Morgunblaðið - 01.11.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 37
Húsvernd er menning
MÁL.ÞING um hús-
vernd verður haldið í
Ráðhúsi Reykjavíkur, á
laugardaginn kemur, 2.
nóvember nk. Þar verð-
ur kynntur undirbún-
ingur að mótun fram-
tíðarstefnu í húsvernd-
armálum.
Skipulagsnefnd
Reykjavíkur samþykkti
sumarið 1994 að heíja
undirbúning að fram-
tíðarstefnumótun í hús-
verndarmálum í
Reykjavík. Skipuð var
samráðsnefnd um hús-
vernd í Reykjavík með
fulltrúum úr bygginganefnd, menn-
ingarmálanefnd, skipulagsnefnd og
umhverfismálaráði.
Hlutverk nefndarinnar er:
1. Að fara yfir þær ákvarðanir
sem þegar hafa verið teknar í hús-
friðunarmálum í Reykjavík.
2. Að kanna hvað gera þarf í hús-
friðunarmálum á komandi áratugum
að mati nefndarinnar sjálfrar og sam-
kvæmt þjóðminjalögum að fengnu
áliti Húsfriðunamefndar ríkisins.
3. Að gera tillögur um breytingar
ef nauðsynlegar eru á aðalskipulagi
og deiliskipulagi þannig að skipu-
lagsákvarðanir samrýmist menning-
arlegum markmiðum húsfriðunar.
4. Að gera tillögur um breyfingar,
ef nauðsynlegar eru, á aðalskipulagi
og deiliskipulagi, þannig að skipu-
lagsákvarðanir samrýmist menning-
arlegum markmiðum húsfriðunar.
5. Að gera tillögur um það hvort
og þá hvernig megi auðvelda ein-
staklingum, fyrirtækjum og stofnun-
um að halda við gömlu húsnæði eða
að færa það til upprunalegra horfs
og gera svo til skipulagsnefndar til-
lögu um mótun húsfriðunarstefnu til
framtíðar sem síðan fái eðlilega með-
ferð í borgarráði og borgarstjórn og
öðrum starfsnefndum borgarinnar
þannig að tillögurnar í heild falli sem
best að öðrum ákvörðunum sem
borgin þarf að taka.
6. Að kanna hvernig tengja má
saman áætlanir um fjölgun atvinnu-
tækifæra og um endurnýjun og end-
urbætur gamalla húsa og annarra
mannvirkja.
Með húsfriðun er hér átt við varð-
veislu og friðun einstakra húsa, götu-
mynda, heildstæðra svæða og hverfa.
Nefndin skipaði sér starfshóp með
fulltrúum frá þeim stofnunum borgar-
Guðrún
Agústsdóttir
innar sem tengjast hús-
vemdarmálum á einn
eða annan hátt._ Þar eru
fulltrúar frá Árbæjar-
safni, borgarskipulagi,
byggingafulltrúa og
byggingalistardeildar á
Kjarvalsstöðum. Borg-
arminjavörður hefur
verið ritari nefndarinn-
ar. Starfshópurinn fór í
upphafí yfír þær ákvarð-
anir sem teknar hafa
verið í húsfriðunarmál-
um á liðnum árum og
gerði samantekt á tillög-
um um friðun og vemd-
um sem fram hafa kom-
ið. Á grundvellli þeirra upplýsinga
hófst vinna við mörkun nýrrar stefnu
í húsvemdarmálum. Samhliða þeirri
stefnumótun hefur starfshópurinn
unnið að úttekt á varðveislugildi
byggðar innan Hringbrautar, þ.e.
elsta hluta Reykjavíkur. Varðveislu-
Markmiðið með hús-
vernd er að stuðla að
verndun og viðhaldi
menningarsögulegs
arfs. Guðrún Ágústs-
dóttir hvetur áhugafólk
að mæta í Ráðhús
Reykjavíkur á morgun.
skrá þessi verður kynnt á málþinginu
í máli og myndum, en ætlunin er að
halda áfram að vinna slíka skrá fyrir
alla borgina. í varðveisluskránni er
byggingum og svæðum með varð-
veislugildi skipað í þrjá flokka eftir
eðli og mikilvægi. Sem dæmi má
nefna að í A-flokki eru þegar friðuð
hús og einnig hús og húsasamstæður
sem lagt er til að verði friðuð. Þar
er Miðstræti frá Bókhlöðustíg að
Skálholtsstíg sérstaklega nefnt sem
dæmi um eina heillegustu og best
varðveittu timburhúsagötuna í
Reykjavík frá upphafí aldarinnar.
Varðveisluskrá þessi er grunnur hús-
verndarstefnu borgarinnar.
Markmiðið með húsvemd er að
stuðla að verndun og viðhaldi þess
menningarsögulega arfs sem fólginn
er í merkum byggingum fyrri tíðar,
OROBLLI
KYNNING
15% AFSLÁTTUR
af öllum OROBLU sokkabuxum
föstudaginn 1. nóvember
kl. 14.00-18.00.
■ PLAISIR 40 DEN
Frábærar lycra stuðnings/nudd-
sokkabuxur - 40 den.
Venjulegt verð 598 kr. - kynningarverð 508 kr.
Ath. Leitið ekki langt yfir skammt - lægsta
verðið á 0R0BLU sokkabuxunum er á íslandi
INGOLFS APOTEK
Kringlunni - Sími 568 9970
en þær eru áþreifanlegur tengiliður
komandi kynslóða við uppruna sinn
og fortíðina. Með því móti má varð-
veita þau staðbundnu og listrænu
sérkenni í húsagerð og skipulagi er
gefa Reykjavík sérstöðu meðal borga
og eru á þann hátt mikilvægur hluti
af ímynd hennar. Skipulag sem tekur
mið af húsvemd getur verið hvort
tveggja í senn varðveisluáætlun og
uppbyggingaráætlun. Það er ekki
ætlunin að leggja stein í götu eðlilegr-
ar þróunar og uppbyggingar heldur
að spoma gegn því að byggingar séu
sviptar svipmóti sínu og stíleinkenn-
um að óþörfu. Áður var deilt um það
hvort vemda ætti gömul hús; það er
liðin tíð. Spumingin nú er aðeins sú
hvemig þau verða best varðveitt og
hvemig sú stefna fellur að heildar-
stefnu í menningarmálum.
Við sem stöndum að málþingingu
hvetjum allt áhugafólk um húsvernd
að mæta í Ráðhús Reykjavíkur nk.
laugardag.
Höfundur er formaður húsvernd-
amefndar Reykjavíkur og forseti
borgarstjórnar.
í-f
œpiTÁ
laugardaginn 2. nóvember kl. 20.00
íþróttahúsinu v. Strandgötu í Hafnarfirði
Húsið verður opnað kl. 19.00.
Efstu 2 sætin gefa rétt til keppni á
Norðurlandamótinu í desember.
íslandsmeistarakeppni í 5x5 dönsum m. fijálsri
aðferð sunnudaginn 3. nóvember kl. 14.00
í íþróttahúsinu v. Strandgötu í Hafnaríirði.
Húsið verður opnað kl. 13.
Forsala aðgöngumiða hefst kl. 12.30.
Keppt er í ilokki 12-13 ára, 14-15 ára, 16-18 ára,
16 og eldri, atvinnumenn.
Verð: 1 dagur:
í sæti 1000 kr.
í stúku 600 kr.
Keppnisgjald 1000 kr.
2 dagar:
1800 kr.
1000 kr.
1800 kr.
Jafnframt er boðið upp á keppni í dansi með
grunnaðferð.
Síðasti skráningardagur 10. okt. ’96.
Æfing fyrir keppendur byrjar kl. 18.00 2. nóv.
Númer verða afhent á æfingunni og eru keppendur
beðnir að greiða keppnisgjald þá!
Taktur er 10 ára og í
tHefniþ ess bjóðum við
10-40% afslátt
af öllum vönrni,
hljómtækjum og geisladiskum
Fullkomnustu heimabíó
landsins verða í gangi
talarabúðin í bænum
□□ I POLBY SURROUIMpj |~]ni POLBY SUHROUNp] I HX
P R O • L O G I C AC-3 P R O • L O G I C
KENWOOD
NAD m
ACOUSTIC RESEARCH
Cerwin-Wega.'
OXRVER
Powerful • Uuslca! • Accuratc
þar settt gceðiti heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 568 8840