Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 23
Leiðtogafundur ESB í Dublin
Staðið við ráðstefnulok í júní
Dublin. Reuter.
LEIÐTOGAR aðildarríkja Evrópu-
sambandsins ákváðu á fundi sínum
í Dublin á írlandi um helgina að
halda fast við þau áform að ríkjaráð-
stefnu sambandsins ljúki í júní á
næsta ári og að hægt verði að hefja
aðildarviðræður við væntanleg ESB-
ríki hálfu ári síðar.
Fundurinn einkenndist engu að
síður af áhyggjum af að útkoma ríkj-
aráðstefnunnar yrði ekki jafnmetn-
aðarfull og að var stefnt og að fyrir
vikið yrði ESB ekki nægilega vel
undirbúið fyrir íjölgun aðildarríkja.
í vinnuhádegisverði leiðtoganna á
laugardag hvöttu margir til þess að
nýjum krafti yrði hleypt í viðræður
á ráðstefnunni og markið sett hátt.
að nauðsynlegt gæti reynzt að halda
aðra ríkjaráðstefnu, vegna þess að
nú myndi ekki nást nógu víðtækt
samkomulag. Margir leiðtoganna
vöruðu hins vegar við slíku.
Gestgjafinn John Bruton, forsæt-
isráðherra írlands, sagði: „Ef það
er erfitt að ná samkomulagi á meðal
15 stjórnarleiðtoga um samnings-
texta til að taka á stórum og erfíðum
vandamálum, er augljóst að ef við
reynum að slá því á frest, þar til
eftir að aðildarríkin verða orðin fleiri
en tuttugu, verður það enn erfiðara."
Tal um aðra ríkjaráðstefnu
hættulegt
„Ég held að það geti verið hættu-
legt að velta fyrir sér annarri ríkja-
ráðstefnu núna, vegna þess að það
myndi aðeins verða vatn á myllu
þeirra, sem vilja engar breytingar,"
sagði Göran Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar.
Klaus Hansch, forseti Evrópu-
þingsins, tók í sama streng. „Við
verðum að útiloka tal um aðra ríkjar-
áðstefnu, vegna þess að það myndi
aflétta þrýstingi að ná samkomulagi
á næsta ári,“ sagði hann.
Reuter
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzkalands, og Martti Ahtisaari, for-
seti Finnlands, heilsast í upphafi fundarins í Dublin á laugardag.
Forseti
Evrópuþingsins
EMU-aðild
skylda -
ekki tilboð
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„EVRÓPSKA myntbandalagið
er ekki tilboð til ESB-land-
anna, heldur er skylda að vera
með, ef löndin uppfylla á ann-
að borð inngönguskilyrðin,"
sagði Klaus Hánsch forseti
Evrópuþingsins í heimsókn í
Stokkhólmi fyrr í vikunni.
Samkvæmt hans skilningi
er Svíþjóð því skyldug til að
gerast aðili að myntbandalag-
inu (EMU). Hánsch undir-
strikaði einnig að tímasetning
myntbandalagsins gilti fyrir
alla. Ummæli þingforsetans
vöktu athygli í Svíþjóð, þar
sem stjórnin leggur áherslu á
að uppfylla aðildarskilyrðin,
án þess að gefa neitt upp um
hvort hún ætli að ganga í
EMU eður ei.
Reuter
JOHN Major ræðir við John Bruton, forsætisráðherra Irlands,
ásamt utanríkisráðherra sínum, Malcolm Rifkind.
Erfiður fundur
fyrir Major
Dublin. Reuter, The Daily Telegraph.
LEIÐTOGAFUNDURINN í
Dublin var John Major, forsætis-
ráðherra Bretlands, erfiður. Ann-
ars vegar virtust viðvörunarorð
hans til hinna ieiðtoganna um að
fara sér hægt á ríkjaráðstefnunni
eiga Iítinn hljómgrunn. Hins veg-
ar voru andstæðingar ESB-aðild-
ar í hans eigin flokki óánægðir
og töldu hann ekki hafa barizt
vel gegn áformum um enn frek-
ari samruna ESB-ríkjanna.
Við þetta bættust deilur Majors
við fjóra aðra þátttakendur í leið-
togafundinum. Annars vegar
gerði Major athugasemdir við
það að þrír evrópskir stjórnar-
leiðtogar úr röðum jafnaðar-
manna skyldu hafa komið fram
í áróðursmyndum, sem sýndar
voru á fiokksþingi Verkamanna-
flokksins í síðustu viku, og hvatt
til stjórnarskipta í Bretlandi.
Major ræddi við leiðtogana
þijá, þá Franz Vranitsky, kanzl-
ara Austurríkis, Wim Kok, for-
sætisráðherra Hollands, og An-
tonio Guterres, forsætisráðherra
Portúgals. Þeir munu hafa reynt
að sannfæra hann um að þeir
hafi ekki ætlað að móðga hann.
Kok sagði við blaðamenn: „Eg
talaði sem leiðtogi hollenzka
Verkamannaflokksins. Hann get-
ur varla reiðst mér fyrir að vera
jafnaðarmaður.“
Vranitsky tók í sama streng
og benti á að jafnt íhaldsmenn
sem jafnaðarmenn í Evrópu
kæmu saman á flokksþingum og
lýstu stuðningi hveijir við aðra.
„Ef allir móðguðust í hvert sinn
sem einhverjir koma saman ein-
hvers staðar, væri Evrópa full
af móðguðu fólki,“ sagði kanzlar-
inn.
Hins vegar lenti þeim Major
og Klaus Hánsch, forseta Evrópu-
þingsins (sem er jafnaðarmaður),
harkalega saman. Hánsch húð-
skammaði ríkisstjórn íhalds-
manna í Bretlandi í ræðu sinni á
leiðtogafundinum. „Ég skil ekki
hvers vegna 14 ríkisstjórnir ættu
alltaf að fórna framtíðarsýn sinni
í Evrópumálum og grundvallar-
stefnumiðum sinum, bara til að
halda einni ríkisstjórn um borð,
ekki sízt vegna þess að hún gæti
stokkið frá borði hvenær sem
er,“ sagði þingforsetinn. „Ef ein
ríkisstjórn er augljóslega úr takti
við hinar... þá gætu hinar þurft
að leita leiða til að halda áfram
engu að síður, eða til þess að
fresta endanlegum ákvörðunum
þar til ríkisstjórnin, sem er i
minnihluta, er tilbúin að breyta
afstöðu sinni, eða þar til önnur
kemur í hennar stað.“
Major sagði að ræða Hánsch
hefði verið „heimskuleg" og röng
í alla staði. Að sögn aðstoðar-
manna forsætisráðherrans kvart-
aði hann undan Hánsch við John
Bruton, gestgjafa leiðtoga-
fundarins, og mun taka málið upp
við þingforsetann sjálfan.
verðið i bænum!
Whirlpool gæða frystikistur
AFG015 130L Nettó H:88 B: 60 D: 66 Verð: 33.900 kr
AFG027 249L Nettó H:88 B: 95 D: 66 Verð: 38.900 kr
AFG033 307L Nettó H:88 B: 112 D: 66 Verð: 42.900 kr
AFG041 384L Nettó H:88 B: 134,5 D: 66 Whirlpool frystikistur eru með: læsingu á loki, Ijósi 1 loki, advörunarbúnaöi. Whirlpool gæða frystiskápar Verð: 47.900 kr
AFB410 130L Nettó H:85 B: 55 D: 60 Verð: 42.000 kr
AFG311 203L Nettó H:140 B: 59,2 D: 60 Verð: 59.900 kr
AFG313 283L Nettó H:180 B: 59,2 D: 60 Verð: 68.900 kr
Whirlpool frystiskápar eru með aðvörunarbúnaði.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SfMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.