Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Stefnt að því að bjóða út starfsleyfi fyrír annað GSM-farsímakerfi fyrír áramót Samkeppni við P&S getur hafist fyrir mitt næsta ár Morgunblaðið/Kristinn Frá ráðstefnu Pósts og síma, f.v. Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, Halldór Blöndal samgönguráðherra og Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri Sýnar sem annaðist fundarsljórn. Fyrir aftan þá er Frosti Bergsson, framkvæmdasljóri Opinna kerfa sem var einn ræðumanna á ráðstefnunni. HALLDÓR Blöndal, samgönguráð- herra, segir vilja sinn standa til þess að útboð á starfsleyfi til reksturs annars GSM-farsímakerfis til viðbót- ar við kerfi Pósts og síma verði aug- lýst fyrir áramót. Nýtt GSM-þjón- ustufyrirtæki geti því tekið til starfa eigi síðar en 1. júlí á næsta ári. Samgönguráðherra skýrði frá þessu á ráðstefnu Pósts og síma um ijar- skiptaþróun sem haldin var í gær í tilefni af því að 90 ár eru liðin frá lagningu sæsíma til íslands. „Fleiri en eitt símafyrirtæki ann- ast nú GSM-þjónustu í nálægum löndum og höfum við leitað til Nor- egs og Danmerkur um fyrirmynd að því hvernig slík samkeppni verði innleidd hér á landi og verður það gert á grundvelli útboðs,“ sagði ráð- herra í ávarpi sínu. „í janúar tókust samningar við Andersen Manage- ment A/S í Kaupmannahöfn um undirbúning og frágang útboðsins, en VSÓ rekstrarráðgjöf hefur einnig komið að verkinu. Valið á fyrirtæk- inu réðst af reynslu þess á þessu sviði en það sá um viðlíka útboð fyrir símastjórnimar í Danmörku, Hollandi, írlandi og Austurríki og hefur raunar víðar komið við sögu. Utboðsgögn munu liggja fyrir á næstu vikum en áður en frá þeim er endanlega gengið er nauðsynlegt að taka afstöðu til einstakra ákvæða eða skilyrða sem við kunnum að vilja setja vegna fámennis okkar og stijálbýlis. Ég hef gengið út frá því að eitt starfsleyfi verði gefið út til viðbótar starfsleyfi Pósts og síma, sem er sú leið sem Norðmenn, Dan- ir og raunar fleiri þjóðir hafa farið.“ Þá kom fram að leyfishöfum verður gert að greiða þann kostnað sem leiðir af undirbúningi útboðsins. Samgönguráðherra fjallaði í ávarpi sínu sérstaklega um breytta stöðu Pósts og síma þegar fyrirtæk- inu verður breytt í hlutafélag um næstu áramót. „Ástæða er til að leggja áherslu á að um leið og Póst- ur og sími hf. tekur til starfa munu bein afskipti samgönguráðuneytisins af rekstri Pósts og síma heyra sög- unni til. Á hinn bóginn verður hlut- verk þess að setja almennar leikregl- ur sem aðilum verður gert að fara eftir og tryggja að keppinautar hafi aðgang að grunnfjarskiptanetinu á sama grunni. Ráðherra mun vissu- lega skipa félaginu stjórn, en henni verður síðan falið að reka félagið á almennum viðskiptagrunni með hagsmuni eigenda, viðskiptavina og starfsmanna að leiðarljósi. Það væri óeðlilegt að banna Pósti og síma hf. að reka starfsemi á einhveiju til- teknu sviði sem símafyrirtæki í öðr- um löndum telja eðlilegan þátt í starfsemi sinni.“ Ekkert því til fyrirstöðu að veita þjónustu á alnetinu Samgönguráðherra sagði að unn- ið hefði verið kappsamlega að því að undirbúa Póst og síma fyrir vænt- anlega samkeppni. „Ég hef verið þeirrar skoðunar að nauðsynlegt sé að fjárhagslegur aðskilnaður þjón- ustu í einkarétti og samkeppni sé raunverulegur og gagnsær til þess að leikreglurnar séu skýrar enda sé það í samræmi við reglur Evrópu- sambandsins og íslenska samkeppn- islöggjöf. Þessi aðskilnaður hefur nú tekist á fjarskiptasviðinu. Þess vegna var ekkert lengur því til fyrir- stöðu að síminn færi að veita al- menna þjónustu á alnetinu og opn- aði nýja gátt til umheimsins, í þessu tilviki Bandaríkjanna. Það nær auð- vitað engri átt að eina gáttin út úr landinu byggi á þjónustu erlends samkeppnisaðila Pósts og síma eða sænska símafyrirtækisins, TELIA, en þannig var nú ástandið." Fullt frelsi í fjarskiptum 1. janúar1998 Þá skýrði samgönguráðherra frá því að á næstu dögum yrði iagt fram frumvarp um ný fjarskiptalög á Al- þingi. Tilgangurinn er sá að sam- ræma löggjöfina tilskipunum Evr- ópusambandsins, en þar er gert ráð fyrir að fullu frelsi verði komið á í fjarskiptum og að 1. janúar 1998 verði einkaréttur ríkisins á því að eiga fjarskiptanet og reka almenna talsímaþjónustu afnuminn. „Með afnámi einkaréttar ríkisins á sviði fjarskipta er talið nauðsyn- legt að fela sérstökum aðila stjórn- sýslu- og eftirlitshlutverk á því sviði. Því verður komið á fót sérstakri stofnun, Póst- og fjarskiptastofnun, sem skuli veita leyfi til fjarskipta og póstþjónustu og hafa eftirlit með því að leyfishafar uppfylli og virði þau skilyrði sem rekstrarleyfunum fylgja. Stofnunin skal einnig vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld og ráðu- neyti á sviði fjarskipta og póstmála. Hún skal hafa eftirlit með viðskipta- skilmálum leyfishafa, gjaldskrám og bókhaldi eftir því sem við á.“ Gæðastjórnunar- félag íslands Myndfund- urmeð J.M. Juran GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ís- lands mun gangast fyrir myndfundi með doktor J.M. Juran fimmtudag- inn 10. október næstkomandi í sam- vinnu við VSÓ rekstrarráðgjöf og Póst og síma. Fundinum verður varpað um gervitungl um allan heim og munu þáttakendur eiga kost á að taka þátt í umræðum. Fundurinn verður haldinn á hótel Loftleiðum og hefst klukkan 17 og lýkur 19.30. í fréttatilkynningu segir: „Dr. J.M. Juran er flestum áhugamönnum um gæðastjórnun kunnur, enda er hann einn af helstu frumkvöðlum gæðastjórnunar og hefur haft mikil áhrif á þróun gæðastjórnunar á þess- ari öld. Yfirskrift myndfundarins er fortíðin, nútíðin og framtíðin. Auk erinda dr. Juran munu virtir sér- fræðingar í gæðastjórnun halda er- indi og taka þátt í pallborðsumræð- um, t.d. Galvin og dr. Godfrey." Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Gæðastjórnunarfé- lags íslands, þar sem skráning fer einnig fram. ♦ ♦ ♦--- Parretti sakfelldur Wilmington, Deleware. Reuter. KVIÐDÓMUR f Delaware hefur fundið ítalska fjármálamanninn Giancarlo Parretti, fyrrum yfírmann kvikmyndaversins Metro-Goldwyn- Mayer í Hollywood, sekan um að breyta sönnunargögnum og bera ljúgvitni. Akærurnar eiga rætur að rekja til réttarhalda 1991 þegar brottvikn- ing Parrettis úr stöðunni hjá MGM var staðfest. Hann á yfir höfði sér 10 ára fangelsi. Dómur verður kveð- inn upp 18. nóvember. Forstjórí prentsmiðjunnar Odda Vélin seld með Forstjórí Telenor símafélagsins í Noregi Telenor reiðubúið í nánara samstarf við P&S í því skilyrði að hún færi úrlandi ÞORGEIR Baldursson, forstjóri prentsmiðjunnar Odda, segir að samkomulag sem gert var um sölu á bókbandsvél við hollenska véla- kaupmenn hafi verið gert með því skilyrði að vélin yrði seld úr Iandi og ekki til aðila hérlendis. í Morg- unblaðinu á laugardag kom fram að undirréttur er nú í annað sinn með til umfjöliunar kröfu bókbandsstof- unnar Flateyjar að fá afhenta bók- bandsvél sem fyrirtækið keypti af hollenskum vélakaupmönnum, sem aftur höfðu keypt vélina af prent- smiðjunni Odda. „Staðreyndin er sú að það var gerður kaupsamningur við hollenskt fyrirtæki sem tók að sér að selja fyrir okkur þessa vél úr landi. Við hefðum aldrei selt Flatey þetta. Við seldum þessu fyrirtæki vélina með því skilyrði að hún færi úr landi, sem er mjög algengt. Ef við hefðum ætiað að selja vélina hér á landi hefðum við að sjálfsögðu gert það sjálfir. Við þurftum ekki Hollendinga til þess,“ sagði Þorgeir í samtali við Morgunblaðið. Kusu að bijóta samkomulagíð Hann sagði að Hollendingarnir hefðu kosið að bijóta þetta sam- komulag og framselt samninginn til Flateyjar. Oddi hefði hins vegar aldrei selt bókbandsstofunni Flatey neitt og kæmi þetta því eiginlega ekki við. Hins vegar væri Flatey með hjálp lögmanna sinna að láta reyna á samninginn. Samningurinn væri hins vegar gerður við hollenskt fyrirtæki með framangreindu skil- yrði og við það skilyrði hlytu Hol- lendingamir að standa. Þorgeir sagði að það væri ekki rétt sem komið hefði fram í frétt Morgunblaðsins að það yrði einungis ein vél eftir í landinu; í Odda, fyrir utan þá sem seld hefði verið til Hollands. Rétt væri að auk hennar væm tvær aðrar vélar til í landinu, önnur í Odda og hin hjá félagsbók- bandinu Bókfell og það væm engan vegin nægjanleg verkefni fyrir þess- ar vélar í landinu. „Þegar við gerð- umst aðilar að prentsmiðjunni Grafík vakti það fyrir okkur að ná meiri hagræðingu í bókaframleiðslu og betri nýtingu á vélar og tæki sameig- inlega," sagði Þorgeir. Aðspurður hvort það væri tekið fram í kaupsamningnum um vélina að það væri skilyrði að hún yrði ekki seld hér á landi sagði hann svo ekki vera. Hins vegar væri það tek- ið fram í samkomulagi sem gert hefði verið við Hollendingana þegar þeim var falið að selja vélina að hún yrði ekki sett upp á íslandi. TORMOD Hermansen, forstjóri norska síma- fyrirtækisins Telenor, telur að minni símafé- lög á borð við Póst og síma þurfí að leita eftir samstarfi við _ erlend símafyrirtæki. Á þann hátt geti þau í senn styrkt samkeppnis- stöðu sína og boðið við- skiptavinum sínum þjónustu um allan heim. „Ég er persónulega fylgjandi nánara sam- starfi milli Pósts og síma og Telenor. Það myndi fela í sér já- kvæða niðurstöðu fyrir báða aðila,“ sagði hann í samtali við Morgun- blaðið. Hermansen sagði að slíkt samstarf hefði ekki verið rætt form- lega ennþá við Póst og síma, en frumkvæðið yrði að koma frá ís- landi. Telenor væri reiðubúið að heíja slíkar viðræður ef og þegar óskir bærust þar að lútandi. Telenor hefur átt í samstarfí við danska símafélagið TeleDanmark og breska fyrirtækið British Telecom (BT) undanfarin ár. Sam- starfið við BT þykir hafa tvo megin- kosti í för með sér. BT hætti við að færa út kvíarnar í Noregi og varð því ekki helsti keppinauturinn á heimamarkaði Telenor eins og við blasti. í öðru lagi hefur Telenor fengið aðgang að mjög góðri alþjóð- legri þjónustu fyrir við- skiptavini sína. Telenor og TeleDanmark hafa síðan snúið bökum saman í samkeppninni við sænska fyrirtækið Telia sem hefur lýst því yfir að öll Norðurlöndin séu heimamarkaður sinn. Telenor rekið á viðskiptalegum grundvelli Tormod Hermansen hélt fyrirlestur á ráð- stefnu Pósts og síma í gær um íjar- skiptaþróun þar sem hann lýsti stöðu Telenor um þessar mundir. Þar kom m.a. fram að fyrirtækinu var breytt úr ríkisstofnun í hlutafé- lag þann 1. nóvember árið 1994, en væri að fullu í eigu norska ríks- ins. Frá þeim tíma hefði reksturinn hins vegar tekið miklum stakka- skiptum. „Stjómmálamenn áttuðu sig á því að það var nauðsynlegt að reka fyrirtækið á viðskiptalegum grundvelli í stað þess að skilgreina það sem hluta af þjónustu hins opin- bera,“ sagði Hermansen m.a. í ræðu sinni. Hann skýrði frá því að velta fyrir- tækisins hefði vaxið úr tæpum 17 milljörðum norskra króna frá árinu 1992 í tæpa 20 milljarða árið 1995 eða liðlega 200 milljarða íslenskra króna. Á þessu ári yrði veltan ná- lægt 22 milljörðum. Veltan hefði aukist um 10% á ári þrátt fyrir lækk- un gjaldskrár í fjarskiptum sem rekja mætti til aukinnar framleiðni og út- víkkunar starfseminnar inn á ný svið. , Telenor hefur á síðustu áram keypt fjölmörg fyrirtæki á sviði fjarskipta, > gagnaflutninga og annars konar ) upplýsingatækni, ýmist að hluta eða öllu leyti. Um 60 fyrirtæki tilheyra nú Telenor- samsteypunni. Meðal þeirra fyrirtækja sem Telenor hefur keypt á undanfömum áram er Tele- nor Comma AS, en það er sá hluti af rekstri Norsk Data sem enn er í gangi. Starfsemi P&S færð út fyrir landsteinana Halldór Blöndal, samgönguráð- * herra vék í ávarpi sínu á ráðstefn- unni nokkuð að samstarfi Pósts og síma við erlend símafélög og sagði m.a. að vitaskuld myndi Póstur og sími hf. að reyna að halda sínum hlut með því að einbeita sér að heimamarkaðnum. „En það er ekki nóg. Síminn hlýtur líka að þreifa fyrir sér um samstarf og samvinnu ' á nýjum grandvelli við alþjóðleg ) símafyrirtæki til þess að ná til sín | veltu og viðskiptum í staðinn fyrir þau sem tapast hér heima.“ Tormod Hermansen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.