Morgunblaðið - 16.10.1996, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Fijálslynda lýðræðiflokknum í Japan vex ásmegin
Gamla stjómarflokkn-
um spáð meirihluta
Tókýó. Reuter.
VIÐAMIKIL skoðanakönnun bendir
til þess að Fijálslyndi lýðræðis-
flokkurinn, flokkur Ryutaro Hashi-
motos, forsætisráðherra Japans, fái
meirihluta þingsæta í kosningunum
á sunnudag. Flokkurinn hafði bæði
tögl og hagldir í japönskum stjóm-
málum í fjóra áratugi eftir síðari
heimsstyijöld og hefur verið í sam-
steypustjórn í tvö ár eftir að hafa
verið utan stjórnar í eitt ár.
Viðskiptadagblaðið Nihon Keizai
Shimbun birti skoðanakönnunina,
sem náði til 150.000 kjósenda, og
hún bendir til þess að Fijálslyndi
lýðræðisflokkurinn fái 251 þingsæti
af 500 í neðri deildinni og hugsan-
lega fleiri. Hann er nú með 211
þingmenn og hefur verið í sam-
steypustjórn með Sósíalistaflokkn-
um og Sakigake, klofningsflokki
úr Fijálslynda lýðræðisflokknum.
Könnunin bendir ennfremur til
þess að stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn, Shinshinto, eigi í vök
að veijast og þurfi að snúa vörn í
sókn til að halda 160 þingsætum
sínum. Níu flokkar stofnuðu Shiii-
shinto í lok ársins 1994 en erfiðlega
hefur gengið að skapa einingu inn-
an flokksins.
Lýðræðisflokkurinn stendur hins
vegar vel að vígi og gæti fengið
52 þingsæti, en hann var stofnaður
í síðasta mánuði eftir klofning í
tveimur smáflokkum sem voru í
samsteypustjórninni.
Öflug kosningavél
Nái Fijálslyndi lýðræðisflokkur-
inn meirihluta yrði það mikill sigur
fyrir Hashimoto, sem hefur haldið
til streitu óvinsælum áformum um
að hækka söluskattinn úr 3% í 5%
á næsta ári. Ichiro Ozawa, leiðtogi
Shinshinto, hefur reynt að höfða til
kjósenda með loforðum um að
lækka tekkjuskatta og fresta sölu-
skattshækkuninni í nokkur ár.
Stjórnmálaskýrendur segja að
fylgisaukning Fijálslynda lýðræðis-
flokksins sýni að öflug kosningavél
hans hafi ekki látið undan í umrót-
inu í japönskum stjórnmálum síð-
ustu þijú ár. Kjósendur kunni einn-
ig að hafa fengið sig fullsadda á
pólitísku óvissunni og vilji að öflug-
ur flokkur komist til valda til að
blása nýju lífi í efnahaginn.
Kosið verður í fyrsta sinn sam-
kvæmt nýju kosningakerfi þar sem
300 þingmenn verða kjörnir í ein-
menningskjördæmum en 200 með
hlutfallskosningu.
Meint spilling
þingmanna
rannsökuð
London. Reuter, The Daily Telegfraph.
SIÐANEFND neðri deildar
breska þingsins hefur fýrirskip-
að rannsókn á meintri spillingu
á þinginu vegna ásakana um að
þingmenn hafi þegið greiðslur
fyrir að leggja fram fýrirspurnir.
Nefndin tók þessa ákvörðun
á mánudag eftir að Betty Boot-
hroyd, forseti neðri deildarinnar,
lýsti því yfír á fyrsta fundi deild-
arinnar eftir sumarhlé að hún
vildi að þessar „mjög svo alvar-
legu ásakanir" yrðu teknar til
rækilegrar rannsóknar „sem
allra fyrst“ til að koma í veg
fyrir að þingið biði álitshnekki.
„Orðstír allrar neðri málstofunn-
ar hefur verið dreginn í efa. Sem
forseti hlýt ég að hafa áhyggjur
af því,“ sagði hún.
Gæti komið
stjórninni illa
Rannsóknin er talin geta kom-
ið sér illa fyrir stjórn íhalds-
flokksins fyrir næstu kosningar
sem verða innan sjö mánaða.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
sögðu að þeir myndu beita sér
fyrir því að rannsakað yrði hvort
hæft væri í ásökunum um að
David Willets, fyrrverandi for-
maður þingflokks íhaldsmanna,
hefði beitt áhrifum sínum á bak
við tjöldin til að hindra slíka
rannsókn fyrir tveimur árum.
Málið snýst einkum um
íhaldsmanninn Neil Hamilton,
fyrrverandi viðskiptaráðherra,
sem hefur verið sakaður um að
hafa þegið greiðslur frá Mo-
hammed Fayed, eiganda
Harrods-verslunarinnar, fyrir að
leggja fram fyrirspurn á þing-
inu. John Major forsætisráð-
herra hefur verið undir miklum
þrýstingi vegna málsins og það
var ein af ástæðum þess að þing-
maðurinn Peter Thurnham sagði
sig úr Ihaldsflokknum og gekk
til liðs við Fijálslynda demókrata
um helgina. íhaldsmenn eru því
aðeins með tveggja sæta meiri-
hluta á þinginu.
Opin fjölmiðlum
Sir Gordon Downey, er fer
með mál sem varða siðareglur
þingsins, var falið að rannsaka
ásakanirnar og Boothroyd
kvaðst vilja að rannsóknin yrði
„eins gagnsæ og kostur er“.
Ummæli hennar benda til þess
að hún vilji að fjölmiðlar geti
fylgst með hluta yfírheyrslanna
og að gefm verði út skýrsla um
niðurstöðuna.
Boothroyd sagði ennfremur
að þingið þyrfti að leiða málið
til lykta eftir að niðurstaða rann-
sóknarinnar lægi fyrir. Þingið
getur vikið þingmönnum frá
gerist þeir sekir um alvarleg
brot á siðareglunum.
Reuter
Knýr glímir við
hljóðmúrinn
TILRAUNUM með nýtt farar-
tæki, Knýr, lauk á flugbrautum
Farnborough-flugvallarins í
Bretlandi í gær. Um er að ræða
rennireið, sem knúin er tveimur
Rolls Royce-hreyflum. Aflið sem
þeir framleiða er á við afl 171
formúla-1 kappakstursbíl. Kný
er ætlað að slá öll hraðamet í
A1 Jafr-eyðimörkinni í Jórdaníu
í næsta mánuði. Hönnuður bif-
reiðarinnar, Richard Noble, setti
sjálfur fyrra metið árið 1983 í
Svartakletts eyðimörkinni í
Nevada í Bandaríkjunum en það
er 633 mílur, eða 988 km/klst.
Ætlunin var að ijúfa hljóðmúr-
inn með Kný í sömu eyðimörk
en sú tilraun verður að bíða þar
eð umhverfissinnum tókst að
koma í veg fyrir hana. Saltflat-
irnar í Jórdaniu eru ekki nógu
langar til slíkrar mettilraunar.
Knýr nær 320 km hraða á innan
við sex sekúndum án eftirbrenn-
ara en þeir þeyta honum á enn
meiri hraða á orskotsstundu.
Breskur orrustuflugmaður mun
stýra Kný, sem er 10 tonn. Reikn-
að hefur verið út að þegar Knýr
hefur náð hljóðhraða taki 29 sek-
úndur og 9 kílómetra vegalengd
að stöðva farartækið en til þess
að stöðva Kný verður hann búinn
diskabremsum úr Boeing-757 og
fallhlífum.
Hvítir menn flýja
glæpina í S-Afríku
Jóhannesarborg. Reuter.
HVÍTIR menn í Suður-Afríku flýja
nú landið í vaxandi mæli og er
ástæðan fyrst og fremst stórauknir
glæpir. A fyrra misseri þessa árs
voru þeir 5.627 og það vekur sér-
stakan ugg, að aðallega er um að
ræða vel menntað fólk á ýmsum
sviðum.
„Það er glæpafaraldurinn í land-
inu, sem veldur þessu, enda má
segja, að ferðamenn séu hættir að
leggja leið sína hingað,“ sagði Alida
Casteleijn, háttsettur starfsmaður
á s-afrísku hagstofunni. Innflytj-
endum til S-Afríku hefur að auki
fækkað og voru þeir 2.509 á fyrra
helmingi ársins.
Casteleijn spáði því, að flótti
hvítra manna frá S-Afríku myndi
aukast en vegna hans hefur orðið
til ný atvinnugrein í landinu, marg-
ar ráðgjafarstofur og fyrirtæki, sem
sjá um a.ð flytja búslóðir heimsálfa
í milli. Óttast margir, að þessi flótti
menntaðs fólks muni segja til sín
með alvarlegum hætti þegar fram
líða stundir.
Ástralía heillar
Samkvæmt tölum frá hagstof-
unni hafa flestir flust til Bretlands
en þeim fjölgar þó mest, sem fara
til Astralíu. Er það ekki síst vegna
loftslagsins.
Tölur s-afrísku hagstofunnar ná
ekki til þeirra, sem koma ólöglega
til landsins, en þar er aðallega um
að ræða fátæka blökkumenn frá
nágrannaríkjunum, til dæmis
Zimbabwe og Mósambík.
Þjóðar-
atkvæði
boðað í
Alsír
LIAMINE Zeroual, forseti Als-
írs, tilkynnti í gær að efnt
yrði til þjóðaratkvæðis um
breytingar á stjórnarskránni
28. nóvember. Breytingarnar
felast m.a. í því að stjórnmála-
flokkar, sem byggja á trúar-
brögðum, verða bannaðir.
Harka hefur færst í átökin í
landinu að undanförnu og 60
manns hafa beðið bana og 70
særst á sjö dögum.
Andófsmaður
flýr í Kína
KÍNVERJAR staðfestu í gær
að andófsmaðurinn Wang Xiz-
he hefði flúið frá Kína og sögð-
ust ætla að hafa upp á þeim
sem aðstoðuðu hann við flótt-
ann. Wang er 46 ára og hefur
verið einn atkvæðamesti lýð-
ræðissinninn í Kína í rúma tvo
áratugi. Hann komst til Hong
Kong nokkrum dögum eftir
að félagi hans var dæmdur til
þriggja ára vistar í þrælkunar-
búðum. Eiginkona Wangs
hafði eftir vinum hans að hann
væri kominn til Bandaríkj-
anna.
Franskir
blaðamenn
í verkfall
FRANSKIR blaðamenn efndu
í gær til sólarhrings verkfalls
til að mótmæla áformum
stjórnarinnar um að afnema
skattaívilnun sem þeir hafa
notið í 62 ár. Útvarps- og sjón-
varpsstöðvar slepptu því frétt-
um eða styttu fréttatímana og
mörg dagblöð koma ekki út í
dag. Deilt er um 30% skatta-
frádrátt sem blaðamenn hafa
fengið vegna starfstengdra
útgjalda og þeir segja að tekið
hafí verið mið af honum í
kjarasamningum. Því þurfi að
hækka launin ef skattarnir
verði hækkaðir.
Laura La
Plante látin
LAURA La Plante, ein af
þekktustu leikkonunum í
þöglu kvikmyndunum á þriðja
áratugnum, lést í Los Angeles
í gær, 92 ára að aldri. Hún
hóf leikferilinn 15 ára gömul
og lék í vestrum, gamanmynd-
um og melódramatískum
myndum, sem Universal Pict-
ures framleiddi.
• •
Ongþveiti á
ítölskum
flugröllum
ÞÚSUNDIR verkfallsmanna
ollu ringulreið á flugvöllum á
Ítalíu í gær og loka varð
Linate-flugvellinum í Mílanó
vegna mótmæla á flugbraut-
unum. Starfsmenn flugvall-
anna efndu til sólarhrings
verkfalls til að krefjast hærri
launa. Ríkisflugfélagið Alitalia
þurfti að aflýsa rúmlega helm-
ingi áætlunarferða í milli-
landa- og innanlandsflugi.