Morgunblaðið - 16.10.1996, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
SVERRIR GUÐMUNDSSON,
fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn,
er látinn. Útförin auglýst síðar.
Þórdís Hjaltalín Jónsdóttir,
Sjöfn Sverrisdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og mágur,
INGÓLFUR HANNESSON,
Skólastíg 14a,
Stykkishólmi,
verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 19. októ-
ber kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á dvalarheimilið eða Stykk-
ishólmskirkju.
María Jónsdóttir,
Ingveldur Ingólfsdóttir, Jens Óskarsson,
Eva Rún Jensdóttir, Sigríður Jónsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN PETERSEN,
Staðarhvammi 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 17. októ-
ber kl. 13.30.
Guðríður Petersen,
Elfn Jóhannsdóttir, Tryggvi Ólafsson,
Bryndis Petersen, Leifur Jónsson,
Jóhann Petersen, Björg Haraldsdóttir,
Pétur Jakob Petersen, Auður Héðinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdasonur, tengdafaðir
og afi,
KRISTJÁN HRÓLFSSON
bóndi,
Syðri-Hofdölum,
Skagafirði,
sem andaðist þann 9. október, verður jarðsunginn frá Hofstaða-
kirkju laugardaginn 19. október og hefst afhöfnin kl. 14.00.
Rannveig Jóna T raustadóttir,
Trausti Kristjánsson, Valgerður Kristjánsdóttir,
Helga Rögnvaldsdóttir,
tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ANNA CRONIN,
búsett i London,
andaðist i London 12. ágúst sl.
Bálför hennar hefur farið fram í London.
Minningarathöfn fer fram í Fossvogskirkju
fimmtudaginn 17. október kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu,
vinsamlegast láti Landssamtök hjarta-
sjúklinga, s. 552 5744, njóta þess.
Jakobína Cronin, Ólafur H. Ólafsson,
Jóhanna Cronin, Reynir B. Skaftason,
JohnCronin, Josie Cronin,
Benedikt Cronin,
Erling Cronin, JulieCronin,
Georg Cronin, Susan Cronin,
Philip Cronin, Sandra Cronin,
barnabörn og barnabarnabörn.
I
|
i
i
+
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁRNIPÉTURSSON
aðstoðarskólastjóri,
Brekkubyggð 4,
Garðabæ,
sem andaðist miðvikudaginn 9. október
sl., verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
föstudaginn 18. október kl. 13.30.
Lára K. Guðmundsdóttir,
Þórunn Anna Árnadóttir,
Þorsteinn Július Árnason
SIGRUN JULIA
SIG URJÓNSDÓTTIR
+ Sigrún Júlía Sig-urjónsdótt-
ir fæddist í Hafnarfirði 4.
júlí 1904. Hún lést á Sólvangi
í Hafnarfirði 7. október síðast-
liðinn og fór útför hennar fram
frá Hafnarfjarðarkirkju 15.
október.
Ég legg aftur augun og minning-
arnar streyma fram.
Ég sem lítil stúlka á Suðurbraut-
inni hjá þér og afa, sniglast í kring-
um þig í eldhúsinu, róla mér í ról-
unni sem þú hengdir alltaf upp í
eldhúsdyrunum þegar ég eða eitt-
hvert barnabarnanna kom í heim-
sókn, það var alltaf svo gott að koma
til ykkar.
Ég orðin svolítið eldri, bíð spennt
eftir að fara að veiða í Hlíðarvatni,
þú búin að baka stóran stafla af
pönnukökum og þá getum við lagt
af stað. Ég held að þú hafir nú sjaldn-
ast veitt í þessum túrum, amma mín,
þú varst sífellt að snúast í kringum
okkur bamabörnin á einn eða annan
hátt. Þetta verða mér ógleymanlegar
ferðir og það er ekki síst þér að
þakka. Eg er hrædd um að það verði
tómlegt í næstu Hlíðarvatnsferð, það
vantar svo mikið þegar þú ert ekki
lengur hjá okkur.
Er ég eltist var jafngott að koma
til þín. Þegar ég var í Flensborg kom
ég oft í hádegismat til þín eða fékk
að stinga mér inn í rúm til þín eða
þá að við sátum og spjölluðum.
Það var stór stund í lífi mínu er
ég kom til ykkar afa og sagði ykkur
að ég ætti von á barni og fljótlega
á eftir byijaðir þú að hekla peysu á
litla ófædda barnið mitt. Þú hafðir
hana hvíta svo hún passaði á bæði
kynin, en eftir að ég sagði þér að
mér fyndist ég ganga með strák
heklaðir þú handa mér eina ljósbláa
peysu. Síðan er ég fæddi stelpuna
mína átti ég eina hvíta og aðra bláa.
í dag eru þetta dýrmætar minningar
um þig, elsku amma, ásamt öllum
sokkunum og vettlingunum sem þú
pijónaðir á mig og fjölskyldu mína.
Hún Alexandra mín var ekki mikið
eldri en eins árs þegar ég fór að
skilja hana eftir hjá þér og afa í
pössun og sagan endurtók sig, rólan
komin aftur upp í eldhúsdyrunum,
þú orðin 85 ára að sýsla í eldhúsinu,
alveg ótrúlega hress, og lítið barn
að leika sér í rólunni.
4. júlí var alltaf dagurinn þinn en
eftir að við Orri giftum okkur á
þeim degi áttum við hann saman.
Elsku amma, þú varst alltaf svo
glaðlynd og jákvæð, ég hreinlega
nærðist á því að umgangast þig. Það
er erfitt að kveðja einhvern sem
manni þykir svona vænt um og þær
eru mér svo dýrmætar minningarnar
um þig.
Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku
amma mín.
Júlía og fjölskylda.
Það er auðvelt fyrir mig að minn-
ast hennar Júllu, hún var gift móð-
urbróður mínum Alexander Guðjóns-
syni, eða Alla eins og hann er alltaf
kallaður, af vinum og kunningjum.
Yfirleitt var ekki talað um Alla eða
Júllu sitt í hvoru lagi heldur voru
þau nefnd saman. Alli og Júlla. Þetta
segir nokkuð um hversu samrýnd
þau voru alltaf.
Alli sagði mér einu sinni hvernig
hann kynntist Júllu fyrst. Hann hafði
flust til Hafnarfjarðar árið 1925 til
að geta stundað vélstjóranám. Hann
fór einu sinni í bíó og tók eftir því
að við hliðina á honum sat lítil, fal-
leg, dökkhærð stúlka, en fyrir fram-
an hana sat stór og breiður maður.
„Til að geta séð myndina þá þurfti
stúlkan að halla sér að mér og áður
en myndin var búin þá var hún nán-
ast komin í fangið á mér og hún
hefur veriá’þar síðan,“ sagði Alli og
andlit hans ljómaði. Júlla varð þeirr-
ar hamingju aðnjótandi að búa í
ástríku og hamingjusömu hjóna-
bandi alla tíð og hefðu þau hjónin
átt 76 ára hjúskaparafmæli 25. októ-
ber næstkomandi. Auðvitað hafa
skipst á skin og skúrir í lífi Júllu
eins og hjá öðrum og þyngsta raun
hennar held ég að hafi verið þegar
hún missti fyrsta barnið sitt og eina
son skömmu eftir fæðingu. Hefur
það ábyggilega hjálpað þeim báðum
í sorg þeirra hversu mikill kærleikur
var með þeim hjónum. Hún eignað-
ist síðar þijár mannvænlegar dætur,
Aðalheiði, Huldu og Svanhiidi sem
allar hafa gifst og frá henni er kom-
inn fjöldi afkomenda.
Þegar ég læt hugann reika aftur
í tímann þá kemur margt upp í hug-
ann, eins og þegar ég var sendur
fyrst í sveit að Grafarbakka í Hruna-
mannahreppi aðeins sjö ára gamall,
en þá fór Júlia þangað líka ásamt
dætrum sínum. Þessi tími var mér
ákaflega skemmtilegur og ég man
enn eftir því hversu gott var að njóta
ástúðar Júllu þegar eitthvað bjátaði
á. Og hversu gaman var að heim-
sækja hana, en hún átti ákaflega
fallegt heimili prýtt ýmsum munum
sem ekki voru algengir á heimilum
á þeim tímum, þetta voru munir sem
Alli hafði keypt „í útlöndum" en
hann var á þessum árum vélstjóri á
togurum. Júlla var ákaflega gestris-
in og listakokkur. Hún átti eldavél
með ofni en svoleiðis gripur var ekki
til á mínu heimili í þá daga og mér
er enn í minni þegar ég smakkaði í
fyrsta sinn heilsteiktan lambshrygg
hjá henni hversu góður mér þótti
hann. Sem barn og unglingur var
ég mikið í veiðitúrum með Alla
frænda og neytti ég þá færis að
vera nálægt ’nonum þegar var borðað
og fékk þannig að njóta krásanna
með honum. Það hefði hver „smur-
brauðsdama" verið hreykin af smur-
brauðinu hennar Júllu.
Ég og Dunna sendum Alla og
öðrum ástvinum innilegar samúðar-
kveðjur. Við vitum að það verður
Alla huggun í harmi hversu óendan-
lega góðar minningar hann á um
hana Júllu sína.
Rúnar Guðbjartsson.
+
Astkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
LÁRA SESSELJA BJÖRNSDÓTTIR,
Skjólgaröi,
Höfn, Hornafirði,
verður jarðsungin frá Seljakirkju föstudaginn 18 október kl. 15.00.
Haraldur Þórðarson,
Sæþór Skarphéðinsson, Steinunn Maríusdóttir,
Borghildur Skarphéðinsdóttir,
Auður Skarphéðinsdóttir, Hjörtur Marínósson,
Birna Þ. Skarphéðinsdóttir, Gunnar Hermannsson,
Skarphéðinn Helgason,
Guðrún B. Helgadóttir,
Aðalheiður Haraldsdóttir,
Þórunn Gunnarsdóttir,
Steinar I. Guðmundsson,
Ólafur Karl Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elsku ættingjar og vinir!
Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir auð-
sýnda samúð og vinsemd við fráfall
eiginmanns míns og föður okkar,
ÞORVALDAR FRIÐRIKSSONAR,
Eskifirði.
Guð blessi ykkur öll.
Kristfn Pétursdóttir
og börn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR HAUKSSONAR,
Háseylu 3,
Njarðvíkum.
Guð blessi ykkur öll.
Aðstandendur.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
JÓNS EYSTEINS EGILSSONAR
fyrrv. forstjóra,
Goðabyggð3,
Akureyri.
Margrét Gfsladóttir,
Gísli Jónsson, Þórunn Kolbeinsdóttir,
Fanný Jónsdóttir, Garðar Viborg,
Egill Jónsson, Herdfs Júlfusdóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Stefán Blúcher,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ótrúlegt úrval af vönduðum
legsteínum úr völdum steíntegundum
BAUTASTEINN
IBrautarholti 3. 105Reykjavík
Sími: 562 1393
Önnumst uppsetníngu