Morgunblaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Leikið fyrir
leikskóla
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
hefur helgað ungmennum lands-
ins krafta sína undanfarna daga
en leikskólabörn og yngstu nem-
endur nokkurra grunnskóla á höf-
uðborgarsvæðinu, alls um sex þús-
und börn, hafa hlýtt á hljómsveit-
ina leika á tónleikum í Háskóla-
bíói.
Síðastliðin fimm ár hafa tónleik-
ar af þessu tagi verið fastur liður
í starfi hljómsveitarinnar en að
þessu sinni er á efnisskránni frum-
samin tónlist eftir Guðna Franzson
við ævintýri Guðrúnar Helgadótt-
ur, Ástarsögu ur fjöllunum. Ljóða-
textar eru eftir Pétur Eggerz.
Auk þess að semja tónlistina og
útsetja fyrir sinfóníuhljómsveit
stjómar Guðni Franzson, fyrir
miðri mynd, hljómsveitinni, segir
söguna, syngur ljóðin og leikur á
klarinett.
Síðustu tónleikarnir í syrpunni
eru í dag, föstudag, kl. 10 og 11.20.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Guðmundur Árni í formannskjör í Alþýðuflokknum
Segist boðberi nýrra tíma
Vill sveigjanleika í samningnm við aðra
flokka, til dæmis í Evrópumálum
GUÐMUNDUR Ámi Stefánsson, varaformað-
ur Alþýðuflokksins, tilkynnti í gær framboð
sitt til formennsku. Á blaðamannafundi þar
sem hann kynnti ákvörðun sína og stefnumál
sagði hann meðal annars að eðlilegt og sjálf-
sagt væri að kjósa milli formannsefna, en að
hann myndi sætta sig við niðurstöðuna, hver
sem hún yrði. Guðmundur segist vera boðberi
nýrra tíma í fiokknum.
„Ég býð mig ekki fram gegn einum né nein-
um og ég mun ekki fara í neinar skotgrafir
eða feta leynistigu, né stilla flokksfólki upp
við vegg. Ég mun taka niðurstöðunni, hver sem
hún verður, með jafnaðargeði og bros á vör.
Sennilega mun ég þó brosa eilítið meira ef ég
hef sigur.“
Guðmundur sagðist leggja mesta áherslu á
sameiningarmál og samstarf vinstri manna og
að í formannsembætti myndi hann beita sér
fyrir því að Alþýðuflokkurinn sýndi meiri
sveigjanleika í samningum við aðra flokka, til
dæmis í sambandi við Evrópumálin.
„Stundum held ég flokkurinn hafi farið full
hart fram í einstökum málum. Ég er ekki með
neina afsláttarpólitík, en enginn flokkur kemst
upp með þá pólitík að það eitt sé satt og rétt
sem frá honum kemur.“ Guðmundur vildi ekki
tjá sig um það hvort hann tæki við varaform-
annsembættinu ef hann lyti í lægra haldi í
formannskosningum, en sagðist þó geta starf-
að með hvaða forystumanni sem er sem fiokks-
þingið veldi.
Guðmundur Ámi Stefánsson er 41 árs að
aldri.
Tekur ákvörðun
um helgina
Rannveig Guðmundsdóttir, þingflokksfor-
maður Alþýðuflokksins, sem stödd er í New
York á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, segist
munu taka ákvörðun um framboð sitt um helg-
ina. „Ég er þeirrar skoðunar að þegar for-
mannssæti er laust eigi fólk í flokknum að
eiga val. Hvort þar eigi að vera val milli tveggja
eða þriggja verður að koma í ljós. Fylgi okkar
Guðmundar Áma hlýtur að skarast að ein-
hveiju leyti, en ég held að það sama gildi um
okkur Sighvat.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUÐMUNDUR Ámi Stefánsson tilkynnir
framboð sitt í þingflokksherbergi Aljþýðu-
flokksins.
Andlát
ÓLAFUR JENSSON
ÁSKORUN um að fjórir bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins slíti taf-
arlaust samstarfi við H-listann í
bæjarstjórn Hveragerðis var sam-
þykkt á aðalfundi Sjálfstæðisfé-
lagsins Ingólfs á miðvikudags-
kvöld. Gísli Páll Pálsson forseti
bæjarstjórnar og einn af bæjarfull-
trúunum segir að samþykktin
breyti engu og samstarfinu verði
haldið áfram.
Á fundinum fór fram stjómar-
kjör í félaginu og var Björn S.
Pálsson, formaður Sjálfstæðisfé-
lagsins Ingólfs I Hveragerði, endur-
kjörinn með 75 atkvæðum gegn
63 en hann er á móti núverandi
samstarfí við H-listann. Á fundin-
um var kosið í kjördæmaráð félag-
anna á Suðurlandi og í fulltrúaráð
félaganna í Árnessýslu og náði
enginn þeirra kjöri sem standa að
meirihlutasamstarfinu, að sögn
Björns.
Fundurinn var óvenju fjölmenn-
ur en hann sóttu um 140 manns
og höfðu 53 nýir félagsmenn látið
skrá sig síðustu daga.
Gísli Páll segir enga ástæðu til
að hætta samstarfi við H-listann
þrátt fyrir áskorun þar um. „Við
erum kosnir af fólkinu í bænum
en ekki sjálfstæðisfélaginu," sagði
hann. „Við erum að vinna bænum
gagn og fyrir bæjarbúa en ekki
fyrir Sjálfstæðisfélagið í Hvera-
gerði. Það em fleiri en félagsmenn
sem þar búa.“
Gísli sagði að fundurinn hafi
verið frekar óvenjulegur. Yfirleitt
komi um 30 manns á fundinum en
um 130 manns hafí mætt til þessa
fundar. „Það skýrist af því að smal-
að var á fundinn og þeir vom dug-
legri en við í smalamennskunni,"
sagði hann. „Ég held ekki að þetta
segi hug allra sjálfstæðismanna í
Hveragerði þó svo ég geti ekki
fullyrt neitt um það. Það kemur þá
í Ijós í næstu kosningum.“
ÓLAFUR Jensson, pró-
fessor og fyrrverandi
forstöðumaður Blóð-
bankans, lést á heimili
sínu í Reykjavík í gær-
morgun.
Ólafur fæddist 16.
júní 1924 í Reykjavík
og var sonur hjónanna
Sigríðar Ólafsdóttur
húsmóður og Jens P.
Hallgrímsspnar sjó-
manns. Ólafur var
kvæntur Erlu Guðrúnu
ísleifsdóttur íþrótta-
kennara og áttu þau
þrjú böm.
Ólafur lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1946 og kandídatsprófi frá lækna-
deild Háskóla íslands árið 1954.
Hann lagði stund á sérfræðinám við
- Hammersmith-spítala í Lundúnum
1955-1957 og Royal Victoria Infirm-
ary í Newcastle árið 1958 og lauk
doktorsprófi frá læknadeild Háskóla
íslands árið 1978.
Ólafur sinnti rannsóknum hjá
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur
1958 og sérfræðistörfum í blóð-
meina- og framurann-
sóknum á eigin vegum
1959-1976. Hann var
ráðgjafí hjá Krabba-
meinsfélagi íslands
1964-1974 og hjá
erfðafræðinefnd Há-
skóla íslands 1969-
1974 og var jafnframt
forstöðumaður Blóð-
bankans frá 1972 til
ársloka 1994. Þá var
hann prófessor
læknadeild Háskóla ís-
lands frá 1990. Af öðr-
um störfum Ólafs má
nefna að hann var
fastafulltrúi í sérfræðinganefnd Evr-
ópuráðs 1972, aðalritstjóri Lækna-
blaðsins 1965 til 1971, í stjóm Fé-
lags evrópskra mannerfðafræðinga
frá 1966 og formaður Blóðgjafafé-
lags íslands frá 1981. Auk þess
skrifaði hann fjölmargar greinar um
læknisfræðileg efni í innlend og er-
lend læknarit.
Ólafur var sæmdur fálkaorðunni
árið 1994 og gerður að heiðursfélaga
í Blóðgjafafélaginu í mars á þessu
ári.
Átök í Sjálfstæðisfélaginu í Hveragerði
Askorun um sam-
starfsslit hafnað
Sexmillj.
í björg-
unarlaun
HÆSTIRÉTTUR hefur með
dómi gert Þormóði ramma hf.
að greiða Miðfelli hf. og áhöfn
Páls Pálssonar ÍS 202 sex
milljónir króna í björgunar-
laun fyrir að bjarga Sunnu
SI 67 19. október 1992. Skip-
ið fékk þá vörpuna í skrúfuna
við rækjuveiðar á Vestfjarð-
amiðum. í forsendum dómsins
er talið að skipið hafí ekki
getað talist í yfírvofandi
hættu.
Miðfell hf. og áhöfn Páls
Pálssonar áfrýjuðu dómi hér-
aðsdóms til Hæstaréttar og
kröfðust 25 milljóna kr. í
björgunarlaun. Aðilar málsins
voru sammála um að áhöfn
Páls Pálssonar hafí bjargað
Sunnu en þá greindi á um
hvort skipið hafi verið í yfir-
vofandi hættu í skilningi VIII.
kafla siglingalaga.
Hæstiréttur fellst á niður-
stöðu héraðsdóms um að
björgunarlaun skuli ákvörðuð
skv. 2. mgr. 165. gr. laganna,
þar sem skipið hafí ekki verið
statt í yfírvofandi hættu, en
hafí þó ekki getað komist til
hafnar fyrir eigin vélarafli.
Málið dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Haraldur Henrys-
son, Guðrún Erlendsdóttir,
Hjörtur Torfason, Hrafn
Bragason og Pétur Kr. Haf-
stein. Þormóði ramma hf. var
jafnframt gert að greiða vexti
af dæmdri upphæð frá björg-
unardegi til 24. nóvember
1995 auk 250 þúsund kr. í
málskostnað fyrir Hæstarétti.
Forseti
Alþing-is til
Noregs
FORSETI Alþingis, Ólafur G.
Einarsson, heimsækir Noreg
dagana 4.-6. nóvember nk. í
boði forseta norska Stórþings:
ins, Kirsti Kolle Grondahl. í
för með forseta Alþingis verð-
ur Friðrik Ólafsson, skrif-
stofustjóri Alþingis.
Auk fundar með forseta
norska Stórþingsins mun
Ólafur eiga fund með utan-
ríkismálanefnd þingsins. Þá
mun forseti Alþingis einnig
hitta að máli Thorbjorn Jag-
land forsætisráðherra og
Bjorn Tore Godal utanríkis-
ráðherra.
Illfært víða
um land
SNJÓKOMA og skafrenning-
ur ollu því að illfært var um
Steingrímsfjarðarheiði í gær
og ráðlagði Vegagerðin ein-
göngu vegfarendum á jeppum
og stórum bílum öðrum að
reyna að komast þar yfir.
Um Brekknaheiði og háls-
ana sunnan Raufarhafnar var
einnig illfært. í gærmorgun
vom stórir hlutar Suðurlands
ófærir og víða mikill snjór, en
flestir vegir þar vom ruddir
um hádegi.
Snjór og ófærð af hans sök-
um setti einkum svip á
norðanvert landið og að Áust-
urlandi, að sögn Björns Svav-
arssonar vegaeftirlitsmanns.