Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 37 HESTAR dóttur Vordísar, en hún sló eftir- minnilega í gegn á fjórðungsmótinu í sumar. Sagði hann Eydísi hafa farið undir Galsa frá Sauðákróki. Og hvers vegna? „Jú, þau ættu að bæta hvort annað upp,“ svarar Ein- ar að bragði „Galsi er með léttari byggingu, töltið betra í Eydísi, vek- urðin meiri í Galsa og bæði eru þau öskuviljug. Svo er Galsi afar athygl- isverður hestur og aldrei að vita hvenær hann hverfur úr landi,“ sagði Einar að endingu. Þá var næst borið niður hjá Sveini Guðmundssyni á Sauðárkróki en allar helstu valkyijurnar af eldri kynslóðinni sem garðinn gerðu frægan fyrir tveimur áratugum eða svo eru óðum að kveðja þennan heim og yngri hryssurnar farnar að bera hitann og þungann af metn- aðarfullu ræktunarstarfi Sveins og Guðmundar sonar hans. Fjölmörg stóðhestsefni á Króknum Hervör er síðasta Síðudóttirin sem er á lífi og telst til eldri kyn- slóðarinnar í stóði Sveins. Hún var geld í vor en var haldið undir Ófeig frá Flugumýri í sumar en kom geld eftir ítrekaðar tilraunir og var þá haldið undir fola undan Ofeigi og Kröflu. Var hún hjá honum fram á haust og sagðist Sveinn ekkert vita hvaða árangur það hefði borið en úr þessu væri ekkert annað að gera en bíða og vona það besta. Undan Hervöru er til veturgamall hestur rauðblesóttur að lit undan Fána frá Hafsteinsstöðum. Einnig er til und- an henni og Kjarval, tvævetur brún- skjóttur myndarhestur, að mati Sveins. Þá er til rauð hryssa undan henni og Otri sem fer á fjórða vet- ur tvær hryssur fjögra og fimm vetra undan Kjarval og Anga. Nýr Galsi á leiðinni? Gnótt móðir Galsa fór í sumar undir Ófeig á nýjan leik og mun vera fylfull en var geld í vor. Til er undan henni og Galdri veturgam- all foli, svartur og gullfallegur sem folald að sögn Sveins en hann var seldur suður. Þá er til undan henni tvævetur foli undan Hrafni frá Holtsmúla og má gera ráð fyrir að fylgst verði af áhuga með honum. Guðmundur sagði að sér litist vel á þann grip því þar væri á ferðinni góð blanda. Herva er nú með fyli við brúnum þriggja vetra fola frá Miðsitju und- an Kröflu og Otri. Sagði Guðmund- ur þar á ferðinni vígafola sem Smið- ur héti og yrði hann hissa ef hann ætti ekki eftir að láta verulega að sér kveða á næstu tveimur árum. Þá er til undan henni rauðstjörnótt hestfolald undan Hrannari frá Kýr- holti, veturgamall brúnhöttóttur undan Galdri. Tveggja vetra foli er til undan Hervu og Kjarval sem Guðmundur taldi tæplega með nógu góða byggingu að svo komnu máli. Svo væri einn Ófeigssonur Hilmir fjögra vetra mjög fallegur hestur sem byrjað væri að temja og lofaði góðu. Þeir feðgar hafa þegar feng- ið folöld undan þeim hesti og segir Guðmundur hann gefa góð folöld. Að sjálfsögðu eru allir folarnir hjá þeim feðgum óvanaðir og má því ætla að lítið lát verði á stóðhesta- framleiðslunni á Sauðárkróki á næstu árum. Glókolla og Kolbrá með fyli Þá var röðin komin að mæðgun- um frá Kjarnholtum, Glókollu og Kolbrá. Guðný Höskuldsdóttir upp- lýsti að sú eldri, Glókolla, hefði verið geld í vor eftir að hafa verið hjá feðgunum frá Þúfu Orra og Þorra, hins vegar tókst betur til í ár eftir vist hjá Óði frá Brún. Var staðfest eftir ómskoðun að hún væri með fyli. Undan henni er til veturgömul brún hryssa undan Hrafni frá Holtsmúla, sem sagt al- systir Kolbrár og Kolfinns. Tveggja vetra bleikálóttur foli undan Ófeigi °g þriggja vetra glæsilegur foli undan Svarti frá Unalæk sem verð- ur væntanlega taminn í vetur. Þá var tamin og sýnd í vor fjögra vetra hryssa undan Pilti frá Sperðli sem fékk 7,76 i einkunn. Kolbrá var einnig geld í vor en henni var ekki haldi í fyrra þar sem hún kastaði ekki fyrr en um miðjan september. En nú er hún með stað- fest fyl sem til varð eftir ástarfund með Galdri frá Laugarvatni. Þá er til undan henni bleikálótt hryssa undan Reyk frá Hoftúni, tveggja vetra foli undan Ófeigi frá Flugu- mýri en þær mæðgur fóru saman undir hann fyrir þremur árum. Þá var byijað að temja lítillega fjögra vetra fola undan henni og Oddi frá Selfossi. Árið eftir að hann fæddist var Kolbrá geld. Guðný sagði mæð- gurnar við góða heilsu, Glókolla orðin tuttugu og tveggja en Kolbrá væri átján vetra. Þær héldu ágæt- lega og er því ekki annað að ætla en þær eigi eftir að skila enn nokkr- um gæðingsefnum af sér áður en yfir lýkur. Albróðir Hjörvars lofar góðu Að þessu sinni endum við á Ket- ilsstöðum og var Jón Bergsson beð- inn að upplýsa hvað komið hefði út af Hugmynd síðustu árin en hún er í eigu Bergs sonar Jóns og lík- lega eitt þekktasta hrossið úr Ket- ilsstaðaræktuninni. Jón sagði að Hugmynd hafa verið gelda i vor en henni hafí verið haldið undir Hrann- ar frá Höskuldsstöðum á síðasta ári. í maí hafi hún hins vegar verið keyrð alla leið á Sauðárkrók þar sem henni var haldið undir Hilmi sem var hér að framan getið. Farið var inn í hryssuna fyrir skömmu og staðfest að þar væri fyl svo þeir feðgar Jón og Bergur geta því glaðst yfir því. Þá sagði Jón að til væri rauð hryssa veturgömul undan Hugmynd og Gusti frá Hóli, tvævet- ur jörp hryssa hafi hins vegar far- ist þegar hún setti sig í Lagarfljót- ið í vor og fannst dauð. Sagði Jón algengt að unghryssur þarna leit- uðu í fljótið til að sinna kalli náttúr- unnar og syntu þá gjaman fyrir girðingar í leit að stóðhesti en þessi hefði líklega ætlað yfir fljótið og sprengt sig. Sagði Jón þetta mikið vandamál og væru þeir feðgar fam- ir að loka hryssurnar í minni hólfum og gefa þeim meðan þær væru álægja. Þá er til þriggja vetra hryssa undan Toppi frá Eyjólfsstöðum og Hugmynd og rúsínan í pylsuendan- um væri fjögra vetra stóðhestur rauður albróðir Hjörvars frá Ketils- stöðum sem efstur stóð í A-flokki gæðinga á fjórðungsmótinu í sum- ar. Væri hann almennt talinn fal- legri en Hjörvar en hann fékk 7,96 í einkunn fyrir byggingu í vor en ekki var hægt að ríða honum til dóms vegna óhapps stuttu fýrir dóma sagði Jón. Hér hafa nokkrar af mörgum frægum og góðum hryssum verið teknar til umfjöllunar og væri vel við hæfí að endurtaka leikinn því af nógu er að taka og mjög forvitni- legt fyrir lesendur að fá að skyggn- ast örlítið baksviðs á það sem er gerast í hrossaræktinni og fá að taka þátt í hinum stóm vonum sem bundnar eru við þessi ungu hross sem hér hefur verið getið um. Valdimar Kristinsson Arnar Geir vann einmenninginn Brids Bridshöllin ÍSLANDSMÓT í EINMENNINGI íslandsmótið í einmenningi var hald- ið 5.-6. október í Þönglabakka 1. ARNAR Geir Hinriksson varð á sunnudag íslandsmeistari í ein- menningi eftir harða baráttu við Þóri Leifsson og Erlend Jónsson, sem enduðu í 2. og 3. sæti. 80 spilarar tóku þátt í mótinu. Eftir fyrstu lotuna hafði Ragnheið- ur Nielsen forustuna með 709 stig. Helgi G. Helgason var í 2. sæti með 705 stig og Erlendur Jónsson í 3. sæti með 688. Erlendur náði síðan forastuna í 2. lotu og að loknum 60 spilum af 90 var hann með 1320 stig, Eggert Bergsson var í 2. sæti með 1282 stig og Helgi G. Helgason í 3. sæti með 1275. Arnar Geir var í því 16. með 1219 stig. í þriðju og síðustu lotunni á sunnudag gekk Erlendi hins vegar ekki sem best meðan Arnar Geir og Þórir Leifsson skoruðu látlaust. Þeir sátu saman í vörninni í þessu spili gegn íslandsmeistaranum frá í fyrra, Magnúsi Magnússyni: Norður ♦ ÁDG1053 V3 ♦ 932 ♦ D106 Vestur ♦ 96 V ÁG542 ♦ G5 ♦ ÁG52 Austur ♦ K42 V10976 ♦ 874 ♦ 873 Suður ♦87 ♦KD8 ♦ÁKD106 ♦K94 Magnús varð sagnhafi í 3 grönd- um í suður eftir að Amar Geir í vestur opnaði á 1 hjarta. Arnar spilaði út hjarta á níuna og drottn- ingu og Magnús svínaði spaða sem Þórir gaf svellkaldur. Magnús fór þá heim á tígul og þótt hann gæti nú að öllum líkindum tryggt sér 9 slagi með því að fría laufslag ákvað hann að spila upp á yfirslagina enda ljóst að 4 spaðar stæðu. Hann svínaði því spaða aftur en nú tók Þórir með kóng og spilaði hjarta í gegn á kóng og ás. Amar tók hjartagosann og spil- aði meira hjarta og Magnús henti af rælni öllum laufunum í blindum enda hélt hann að Arnar yrði áfram inni. En Þórir tók óvænt fjórða hjartaslaginn á sexuna og spilaði laufí gegnum sagnhafa sem fór á endanum fimm niður. Við annað borð sat Erlendur einnig í vöm gegn 3 gröndum með austurspilin. Þar spilaði vestur út skólar/námskeið skjalastjórnun tungumál ■ inngangur að skjalastjórnun. Námskeið, haldið 21. og 22. október (mánud. og þriðjud.). Gjald kr. 11.000. Bókin „Skjalastjórnun" innifalin. Skráning hjá Skipulagi og skjölum í síma 564 4688, fax 564 4689. ENSKUSKÓUNN Túngötu 5. tónlist ■ Píanókennsla. Einkakennsla á píanó og í tónfræði. Upplýsingar og innritun í sfaa 553 1507. Anna Ingólfsdóttir. Arnar Geir Hinriksson laufí sem sagn- hafi tók heima og svínaði spaða. Er- lendur gaf og sagnhafi fór heim á tígul og svínaði aftur spaða. Nú tók Erlendur með kóng og skipti í hjarta og sagn- hafí fékk aðeins 8 ! slagi sem gaf Erlendi góða skor. Það nægði honum þó ekki til að halda forustunni og þetta var loka- röðin: Arnar G. Hinriksson 1924 Þórir Leifsson 1909 ErlendurJónsson 1889 Vilhjálmur Sigurðsson 1852 RagnheiðurNielsen 1848 JensJensson 1845 Sveinn Ragnarsson 1844 Ólafur Steinason 1842 Rúnar Einarsson 1849 Þröstur Ingimarsson 1833 Sveinn R. Eiríksson stýrði mótinu en Jakob Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Bridssambandsins, afhendi verðlaun í mótslok. Guðm. Sv. Hermannsson BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Reykjavíkur Miðvikudaginn 2. október var spil- aður tölvureiknaður Mitchell með forgefnum spilum. 32 pör spiluðu 14 umferðir með 2 spilum á milli para. Meðalskor var 364 og efstu pör voru: NS Aðalsteinn Jörgensen - Ásmundur Pálss. Oddur Hjaltason - Hrólfur Hjaltason Ómar Olgeirsson - Eyþór Jónsson Unnur Sveinsd. - Inga Lára Guðmundsd. Guðbjöm Þórðarson - Jens Jensson AV Helgi Sigurðss. - Sigurður B. Þorsteinss. Baldvin Valdimarss. - Hjálmtýr Baldurss Kjartan Jóhannsson - Helgi Hermannsson 407 ísak Öm Sigurðss. - Jón St. Gunnlaugss. 405 Dúa Ólafsdóttir—Þórir Leifsson 402 Miðvikudaginn 9. október verður spilaður Monrad-Barómeter og sama kvöld verður bryddað upp á nýrri hliðarkeppni: Bikartvímenn- ingur. Pör verða dregin handahófs- kennt hvert á móti öðra og það par sem fær hærra skor kemst áfram í næstu umferð, sem verður spiluð miðvikudaginn þar á eftir. SPILAÐUR var Mitchell-tvímenning- ur þriðjudaginn 1. okt. 24 pör mættu. Úrslit: N/S JónAndrésson-ValdimarÞórðarson 300 ÞórarinnÁmason-Ólafurlngvarsson 271 Sigriður Pálsd. - Eyvindur V aldimarsson 250 A/V Eysteinn Einarsson - Bergsveinn Breið§örð 251 Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 247 Þórhildur Magnúsdóttir - Siprður Pálsson 239 Meðalskor 216 Spilaður var Mitchell-tvímenningur föstudaginn 4. okt. 20 pör mættu. Úrslit: 453 N/S Rafn Kristjánsson - Oliver Kristófersson 254 417 Eggert Einarsson - Karl Adolfsson 237 400 Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórsson 229 395 A/V 393 Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 282 Sæmundur Bjömsson - Jón Andrésson 247 487 Ragnar Halldórsson - Stefán Jóhannesson 246 411 Meðalskor 216 BILSKURSHURÐIR ISVAL-BORGA SHf HÖFÐABAKKA9, 112 REYKJAVÍK SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751 STOFNANIR - EINSTAKLINGAR ávallt á útsölu mikið úrval af bútasaumsefnum frá 296 kr. og fataefni frá 150 kr. m. VIRKA Mörkin 3, Sími 568 7477 Opið mánud.-föstud kl. 10-18. Laugard. kl. 10-14. Hin vinsælu enskunámskeið eru að hefjast. ★ Áhersla á talmál. ★ 5 eða 10 nemendur hámark í bekk. ★ 8 kunnáttustig. Viðskiptaenska, rituð enska. Einnig er í boði stuðningskennsla fyrir unglinga, enska fyrir bðrn 6-12 ára og enskunám í Englandi. Enskir sérmenntaóir kennar- ar. Markviss kennsla í vinalegu um- hverfi. Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar i síma 552 5330. Premium PC teupte I fHSvu I S Turnkassi Pentium 133 örgjörvi 16MB ED0 minni 1280MB diskur 2MB PCI S3 skjákort 8 hraða CD-drif Soundblaster 16VE 10W Hátalarar 15" hágæða litaskjár Lyklaborð og mús Windows 95 uppsett Aðeins kr. 144.900 stgr. Digital á íslandi Vatnagarðar 14-104 Reykjavík Sími 533-5050 - Fax 533-5060
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.