Morgunblaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 13
LANDIÐ
Morgunblaðið/Silli
ar í nánum tengslum við Borgar-
hólsskóla og er í skólanum starf-
ræktur svokallaður „heilsdags-
skóli“ og tekur Tónlistarskólinn
við að venjulegum skóladegi
grunnskólans loknum og i haust
hófst samstarf við íþróttafélagið
Völsung um rekstur íþróttaskóla
yngri nemenda.
I tilefni af afmælinu voru
Borgarhólsskóla færðar vegleg-
ar gjafir. Landsbanki Islands
færði skólanum kr. 500 þúsund
til tölvukaupa og Verkalýðsfélag
Húsavíkur gaf 150 þús. krónur,
einnig til tölvukaupa. Auk þess
barst mikið af blómum og heilla-
óskum víða að.
Elstu núlifandi nemendur
Barnaskóla Húsavíkur muna og
minnast sérstaklega fjögurra
kennara, þeirra Benedikts
Björnssonar skólastjóra, Egils
Þorlákssonar, Jóhannesar Guð-
mundssonar og Vilborgar Ingi-
marsdóttur. 011 voru þau starf-
andi við skólann á árunum 1925
til 1940 og sum lengur, Jóhannes
til ársins 1964. Skólinn hefur
ávallt haft góðum skólastjórum
og kennurum á að skipa.
100 árliðinfrá
byggingu skóla-
húss á Húsavík
UNGIR nemendur Borgarhólsskóla.
Morgunblaðið/Anna Hellevang
STÚLKNAKÓR Húsavíkur undir stjórn Hólmfríðar Benedikts-
dóttur söng við athöfnina. Einnig söng barnakór skólans undir
stíórn Line Werner. Nemendur Borgarhólsskóla eru 426 talsins.
Áður fyrr fór grunnskólanám-
ið eingöngu fram í svonefndum
Barnaskóla, en síðar í tveim skól-
um, Barnaskóla Húsavíkur og
Gagnfræðaskóla Húsavíkur.
1992 var svo gerður einn heild-
stæður grunnskóli, sem þá fékk
nafnið Borgarhólsskóli. En bæði
skólahúsin, það gamla og nýja,
eru byggð á svonefndum Borgar-
hóli, hvar munnmæli herma að
landnámsmaðurinn Garðar Svav-
arsson hafi reist hús sitt þá hann
hafði vetursetu á Húsavík.
í skólahúsinu hefur Tónlistar-
skóli Húsavíkur aðsetur og starf-
Húsavík
ÞESS var minnst um síðustu
helgi að 100 ár voru liðin frá því
að byggt var fyrsta skólahúsið á
Húsavík. Borgarhólsskóli og
Tónlistarskóli Húsavikur geng-
ust fyrir hátíðarhöldum af því
tilefni.
Fjölmenn samkoma hófst kl.
14 með ávarpi skólastjórans,
Halldórs Valdimarssonar. Nem-
endur röktu í stuttu máli sögu
unglingakennslu á Húsavík, und-
ir stjórn Bjargar Sigurðardóttur
kennara. Kór Borgar-
hólsskóla og Stúlknakór
Húsavíkur undir stjórn
Line Werner og Hólm-
fríðar Benediktsdóttur
sungu nokkur lög. Meðal
annars skólasöng við
texta séra Friðriks A.
Friðrikssonar og ljóð eft-
ir Huldu við lag Stein-
gríms Birgissonar.
Að lokinni hátíðar-
samkomunni var gestum
boðið að skoða nýja
skólahúsið og hlýða á
margvíslegan fróðleik í
kennslustofum, söng og
hljóðfæraleik fram til kl.
18. En jafnframt stóð for-
eldrafélag Borgarhóls-
skóla fyrir veitingum í
skólahúsinu í tilefni
dagsins.
mátti þar sjá fágæta gripi, skóla-
borð, kennslutæki og bækur sem
varðveist hafa frá þeim tíma.
Gefið var út blað með viðtölum
við eldra fólk sem eitt sinn hafði
verið í skólanum, leikin leikrit og
gert stutt myndband um starfið
í barnaskólanum eins og það er
nú. Sviðsettur var stúkufundur
frá þeim tíma að öflugt stúku-
starf var í skólanum. Skólinn var
skreyttur með listaverkum og
gömlum ljósmyndum og mátti af
GAMLA skólahúsið sem byggt var fyr-
ir 100 árum á Borghóli. Þar er talið
að fyrstilandnámsmaðurinn, Garðar
Svavarsson, hafi reist bæ sinn.
Nemendur undirbjuggu
afmælishátíðina
Vikuna fyrir hátíðarhöldin
unnu allir nemendur og starfs-
menn skólans, hluta dags við að
undirbúa afmælishátíðina. Sett
var upp kennslustofa eins og hún
var fyrir meira en hálfri öld og
því öllu sjá að nemendur höfðu
lagt mikla alúð við að gera daginn
sem hátiðlegastan og minna á
eldri tíma. Fjölmenntu bæjarbúar
á hátíðina og höfðu þeir eldri
gaman af að minnast gamalla
tima og sjá jafnframt hvað unga
kynslóðin býr við og er að gera.
15111«»;
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
FRAMKVÆMDIR við nýjan veg í gegn um skólasvæðið á Sauðárkróki.
Nýr vegnr í gegn um skóla
svæðið á Sauðárkróki
Keflavíkurnæt-
ur II frumsýnd
SÝNINGIN Keflavíkurnætur II verður frum-
sýnd í veitingahúsinu Stapanum, Njarðvík,
laugardaginn 2. nóvember nk. Þetta er söng-
skemmtun sem byggist mest upp á söngperl-
um síðustu áratuga, erlendum og íslenskum.
Söngvarar þeir sem koma fram eru: Rúnar
Júlíusson, Helga Möller, Jóhann Helgason,
Rut Reginalds, Guðmundur Hermannsson,
Hallberg Svavarsson og Magnús Kjartans-
son. Einnig koma fram dansarar frá Jóni
Pétri og Köru. Hljómsveit Magnúsar Kjart-
anssonar sér um undirleik. Stjórn uppsetn-
ingar er í höndum Helenu Jónsdóttur, tónlist-
arstjórn er í umsjá Magnúsar Kjartanssonar
en ljósahönnun í höndum Magnúsar Helga
Kristjánssonar. Að sýningu lokinni leikur
hljómsveit fyrir dansi til kl. 3.
Nýr rekstraraðili hefur tekið við rekstri
Stapans, Jón M. Harðarson veitingamaður,
og hefur hann þegar hafist handa við ýmsar
breytingar á rekstri og húsnæði Stapans.
Sauðárkróki - Umfangsmiklar gatnagerðarfram-
kvæmdir eru nú í gangi á svæðinu á milli Bók-
námshúss og heimavistar Fjölbrautaskólans og
Gagnfræðaskólans á Sauðárkróki en tengivegur
milli Hlíðahverfis og eldri bæjarhlutans liggur ein-
mitt í gegn um þetta skólasvæði og er einnig
aðalleiðin að sjúkrahúsinu.
Gömul brú á Sauðánni og brött brekka norðan
og vestan Bóknámshússins hafa lengi verið öku-
mönnum á Sauðárkróki nokkur þyrnir í augum
og ekki síst fyrir þá sök að í brekkunni hefur i
vertrartíð oft myndast mikil hálka og hafa þar
orðið allmörg umferðaróhöpp. Þá hefur það einnig
verið áhyggjuefni að mikil umferð barna og ungl-
inga er yfir þessar götur, og þá ekki síst á milli
heimavistar og Bóknámshúss, og einmitt á þeim
tímum sem umferð hvað þyngst er það er á morgn-
ana og í hádeginu.
Þær breytingar sem gerðar verða eru að Sauðá-
in verður lögð í 70 metra löngu stálröri úr mynni
Sauðárgils og niður á móts við Verknámshús Fjöl-
brautaskólans en þvert ofan á þetta rör verður
annað sem myndar undirgang og gönguleið undir
götuna sem verður allmiklu hærri en áður var og
ætti þessi ráðstöfun að auka verulega á öryggi
gangandi vegfarenda á svæðinu. Brekkan upp í
Hlíðarhverfið verður nú ekki eins brött og áður
var, en hinsvegar nokkuð lengri og vegurinn ætti
því að vera mun greiðfærari.
I útboði var gert ráð fyrir að verkið kostaði
22,5 milljónir en lægsta boð í framkvæmdirnar
átti Rögnvaldur Árnason verktaki 18.954,292 eða
84,24% af kostnaðaráætlun ogvargengið til samn-
inga við hann á grundvelli þess boðs.
Gert var ráð fyrir að framkvæmdir gætu haf-
ist í vor en af ýmsum ástæðum dróst að verkið
yrði boðið út og varð því ekki fyrr en um mánað-
armótin ágúst/september sl. en áætlað er að
verktaki skili verki frágengnu um miðjan nóvem-
ber.
Morgunblaðið/Sigurjón J; Sigurðsson
Stundvís ÍS.
Mokveiði
Stundvíss
Isafirði. Mor^unblaðið.
RÆIUUBATURINN Stundvís
frá ísafirði fékk á mánudag
einhvern mesta rækjuafla sem
eitt skip hefur fengið úr ísa-
fjarðardjúpi á einum degi.
Heildarafli bátsins var 10.870
kg sem svarar til rúmlega 29%
af heildarafla ísfirskra rækju-
báta þann daginn sem var
37.445 kg.
Næstmest aflann var rækju-
báturinn Örn ÍS með, 4.930 kg
og Halldór Sigurðsson ÍS með
þriðja mesta aflann, 4.120 kg.
Að sögn hafnarstarfsmanna á
ísafirði er ástand rækjunnar
með þokkalegasta móti. Skip-
stjóri á Stundvísum er Gísli
Hermannsson, sonur Her-
manns Skúlasonar, hafnar-
stjóra ísafjarðarbæjar og fyrr-
um skipstjóra á Júlíusi Geir-
mundssyni ÍS.