Morgunblaðið - 01.11.1996, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+ Björn Þórðar-
son fæddist á
ísafirði 17. apríl
1913. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Akranesi 22. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Þórður Magn-
ússon og Kristín
Baldvinsdóttir.
Nokkurra mánaða
gömlum var honum
v komið í fóstur til
' Sigurjóns Guð-
mundssonar og
Dagmarar Jónas-
dóttur i Laxárdal í Hrútafirði.
Björn átti sex systkini. Þau eru:
Anna, látin; Sigurður, látinn;
Ólafur bóndi á Hlíðarenda í
Ölfusi; Magnús; Baldvin, látinn;
og Guðmundur, látinn. Fóstur-
systur hans voru Anna og Guð-
rún Sigurjónsdætur, báðar
látnar. Björn var í Laxárdal
framundir fermingu er hann
fluttist að Gilhaga í Hrútafirði
með Dagmar fóstru sinni, en
þar bjó Anna
fóstursystir hans og
Ingólfur K. Jónsson
maður hennar. Ing-
ólfur féll frá 1932
og starfaði Björn
að búinu með Önnu,
sem var þá orðin ein
með fimm börn,
fram til ársins 1939
er hann gerðist
póstur. Síðar flytur
Björn til Reykjavík-
ur og starfaði m.a.
hjá Grænmetis-
versluninni og Raf-
magnsveitunni. Síð-
an starfaði hann um tíu ára
skeið við tamningar og hirð-
ingu þjá Fáki, og síðar í Hrúta-
firði og Dölum. Árið 1964 flyst
Björn að Blönduhlíð í Hörðudal
og bjó þar til siðustu áramóta,
er hann fór á Dvalarheimilið í
Búðardal.
Útför Björns fer fram frá
Prestbakkakirkju i Hrútafirði
í dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
sóknarmaður sem fyrirfannst og að
rífast um pólitík var eitt af því sem
Bjössi gat, en aldrei var neitt erft.
Umræðuefnið var yfirleitt gleymt
örfáum andartökum síðar, og tekið
upp léttara hjal.
Bjössi var mikil félagsvera og
hafði gaman af að skemmta sér,
þáði þá gjarnan í staup og sveiflaði
síðan dísunum í kringum sig á dans-
gólfinu eins og hann væri sextán
ára því ekki þyngdust sporin mikið
þó árin liðu.
En allt á sinn endapunkt. Bjössi
varð að láta í minni pokann undan
þeim sjúkdómi sem svo marga leik-
ur grátt. Það var fyrir síðustu jól
sem þess fór að gæta að hlutirnir
voru ekki eins og þeir ættu að
vera að Bjössa fannst, því ekki
hafði honum orðið misdægurt.
Krankleikinn fannst, og gerð var
aðgerð, þannig að hann var spræk-
ur í vor og í sumar en síðan kom
bakslagið og ekki varð aftur snúið.
Með þessari kveðju okkar viljum
við þakka Bjössa fyrir alla þá vin-
áttu og ánægju sem hann veitti
okkur á lífsleiðinni og óskum þess
að góðir dagar haldi áfram á þeirri
leið sem hann er nú á.
Ingólfur Kristinn, Helga Björk,
Björn Bjarki, Valur Rúnar.
Það var árið 1964 er leiðir okkar
Bjössa lágu fyrst saman, ég þá
barn að aldri en hann kominn yfir
miðjan aldur. Hann kom að Blöndu-
hlíð um haust, nýráðinn vetrarmað-
ur vegna veikinda föður míns. Eina
sem ég hafði heyrt um hann var
það að þarna færi laginn hesta-
og tamningamaður. Ekki var nú
verra að fá slíkan mann í sveitina
enda hestar töluvert notaðir þótt
með öðrum hætti væri þá en nú.
Ekki var hann ráðinn nema til vetr-
arins en einhvern veginn fór það
nú svo að árin urðu alls 31. Fyrstu
sumrin vann Bjössi við tamningar
og fór þá að afloknum sauðburði
burt með hross sín og trippi sem
hann tók til tamningar. Tamdi hann
í Hrútafirðinum og síðar var hann
tamningamaður hjá Hestamanna-
félaginu Glað nokkur sumur.
Alltaf var gaman að sjá Bjössa
umgangast hrossin og hvernig þau
voru einhvern veginn öðruvísi við
hann en aðra. Ef þurfti að ná stygg-
um hesti þá var Bjössi kallaður til
og brást það ekki að áður en hestur-
inn vissi af var múllinn eða beislið
komið á og alvaran tekin við. Þann-
ig vann Bjössi hesta sína, án allra
átaka og með mikilli ró. Eins þótti
manni alveg með ólíkindum hversu
góður hann var að sitja hrekkjótta
hesta. Sama hvernig þeir létu, allt-
af hékk hann á baki. Þarna kom
sér vel að vera kattliðugur og létt-
ur. Alltaf var hann að kenna manni
eitthvað um hesta og vonandi hefur
eitthvað af því skilað sér en sá
áhugi sem ég hef nú á hestum og
hestamennsku er ekki hvað síst
Bjössa að þakka. Á fermingardag-
inn minn gaf hann mér vindóttan
hest sem hann átti og ég vissi að
var metfé og hans besti hestur þá,
en svona var Bjössi, aðeins það
besta var nógu gott til gjafa. Þenn-
an hest átti ég lengi en naut
kannski ekki sem skyldi því á þess-
um árum var áhuginn á hestum
ekki mikill, enda hestamennska í
lægð, en mikið væri gaman að eiga
þennan hest núna.
Eftir að ég flutti hingað vestur
í Dali aftur að afloknu námi var
þráðurinn tekinn upp að nýju. Þá
fórum við Bjössi að ferðast saman
á hestum ásamt góðum vinum.
Margar ferðir voru farnar, t.d. á
Kaldármela, og minnisstæðar eru
ferðirnar á Landsmótið á Hellu
1986 og á Vindheimamela 1990.
Þá naut Bjössi sín virkilega og
hafði mikið gaman af og rifjaði oft
upp í góðra vina hópi. Síðasta ferð-
in sem við fórum saman var á
Fjórðungsmótið á Kaldármelum
1992. Eftir það fór Bjössi ekki í
langferðir, enda heilsan farin að
bila eins og gengur, en útreiðum
hætti hann ekki alveg fyrr en síðar.
Bjössi var heiðursfélagi í Hesta-
mannafélaginu Glað, en í það félag
gekk hann er hann kom vestur.
Vann hann félaginu allt sem hann
gat og þótti ákaflega vænt um
þann heiður sem honum var sýndur
er hann var gerður að heiðursfé-
laga.
Alls staðar þar sem Bjössi kom
eða ef það komu gestir þá snerist
talið oftast upp í umræður um hesta
og hestamenn. Var Bjössi ekki allt-
af sammála viðmælendum og hafði
sínar skoðanir á því hvernig góðir
hestar ættu að vera og lét sig
hvergi enda umræðuefnið marg-
slungið, en ávallt skildu menn þó
í góðu.
Bjössi fylgdist ákaflega vel með
okkur systkinum og fjölskyldum
okkar og vildi hag okkar sem mest-
an og bestan. Ákaflega var hann
ánægður er synir mínir fóru að
sýna áhuga á hestum og studdi
þann áhuga heilshugar með ráðum
og dáð. Nú sakna þeir vinar í stað
sem og við öll. Ég, Ranný, Finnur,
Svanhildur, Fannar Þór og ívar
Orri þökkum honum öll samveruna
og góða vináttu um margra ára
skeið. Traustur vinur er fallinn frá
eftir stutta baráttu við erfiðan sjúk-
dóm. Ég veit að hann hefur hitt
marga góða ferfætta vini sína, ég
nefni Lýsing, Litfara, Draum, Loft
og Blossa, er hann yfirgaf þessa
jarðvist og er farinn að ríða út á
grænum grundum og þarf ekki að
kvíða hestleysinu. Með þessum
minningabrotum kveð ég minn
góða vin og bið góðan Guð að blessa
minningu hans. Megi hún lifa um
ókomin ár.
Kristján Gíslason.
Elsku Bjössi.
Okkur systumar langar til að
minnast þín. Þú sagðir að við værum
svo góðar stelpur, svo sérlega þæg-
ar og góðar. Þér fannst ekki mikið
mál að passa okkur þegar þess
þurfti. Og þegar spurt var: Hvemig
gengur? „Hva, þetta er ekki mikið
mál, þetta eru svo góðar stelpur,"
svaraðir þú. Eitthvað munum við
eftir súkkulaðimolum og að þú varst
að gantast við okkur, en það gerðir
þú fram á síðasta dag. Tveimur
dögum áður en þú andaðist reyndir
þú að gantast við okkur, en þrek
þitt var þá búið. Þá var okkur ljóst
að þú varst orðinn mikið veikur.
Við skiljum því betur að þú hafir
þurft að fara til himna. Mamma
segir að þú sitjir núna við eldhús-
borðið á himnum með afa,
langömmu, langafa og Bjössa á
Hamri, þið öll sameinuð á ný yfir
kaffibolla og eflaust gengur neftób-
akspontan milli ykkar nafnanna.
Þessa skemmtilegu vísu samdi lang-
afi okkar um ykkur vinina:
í eldhúsinu oft er hér
afar glatt á hjalla,
er þar báðir Bjössamir
bráðfjörugir spjalla.
Við erum hræddar um að síminn
eigi ekki eftir að hringja eins oft
hjá ömmu og hann hefur gert síð-
astliðið ár, þó við reynum að vera
duglegar að hringja til hennar. Þú
notaðir símann, eins og þú væri
staddur í Blönduhlíð og þyrftir að
fara fram í eldhús, að tala við hana.
Við vitum að hún saknar þess, því
henni þótti svo vænt um það. Nú
er amma orðin ein eftir í Blöndu-
hlíð, búin að missa bæði þig og afa
á svo skömmum tíma, ekki bara
vini sína heldur líka vinnufélaga.
Elsku Bjössi, við söknum þín og
þeirra sem sitja með þér við eldhús-
borðið. Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þínar litlu vinur,
Inga Sif og Hildur Hanna.
Elsku Bjössi. Með þessu fallega
erindi langar okkur krakkana þína
í Blönduhlíð, eins og þú kallaðir
okkur alltaf, að þakka þér fyrir öll
árin sem þú áttir með okkur.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pét.)
Helga, Inga Jóna,
Magnús og Unnar.
Hann Bjössi okkar er dáinn. Þessi
83 ára gamli öðlingur sem árin virt-
ust engin áhrif geta haft á er all-
ur. Hann Bjössi frændi, eða Björn
Þórðarson eins og hann hét fullu
nafni, var fastur punktur í tilveru
okkar systkinanna allt frá því við
munum eftir okkur. Bjössi kom
reglulega til okkar i Borgarnes og
dvaldi þá um hríð á heimili okkar.
Bjössi var mikil barnagæla, þess
nutum við í ríkum mæli í bernsku,
og svo börn okkar nú seinni ár.
Bjössa var kornungum komið í
Jr fóstur hjá langömmu okkar og síðan
eftir að amma okkar, Anna Sigur-
jónsdóttir, hóf búskap tengdist
hann því heimili órjúfanlegum
böndum, ekki síst eftir að afi, Ing-
ólfur Jónsson, lést. Á því augnabliki
stóð amma ein með fímm börn, frá
tíu ára og niður í nýfætt barn. Þá
kom hjálp unglingsins, hans Bjössa
okkar, heldur betur að notum. Fyrst
í stað bjó fjölskyldan í Gilhaga en
fluttist síðan að Prestbakka. Þess-
um stöðum tengdist Bjössi mjög
sterkt.
Þegar vistinni lauk hjá ömmu
gerðist Bjössi póstur og naut sín
vel í þeim starfa. Þar var hann
engum háður og fór allra sinna
ferða á hestum, sem voru alla tíð
hans líf og yndi. Samhliða póstferð-
unum var Bjössi í lausamennsku,
þar til hann flytur til Reykjavíkur.
Þar dvaldi hann á annan áratug,
seinni árin sem hirðir hjá Fák. Það
var síðan í kringum 1964 sem hann
flytur í Dalina. Bjössi fór þangað
til að temja, en var síðan svo hepp-
inn að komast að sem vetrarmaður
og síðan sem fastur heimilismaður
í Blönduhlíð. Þar datt Bjössi svo
sannarlega í lukkupottinn, því þar
eignaðist hann góða og trausta
bandamenn. Þar bjó hann uns hann
fiytur á Dvalarheimilið í Búðardai.
Eins og áður er getið voru hestar
alltaf ofarlega í huga Bjössa. Þeir
eru ófáir kílómetrarnir sem hann á
að baki með þessum vinum sínum,
bæði sem póstur fyrst í stað, en
síðan sem tamningamaður og knapi
á sýningum. Alls staðar þar sem
Bjössa var að finna spunnust um-
ræðumar um hesta og menn tengda
hestum og aldrei var neftóbakið
langt undan því það var lífsnautn
Bjössa.
Bjössi var svo sannarlega vinur
vina sinna og þá átti hann marga.
Fyrst kemur upp í hugann því til
staðfestingar sú ógleymanlega
veisla sem hann hélt þegar hann
varð áttræður. Þá dugði nú ekkert
minna en stórt félagsheimili utan
um þau herlegheit. Þar lék Bjössi
á alls oddi innan um þann fjölda
sem sótti hann heim og þar var
ekki eins og um áttræðan öldung
væri að ræða, þvílík var gleðin.
Bjössi var alltaf trúr sinni sann-
færingu. Það sem honum fannst
því varð ekki svo auðveldlega hagg-
að. Hann var einn harðasti fram-
BJORN
ÞÓRÐARSON
JONHORÐUR
ÁRNASON
+ Jón Hörður
Árnason var
fæddur í Reykjavík
15. júlí 1930. Hann
lést á Landspítalan-
um 22. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Árni J.
Strandberg, bakari,
og Kristín Bjarna-
dóttir, húsmóðir.
Eftirlifandi eig-
inkona Jóns er
Hrefna Gunnars-
dóttir frá Stykkis-
hólmi. Börn þeirra
hjóna eru: 1) Árni
J. Strandberg, f. 16. apríl
ókvæntur. 2) Reyndís, f.
úst 1962, gift Gunnlaugi
1961,
5. ág-
Hilm-
arssyni. Börn:
Hrefna Björk, Daní-
el Þór, Ragnar J.
3) Jón Magnús, f.
15. maí 1964, sam-
býliskona hans er
Kolbrún Sigtryggs-
dóttir. Barn: Lovísa
Mjöll. 4) Gunnhild-
ur, f. 3. janúar 1959,
sambýlismaður
hennar var Kristinn
Ólafsson, f. 8. des-
ember 1956, d. 8.
júlí 1985. Börn:
Bergrún, Halldóra,
Þorbjörg.
Útför Jóns Harðar fer fram
frá Seljakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30
Að kvöldi 22. október barst mér
sú sorgarfregn að tengdafaðir
minn, Jón Hörður Árnason, væri
látinn.
Hann hafði átt við veikindi að
stríða síðustu árin og vegna þess
þurft að fara margar ferðir á
Hjartadeild Landspítalans síðasta
árið.
Mér eru minnisstæðar þær stund-
ir sem ég og fjölskylda mín áttum
með þeim hjónum Jóni Herði og
Hrefnu konu hans og alltaf vorum
við aufúsugestir á heimili þeirra
hjóna.
Jón Hörður unni barnabörnum
sínum mikið, alltaf hafði hann tíma
fyrir umræður og útskýringar á því
flókna fyrirbæri sem lífið og tilver-
an er við litla spurula krakka.
Á Laugarvatni áttu þau hjónin
sumarhús og var það Jóns líf og
yndi að komast þangað þegar fór
að vora og sumarið gekk í garð.
Jón Hörður var hæglátur og heið-
arlegur maður sem ekki mátti
vamm sitt vita. Hann var nákvæm-
ur og vandvirkur við það sem hann
tók sér fyrir hendur.
Ég kveð þig með söknuði og
þakka fyrir að hafa fengið að kynn-
ast þér og þínum mannkostum.
Elsku Hrefna, megi Guð gefa þér
styrk í þinni miklu sorg.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Gunnlaugur Hilmarsson.
Elsku afi.
Okkur systurnar langar til að
kveðja þig og þakka þér fyrir allt
sem þú varst okkur. Við minnumst
svo margs, þið Hrefna amma áttuð
svo mikið í okkur og voruð okkur
svo góð.
Það var alltaf svo gott að koma
til ykkar í Breiðholtið og við áttum
líka skemmtilegar ferðir með ykkur
í hjólhýsið á Laugarvatni.
Við munum líka hvað það var
gaman þegar þú varst frískur og
komst heim af sjónum, þá varstu
alltaf með gjafir handa okkur og
eitthvað gott.
Það er sárt að þú gast ekki verið
lengur hjá okkur. Vonandi ert þú
kominn þangað sem öllum líður vel.
Kannski ert þú búinn að hitta pabba
okkar sem við höfum saknað svo sárt.
Við munum alltaf hugsa til ykkar
pabba og minnast gömlu góðu dag-
anna. Elsku afi, hjartans þakkir
fyrir allt. Frá litlu stelpunum þínum,
Bergrúnu, Halldóru og
Þorbjörgu.
Elsku afi.
Með nokkrum orðum langar okk-
ur að minnast þín. Allar stundirnar
sem við áttum með þér eru ógleym-
anlegar, hvort sem var heima hjá
ykkur ömmu, eða í sumarhúsinu á
Laugarvatni, þar sem þú undir þér
svo vel. Alltaf voruð þið amma tilbú-
in að hafa okkur hjá ykkur yfir
nótt, og þá sluppum við ekki við
að fara með bænirnar, því að það
varst þú sem kenndir okkur þær
allar. Þú hafðir alltaf tíma til að
hlusta og tala við okkur.
Elsku afi, þú fórst svo fljótt frá
okkur, þegar þú fórst á spítalann
áttum við von á að þú kæmir heim
aftur, eins og svo oft áður. Það er
erfitt að sætta sig við að þú sért
farinn.
Elsku afi, á svona kveðjustund
finnum við glöggt hversu stóran
sess þú áttir í lífi okkar. Við kveðj-
um þig með sorg í hjarta, og þökk-
um þér fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir okkur.
Blessuð sé minning þín.
Margs er að minnast,
margt er hér að bakka.
Guði sé lof fyrir íiðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Hrefna Björk, Daníel
Þór, Ragnar J.