Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hlutafé boðið út hjá
nýjum hlutafjársjóði
HLUTAFJÁRÚTBOÐ Hlutabréfa-
sjóðs Búnaðarbankans hf. hefst í
dag. Boðin eru út hlutabréf að upp-
hæð allt að 300 milljónum króna og
nær sölutímabilið til 1. apríl 1997.
Sótt verður um skráningu hlutabréf-
anna á Verðbréfaþingi íslands, þegar
nauðsynleg skilyrði skráningar verða
uppfyiit.
Hlutabréfasjóður Búnaðarbank-
ans fellur undir nýtt svið hjá bank-
anum, Búnaðarbankinn Verðbréf.
Þar verður rekin verðbréfaþjónusta
sem hluti af annarri þjónustu við
vtöskiptamenn bankans.
í tengslum við hlutaíjárútboðið
býður Búnaðarbankinn lán til fjár-
mögnunar hlutafjárkaupa með 9,95%
vöxtum og veitir 40% afslátt af mun
á kaup- og sölugengi bréfanna.
Nýr séreignalífeyrissjóður
Þá hefur Búnaðarbankinn óskað
staðfestingar fjármálaráðherra á
reglugerð fyrir stofnun nýs lífeyris-
sjóðs sem hefur hlotið nafnið Sér-
eignalífeyrissjóðurinn og er bæði
ætlaður fyrir almenning og starfs-
menn bankans.
Að sögn Sólons Sigurðssonar,
bankastjóra Búnaðarbankans, hefur
fjármálaráðherra ekki gefið bankan-
um svar ennþá, en hann eigi von á
því að svarið verði jákvætt. „Stofnun
sjóðsins tengist öðru máli sem er
hlútafélagavæðing bankans. Þegar
Rún fer í gegn þá þurfa lífeyrissjóðs-
mál starfsmanna að vera frágengin,
bæði áunnin og þau sem verða í
framtíðinni. Þar verður heilmikil
breyting á, ríkisábyrgð fellur niður
og við verðum á sama hátt og ís-
landsbanki þurfti að gera á sínum
tíma þegar hann gekk frá lífeyris-
sjóðsréttindum sinna starfsmanna,
að greiða í séreignasjóð og ég sé
ekki að þetta geti gengið hjá okkur
öðruvísi en sá sjóður tengist okkur.“
BENEDIKT Sveinsson, forstjóri ÍS, og Alexander Abramov, for-
stjóri UTRF, handsöluðu nýjan samning um samstarf fyrirtækjanna.
Handsala milljarða samning
Spariskír-
teini fyrir
600 millj.
SPARISKÍRTEINI fyrir tæpar
600 milljónir króna seldust í
útboði hjá Lánasýslunni á mið-
vikudag. Mest seldist af spari-
skírteinum til 20 ára.
Alls bárust 33 gild tilboð í
spariskírteini að fjárhæð 837
milljónir króna að söluverð-
mæti, en tekið var tilboðum í
spariskírteini fyrir 598 milljón-
ir. Samtals seldust 67 milljónir
króna í spariskírteinum til
fjögurra ára og var ávöxtunar-
krafan 5,79% að meðaltali. Þá
var tekið tilboðum að upphæð
160 milljónir í spariskírteini
til 10 ára og var meðalávöxt-
unin 5,80% sem er 0,16 pró-
sentustigum hærri ávöxtun en
í síðasta útboði í lok septem-
ber. Loks var tekið tilboðum
að upphæð 371 milljón í spari-
skírteinum til 20 ára og var
meðalávöxtunin 5,54% sem er
0,05 prósentustiga hærri
ávöxtun en í síðasta útboði.
BENEDIKT Sveinsson, forstjóri
Islenskra sjávarafurða hf. og
Alexander Abramov, forstjóri
rússneska útgerðarfyrirtækis-
ins UTRF, handsöluðu á mið-
vikudag samning fyrirtækjanna.
Samningurinn felur í sér áfram-
haldandi samstarf fyrirtækj-
anna á sviði fiskveiða, fisk-
vinnslu og markaðssetningar
afurða. Heildarverðmæti þjón-
ustu og afurða samkvæmt samn-
ingnum er um 4 milljarðar
króna, miðað við eitt ár. Gerðir
voru tveir samningar, annar til
tveggja og hinn til þriggja ára
og er verðmæti samninganna
fyrir allt tímabilið um níu millj-
arðar króna. Til samanburðar
má geta þess, að heildarvelta IS
á þessu ári er áætluð um 20
milljarðar króna.
Tilkynning um útboð markaðsverðbréfa
HLUTABRÉFASJÓÐUR BÚNAÐARBANKANS HF.
íim
/ r
ALMENNT HLUTAFJARUTBOÐ
Heildarnafnverð nýs hlutafjár:
Sölugengi:
Sölutímabil:
Söluaðili:
Forkaupsréttur:
Umsjón með útboði:
Skráning:
Kr. 300.000.000-
1,00 á fyrsta söludegi.
1. nóvember 1996 til 1. apríl 1997.
Búnaóarbanki Islands, útibú og afgreióslustaöir bankans.
Hluthafar hafa ekki forkaupsrétt til áskriftar,
heldur skulu hlutabréfin seld á almennum markaói.
Verðbréfaviðskipti Búnaðarbanka íslands.
Oskað veröur eftir skráningu á Verðbréfaþingi íslands
þegar félagió hefur náó aö uppfylla nauðsynleg skilyrói
fyrir þingskráningu.
Útboðslýsing vegna ofangreindra hlutabréfa
liggur frammi hjá Búnaðarbanka Islands.
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
Austurstræti 5, 155 Reykjavík, sími 525-6000, myndscndir 525-6259
Aöili að Verðbréfaþingi íslands
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
INGÓLFUR Guðmundsson flutti erindi á fundi hjá ÍMARK í gær
um nýjar víddir í fjármálaþjónustu.
Fundur um nýjar víddir í fjármálaþjónustu
Samkeppni á
eftir að aukast
SAMKEPPNI á fjármálamarkaði
á eftir að aukast og hún verður
ekki einvörðungu á milli banka og
sparisjóða heldur eiga aðrir aðilar,
s.s. lífeyrissjóðir, eftir að koma í
meira mæli inn á þennan markað.
Þetta kom fram í máli Birnu Ein-
arsdóttur, forstöðumanns^ mark-
aðs- og þjónustudeildar íslands-
banka, og Ingólfs Guðmundsson-
ar, forstöðumanns markaðssviðs
Landsbanka íslands, á fundi
ÍMARK sem haldinn var í gær.
Þar var fjallað um nýjar víddir í
fjármálaþjónustu og hvert hún
stefnir.
Að sögn Birnu Einarsdóttur
. hafa breytingar á höftum, reglum
og lögum opnað ný tækifæri fyrir
markaðssókn á íslenskum fjár-
málamarkaði og samfara því hafi
umtalsverðar breytingar orðið á
rekstri og þjónustu bankastofn-
anna.
„Líkt og annars staðar í heimin-
um hefur heimsóknum viðskipta-
vina í bankaútibú á íslandi fækkað
mjög mikið á undanförnum árum
og í nánustu framtíð má búast við
því að þeim fækki enn frekar.
Bankarnir þurfa því að glíma við
fortíðarvanda sem felst í miklum
fjárfestingum í steinsteypu eitt-
hvað sem nýir aðilar á fjármála-
markaði þurfa ekki að fást við,“
segir Birna.
Að sögn Ingólfs hefur Lands-
bankinn verið að undirbúa breyt-
ingu á bankanum í hlutafélag á
undanförnum misserum. „Það er
breyting sem við teljum að sé
mjög jákvæð fyrir samkeppnis-
stöðu bankans. I framtíðinni verð-
ur persónuleg þjónusta við við-
skiptavininn aukin og beinar
markaðsaðgerðir verða meira
áberandi. Útibúum fækkar og
bankarnir munu leggja áherslu á
að veita viðskiptavinum sínum
heildarlausnir í fjármálum."
Áætlanir hafa gengið upp
Að sögn Ingólfs hafa áætlanir
Landsbankans hvað varðar Síma-
bankann gengið fullkomlega eftir
ög markhópur hans er mun stærri
heldur en hjá banka sem er með
þjónustu á alnetinu.
Að sögn Bimu mun íslands-
banki ekki fara út í rekstur síma-
banka. „Við reiknuðum dæmið
fram og til baka og okkur tókst
ekki að láta enda ná saman. Is-
landsbanki verður að skila hluthöf-
um sínum arði og við töldum að
við hefðum ekki svo þolið fé á bak
við okkur sem þarf til að fara út
í verkefni af þessu tagi.“
IATA með fund
um hærra verð
á eldsneyti
Genf. Reuter.
FULLTRÚAR flugfélaga funda
eftir hálfan mánuð um hugsanlegar
„samhæfðar aðgerðir" til að mæta
10% hækkun á verði eldsneytis að
sögn Alþjóðasamtaka flugfélaga
(IATA).
Viðræður 250 aðildarflugfélaga
IATA fara fram í Genf 13. nóvem-
ber. Hráolíuverð hefur ekki verið
hærra síðan í Persaflóadeilunni fyr-
ir fimm árum og vekur það ugg
um verðbólguþrýsting.
Verðið er tæplega 24 dollarar
tunnan, um 6 dollurum hærra en
í fyrra. Fyrir flugfélögin jafngildir
það 73,9 sentum fyrir hvert amer-
ískt gallon af eldsneyti að meðal-
tali um allan heim á fyrstu níu
mánuðum ársins samanborið við
65,2 sent 1995.
Á fundi IATA kann að verða
ákveðið að hækka fargjöld og farm-
gjöld að sögn talsmanns IATA, Tim
Goodyear.
Hann segir að flugfélögin kunni
að taka á sig hinn aukna eldsneytis-
kostnað, en það muni koma niður
á fjárfestingum í nýjum flugvélum,
sem mikil þörf sé á.
„Þau munu því íhuga þörf á sam-
hæfðum aðgerðum til að mæta
auknum eldsneytiskostnaði,“ sagði
Goodyear við Reuter. „Það gæti
þýtt hækkun á fargjöldum og farm-
gjöldum."
Alþjóðaflugfélög verja 13 millj-
örðum dollara á ári til kaupá á
eldsneyti að sögn Goodyears. Ef
verð á eldsneyti hækkar um 10%
táknar það 1.3 milljarða dollara
aukakostnað, segir hann, en til
samanburðar nam hagnaður flug-
félaganna í fyrra 5,2 miiljörðum
dollara.
I
1
>
»
I
9
»
I
í
I
I
»