Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C fflrjffluulMfoMfe STOFNAÐ 1913 250. TBL. 84. ARG. FOSTUDAGUR 1. NOVEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Farþegaflugvél hrapaði á íbúðahverfi í Sao Paolo Yfirvöld segja að minnst 104 hafi farist Sao Paulo. Reuter. ALLIR sem um borð voru, 96 manns, fórust er Fokker-100 far- þegaþota í innanlandsflugi hrapaði á þéttbýlt hverfi í borginni Sao Paulo í Brasilíu í gærmorgun. Vitað var með vissu um átta manns á jörðu niðri sem einnig fórust í slys- inu. Ekki var vitað hvað olli því að þotan hrapaði rétt eftir flugtak og kom niður aðeins þrjá kíiómetra frá flugbrautarenda. Vélin var í eigu TAM-flugfélags- ins brasilíska og á leið tii Rio de Janeiro er hún fórst kl. 8.20 að stað- artíma, 10.20 að íslenskum tíma, í gærmorgun. Um borð voru 90 far- þegar og sex manna áhöfn. Höfðu lík 70 þeirra fundist í gær. Ekki hafði verið skýrt frá þjóðerni farþeg- anna í gærkvöldi en vitað að i vél- inni voru m.a. erlendir starfsmenn alþjóðlegra stórfyrirtækja. 200 skólabörn sluppu naumlega Þotan lagði upp frá Congonhas- flugvelli og kom niður í millistéttar- hverfinu Parque Jabaquara, sem er í suðvesturhluta Sao Paulo. Flugvél- in fleytti kerlingar ofan á þaki nokk- urra húsa, tætti síðan í sundur aðra hæð verslunarhúss og áður en hún staðnæmdist féll hún ofan af því niður á nokkur íbúðarhús og lagði þau í rúst. Litlu munaði að hún lenti á skóla þar sem kennslustund var nýbyijuð hjá um 200 börnum. Hundruð björgunarmanna mynd- uðu mannlega keðju við leit að fólki í rústum húsa sem þotan hrapaði ofan á. Brak úr þotunni og húsunum sem urðu á vegi hennar dreifðist yfir nokkur hundruð metra langt Reuter SÉÐ yfir borgarhverfið þar sem þotan hrapaði. Flugvélin var smíðuð fyrir þremur árum; ekkert var enn vitað um orsök slyss- ins er síðast fréttist. A litlu myndinni sést kona er beið ásamt fleiri aðstandendum milli vonar og ótta í Rio de Janeiro. svæði. Stigu reykjarmekkir enn í loft upp, nokkrum stundum eftir slysið. Fjöldi slasaðra íbúa var flutt- ur á sjúkrahús. Þrjá kílómetra frá brautarenda „Brak úr þotunni kom ofan á þakið á húsinu okkar og niður í garðinn. Það heyrðist mikil spreng- ing og síðan splundruðust rúðurnar og glerbrotin flugu í allar áttir,“ sagði húsmóðir á slysstað. „Við hlup- um út og fólk hljóp í allar áttir æpandi af hræðslu. Enginn vissi hvað gerst hafði.“ Siysstaðurinn er aðeins í um þriggja kílómetra ijarlægð frá flug- brautarendanum. Þotan fórst eftir að flestir íbúar höfðu lagt af stað til vinnu og voru því tiltölulega fáir í hverfinu. Sjónarvottur sagði, að rétt eftir flugtak hefði þotueldsneyti fallið til jarðar, maður sem fyrir því varð hefði orðið hoidvotur og látist af völdum brunasára eftir að kviknaði í honum. Tútsar sitja um Goma-flugYÖll Zaire hafn- ar viðræðum Brussel, Kinshasa, Gisenyi. Reuter. Methafi á ferðalagi í Asíu HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, heilsar japönsk- um embættismanni við kom- una til Tókýó í gær en Kohl er nú á ferðalagi um nokkur Asíulönd. Kanslarinn, sem er 66 ára gamall, náði í gær því takmarki að vera sá sem lengst hefur gegnt þessu emb- ætti í Þýskalandi á öldinni, 14 ár og einn mánuð. Metið átti Konrad Adenauer er var við völd 1949 til 1963. Vaxandi líkur eru á því að Kohl verði á ný kanslaraefni kristilegra demókrata 1998 en ný skoð- anakönnun, sem birt var í tímaritinu Die Wocheí gær var ekki uppörvandi fyrir hann. Flokkur hans fékk þar Reuter aðeins 38% fylgi en jafnaðar- menn 40%. Hart er nú deilt um efnahagsráðstafanir ríkis- stjórnar Kohls sem miða að því að fullnægja skilyrðum fyrir aðild að væntanlegu efnahags- og myntbandalagi Evrópusambandsins. ■ Samrunaþróuninni ekki/18 SKÝRT var frá því í gær að haldinn yrði bráðafundur ráðherra Evrópu- sambandsins í Dublin á þriðjudag til að ræða flóttamannavandann í austurhluta Zaire. Um ein milljón manna, aðallega hútúa frá Rúanda, er þar á flótta undan sigursælum uppreisnarmönnum af þjóðerni tútsa. Leitað verður leiða á fund- inum til að tryggja fólkinu neyðar- hjálp og koma á friði. Fulltrúar Zaire-stjórnar höfnuðu í gær að ræða við talsmenn grann- ríkjanna Rúanda og Búrúndi, þar sem tútsar eru allsráðandi en Zaire- menn saka þá og Úganda-menn um að styðja uppreisnarmenn í átökun- um. „Ríkisstjórnin mun ekki taka þátt í neinum samningaviðræðum eða svæðisráðstefnu meðan hluti landsins er hersetinn af útlending- um,“ sagði forsætisráðherra Zaire, Kengo wa Dondo, á neyðarfundi . þingsins í höfuðborginni Kinshasa. Barist var um flugvöllinn í Goma er síðast fréttist. Sigrún Árnadótt- ir, framkvæmdastjóri Rauða kross íslands, tjáði Morgunblaðinu í gær að Jón Valfells, upplýsingafulltrúi Alþjóða Rauða krossins, hefði í gærmorgun farið til Rúanda ásamt öðrum erlendum starfsmönnum samtakanna frá Goma. ■ Hermennimir tóku/8 ■ Zaire á barmi/18 Hyggst berjast nótt sem dag Miami, Washington. Reuter. BOB Dole, forsetaefni repúblikana í Bandaríkjunum, hyggst ekki unna sér neinnar hvíldar þá fáu daga sem eftir eru fram að kjördegi 5. nóvem- ber. „Síðast þegar ég barðist allan sólarhringinn fyrir landið mitt var á Ítalíu 1945,“ sagði Dole sem særðist hættulega í stríðinu. „Ég er staðráðinn í að láta hveija klukkustund í þessum mikilvægu kosningum skipta máli. Svo mikið er í húfi,“ sagði Dole, sem er 73 ára gamall, í Florida í gær. Hann hyggst leggja upp í kosningaferð í dag um allt að 11 sambandsríki og enda í fjölmennasta ríkinu, Kaliforníu. Ný könnun, sem birt var í Banda- ríkjunum í gær, gefur til kynna að munurinn á fylgi Clintons forseta og Doles sé nú aðeins 7,7%. Könnun- in var gerð fyrir Keuters-fréttastof- una og var Clinton með 41,9%, Dole 34,2% og Ross Perot 8,6% en hinn síðastnefndi hefur unnið á að undan- förnu. Mjög hallar á Dole í Kalifor- níu, þar er munurinn á honum og Clinton 18%. ■ „Get ekki eignað“/20 -----».♦—«----- Gafst upp á að verja Tyrkland Ankara. Reuter. LÖGFRÆÐINGUR og fulltrúi Tyrk- landsstjórnar í málaferlum fyrir evr- ópskum mannréttindadómstólum skýrði frá því í gær, að hann hefði sagt því starfi sínu lausu. „Tyrknesk stjórnvöld lofa og lofa en standa ekki við neitt. Ég get ekki haldið uppi vörnum fyrir þau leng- ur,“ sagði Bakir Caglar. Hann hefur verið fulltrúi Tyrkja í mannréttinda- nefnd Evrópuráðsins í fjögur ár. Caglar sagði, að nú væru 112 mál, sem vörðuðu mannréttindabrot í Tyrklandi, fyrir nefndinni. Segulsvið hættulaust? Washingfton. Reuter. SÉRFRÆÐINGAR, sem í 17 ár hafa kannað hvort hættulegt sé að búa nálægt háspennulín- um og raftækjum, segja að ekki hafí fundist neinar traustar vísbendingar um að svo sé. Fullyrt hefur verið að segul- sviðið í grennd við raforkuna geti valdið krabbameini og fóst- urskaða. í skýrslu bandarískra heilbrigðisyfirvalda segir að könnuð hafi verið áhrif frá raf- línum en einnig heimilistækjum á borð við hárþurrkur, örbylgju- ofna og tölvuskjái.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.