Morgunblaðið - 04.10.1996, Qupperneq 70
70 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
c,
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
FRUMSYNING: INIURASIIU
CHARLIE SHEEN
^ ROJsáSILVER
I I Vertu alveg
wFy " viss um að þú
> viljir finna líf
* á öðrðum
á hnöttum áður
en þú byrjar
að leita..
Háskólabíó
HTTP://WWW.
THE ARRIVAL.COM
Einhversstaðar á Jörðinni eru geimverur búnar að koma sér
fyrir oq eru að reyna senda boð til félaga sinna úti í geimnum.
Meðalhiti jarðar fer ört vaxandi og blómi vaxin engi finnast á
miðju Suðurskaurslandinu. Eldgos er hafið í Vatnajökli.
Frábær vísindatryllir með greindarlegum söguþræði. Skrifað
og leikstýrt af David Twohy höfundi The Fuggetive.
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15.
KEÐJUVERKUN
Mikil og gó<
★ ★★
TW/
HUNANGSFLUGURNAR
FARG-0
Mynd Joal og
EXtxAn Coen
'K'w'wyr .fru
i »ito 6x.t. u,
★ ★★
A4. MflL
K ★ K1/2 OJ (ylgton
Leikstjóri: Óskarsverðlaunahafinn
Bille August (Pelle sigurvegari).
Sýnd kl. 7 og 10. Síð. sýn.
Sýnd kl. 11.15 . Sið. sýn. b. í. 16 ára
Sýnd kl. 6.50 og 9. Síð. sýn.
HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Afklippt nef og
sundurskorin eyru
>EGAR kvikmynd er tekin reyna leik-
stjóri og kvikmyndatökustjóri jafnan að
skipa myndefni sínu þannig á myndfiöt-
inn að úr verði sjónræn og dramatísk
heild; ef þessir menn vanda sig er fátt
af því sem á myndinni sést tilviljunum
háð. Þetta ættu að vera sjálfsagðir hlut-
ir en þeir eru það hins vegar ekki þeg-
ar kemur að sýningu bíómynda í sjón-
varpi. Lögun fílmunnar og tjaldsins í
bíóinu og lögun sjónvarpsskjásins er
nefnilega ekki alltaf sú sama - þegar
kemur að svokölluðum breiðtjaldsmynd-
um. Sýning breiðtjaldsmynda í sjónvarpi
býður upp á tvo möguleika: Annars
vegar að sýna myndina í réttu formi
með því að hafa feita svarta fleti fyrir
ofan og neðan myndina og hins vegar
að nota aðeins hluta breiðtjaldsflatarins
og þá yfírleitt miðjuna og skera af til
beggja hliða. Síðari aðferðin þýðir að
myndhugsun höfundanna, sem éggat
um í upphafí, er fyrir borð borin; í flar-
myndum falla persónur og hlutir burtu
og í nærmyndum vantar kannski eyru
og nef, svo dæmi séu tekin. Því miður
er þessi aðferð of mikið notuð á ís-
lensku sjónvarpsstöðvunum, nemaeinna
helst Ríkissjónvarpinu; TNT sýnir yfir-
leitt listrænni myndhugsun tilhlýðilega
virðingu líka.
Þótt breiðtjaldsmyndir í réttri lögun
verði kannski heldur litlar á skjánum
er það þó skömminni skárra en tilvilj-
anakenndur niðurskurður á myndfietin-
um. En nú kemur helgarpakkinn, klippt-
ur og skorinn:
Föstudagur
Sjónvarpið ► 22.35 Það blasir ekki
beint við að kvikmyndin Erfið æskuár
(This Boy's Life, 1993) sé byggð á
sannsögulegum endurminningum rit-
höfundarins Tobias Wolff en þeim mun
áhugaverðari er þessi heiilandi þroska-
saga, í senn skemmtileg og drama-
tísk. Hinn afbragðs góði leikari Leon-
ardo DiCaprio túlkar Wolff ungan sem
hrekst með móður sinni (Ellen Barkin)
frá einum stað til annars uns þau setj-
ast að í afskekktu plássi og hún hefur
sambúð með hráslagalegum náunga
sem Robert DeNiro gerir mögnuð skil.
Leikstjóri Michael Caton-Jones.
★ ★ ★
Stöð 2 ►13.00 og 0.20 Mel Brooks
er brokkgengur háðfugl en Að vera
eða vera ekki (To Be OrNot To Be,
1983), sem hann bæði framleiðirog
leikur annað aðalhlutverkið í ásamt
eiginkonunni Anne Bancroft, er hin
bærilegasta skemmtun. Þetta er end-
urgerð samnefndrar gamanmyndar
Ernst Lubitsch frá 1942 um pólskt
leikarapar sem snýr á útsendara Hitl-
ers. Leikstjóri er Alan Johnson, sem
áður hafði m.a. stýrt dansatriðum í
fyrstu mynd Brooks, The Producers.
★ ★■/2
Stöð 2 Robert Altman, aldraður vill-
ingur amerískrar leikstjórastéttar,
hafði slegið eftirminnilega í gegn með
bæði The Player (1992) og Short
Cuts (1993) áðuren hanngerði Beint
af slánni (Pret-á-Porter, 1994). í
þessari mynd reynir hann að tvinna
saman á svipaðan hátt og í Short
Cuts marga persónuþræði og er nú
tískuheimurinn í Paris kominn í stað
mannlífsins í Los Angeles. Þrátt fyrir
firnavel skipaðan og fjölmennan leik-
hóp verður ekki neitt úr neinu og flest
missirmarks. ★
Stöð 2 ►22.30 Bandaríski leikstjór-
inn Richard Fleischer telst seint til
snillinga en hann hefur gert ýmsar
fagmannlegar afþreyingarmyndir og
best hefur honum tekist upp í raun-
sæislegum glæpamyndum byggðum á
sönnum atburðum eins og Compulsion
og The Boston Strangler. í Rillington-
gata 10 (10, Rillington Place, 1970),
þar sem Richard Attenborough túlkar
fjöldamorðingjann John Christie frá
5. áratugnum í Bretlandi, er boðið upp
á þokkalega spennandi, sálfræðilegt
melódrama. ★ ★VI
Stöð 3 ►20.25 og 22.40 Hvorki
spennumyndin Um miðnæturbil (At
The Midnight Hour) né framhalds-
myndin Lögfræðingur mafíunnar
(Shattered Promises), sem sýnd verður
í kvöld og annað kvöld, ná í handbæk-
ur, en góðir leikarar eru í þeim báðum.
Stöð 3 ►O.IOTimMathesonergeð-
þekkur leikari sem orðinn er sérfræð-
ingur í að túlka í spennumyndum gerð-
um fyrir sjónvarp eða kapal veikgeðja
menn sem láta draga sig á tálar. Það
gerir hann einnig í Svikamyllu (Dying
To Love You, 1994), þar sem hann
lendir í kröppum dansi eftir að hafa
auglýst í einkamáladálkum. Rútínuaf-
þreying. ★ ★
Sýn ^21.00 Óvenjuleg amerisk
gamanmynd og gerð fyrir tíkalla er
Astarraunir (GoFish, 1994) umtvær
lesbíur í leit að félagsskap sem finna
hvor aðra, önnur er frökk en hin feim-
in. Ég hef ekki séð þessa en Maltin
segir leikstjórann Rose Troche lofa
góðu en hún skrifar einnig handritið
ásamt aðalleikkonunni Guinevere
Tumer. Maltin gefur ★ ★ ★ (af fjór-
um) en Martin og Potter eru ekki jafn-
hrifin; segja myndina frumstæða og
klunnalega og illa leikna. Þau gefa
★ ★ 'h (af fimm mögulegum).
Sýn ►23.30 Eldur í augum (Eyes
Of Fire, 1983) er nokkuð undarleg en
ekki leiðinleg hrollvekja úr villta vestr-
inu, þar sem landnemar eiga í höggi
við galdra og afturgöngur fyrri land-
nema. Aðalhlutverk Dennis Lipscomb
og Guy Boyd. Leikstjóri Avery Cro-
unse. ★ ★
Laugardagur
Sjónvarpið ^21.20 Breski stórleik-
arinn Derek Jacobi er upplagður sem
bróðir Cadfael, miðaldamunkur og
spæjari í sjónvarpsmyndum eftirfræg-
um sakamálasögum. Bróðir Cadfael:
Rósirnar (Cadfaei: The Rose Rent,
1995) er því tilhlökkunarefni.
Sjónvarpið ►22.40 Franski leik-
stjórinn Pierre Schoendorffer er mikill
áhugamaður um sögur úr styijöldum
og hefur m.a. gert mynd um þátttöku
Frakka í Víetnamstríðinu. í Or-
ustunni um Dien Bien Phu (Dien
Bien Phu, 1991) e r viðfangsefni hans
hrakfarir landa hans á sömu slóðum,
þ.e. í Indókína árið 1954. Mér er
ókunnugt um árangurinn.
Stöð 2^15.00 Ævintýramyndin
Kall óbyggðanna (Call OfThe Wild,
1992) er sú fjórða í röðinni sem gerð
er eftir samnefndri skáldsögu Jacks
London um hrakningar ungs manns
og hunds í óbyggðum Alaska. Það
lofar ekki góðu að leikstjórinn Michael
Uno, sem raunar hefur gert ágætar
sjónvarpsmyndir, felur sig hér bak við
hið illræmda dulnefni Alan Smithee,
en Martin og Potter gefa þó ★ ★ ★
(af fimm).
Stöð2 ►21.05 - Sjáhértil hliðar.
Stöð 2 ►23.00 Ágæta skemmtun
má hafa af hasarmyndinni Banvænn
fallhraði (Terminal Velocity, 1994),
þar sem Charlie Sheen leikur kennara
í fallhlífarstökki sem hrapar inn í
harðsnúna atburðarás þegareinn af
nemendum hans - sú fagra og fína
Nastassja Kinski - virðist brotlenda
í kennslustund. Húmor í hæfilegum
hlutföllum. -k-k'h
Stöð 2 ►0.40 Rofinn (The Switch,
1992) e r ein af þessum Viðbrigðin (
lífi heiluhrausts manns sem hefur allt
til alls en lamast í slysi-myndum.