Morgunblaðið - 01.11.1996, Page 28

Morgunblaðið - 01.11.1996, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýjar bækur • í LÍFSKÚNSTNERINN Leifur Haraldsson er rakinn æviferill Leifs, umsagnir samferðamanna hans, lausavísur og Ijóð. Daníel Agústínusson tók saman efni þessarar bókar. Þeir Leifur voru vinir og leikfé- lagar og hélst trygg vinátta þeirra alla tíð. Leifur setti nokkurn svip á lífíð í Reykjavík á árunum 1940-1970. Hann vartíður gestur á kaffihúsum borgarinnar í fylgd þekktra skálda og gáfumanna svo sem Hannesar Sigfússonar, Jóns Óskars, Jóns úr Vör, Helga Sæmundssonar og Steins Steinarr. Leifurv ar sérstæður í útliti og mál- haltur og vakti því jafnan athygli þar sem hann kom. Frægur var hann fyrir orðheppni sína, hnyttin og skörp tilsvör og snjallar lausavísur. Leifur var kunnur þýðandi, þýddi m.a. Stríð og frið eftir Leo Tolsljoj. „Lítið hefur birst af kveðskap Leifs á prenti, en hann hafði ótví- ræða skáldgáfu eins og úrval ljóða hans í bókinni ber með sér“, segir í kynningu. Útgefandi ev Hörpuútgáfan. Bókin er 150 bls. Kápa: Halldór Þorsteins- son, Oddi hf. Prentvinnsla: Oddi hf. • TÖLVA, tölva hermþú hver? eftir Jón Dan er komin út. Bókin er handa unglingum og leshneigðu fólki á öllum aldri. Sagan er um bræðurna Torfa Hauk 13-14 árasem er að hasla sér völl í tölvuveröld og Dodda nokkrum árum eldri. I samskiptum við menn og tölvu gilda, ef vel á að fara, lögmál sem aldrei úreldast. Torfi Haukur varar sig ekki á því og misstígur sig. „Sagan er um afbrot og refsingu, græðgi sem engu eirir, friðþægingu, ungt fólk og saklausar ástir“, segir í kynningu. I sögunni er þraut sem lesandinn getur spreytt sig á. Verðlaun handa heppnum lesendum eru tölvuprent- arar sem fyrirtækið EJS gefur. Bókaútgáfan Keilirgefur út. Bók- in er 157 síður. • ÚT ER komin ensk þýðing á ljóða- bók Normu E. Samúelsdóttur, Marblettir í regnbogans litum (1987). Þýðingin heitir Bruises in the Colours of a Ruinhow og er eftir móður höf- undarins, Huldu Valdimarsdóttur Ritehie. í bókinni er böl alkóhól- ismans reifað í tilfinningah'fi eig- inkonunnar, aðstandandans. Verkið hefur verið endurskoðað af höfundi. Bókin er 53 síður í vasabroti og fæst í bókabúð Máls og menningar og Pennanum/Eymundsson. Auk þess fæst hún hjá þýðanda og höf- undi verksins. Hún mun fara í dreif- ingu á Bretlandi innan tíðar. • BROTNIR hlekkir er skáldsaga eftir Ken Follett. Sagan hefst í há- löndum Skotlands í lok 18. aldaren leikurinn berst ti! London og síðar Ameríku. Þetta eru miklir umbrota- tímar. London er á barmi upplausnar og nýlendurnar í Ameríku undirbúa að yfirgefa breska heimsveldið. I kolanámum Skotlands þrælar Mack McAsh myrkranna á milli en þrá hans eftir frelsi veldur því að hann lendir hvað eftir annað í útistöðum viðvaldhafana. í kynningu frá útgefanda segir „Ken Follett er einn vinsælasti met- söluhöfundur heims nú um stundir. Bækur hans fara hvarvetna i efsta sæti rnetsöiulista. „ Útgefandi er Vaka-Helgafell. Geir Svansson þýddi bókina. Brotnir hlekkirer378 bls. aðlengd. Bókin er brotin um hjá Vöku-Helgafelli og filmuunnin í Offsetþjónustunni. Leið- beinandi verð er 2.480 kr. Norma E. Samúelsdóttir Leifur Haraldsson INGI Fróði Helgason og Huld Óskarsdóttir í hlutverkum sínum í „Stalín er ekki hér“. Stalín er ekki hér LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar frumsýnir í Bæjarbíói í dag, föstudag 1. nóvember, leikritið Stalín er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta verður afmæl- issýning en nú eru 60 ár frá því að Leikfélag Hafnarfjarðar sýndi sitt fyrsta verk. Leikstjóri er Hanna María Karlsdóttir. „Leikritið Stalín er ekki hér er fjölskyldudrama sem gerist í Reykjavík árið 1957. Þetta er raunsæisverk og fjallar um til- finningaleg og pólitísk átök inn- an venjulegrar íslenskrar fjöl- skyldu. Þó einna mest milli Þórð- ar sem er kommúnisti af gamla skólanum og Huldu dóttur hans sem kemur að utan með allt aðr- ar hugmyndir um sambýlishætti og stjórnmál," segir í kynningu. Það eru séx hlutverk í sýning- unni og eru þau öll mjög jöfn. Hallgrímur Hróðmarsson leikur Þórð og Anna Ólafsdóttir Huldu dóttur hans. Önnur börn Þórðar af fyrra hjónabandi leika Huld Óskarsdóttir og Gunnar B. Guð- mundsson. Mundu seinni konu Þórðar leikur Bára Jónsdóttir og tilvonandi tengdasoninn Stjána leikur Ingi Fróði Helgason. „Vésteinn Lúðvíksson varð fyrst þekktur fyrir skáldsögur sínar Gunnar og Kjartan og Eft- irþankar Jóhönnu. Stalín er ekki hér sem var fyrsta Ieikrit Vé- steins var síðan frumsýnt í nóv- ember 1977 í Þjóðleikhúsinu. Það sem vakti einna mesta at- hygli voru þær miklu deilur sem spunnust um verkið áður en það var frumsýnt. Ymsir virtust hafa myndað sér skoðun á verkinu áður en það kom fyrir sjónir manna og sýndist sitt hveijum. Þessar deilur héldu áfram eftir að verkið var frumsýnt og urðu æði hatrammar. Gagnrýnendur og áhorfendur voru þó almennt ánægðir með verkið og kallaði einn gagnrýnandinn það „fyrsta raunsæisverkið úr samtíð okkar sem fullkomlega heppnast og markar tímamót bæði í ferli Vésteins Lúðvíkssonar og ís- lenskrar leikritunar,“ segir enn- fremur. Ljúfur leir MYNPLIST Listhús 39 LEIRLIST Sigríður Ágústsdóttir. Listhús 39: Opið kl. 10-18 mánud.-föstud. og kl. 14-18 laugard. og sunnud. til 4. nóvember; aðgangur ókeypis. LEIRINN er einn þeirra miðla myndlistarinnar sem blómstrað hafa í seinni tíð með þeirri fjöl- breytni vinnuaðferða sem þar koma til greina til að skapa hefðbundin jafnt sem óvenjulegri form, sam- setningar lita og áferða. Það er gaman að fylgjast með þessari þró- un og með hvaða hætti hver ein- staklingur leggur þar sitt lóð á vogaskálarnar. Sigríður Ágústsdóttir stundaði listnám sitt einkum í Englandi og Frakklandi á áttunda áratugnum, og hefur unnið í leirlistinni undir handleiðslu þekktra meistara í Englandi. Segja má að hún hafi síðan tekið til við listina af nokkr- um krafti síðustu ár og m.a. tekið þátt í ýmsum samsýningum, en hér er á ferðinni hennar fyrsta einka- sýning. SIGRÍÐUR Ágústsdóttir: Lofn og Yrpa. Hún sýnir hér tæplega tuttugu gripi, flest vasa, könnur eða önnur kunnugleg form. í sýningarskrá lýsir listakonan með einföldum hætti þeirri vinnsluaðferð sem hún beitti við gerð þeirra, og er það þakklát tilraun til að gera gestum auðveldara að átta sig á því sköpun- arferli sem hér er á ferðinni. Útkoman er afar slétt, tignarleg áferð gripanna, þar sem dumbaðir en ríkulegir litir blasa við með sér- stökum hætti í hveiju verki fyrir sig. Oftast er um að ræða litaflæði sem dreifist um allt yfirborðið með fijálslegum hætti, en í öðrum tilvik- um er byggt á finlegu mynstri, sem verður líkt og undirstaða lita- spjalds, sem ríkir í viðkomandi hlut. Sigríður hefur leitað fanga í nor- rænni goðafræði um nöfn á gripina á sýningunni, en þau tengjast flest kvenverum þeirra heima, sem þar er um fjallað. Þar með er mýkt og fínleiki formanna einnig undirstrik- aður með beinum hætti, þar sem karlkennd nöfn kynnu að virka nokkuð framandleg í því samhengi bljúgra lína sem hér blasa hvar- vetna við. Af einstökum verkum er hér vert að benda á gripi eins og „Lofn“, „Gríður" og „Hljóð“ sem dæmi um ólíkar formgerðir og litasamsetn- ingar sem ganga vel upp. Fleiri væri hægt að nefna en hér er sjón sögu ríkari og er rétt að óska lista- konunni til hamingju með þessa fyrstu sýningu með von um að gott framhald verði þar á. Eiríkur Þorláksson BÓKMENNTIR Barnabók HIMINNINN LITAR HAFIÐ BLÁTT eftir Sólveigu Traustadóttur. Teikn- ingar og kápumynd: Freydís Kristjáns- dóttir, Mál og menning 1996.119 s. MINNINGAR. Eins og ár í vor- leysingum þegar þær streyma fram í hugann fær þær ekkert stöðvað. Á þessum orðum hefst stuttur formáli að sögunni um Margréti litlu í Ljúfuvík og eitt sumar í lífi hennar. Lesanda er gefið til kynna að höfundur sé að rifja upp sæludaga úr fortíð. Sögu- maðurinn alvitri segir sögu Mar- grétar og Eddu vinkonu hennar í sæluumhverfi þar sem öryggi ríkir og hver dagur er fylltur af sól og sælu. Margrét er í fóstri hjá ömmu sinni og Kela en foreldrar hennar og systir búa í útlöndum og ekk- ert meira um þau að segja. Mar- gœt hefur annan fótinn styttri Haf og himinn en hinn en það er heldur ekkert meira um það að segja. Hún er dugleg, heilbrigð og skynsöm, ákaflega spekingsleg og greini- legt er að sögumaður hefur gaman af að láta hana sletta fram heimspekilegum at- hugasemdum um ólíklegustu hluti. Málfar bókarinnar er málfar fullorðins fólks. Margrét er fluglæs og betur læs en önnur sjö ára börn. Sögumaður lætur alla túlka skoðanir sínar. Kettinum Antoni er gefið mál og hann lýsir sínum skoðunum á hlutunum: „Mikið er hún góð þegar hún sef- ur,“ er hann látinn segja um Margéti þegar hann fær ekki svefnfrið. Hænan, Litla drottning, sem ber á höfði blúndu- húfu og ekið er í dúkkuvagni hefur líka sínar sérstöku skoðanir sem sögu- maður lætur í ljós í orðastað hennar. Endalok hænunnar er eini dramatíski við- burður sögunnar. Sumarið hefst með komu vinkonunnar Eddu til Ljúfuvíkur. Þar með hefst sæla sumarsins og telpurn- ar eru óaðskiljanlegar perluvinkonur sem fara og gera allt saman. Sagan segir frá nokkr- um fyndnum viðburðum sem flest- ir tengjast Amalíu kaupfélags- stjórafrú sem gerð er afkáraleg og skrýtin. Hún fer á svo háhæl- Sólveig Traustadóttir aða skó að hún steypist yfir sig, hún drekkur í sig anda úr dular- fullri silfurflösku Droplaugar syst- ur sinnar með þeim ^fleiðingum að hún dansar upp á kaffíborði gestgjafanna og loks fótbrotnar hún við að klifra upp í tré á eftir dóttur sinni. Nokkrir aðrir atburðir eiga sér stað án þess að stelpurnar séu miklir þátttakendur. Sagt er frá því þegar krakkarnir henda hæn- um út í tjörn og bijóta egg, en þeim er sagt frá því eftir á fremur en að þær verði vitni að því. Frá- sögn um mannýg naut og krakka sem detta í sjóinn eru gömul og ofnotuð minni, einkum ef sagt er frá þeim úr fjarlægð. Heimur Ljúfuvíkur er í raun paradís á jörð. Vandamál eru hvergi sjáanleg og ef eitthvað skyldi bjáta á daglangt eru ótal útréttar hendur til að bæta úr svo að allt falli í ljúfa löð á ný. Sælan og lífshamingjan drýpur þar af hveiju strái og tæpast ber nokk- urn skugga á tilveruna. Sigrún Klara Hannesdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.