Morgunblaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Lands-
fundur
Kvenna-
listans
í Viðey
KVENNALISTINN heldur
landsfund sinn í Viðey dagana
2.-3. nóvember undir yfir-
skriftinni: Kvenfrelsi, frá orðum
til athafna.
A laugardaginn verður rætt
um fæðingarorlofsmál og
menntamál. Á sunnudaginn
verður umræðuefnið jafnréttisá-
ætlanir og stöður jafnréttisfull-
trúa á Akureyri og í Reykjavík.
I kvöld, föstudag 1. nóvem-
ber, verður haldinn inngangur
að landsfundinum. Um er að
ræða opinn fund þar sem íjallað
verður um ímynd kvenna í fjöl-
miðlum, kvikmyndum og aug-
lýsingum.
Frummælendur verða þær
Elín Hirst, fráfarandi frétta-
stjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar,
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
fjölmiðlafræðingur og Anna
Sveinbjarnardóttir kvikmynda-
fræðingur. Að erindum loknum
taka við pallborðsumræður. í
þeim taka þátt Elfa Ýr Gylfa-
dóttir, bókmennta- og fjölm-
iðlafræðingur, og Steingrímur
Ólafsson fréttamaður ásamt
þeim Elínu, Áslaugu Dóru og
Ónnu. Fundarstjóri verður
Steinunn V. Óskarsdóttir.
Fundurinn verður haldinn í
Norræna húsinu og hefst kl.
20.30. Aðgangur að þessum
fundi er ókeypis og eru allir
velkomnir.
Kostnaðarsamar framkvæmdir til að verjast ofanflóðum
„ÞAÐ hafa engar ákvarðanir verið
teknar um hvað verður gert, á hve
löngum tíma og hver borgi brús-
ann,“ segir Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra. „Það er því ekkert
sem liggur fyrir um að þetta raski
fjárhagslegri afkomu ríkisins. Sem
stendur gerum við einungis ráð
fyrir að fylgja þeim áætlunum sem
til eru, um að Ofanflóðasjóður
styrki snjóflóðavarnir með þeim
fjárframlögum sem hann nýtur
samkvæmt lögum.
Það er hins vegar deginum ljós-
ara ef á að fara hraðar í þetta og
greiða meira en við höfum gert ráð
fyrir þarf að ákveða hver eigi að
bera kostnaðinn. Það er ekki sjálf-
gefið að ríkið borgi þetta allt sam-
an. Að því máli hljóta að koma
fleiri. Ég bendi á að mannvirkin
hafa flest verið byggð með leyfi
sveitarstjórnanna. Einnig má gera
ráð fyrir að Viðlagatrygging spari
mikla peninga ef farið verður að
ráðum nefndarinnar. Það má þá
kannski nota hluta af þeim pening-
um sem þar eru til.“
„Mitt mat er að það þurfi sér-
stakan tekjustofn til að standa
undir kostnaðinum. í dag höfum
við tiltekið álag á tryggingarið-
gjöld fasteigna vegna
þessara mála. Sá stofn
gefur nokkur hundruð
milljónir króna á ári og
þeir peningar verða
nýttir á næstu árum til
þeirra hluta sem eru
brýnastir."
„Við getum aldrei komið í veg
fyrir alla vá í þessu landi. Það er
sjálfsagt að undirbúa sig undir
hana en það verður ekki gert í
einni svipan, alls staðar á sama
tíma.“
Ekki sjálfgefið
að ríkið borgi
í skýrslu umhverfísráðuneytisins um snjó-
flóðavamir sem kynnt var á þriðjudag er
áætlað að 7-14 milljarða króna þurfi til að
koma upp vömum á helstu hættusvæðum.
Helgi Þorsteinsson spurði þingmenn og
flármálaráðherra að því hvemig bmgðist
yrði við niðurstöðunum.
Byggt með
leyfi sveitar-
stjórna
Gæti skapað falskt öryggi
„Ég hef vissar efasemdir um að
það sé rétt að leggja aðaláherslu
á að reisa stór mannvirki til snjó-
flóðavarna, það gæti skapað falskt
öryggi,“ segir Kristín
Halldórsdóttir, þing-
flokksformaður Kvenna-
listaps.
„Ég hef heyrt það frá
fólki sums staðar á land-
inu að það leggur meiri
áherslu á eftirlit. Auðvitað er þetta
mismunandi, og á sumum stöðum
þýðir ekkert annað en að koma
upp varnarmannvirkjum. Fyrst og
fremst verður þó að taka tillit til
afstöðu íbúanna. Sjálfsagt er samt
ekkert sem getur veitt fullkomið
öryggi annað en að flytja búsetuna
þaðan sem hættan er mest.“
„Það var vitað að þetta yrði
dýrt, en við getum líka spurt hvað
það kostar okkur að vera ekki við-
búin. ÖIl þjóðin verður að taka
þetta á sig. Þetta er að
sumu leyti svipað og
samgöngumálin, það er
ekki hægt að búast við
því að hver staður fyrir
sig geti staðið einn að ——
þessu.“
„Það hefur ekki verið gerð end-
anleg fræðileg úttekt á snjóflóða-
hættu, og frekari rannsóknir verð-
ur að gera áður en farið verður
að framkvæma,“ segir Kristinn
Gunnarson þingmaður Alþýðu-
bandalagsins. „Sumir staðir koma
Þjóðin verður
að taka þetta
á sig
mjög illa út í skýrslunni, til dæmis
Neskaupstaður og Siglufjörður, en
við því var búist. Menn þurfa að
vanda sig mjög í meðferð þessara
upplýsinga og ákvarðana á grund-
velli þeirra og ofreisa ekki málið,
hvorki gagnvart íbúunum sjálfum
né þeim sem ætlast er til að borgi."
„Það er augljóst að til að borga
þetta þarf að innheimta einhvern
skatt í ákveðinn árafjölda. Við því
hefur í raun verið búist lengi. Ég
reikna með að hann verði með
svipuðu sniði og þau gjöld sem nú
eru innheimt af fasteignum til Við-
lagatryggingar."
Sameiginlegar skyssur sem
þjóðin þarf að bera
„Þetta er spurning um hvort menn
vilji halda byggð áþessum svæðum
og ef svo er verður ekki hjá því
komist að leggja í einhverjar fram-
kvæmdir til snjóflóðavarna," segir
Össur Skarphéðinsson, þingmaður
Alþýðuflokksins. „Kostnaðinn á
þjóðin að bera sameiginlega.
Hvernig það verður útfært er erf-
itt að segja, en það er útilokað að
einstakir landshlutar beri hann.“
„Ég lít svo á að þessi staða
hafi að nokkru leyti komið upp
vegna áratuga fyrir-
hyggjuleysis stjórnvalda.
Það er þó ekki hægt að
sakast við neinn. Þegar
þessir byggðakjarnar,
sem nú eru í hættu, voru
að byggjast upp, um
1930-60, var eitt mesta hlýinda-
skeið Islandssögunnar. Þá voru litl-
ar líkur á svona hamförum, en nú
er annað uppi. Sameiginlega urðu
mönnum á vissar skyssur í skipu-
lagsmálum, og sameiginlega verða
menn að leiðrétta þær og greiða.“
Afmœlistón leika r
í Háskólabíói laugardaginn 2. nóvember kl. 14.00
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ:
Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna
Harðarsonar, hinir landsfrægu Fjórtán
Fóstbræður, sem koma fram eftir langt hlé,
Rakarakvartett, Gamlir Fóstbræður, Átta
Fóstbræður, Þorgeir J. Andrésson, Signý
Sæmundsdóttir, Jónas Ingimundarson o.fl.
Sögusýning kórsins verður í anddyri bíósins.
Forsala aðgöngumiða er í Háskólabíói í dag
frá kl. 13.00 til 19.00. Miðasala hefst kl. 12.00
á morgun. Ath. miðar eru númeraðir.
Miðaverð á tónleikana er 1.200 kr.
Karlakórinn Fóstbræður 80 ára
Fóstbrœðraskemmtun í Súlnasal Hótel Sögu
um kvöldið hefst kl. 23.30. Þar flytja Fóstbræður og hljómsveit létt lög og Fjórtán Fóstbræður koma
fram ásamt fleirum. Hljómsveitin Saga Klass leikur fyrir dansi.