir í frétt frá Taflfélaginu
Helli.
Skákstjórn á mótinu var í hönd-
úm Gunnars Björnssonar, Sigurð-
ar Áss Grétarssonar og Þorfinns
Björnssonar.
Drag-drottn-
ingar í förðun-
arkeppni
PARÐI ehf., umboðsaðili „Make
Up For Ever“, á íslandi heldur nú
í þriðja sinn árlega förðunarkeppni
á Sólon íslandus á morgun,
laugardag.
I ár verður þema keppninnar
drag-drottningar. „Drag-drottn-
ingar hafa verið að hasla sér völl
í íslensku skemmtanalífi undan-
farin ár, en erlendis hafa drag-
drottningar verið stór þáttur í
skemmtanalífi fólks. Að þessu til-
efni var Páll Óskar Hjálmtýsson,
drottning drottninganna á íslandi,
fenginn til að verða andlit keppn-
innar. Um förðun sá Anna Ther,
um hárgreiðslu sá Biggi en um
myndatöku sá Binni,“ segir í
fréttatilkynningu frá förðun-
arkeppninni.
Samstarfsaðilar „Make Up For
Ever“ keppninnar að þessu sinni
eru veitingastaðurinn Sólon ís-
landus og tímaritið Mannlíf. Kepp-
endum verður gefínn rúmur
klukkutími til að farða módelin sín.
Keppnin er öllum opin, hvort
heldur förðunar- eða snyrtifræð-
ingum eða öðru áhugafólki um
förðun. Ekkert þátttökugjald er í
keppnina.
Norðurlanda-
mót grunn-
skólasveita í
skák 1996
NORÐURLANDAMÓT grunn-
skólaveita í skák verður haldið
dagana 4.-6 október nk. í Æf-
ingaskólanum í Reykjavík. Mótið
er haldið í 19. sinn og hefur sveit
íslands_ unnið 10 sinnum til þessa.
Fyrir íslands hönd tefla sveitir
Æfingaskólans í Reykjavík og
Digranesskóla í Kópavpgi, en þær
urðu í 1. og 2. sæti á íslandsmóti
grunnskólasveita sl. vetur. Sveit
Æfíngaskólans er núverandi
Norðurlandameistari.
Aðrir keppendur eru sveitir frá
Danmörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð.
1. umferð hefst í dag, föstudag,
kl. 18, 2. umferð kl. 9 á laugar-
dag, 3. umferð kl. 15 sama dag.
Teflt verður á sömu tímum sunnu-
daginn 6. október og lýkur mótinu
kl. 20. Áhorfendur eru velkomnir.
Haustsýning
Hundaræktar-
félagsins
ÁRLEG haustsýning Hunda-
ræktarfélags íslands verður í
Reiðhöll Gusts í Kópavogi dagana
5.-6. október.
Að þessu sinni keppa 300 hund-
ar af 39 tegundum í níu tegunda-
FRÉTTIR
Menntaþing haldið í Háskólabíói og Þjóðarbókhlöðu
Til móts við nýja tíma
MENNTAMÁLARÁÐHERRA boðar
til menntaþings í Háskólabíói og
Þjóðarbókhlöðu laugardaginn 5.
október nk. sem ber yfirskriftina:
Til móts við nýja tíma. Á þinginu á
að ræða og kynna fjölmargt af því
sem er að gerast á öllum skólastig-
um.
I frétt frá ráðuneytinu segir m.a.:
„Tilgangur menntaþings er að leiða
þá saman sem áhuga hafa á mennt-
un og skólastarfi. Innan menntakerf-
isins er unnið metnaðarfullt starf
sem full ástæða er til að koma á
framfæri. í landinu fara einnig fram
lífiegar umræður um skólamál og á
einum degi verður reynt að gefa sem
flestum tækifæri til að kynnast því
um hvað þær snúast.
Menntaþing er ákjósanlegur vett-
vangur til að staldra við og líta til
þeirra miklu breytinga sem eru að
verða á skipulagi skólastarfs á ís-
landi. Unnið er að því að efla leik-
skólastigið. Grunnskólinn er alfarið
kominn í hendur sveitarfélaganna.
Framkvæmd nýrra framhaldsskóla-
laga er að hefjast. Umræður fara
fram um nýja rammalöggjöf fyrir
háskólastigið og í sömu andrá er
lagt á ráðin um uppeldisháskóla. Auk
þess er nú unnið að námskrám fyrir
grunnskólastigið og framhaldsskóla-
stigið."
Dagskrá menntaþings er eftirfar-
andi: Þingstjómandi, Sigríður Anna
Þórðardóttir, formaður menntamála-
nefndar Alþingis, setur þingið kl.
9.30. Þá munu nemendur Listdans-
skóla íslands sýna dans undir stjóm
Ingibjargar Bjömsdóttur, skólastjóra
og að því loknu ávarpar Bjöm
Bjamason menntamálaráðherra
þingið. Jón Torfi Jónasson, prófessor
við Háskóla íslands, flytur erindið:
Þróun skólakerfisins. Kl. 10.45 flytja
erindi þau Sigurður B. Stefánsson,
framkvæmdastjóri Verðbréfamark-
aðar íslandsbanka: Skólakerfið og
samkeppnisstaða íslands, Berglind
Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri
forsætisnefndar Norðurlandaráðs:
Gildi menntunar, markmið að
fræðslu og Margrét Guðmundsdóttir,
forstöðumaður þróunarsviðs Skelj-
ungs: Hlutverk fyrirtækja í menntun
starfsfólks. Að loknum erindum
verða umræður og fyrirspumir.
Eftir hádegi verða 6 málstofur í
Háskólabíói og Þjóðarbókhlöðu frá
kl. 13-15 um málaflokka sem em
ofarlega í umræðu um skólamál. Um
50 aðilar af öllum skólastigum, frá
stofnunum, samtökum og fyrirtækj-
um halda erindi og taka þátt í pall-
borðsumræðum um viðfangsefnin:
Gæði og árangur skólastarfs, Hvers
vegna símenntun? Námsgögn í nú-
tíma skólastarfi, Menntun í alþjóð-
legu upplýsingasamfélagi, Menntun
og jafnrétti og Forvamir í skólakerf-
inu.
Ýmsar sýningar verða á
menntaþingi
Á menntaþingi kynna auk þess
fíölmargir aðilar starfsemi sína:
Nemendafélög, foreldrasamtök,
skólar af ölium skólastigum, samtök,
stofnanir og fyrirtæki. Þar verða
m.a. kynnt athyglisverð þróunar-
verkefni eða nýjungar sem tengjast
skólastarfi á öllum skólastigum s.s.
á sviði upplýsingatækni í kennslu-
háttum, námsefnisgerð, gæðamat
eða nýsköpun af einhverju tagi. Um
100 aðilar taka þátt í sýningunni og
er það til marks um þann mikla
áhuga sem skólar o.fl. hafa sýnt
þinginu.
Þingið er þátttakendum að kostn-
aðarlausu og öllum opið frá kl. 8.30-
18.30.
hópum. Dómarar eru Rainer Vuor-
inen frá Finnlandi og Piero Renai
della Rena frá Ítalíu. Keppnin er
alþjóðleg, sem þýðir að hundar
hafa möguleika á að vinna sér inn
íslensk og alþjóðleg meistarastig.
Fyrst er keppt innan hverrar
tegundar. Öllum er skipt niður í
ákveðna tegundahópa, sem eru níu
talsins. í lok keppninnar keppa
þeir níu hundar sem komust í úr-
slit, um titilinn besti hundur sýn-
ingarinnar.
Á þessari sýningu verður í
fyrsta sinn útnefndur stigahæsti
hundur ársins.
Ungir sýnendur eru fleiri en
nokkru sinni áður, 28 talsins.
Ungir sýnendur eru börn á aldrin-
um 10-15 ára.
Sýningin hefst kl. 11 báða dag-
ana og lýkur um kl. 17.
Franskir
gestakokkar
PERLAN og Óðinsvé hafa fengið
til liðs við sig gestakokka frá Frakk-
landi. Þeir heita Jacques Bertrand
og Emanuel Dstrait og koma þeir
frá veitingahúsinu Les Cédres í
Lyon. Jacques er yngsti matreiðslu-
meistari í heiminum sem fengið
hefur Michelin-stjörnu, hann var
aðeins 23ja ára þegar Les Cédres
fékk Michelin-stjörnu.
Þeir munu galdra fram ýmsa
rétti að hætti Lyonbúa, úr íslensku
villibráðinni, öll fimmtudags-,
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld til 20. október.
Jafnframt verða sérvalin Cðtes
du Rhöne-vín frá M. Chapoutier á
villibráðarvínseðli okkar.
FRÁ Tískuhúsinu Gala.
■ NÝVERIÐ urðu eigendaskipti á
Tískuversluninin Gala við Lauga-
veg 101. Nýir eigendur eru Einar
H. Bridde feldskeri og Alda Sigur-
brandsdóttir pelsasaumakona.
Gala Tískuhús selur vörur frá Ester
Ken, Agatha, Electre og peysur frá
Damour, leðurbelti og slæður. Þá
hefur Gala nú hafið sölu vöru frá
finnska fyrirtækinu Eila Helén
Exclusive sem framleiðir draktir.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
PRÚÐULEIKARARNIR á sjóræningjaskipi.
Gulleyja Prúðuleikar-
anna 1 Sambíóunum
Ráðstefna fisk-
verkafólks
FISKVINNSLUFÓLK innan
Verkamannasambands íslands
heldur ráðstefnu á Hótel íslandi
laugardaginn 5. október kl. 9-17.
Fjallað verður um málefni sjáv-
arútvegs og kjaramál fiskvinnslu-
fólks.
LEIÐRÉTT
Fréttin er frá Nýherja
í FRÉTT um kaup BYKO á IBM
tölvum í viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í gær var ranglega farið
með að fréttin væri frá BYKO.
Hið rétta er að fréttin er frá Ný-
heija. Eru hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Blokkflauta og fiðla
í TÓNLISTARUMSÖGN um
kammertónleika í Norræna húsinu
sem birtist i Morgunblaðinu í gær
var ranglega sagt að Vetrarljós
eftir Mogens Christensen væri fyr-
ir blokkflautu og gítar. Það rétta
er að verkið er samið fyrir blokk-
flautu og fíðlu og var flutt af
Auði Hafsteinsdóttur og Camillu
Söderberg. Er beðist afsökunar á
þessum mistökum.
Verslun í Fenjunum
KVEIKJARAGAS sem lögreglan
í Reykjavík gerði upptækt á þriðju-
daginn var til sölu í verslun í Fenj-
unum en ekki við Lágmúla eins
og ranghermt var í frétt blaðsins
í gær. Leiðréttist það hér með.
SAMBÍÓIN Snorrabraut og Álfa-
bakka taka tii sýningar í dag, 4.
október, Guleyju Prúðuleikaranna.
Prúðuleikararnir eru komnir aft-
ur og nú er það sjávarháski með
viðeigandi sjóringjum, földum fjár-
sjóð og að sjálfsögðu gleði og söng.
Myndin er lauslega byggð á sígildu
ævintýri Robert Lous Stevenson
sem flestir kannast við.
Þegar Jim Hawkins (Kevin Bis-
hop) fær fjársjóðskort Kapteins
Flints í hendurnar frá dularfullum
sjómanni hóar hann í Gonzo og
Rizzo og liggur leiðin út á haf.
Með í för koma Squire Trelawney
(Fozzie Bear), Kapteinn Smollett
(Kermit) og einnig hinn sígildi sjó-
ræningi, Long John Silver (Tim
Currey). En vandræðin skella á
þegar Silver og kumpánar hans
ná kortinu og taka Jim sem gísl.
Það er síðan undir Kermit og félög-
um komið að bjarga þeim og finna
fjársjóðinn. Miss Piggy er ekki
langt undan því hún leikur Benjam-
ínu Gunn, drottningu vörtusvín-
anna.