Morgunblaðið - 01.11.1996, Side 37

Morgunblaðið - 01.11.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 37 Húsvernd er menning MÁL.ÞING um hús- vernd verður haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur, á laugardaginn kemur, 2. nóvember nk. Þar verð- ur kynntur undirbún- ingur að mótun fram- tíðarstefnu í húsvernd- armálum. Skipulagsnefnd Reykjavíkur samþykkti sumarið 1994 að heíja undirbúning að fram- tíðarstefnumótun í hús- verndarmálum í Reykjavík. Skipuð var samráðsnefnd um hús- vernd í Reykjavík með fulltrúum úr bygginganefnd, menn- ingarmálanefnd, skipulagsnefnd og umhverfismálaráði. Hlutverk nefndarinnar er: 1. Að fara yfir þær ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar í hús- friðunarmálum í Reykjavík. 2. Að kanna hvað gera þarf í hús- friðunarmálum á komandi áratugum að mati nefndarinnar sjálfrar og sam- kvæmt þjóðminjalögum að fengnu áliti Húsfriðunamefndar ríkisins. 3. Að gera tillögur um breytingar ef nauðsynlegar eru á aðalskipulagi og deiliskipulagi þannig að skipu- lagsákvarðanir samrýmist menning- arlegum markmiðum húsfriðunar. 4. Að gera tillögur um breyfingar, ef nauðsynlegar eru, á aðalskipulagi og deiliskipulagi, þannig að skipu- lagsákvarðanir samrýmist menning- arlegum markmiðum húsfriðunar. 5. Að gera tillögur um það hvort og þá hvernig megi auðvelda ein- staklingum, fyrirtækjum og stofnun- um að halda við gömlu húsnæði eða að færa það til upprunalegra horfs og gera svo til skipulagsnefndar til- lögu um mótun húsfriðunarstefnu til framtíðar sem síðan fái eðlilega með- ferð í borgarráði og borgarstjórn og öðrum starfsnefndum borgarinnar þannig að tillögurnar í heild falli sem best að öðrum ákvörðunum sem borgin þarf að taka. 6. Að kanna hvernig tengja má saman áætlanir um fjölgun atvinnu- tækifæra og um endurnýjun og end- urbætur gamalla húsa og annarra mannvirkja. Með húsfriðun er hér átt við varð- veislu og friðun einstakra húsa, götu- mynda, heildstæðra svæða og hverfa. Nefndin skipaði sér starfshóp með fulltrúum frá þeim stofnunum borgar- Guðrún Agústsdóttir innar sem tengjast hús- vemdarmálum á einn eða annan hátt._ Þar eru fulltrúar frá Árbæjar- safni, borgarskipulagi, byggingafulltrúa og byggingalistardeildar á Kjarvalsstöðum. Borg- arminjavörður hefur verið ritari nefndarinn- ar. Starfshópurinn fór í upphafí yfír þær ákvarð- anir sem teknar hafa verið í húsfriðunarmál- um á liðnum árum og gerði samantekt á tillög- um um friðun og vemd- um sem fram hafa kom- ið. Á grundvellli þeirra upplýsinga hófst vinna við mörkun nýrrar stefnu í húsvemdarmálum. Samhliða þeirri stefnumótun hefur starfshópurinn unnið að úttekt á varðveislugildi byggðar innan Hringbrautar, þ.e. elsta hluta Reykjavíkur. Varðveislu- Markmiðið með hús- vernd er að stuðla að verndun og viðhaldi menningarsögulegs arfs. Guðrún Ágústs- dóttir hvetur áhugafólk að mæta í Ráðhús Reykjavíkur á morgun. skrá þessi verður kynnt á málþinginu í máli og myndum, en ætlunin er að halda áfram að vinna slíka skrá fyrir alla borgina. í varðveisluskránni er byggingum og svæðum með varð- veislugildi skipað í þrjá flokka eftir eðli og mikilvægi. Sem dæmi má nefna að í A-flokki eru þegar friðuð hús og einnig hús og húsasamstæður sem lagt er til að verði friðuð. Þar er Miðstræti frá Bókhlöðustíg að Skálholtsstíg sérstaklega nefnt sem dæmi um eina heillegustu og best varðveittu timburhúsagötuna í Reykjavík frá upphafí aldarinnar. Varðveisluskrá þessi er grunnur hús- verndarstefnu borgarinnar. Markmiðið með húsvemd er að stuðla að verndun og viðhaldi þess menningarsögulega arfs sem fólginn er í merkum byggingum fyrri tíðar, OROBLLI KYNNING 15% AFSLÁTTUR af öllum OROBLU sokkabuxum föstudaginn 1. nóvember kl. 14.00-18.00. ■ PLAISIR 40 DEN Frábærar lycra stuðnings/nudd- sokkabuxur - 40 den. Venjulegt verð 598 kr. - kynningarverð 508 kr. Ath. Leitið ekki langt yfir skammt - lægsta verðið á 0R0BLU sokkabuxunum er á íslandi INGOLFS APOTEK Kringlunni - Sími 568 9970 en þær eru áþreifanlegur tengiliður komandi kynslóða við uppruna sinn og fortíðina. Með því móti má varð- veita þau staðbundnu og listrænu sérkenni í húsagerð og skipulagi er gefa Reykjavík sérstöðu meðal borga og eru á þann hátt mikilvægur hluti af ímynd hennar. Skipulag sem tekur mið af húsvemd getur verið hvort tveggja í senn varðveisluáætlun og uppbyggingaráætlun. Það er ekki ætlunin að leggja stein í götu eðlilegr- ar þróunar og uppbyggingar heldur að spoma gegn því að byggingar séu sviptar svipmóti sínu og stíleinkenn- um að óþörfu. Áður var deilt um það hvort vemda ætti gömul hús; það er liðin tíð. Spumingin nú er aðeins sú hvemig þau verða best varðveitt og hvemig sú stefna fellur að heildar- stefnu í menningarmálum. Við sem stöndum að málþingingu hvetjum allt áhugafólk um húsvernd að mæta í Ráðhús Reykjavíkur nk. laugardag. Höfundur er formaður húsvernd- amefndar Reykjavíkur og forseti borgarstjórnar. í-f œpiTÁ laugardaginn 2. nóvember kl. 20.00 íþróttahúsinu v. Strandgötu í Hafnarfirði Húsið verður opnað kl. 19.00. Efstu 2 sætin gefa rétt til keppni á Norðurlandamótinu í desember. íslandsmeistarakeppni í 5x5 dönsum m. fijálsri aðferð sunnudaginn 3. nóvember kl. 14.00 í íþróttahúsinu v. Strandgötu í Hafnaríirði. Húsið verður opnað kl. 13. Forsala aðgöngumiða hefst kl. 12.30. Keppt er í ilokki 12-13 ára, 14-15 ára, 16-18 ára, 16 og eldri, atvinnumenn. Verð: 1 dagur: í sæti 1000 kr. í stúku 600 kr. Keppnisgjald 1000 kr. 2 dagar: 1800 kr. 1000 kr. 1800 kr. Jafnframt er boðið upp á keppni í dansi með grunnaðferð. Síðasti skráningardagur 10. okt. ’96. Æfing fyrir keppendur byrjar kl. 18.00 2. nóv. Númer verða afhent á æfingunni og eru keppendur beðnir að greiða keppnisgjald þá! Taktur er 10 ára og í tHefniþ ess bjóðum við 10-40% afslátt af öllum vönrni, hljómtækjum og geisladiskum Fullkomnustu heimabíó landsins verða í gangi talarabúðin í bænum □□ I POLBY SURROUIMpj |~]ni POLBY SUHROUNp] I HX P R O • L O G I C AC-3 P R O • L O G I C KENWOOD NAD m ACOUSTIC RESEARCH Cerwin-Wega.' OXRVER Powerful • Uuslca! • Accuratc þar settt gceðiti heyrast Ármúla 17, Reykjavík, sími 568 8840

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.