Morgunblaðið - 08.10.1996, Síða 52
£2 ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Halldór
GUÐRÍÐUR Hjaltested, móðir Friðriks Þórs, óskar hér syninum
til hamingju með Djöflaeyjuna og Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra fylgist með.
Djöflaeyjan framsýnd
KVIKMYND Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Djöflaeyjan, var
frumsýnd í síðustu viku við
góðar viðtökur áhorfenda og
gagnrýnenda. Handritshöfund-
ur er Einar Kárason rithöfund-
ur en myndin er byggð á met-
sölubókum hans um líf í
braggahverfi eftirstríðsáranna.
Ljósmyndari Morgunblaðsins
fór á frumsýninguna og í sam-
kvæmi sem haldið var eftir sýn-
inguna í Gyllta sal Hótels Borg-
ÞORFINNUR Ómarsson framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs
færir hér Friðriki stóran blómvönd eftir frumsýninguna og
Erlingur Gíslason leikari horfir á.
KOLFINNA Baldvinsdóttir, Bryndís Schram, Thor
Vilhjálmsson og Einar Kárason
ræðast við.
Grætur
glerbrotum
HASNA Meselmani, 12 ára
stúlka frá Líbanon, heldur hér
á hlutum, sem eru einna líkast-
ir glerbrotum, sem koma úr
augum hennar. Líbanískir
læknar eiga engin svör við af
hverju stúlkan „grætur“ þessu
harða efni. Hasna segist ekki
finna til neins sársauka þegar
brotin koma úr augum hennar
en um tvö slík koma út á hverj-
um degi. Að sögn föður hennar
sem er lögregluþjónn, hófst
þessi undarlega augnaútferð
28. mars síðastliðinn.