Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
NýttHMíbrids
íslending-
ar leiða
undan-
keppni
ÍSLENSK-BRESK sveit leiðir
undankeppni heimsmeistara-
móts í blandaðri sveitakeppni
sem nú fer fram á Ródos í
Grikklandi jafnhliða úrslitum
Ólympíumótsins í brids.
Fjórir íslenskir spilarar,
þeir Aðalsteinn Jörgensen,
Björn Eysteinsson, Jón Bald-
ursson og Ragnar Hermanns-
son, spila með Heather
Dhondy og Elisabeth
Macgowan frá Bretlandi, en
þær voru í breska kvenna-
landsliðinu á Ólympíumótinu.
Eftir 12 umferðir af 15 í und-
ankeppninni leiddi sveitin með
234 stig. Næst kom bandarísk
sveit með 219 og þá tvær
franskar sveitir með 214 og
212. Síðustu þrjár umferðir
undankeppninnar eru spilaðar
í dag og síðan spila fjórar
efstu sveitimar til úrslita.
Þetta er fyrsta heimsmeist-
aramótið í blönduðum flokki,
en þar er skylda að konur og
karlar spili saman. 88 sveitir
taka þátt í mótinu.
Úrslitaleikir Ólympíumóts-
ins hófust í gær. I opnum
flokki spila Frakkar og Indó-
nesar til úrslita en í kvenna-
flokki Bandaríkjamenn og
Kínverjar. Indónesar, sem
unnu íslendinga í 8 liða úrslit-
um, unnu Dani í undanúrslit-
um. Jafnt var í leikslok og
þurfti að framlengja um 8
spil áður en úrslit fengust.
Morgu nbl aðið/Kristinn
Allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna
ísland í ECOSOC
ÍSLAND var í gær kjörið til þriggja
ára setu í efnahags- og félagsmála-
ráði Sameinuðu þjóðanna (ECO-
SOC) frá og með næstu áramótum
á fundi allsheijarþings samtakanna
í New York. Ráðið, sem 53 ríki sitja
í, er ein mikilvægasta stofnun SÞ,
ásamt allshetjarþinginu og öryggis-
ráðinu.
Helzta hlutverk ECOSOC er að
fylgjast með og samræma starfsemi
SÞ á efnahags- og félagsmálasvið-
inu, meðal annars hvað varðar fram-
kvæmd niðurstaðna alþjóðlegra ráð-
stefna, sem haldnar hafa verið á
vegum SÞ á undanförnum árum.
ísland hefur aðeins einu sinni
áður tekið sæti í efnahags- og fé-
lagsmálaráðinu, en það var á árun-
um 1985-1987. íslenzk stjórnvöld
hafa um nokkurt skeið sótzt sér-
staklega eftir kjöri í ráðið, meðal
annars til að vega upp á móti minnk-
andi samstarfi Norðurlandanna inn-
an SÞ.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði í ræðu sinni um utanrík-
ismál á Alþingi í gær að setan í
ráðinu ætti að verða íslandi „hvatn-
ing til að sinna þeim mikilvægu
málum sem falla undir verksvið
þess“.
Atta ára
fjórbura-
systur
TILHLÖKKUNIN leyndi sér
ekki í gær í svip fjórburanna
úr Mosfellsbæ, sem í dag fagna
átta ára afmæli sínu. Þær Alex-
andra, Brynhildur, Diljá og
Elín Guðjónsdætur verða þó í
dag, líkt og aðra daga, að fara
fyrst í skólann, en að skóladegi
loknum verður vinum og
frændum auðvitað boðið í af-
mæli, með öllu tilheyrandi.
Systurnar eru saman í bekk
í 3. bekk Varmárskóla. „Það
er alltaf mikið líf og fjör hér
á morgnana þegar þær fara í
skólann," segir móðir þeirra,
Margrét Þóra Baldursdóttir.
Þegar skóia sleppir fá systurn-
ar m.a. útrás og hreyfingu 1
frjálsum íþróttum, nema Diljá,
sem valdi heldur að fara í
myndlistarskóla.
Síldarafli skipa ESB í Síldarsmugunni orðinn tæp 200.000 tonn
Ráðherra segir ESB
stunda rányrkju
SKIP Evrópusambandsins hafa
veitt rúmlega 197.000 tonn úr
norsk-íslenzka síldarstofninum á
alþjóðlega hafsvæðinu í Síldar-
smugunni á þessu ári, sem er
47.000 tonn umfram þann kvóta,
sem sambandið skammtaði sér ein-
hliða. Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra gagnrýndi Evrópusam-
bandið fyrir „stjómlausar veiðar“ í
ræðu sinni um utanríkismál á Al-
þingi í gær og sagði ljóst að full
stjórn á veiðum úr síldarstofninum
næðist ekki nema veiðar ESB lytu
einnig stjórnun.
Evrópusambandið tók sér fyrr á
þessu ári einhliða 150.000 tonna
kvóta úr norsk-íslenzka síldarstofn-
inum. Ekki tókst að fá sambandið
til að ganga inn í samkomulag, sem
ísland, Noregur, Rússland og Fær-
eyjar gerðu í maí urri veiðar úr
stofninum.
Ábyrgðarleysi
og rányrkja
„Evrópusambandið sýnir ein-
stakt ábyrgðarleysi. Mönnum
fannst það vera langt umfram það,
sem nokkur réttur getur staðið til,
að ákveða sjálftökukvóta upp á
150.000 tonn. Það liggur fyrir að
Evrópusambandið hefur stundað
þarna hreina rányrkju,“ sagði Hall-
dór í samtali við Morgunblaðið.
Strandríkin fjögur munu að öllum
líkindum hittast á fundi í næstu
viku og ráða ráðum sínum um end-
urnýjun síldveiðisamkomulagsins.
Síðar í mánuðinum verður svo fund-
ur Norðaustur-Atlantshafsfisk-
veiðinefndarinnar (NEAFC), sem
ESB á einnig aðild að.
„Strandríkin munu reyna að fá
Evrópusambandið til að taka
ábyrga afstöðu í þessum málum,
en mér sýnist að það, sem framund-
an er, geti verið erfitt," sagði Hall-
dór. „Eg er ekki bjartsýnn á að
samkomulag náist við ESB í
NEAFC, en strandríkin hljóta að
halda þeirri samstöðu, sem þau
hafa náð, og reyna að fá aðra til
að stunda ábyrgar veiðar.“
Færeyingar und-
irbúa olíulöggjöf
Leyfi til olíuvinnslu boðin út
um áramót 1997-1998
Þórshfifn. Morgunblaðið.
FÆREYSKA landstjórnin bauð
lögþingsmönnum til kynningar-
fundar um olíumál í Þórshöfn í
gær. Þar sat fyrir svörum tíu
manna nefnd embættismanna og
sérfræðinga sem unnið hafa að
undirbúningi löggjafar um olíu-
mál; olíuráðgjafarnefndin.
Lögmaður Færeyja, Edmund
Joensen, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fundinum loknum, að
hann hefði verið bæði góður og
gagnlegur og að menn væru sam-
mála um að halda vinnunni áfram
á sama hátt.
Olíuráðgjafarnefndin vinnur að
undirbúningi frumvarps til laga
um olíumál og er gert ráð fyrir
að nefndin skili skýrslu og tillögum
í janúar eða febrúar. Þá verða til-
lögurnar ræddar í þinginu og
nefndum þess og kvaðst lögmað-
urinn vonast til þess að hægt yrði
að afgreiða lögin áður en þing-
menn fara í sumarfrí á næsta ári.
Þá ætti að vera hægt að bjóða út
leyfi til olíuvinnslu um áramót
1997-98.
Tilraun^borunum
að Ijúka
Vinnu við tilraunaboranir í
Lopra á Suðurey er nú senn að
ljúka og forsvarsmenn verkefnis-
ins virðast nokkuð ánægðir með
árangurinn til þessa, þótt þeir vilji
ekkert láta uppi um líkurnar á því
að olía finnist eða hvort eitthvað
sé fundið nú þegar. Nítján olíufé-
lög hafa í sameiningu staðið að
dýpkun borholu sem upphaflega
var boruð af Orkustofnun árið
1981, þá niður á 2.200 metra.
Nú hefur holan verið dýpkuð
niður í 3.500 metra og gerðar í
henni ýmsar mælingar í þeim til-
gangi að afla jarðfræðilegra upp-
lýsinga í tengslum við olíuleit.
Kostnaður við verkið samsvarar
ríflega 400 milljónum íslenskra
króna.
Mikilvæg reynsla
og þekking
Arne Rosenkrands Larsen,
verkefnisstjóri við dýpkun borhol-
unnar Lopra 1, sagðist í samtali
við Morgunblaðið gera ráð fyrir
að verkinu lyki nú um helgina.
Holunni yrði lokað með steypu og
gengið tryggilega frá öllu. „Við
höfum öðlast mikilvæga jarðfræði-
lega og tæknilega vitneskju og
reynslu sem við höfðum ekki áður
og munum byggja á henni í fram-
haldinu. Næsta skref er svo að
vinna úr niðurstöðum rannsókn-
anna og um þær munum við skila
skýrslu í febrúar eða mars á næsta
ári,“ sagði Larsen og vildi ekki tjá
sig frekar um málið.
Morgunblaðið/Sveinn Óskar Sigurðsson
BÁS Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á sjávarútvegssýningunni.
Fjögnr íslensk fyr-
irtæki sýna í Kína
Qingdao. Morgunbiaðið.
VIÐAMIKIL sjávarútvegssýning
hefur staðið yfir í þijá daga í Qingdao
f Kína og lýkur henni í dag. Um er
að ræða stærstu sjávarútvegssýn-
ingu sem Kínveijar hafa staðið að
þar sem fyrirtæki koma víða að úr
heiminum. Tæplega 30 íslendingar
er nú staddir í Quingdao og taka
fjögur íslensk fyrirtæki þátt í sýning-
unni auk Útflutningsráðs.
íslensku fyrirtækin fjögur sem
taka þátt í sýningunni eru Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna, íslenskar
sjávarafurðir hf., Trausti ehf. og
Aggva ehf. auk Útflutningsráðs ís-
lands. Ýmsir aðilar frá íslandi hafa
sótt sýninguna.
Við setningu hátíðarinnar sagði
Zhuo You Zhan, aðstoðarlandbún-
aðaráðherra Kínveija, að þessi sýn-
ing væri fyrsta skref kínverskra yfir-
valda í átt til umbóta í sjávarútvegi.
Telur hann einnig að samskipti á
sviði sjávarútvegs geti greitt götu
Kínveija og þeir þannig uppfyllt
áætlanir sem gerðar hafa verið fyrir
næstufimm árin.
Skipuleggjendur hátíðarinnar telja
að hér sé um að ræða fyrstu sýning-
una af fjölda annarra á sviði sjávar-
útvegs í Kína. Kínveijar, sem eru
fulltrúar opinberra aðila á sýning-
unni, segja þessa sýningu vera leið
stjómvalda til að uppfylla kröfur um
gæði, þjónustu og framleiðni í sjávar-
útvegi Kínveija í framtíðinni. Vænta
þeir að samfara þessari sýningu verði
gengið til frekari opnunar landsins á
sviði fiskveiða, vinnslu og markaðs-
setningar.
Samkeppnisstofnun
Athuguná
fjárfesting-
um VÍS og
Flugleiða
SAMKEPPNISSTOFNUN tekur
ákvörðun um það í næstu viku,
hvort ástæða sé að kanna_ nánar
kaup Vátryggingafélags íslands
hf. og Líftryggingafélags íslands
hf. á þremur félögum sænska
tryggingafélagsins Skandia hér á
landi, með tilliti til þess hvort brot-
ið sé gegn þeim ákvæðum sam-
keppnislaga, sem kveða á um sam-
runa fyrirtækja, sem nái með því
markaðsráðandi stöðu, svo dragi
úr samkeppni. Á sama hátt er
Samkeppnisstofnun að skoða kaup
Flugleiða hf. á þriðjungshlut í
Ferðaskrifstofu íslands hf.
Frumkönnun, ekki rannsókn
Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs
Samkeppnisstofnunar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að stofnunin væri ekki að rann-
saka þessi kaup í sjálfu sér. „Við
gerum yfirborðsathugun til að
byrja með, til að átta okkur á
hvort ástæða sé til frekari að-
gerða.“
Guðmundur sagði að frumkönn-
un Samkeppnisstofnunar yrði lok-
ið í næstu viku og þá lægi ljóst
fyrir hvað yrði. Hann kvaðst ekki
geta tjáð sig um hveijar horfur
væru á nánari rannsókn, enda vissi
hann það ekki að svo stöddu.