Morgunblaðið - 01.11.1996, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Hermína
Leikfélag Dalvíkur
Stútungasaga frumsýnd
Bílaumferð um
göngugötu
Kostnað-
ur í at-
hugun
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
óskað eftir því við skipulagsdeild
bæjarins að tekin verði saman
greinargerð um lágmarksviðgerð-
ir og kostnað við að opna göngu-
götuna tímabundið fyrir bílaum-
ferð. Greinargerðina á að leggja
fram á næsta fundi bæjarráðs.
Kaupmenn við Hafnarstræti
sendu bæjarráði bréf í vikunni þar
sem spurst er fyrir um hvað líði
athugun skipulagsnefndar á er-
indi þeirra frá fyrra ári um um-
ferð bíla um göngugötu Hafnar-
strætis. Jafnframt leggja þeir til
að gatan verði skilgreind sem
blönduð aksturs- og göngugata.
Fyrst í stað verði gerð tilraun
með hæga, takmarkaða bíla-
umferð um götuna og unnt að
loka henni ef þurfa þykir. Leggja
þeir til að tilraunin standi frá 15.
nóvember næstkomandi til apríl-
loka 1997. Á þeirri reynslu, sem
af tilrauninni fengist, yrði endan-
leg útfærsla götunnar byggð.
-----♦ ♦ ♦---
Fræðslufund-
ur Mígreni-
samtakanna
MÍGRENISAMTÖKIN halda
fyrsta fræðslufund sinn á Akur-
eyri á morgun, laugardaginn 2.
nóvember og hefst hann kl. 14 á
Hótel KEA.
Auk kynningar á samtökunum
mun Gunnar Friðriksson sérfræð-
ingur í heila- og taugaskurðlækn-
ingum flytja fyrirlestur um mí-
greni; orsakir, einkenni og með-
ferð.
Mígrenisamtökin eru samtök
mígrenisjúklinga og aðstandenda
þeirra, t.d. foreldra barna með
mígreni og búa félagar í samtök-
unum úti um allt land. Gefið er
út veglegt fréttabréf þrisvar á ári
þar sem birtar eru nýjustu upplýs-
ingar um sjúkdóminn, lesendabréf
frá félögum ásamt ýmsum fróð-
leik hvaðanæva að.
Allir eru velkomnir á fundinn
og þess vænst að sem flestir sjái
sér fært að mæta, en aðgangur
er ókeypis.
LEIKFÉLAG Dalvíkur frum-
sjnir Stútungasögu eftir þau
Armann Guðmundsson, Hjör-
dísi Hjartardóttur, Sævar
Sigurgeirsson og Þorgeir
Tryggvason laugardagskvöldið
2. nóvember. Tónlistin er eftir
Ármann Guðmundsson og Þor-
geir Tryggvason. Leikstjóri er
KAUPÞING Norðurlands hf.,
Hlutabréfasjóður Norðurlands hf.
ásamt nokkrum lífeyrissjóðum
hyggst stofna nýjan hlutabréfasjóð.
Um er að ræða sjóð sem fjárfestir
í fyrirtækjum í sjávarútvegi og öðr-
um tengdum greinum.
Jón Hallur Pétursson fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norður-
lands segir að Hlutabréfasjóður
Norðurlands hafi verið starfræktur
í fimm ár, en nú sé ætlunin að bjóða
upp á nýjan valkost, gefa fjárfest-
um kost á að kaupa hlutabréf í sjóði
sem hafi aðra fjárfestingastefnu en
Hlutabréfasjóðurinn. Ætlunin sé að
kaupa einkum hlutabréf í sjávarút-
vegsfyrirtækjum, sölu- og fram-
Sigrún Valbergsdóttir.
Leikurinn gerist á „Stút-
ungaöld" og er allur í Islend-
ingasagnastíl sem hefur veirð
útfærður á gamansaman hátt.
Verkið var fyrst leikið hjá Hug-
leik í Reykjavík vorið 1993, en
þá var Sigrún Valbergsdóttir
einnig Ieikstjóri.
leiðslufyrirtækjum, fyrirtækjum
sem tengjast sjáva.rútvegi á einn
eða annan hátt.
Tillaga að fjárfestingastefnu sjóðs-
ins miðar að því að allt að 80% af
eignum félagsins sé að jafnaði bund-
ið í hlutabréfum innlendra og er-
lendra fyrirtækja í sjávarútvegi og
tengdri starfsemi. Leitast verði við
að 50-70% af fjárfestingum félagsins
í hlutabréfum verði í fyrirtækjum í
veiðum og vinnslu en 30-50% í tengd-
um greinum. Gert sé ráð fyrir að
sjóðurinn fjárfesti f óskráðum félög-
HERAÐSDOMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt skipstjórnar-
mann á Dalvík í 45 daga varðhald,
skilorðsbundið í 2 ár og til greiðslu
alls sakarkostnaðar fyrir stórfellt
gáleysi. Maðurinn var skipstjóri á
Osu EA-36, tæplega 6 tonna bát,
sem sigldi á Sigfús Baldvins EA-
145, 3ja tonna plastbát frá Gríms-
ey, skammt austur af eynni í júní
í fyrra, með þeim afleiðingum að
Sigfús Baldvins laskaðist og sökk
á skammri stundu.
Einn skipveiji var um borð í Sig-
fúsi Baldvins og náði hann að hoppa
um borð í Ösu áður en trillan sökk
og varð því ekki meint af þessu
óhappi. Um borð í Ösu voru tveir
menn. Fyrir dómi játaði ákærði
skýlaust sakargiftir og jafnframt
Sýningin er mannmörg, en
alls taka 27 leikarar þátt í upp-
færslunni auk inikils fjölda bak-
sviðsfólks.
Frumsýnt verður sem fyrr
segir á laugardagskvöld, en síð-
an verða sýningar 14.15. og
16 nóvember og 22.23. og 24.
nóvember.
um sem ætla má að fari á markað
á næstu ánim og sömuleiðis í erlend-
um félögum sem starfa í sjávarút-
vegi eða tengdri starfsemi.
Ávöxtun sjóðsins mun að mestu
ráðast af afkomu og horfum í sjáv-
arútvegi á hveijum tíma.
Stofnfundur félagsins vet'ður
föstudaginn 8. nóvember kl. 14 á
Hótel KEA, en til þess tíma geta
þeir sem óska haft samband við
starfsmenn Kaupþings Norðurlands
og orðið stofnhluthafar í nýja sjóðn-
staðfesti hann að gildistími skip-
stjórnarréttinda sinna hefði runnið
út í maí 1993.
í ákæruskjali er skipstjórnar-
manninum gefið að sök að hafa
siglt frá Dalvík þriðjudaginn 13.
júní í fyrra og haldið til línuveiða
við Grímsey án þess að hafa til
þess tiiskilin atvinnuréttindi. Jafn-
framt að hafa á siglingu bátsins
skammt austur af Grímsey daginn
eftir, vanrækt að halda nægilega
tryggilegan vörð á stjórnpalli báts-
ins með fyrrgreindum afleiðingum.
Mál þetta var þingfest í Héraðs-
dómi þann 6. maí en meðferð þess
tafðist m.a. vegna sjómannsstarfa
ákærða. Dóminn kvað upp Ólafur
Ólafsson héraðsdómari.
Fyrirlest-
ur um
hjálpar-
hugtakið
VETRARSTARF Félags
áhugafólks um heimspeki á
Akureyri hefst með fyrirlestri
Jóns Björnssonar, fyn-verandi
félagsmálastjóra Ákureyrar-
bæjar, í Deiglunni á morgun,
laugardaginn 2. nóvmeber,
kl. 14 og er hann öllum opinn.
Fyrirlesturinn nefnist
„Einn fyrir alla - allir fyrir
einn“ og fjallar um hjálpar-
hugtakið; spurninguna hvers
vegna fólk hjálpi hvað öðru
og hvers konar áhrif velferð-
arsamfélagið hafi á gagn-
kvæma hjálpsemi fólks.
Jón Björnsson hefur um
eins árs skeið starfað sem
framkvæmdastjóri menning-
ar-, uppeldis- og félagsmála-
sviðs Reykjavíkurborgar, en
var um árabil félagsmála-
stjóri á Akureyri. Hann er
sálfræðingur, útskrifaður frá
háskólanum í Freiburg í
Þýskalandi 1974.
Síðar í vetur eru fyrir-
hugaðir tveir fyrirlestrar um
kvennaguðfræði og kvennas-
iðfræði í samstarfi við Rann-
sóknarstofnun í kvennafræð-
um við Háskóla íslands með
styrk frá jafnréttisnefnd Ak-
ureyrarbæjar. Fyrri fyrirlest-
urinn flytur Arnfríður Guð-
mundsdóttir, doktor í kvenna-
guðfræði, og verður hann
fluttur fljótlega en sá seinni
er á dagskrá eftir áramót.
A norrænni
slóð
SÝNINGUNNI „Á norrænni
slóð“ sem stendur yfir í Deigl-
unni lýkur á sunnudag, en hún
er opin alla daga frá kl. 14
til 18.
Um er að ræða farsýningu
sem fjallar um sögu Norður-
landanna, hugmyndir um nor-
ræna menningu og norræna
vitund. Sýningin er hluti af
verkefninu Nordliv, sem unnið
er með styrk frá Norrænu
ráðherranefndinni. Minja-
safnið, Amtsbókasafnið og
Norræna félagið hafa umsjón
með sýningunni á Akureyri.
Sýningu að
ljúka
LISTSÝNINGU Ólafs Odds-
sonar í Gamla Lundi við Eið-
svöll á Akureyri lýkur næst-
komandi sunnudag, 3. nóvem-
ber.
Á sýningunni eru 19 verk,
unnin í olíu, vatnsliti og kol,
en þau eru unnin á árunum
1991 til 1996. Sýningin er
opin frá kl. 14 til 18.
Messa
LAUFÁSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Laufáskirkju
næstkomandi sunnudag, 3.
nóvmeber kl. 14. Minnst lát-
inna. Fermingarfræðsla í
Laufási kl. 11 á sunnudag.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í
Svalbarðskirkju kl. 21. á
sunnudagskvöld.
Fær í flestan sjo með
OSTRIN
°s'".v/v
„Síþreyta og depurð eru
erfiðir fylgikvillar sveppa-
sýkingar. OSTRIN
hjálpar mér, því það
gefur aukna orku, úthald
og vellíðan.“
Unnur Þorsteinsdóttir,
skrifstofumaður.
Sendum í póstkröfu
„65 ára, síungur og vinn
10 tíma á dag, en ég
byrja iíka hvern dag á
OSTRIN."
Árni Valur Viggósson, Skipagötu 6, Akureyri,
símaverkstjóri. sími/Iax 462 1889.
Upplýsingar um útsölustaöi gefur Gula línan í síma 562 6262
Heilsu
hornið
Nýr hlutabréfasjóður sem
fjárfestir í sjávarútvegi
um.
Árekstur smábáta austur af Grímsey
Skipsljóri dæmd-
ur fyrir gáleysi