Morgunblaðið - 01.11.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 19
Rúmenar ganga að kjörborðinu ásunnudag
Vaxandi óánægja með
Ion Iliescu forseta
Búkarest. Reuter.
ION Iliescu, forseti Rúmeníu, hefur
forystu í skoðanakönnunum þeim
sem birtar hafa verið fyrir kosning-
arnar í landinu á sunnudag en getur
á hinn bóginn ekki verið öruggur
um að fara með sigur af hólmi. Ili-
escu, sem er fyrrum kommúnisti og
var um skeið náinn aðstoðarmaður
einræðisherrans Nicolae Ceausescu,
hefur ríkt í Rúmeníu allt frá því að
læriföður hans var steypt af stóli
um jólin 1989 og tekinn af lífi.
Þetta er í þriðja skiptið sem Rúm-
enar ganga að kjörborðinu í forseta-
kosningum frá því að einræði komm-
únista leið undir lok. Kosningabar-
áttan hefur verið sérlega hörð og
óvægin og persónulegar árásir og
ávirðingar sett mjög svip sinn á
hana. Alls eru 15 menn í framboði
en reynist kannanir réttar eiga ein-
ungis tveir þeirra einhverja mögu-
leika á að sigra Uiescu.
„Skynja vilja fólksins“
Iliescu sagði í viðtali við frétta-
mann Reuters um þelgina að hann
væri sigurviss. „Ég skynja vilja
fólksins. Þrátt fyrir erfiðleikana er
almenningur viss um að rétt stefna
hafi verið mörkuð í byltingunni,"
sagði forsetinn.
Samkvæmt kosningareglum fer
sá frambjóðandi með sigur af hólmi
sem hlýtur meira en helming at-
kvæða. í könnun sem birta var um
helgina reyndist fylgi Iliescus vera
36,5% en næstur kom háskólakenn-
arinn Emil Constantinescu, sem er
Nýjar skoðanakannanir
sýna að Iliescu forseti
getur ekki talist örugg-
ur um endurkjör. Hugs-
anlegt er því að endi
verði bundinn á yfirráð
arftaka kommúnista,
sem ríkt hafa frá 1989.
frambjóðandi 15 flokka stjórnarand-
stæðinga. Var fylgi við hann 24,7%
en í þriðja sæti var Petre Roman,
fyrsti forsætisráðherra Rúmeníu eft-
ir byltinguna 1989 og fyrrum sam-
herji Iliescus, með 21,7%.
Svo virðist sem krafan um breyt-
ingar hljómi óvenju hátt í Rúmeníu
fyrir þessar kosningar. Lífskjörin eru
dapurleg og hafa heldur farið versn-
andi í landinu og meðailaun þar eru
verulega lægri en í nágrannaríkjun-
um, Póllandi, Ungveijalandi og
Tékkneska lýðveldinu.
Stjórnarflokkur í vanda
Kannanir gefa einnig til kynna
að fylgi við flokk Iliescus, fari dvín-
andi. Svo virðist sem mest fylgi sé
við bandalag stjórnarandstæðinga,
CDR, en Jafnaðarmannaflokkur Ui-
escus, PDSR, hefur í sumum könn-
unum hrapað niður í þriðja sæti.
CDR fór með sigur af hólmi í bæj-
ar- og sveitarstjórnakosningum í
júnímánuði og ræður nú helstu borg-
um Rúmeníu en fylgi við fyrrum
kommúnista hefur löngum verið
bundið einkum við landsbyggðina.
Heita umbótum
Fjendur forsetans segja hann
tímaskekkju og að hann tilheyri
valdakerfi kommúnismans sem aldr-
ei hafi verið aflágt með öllu í land-
inu. Því er haldið fram að andstaða
hans við umbótastefnu á vettvangi
efnahagsmála, líka þeirri sem inn-
leidd hefur verið í nágrannaríkjun-
um, hafi orðið þess valdandi að lífs-
kjörin hafi versnað til muna.
CDR-bandalagið hefur lagt fram
stefnuskrá, svonefndan „samning
við alþýðuna“ sem minnir á þann
sem repúblíkanar í Bandaríkjunum
hafa kynnt. Leiðtogar bandalagsins
heita því þar m.a. að þeir muni
hverfa frá völdum takist þeim ekki
að innleiða róttæka umbótastefnu
innan ákveðinna tímamarka.
„Sýndarlýðræði"
í skýrslu nokkurra áhrifamikilla
rúmenskra sérfræðinga sem birt var
um síðustu helgi er farið hörðum
orðum um stjórnarfarið og efna-
hagsstefnu þá sem stjórn Ions Ili-
escu hefur fylgt. „í stað þess að
byggja upp nútímalegt, frjálst og
þróað þjóðfélag einkennir sýndarlýð-
ræði og frumstætt og brothætt efna-
hagskerfi samfélagið í Rúmeníu.“
Nýja kynslóðin
- fyrir alla!
Dómur
er fallin
Ford Fiesta
I hag!
Ford Fiesta er stórkos11egur, nýr smábíll frá Ford.
Um það eru öll virtustu bílablöð í heiminum
sammála. Fiesta fær toppeinkunn fyrir allt sem
skiptir máli í hverjum bíl: Innréttingin er sögð bera
af, sömuleiðis aksturseiginleikar og vélarorka.
Hann er búinn vökvastýri og 75 hestafla véi sem
skilar einstaklega mikilli orku á lágum snúningi og
er með eindæmum sparneytin. Gæði bílsins eru
tryggð með vandaðri framleiðslu hans í Þýskaiandi
Helsti búnaður;
Vökvastýri, útvarp, segulband, upphituð framrúða, upphitaðir
speglar, rafknúnir speglar, kraftmikil 16 ventla vél, bein
innspýting, faileg innrétting, fellanlegt aftursætisbak og
s k i p t (6 0 / 4 o), fullur bensíntankur, snúningshraðamælir og fl.
stgr. á götuna
V e r ö f r á |9
en verðið er þó lægra en á keppinautum hans í
sama stærðarflokki.
FAXAFENI 8 • S(MI 515 7010
Aukabunaður á mynd: Alfolgur. þokuljós og samlitir speglar.