Morgunblaðið - 01.11.1996, Síða 42

Morgunblaðið - 01.11.1996, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Eiginmaður minn, JÓHANN AÐALBERT PÉTURSSON, Ásunnarstöðum í Breiðdal, sem lést í Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar sunnudaginn 27. október, verð- ur jarðsunginn frá Heydalakirkju í Breiðdal laugardaginn 2. nóvem- ber kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Hólmfrfður Reimarsdóttir. t GUÐNI GUÐM JNDSSON Hellatúni, Ásahreppi, Rangárvallasýslu, sem lést á Dvalarheimilinu Lundi þann 28. október, verður jarð- sunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 2. nóvember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Valgerður H. Guðmundsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Valgerður H. Magnúsdóttir. t Innilegar þakkir færum við þeim fjöl- mörgu, sem sýndu okkur ómentanlegan vinarhug og samúð við andlát og útför ástkærs sonar okkar og bróður, SVERRIS KARLS STEFÁNSSONAR. Hlýhugur ykkar hefur styrkt okkur í sorginni. Guð blessi ykkur öll. Stefán Dan Óskarsson, Rannveig Hestnes, Harpa Stefánsdóttir, Selma Stefánsdóttir, Helgi Dan Stefánsson. Þorsteinn Þorsteinsson, Steinunn Ólina Þorsteinsdóttir, Guðrún Theodóra Sigurðardóttir, Laufey Sigurðardóttir, Guðrún Pálsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og dóttir mín, BRÍET HÉÐINSDÓTTIR, leikari og leikstjóri, sem lést 26. október, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudag- inn 5. nóvember kl. 15.00. t Sendum innilegar þakkir öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, FRIÐGEIRS H. EYJÓLFSSONAR fyrrv. skipstjóra, Ásbraut 3, Kópavogi. Halldór Friðgeirsson, Eyjólfur Friðgeirsson, Auður V. Kugajevsky, Steinar Friðgeirsson, Geir Friðgeirsson, Edda Friðgeirsdóttir, Pétur G. Gunnarsson, Bergþóra Einarsdóttir, Victor I. Kugajevsky, Anna Oddsdóttir, Kolbrún Þormóðsdóttir, Hinrik Jónasson, Lisa L. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur ómetanlegan vinar- hug og sarriúð við andlát og útför elsku drengsins okkar, ÍVARS ÞÓRS JÓNSSONAR, Lækjarhúsum, Suðursveit. Sérstakar þakkir fá læknar og starfsfólk barnadeildar 12E á Landspítalanum fyrir mikla aiúð og umhyggju. Guð veri með ýkkur öllum. Sigurrós Erla Björnsdóttir, Jón Þorsteinsson, Jón Birnir Jónsson, Þóra Birna Jónsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Björn Kristjánsson og aðrir ástvinir. PÉTUR PÉTURSSON + Pétur Péturs- son var fædd- ur í Mýrdal í Kol- beinsstaðahreppi 21. ágúst 1921. Hann lést á Landspítalanaum í Reykjavík 27. október síðastlið- inn. Foreldrar Péturs voru Ólaf- ía Eyjólfsdóttir, f. 1898, d. 1987, og Pétur Pétursson, f. 1893, d. 1921. Pétur á einn háif- bróður, Magnús Þorsteinsson, f. 1932. Pétur kvæntist árið 1949, Ragnheiði Magnúsdóttur, f. 1924, og eignuðust þau tvo syni: Magnús, f. 1947, kvæntur Hildi Eiríksdóttur og eiga þau fjögur börn, og Pétur Oli, f. 1949, kvæntur Önnu Harðardóttur og eiga þau þrjú börn. Arið 1954 kvæntist Pétur eftirlifandi eiginkonu sinni, Hrefnu Guðmundsdóttur, f. 1925, og eignuðust þau fimm börn: 1) Guðmundur Ágúst, f. 1953, kvæntur Sesselju Auði Eyjólfsdóttur og eiga þau tvö börn; 2) Ingibjörg, f. 1954, gift Hartwig Miiller og eiga þau tvö börn; 3) Pétur, f. 1956, kvæntur Dóru Kristínu Björnsdóttur og á hann eina fósturdóttur, og 4) Guðrún, og á hún tvær dæt- ur. Tvíburasystir Guðrúnar fæddist andvana. Hrefna átti tvær dætur frá fyrra hjóna- bandi: Kolbrún Sveinsdóttir, f. 1948, gift Ævari Pálma Eyjólfs- syni og eiga þau þrjú börn og Erla Sveinsdóttir, f. 1950, gift Pétri J. Eiríkssyni og eiga þau eina dóttur. Þær systur ólust upp hjá Hrefnu og Pétri. Pétur stundaði nám við Hér- aðsskólann á Laugarvatni 1939-41 og ári síðar lauk hann prófi í Samvinnuskól- anum. Eftir nám var Pétur skrifstofusljóri Landssmiðjunnar í Reykjavík 1947-56. Hann var forsljóri Innflutningsskrifstof- unnar 1956-59 og forsljóri Innkaupa- stofnunar ríkisins 1959-66. Pétur var framkvæmdasljóri Kísiliðjunnar við Mý- vatn 1966-67 en á árunum 1968-73 var hann forstjóri Ála- foss. Hann var starfs- mannastjóri Sigölduvirkjunar 1974-76 og forsljóri Norður- stjörnunnar í Hafnarfirði 1976-81. Þá var hann fulltrúi í Framkvæmdastofnun ríkisins 1981-85. Á síðustu árum vann Pétur að ýmsum verkefnum hjá Innkaupastofnun ríkisins og sat m.a. í bílanefnd. Pétur átti sæti í ýmsum nefndum og stjórnum. Pétur hóf ungur afskipti af stjórnmálum og gekk í samtök ungra alþýðuflokksmanna. Hann tók sæti í miðstjórn Al- þýðuflokksins árið 1950 og var formaður Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur 1959-63. Pétur var fyrst kjörinn alþingismað- ur fyrir Snæfellssýslu og sat á þingi kjörtímabilið 1956-59. Síðar var hann kjörinn þing- maður Norðurlandskjördæmis vestra og sat á þingi 1971-74. Pétur var virkur í félags- störfum og var áratugum sam- an félagi í Rotarý-hreyfing- unni. Þá var hann einnig virk- ur í Oddfellow-reglunni. Frá 1972 var Pétur aðalræðismað- ur /yrir Lúxemborg. Útför Péturs fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu- daginn 1. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þig faðmi liðinn friður Guðs, og fái verðug laun. Þitt góða hjarta, glaða lund og göfugmennska í raun. Vér kveðjum þig með þungri sorg, og þessi liðnu ár með ótal stundum ljóss og lífs oss lýsa gegnum tár (Jón Trausti) Á fögrum degi annars dags vetrar kvaddir þú eftir erfiða baráttu. 7. nóvember nk. hefði verið komið ár síðan þú veiktist. Oft hef ég síðan undrast kjark þinn og dugnað. Þú ætlaðir aftur á fætur. En því miður fór það á annan veg. Hugsun þín var þó alltaf skýr, þar til viku fyrir andlát þitt. Ég var fimm ára þegar þú komst inn í líf mitt. Allt í einu átti ég orð- ið stjúpföður. Ég man að ég var ekki alveg sátt við það en með hlýju þinni og þolinmæði urðum við góðir vinir. Síðan hef ég alltaf sagt að ég gæti ekki hafa átt betri stjúpföður. Þú vildir allt fyrir mig og mína gera. Þú fylgdist alltaf vel með okkur og hafðir mikinn áhuga á hvernig mér og minni fjölskyldu farnaðist. Þú varst kletturinn sem við gátum treyst. Það var alveg sama hvenær við heimsóttum ykkur mömmu þið tókuð alltaf svo vel á móti okkur og voruð svo kát og glöð. Hjónaband ykkar var einstaklega gott og far- sælt. Mér fannst þið einfaldlega allt- af vera sammála um alla hluti. Þú varst alltaf svo ástfanginn og stoltur af henni Hrefnu þinni. Hennar miss- ir er mikill. Hún var hjá þér alla daga á spítalanum og svo fórstu heim til hennar suma daga. Hún hefur staðið sig eins og hetja í erfið- leikum ykkar sl. ár. Elsku Pétur minn, þakka þér fyrir hvað þú hefur verið mér og minni fjölskyldu góður alla tíð. Ég sakna þín mikið og ég veit að það gera fleiri. Far þú í friði. Kolbrún. Elsku tengdapabbi, ég kveð þig með þessu Ijóði. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur" er orðið sem best lýsir þér. (Teri Fernandez). Kveðja, Dóra Kristín Björnsdóttir. Elsku afi minn, þegar ég kveð þig nú leitar margt á hugann. Minningar sem gleðja í sorg og söknuði. Ég var svo heppin að búa alitaf nálægt afa og ömmu, þannig að heimili þeirra varð mitt annað heimili og bjó ég hjá þeim fyrsta árið mitt því að mamma dvaldi erlendis. Hugurinn leitar til barnsáranna, ég með afa og ömmu á Hótel Búðum eða á Mývatni oftar en einu sinni, svo fór ég líka með þeim á Siglufjörð og Sauðárkrók, þá er margt ótalið. Afi var þá að sinna erindagjörðum. Hann hefur gegnt mörgum ábyrgðarstöð- um um ævina en var líka mikill heim- ilismaður. Afi var hjartahlýr og um- hyggjusamur. Fannst mér ég stund- um vera eitt af systkinunum vegna þess hvað ég var mikið hjá þeim og stutt á milli mín og Guðrúnar frænku, ekki nema fimm ár. Hans mesta gæfa var að kynnast ömmu og voru þau einstaklega sam- rýnd, var samband þeirra byggt á djúpri umhyggju, gagnkvæmri virð- ingu og mikilli ástúð alla tíð. í veik- indum sínum sl. ár kallaði afi ömmu hetjuna sína og engilinn sinn, hún stóð við hlið hans eins og klettur, ekki bara í veikindunum hans heldur í fjörutíu og tvö ár. Afi gladdist mik- ið þegar ég kom með ís og súkkulað- isósu á spítalann til hans, sem ég gerði oft. Fyrst eftir að afi veiktist tók mig langan tíma að sætta mig við að hann væri ekki heima og kæmi kannski aldrei heim nema tvisvar til þrisvar í viku, eftir því hvað heilsan ieyfði. Alltaf hélt maður í vonina að honum myndi batna, en nú er lífshlaupi hans afa míns lokið og er ég þakklát fyrir allar þær stundir sem ég hef átt með honum. Hann hefur kennt mér margt, missir- inn fyrir okkur öll er mikill og þá sérstaklega fyrir ömmu. Mér þykir mjög mikið vænt um afa minn og var það mér dýrmætt að geta sagt það við hann. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum sem fengu að kynnast þér. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.) Við kveðjumst að sinni, elsku afi. Hvíl í friði. Þín Solveig. Elsku afi, takk fyrir allt sem þú veittir okkur af visku þinni. Og þann tíma sem þú gafst okkur bræðrunum alla tíð. Það sem er okkur efst í huga nú er sá áhugi sem þú hafðir á því sem við vorum að gera bæði í lífi og í starfi. Við kveðjum þig nú með þökk fyrir allt og munum þig alla tíð. Gráti því hér enginn göfugan föður, harmi því hér enginn höfðingja liðinn: fapr var hans lífsdagur en fegri er upp runninn dýrðardapr hans hjá drottni lifanda. (Jónas Hallgr.) Eyjólfur Pétur og Ævar P. Kosningafundir, þar sem fram- bjóðendur allra flokka mætast á málþingi fyrir kjósendur á allt að 10-12 stöðum í hveiju kjördæmi, munu vera séríslenskt fyrirbæri. Þegar útvarp og sjónvarp voru ekki tii, fóru áhugasamir kjósendur lang- ar leiðir til að hlusta á kappræður frambjóðenda klukkustundum sam- an á fundunum. í viðureign þing- mannsefna gerðist margt, drama- tískt eða spaugilegt, sem Íétti mál- efnalegar ræðuF og gerði fundina og mennina eftirminnilega. Þegar ég frétti andlát Péturs Pét- urssonar um síðustu helgi spruttu í huga mínum minningar um slíka fundi, þar sem við Pétur fórum saman um nýmyndað Vesturlandskjördæmi og mættum fyrir Alþýðuflokkinn. Þar fannst mér Pétur rísa hæst í 40-50 ára kynnum okkar í flokknum og pólitíkinni. Pétur var frábær talsmað- ur fyrir hugsjónir flokksins en ein- stakíega laginn við að tengja þær við atvinnulíf og afkomu fólksins á hveij- um stað. Hann var góður félagi, ávallt glaðlyndur og fljótur að kynnast kjós- endum og skilja áhugamál þeirra, enda var starf hans utan stjómmál- anna ávallt tengt atvinnumálum iandsins á einn eða annan hátt. Pétur fæddist í Mýrdal í Kolbeins- staðahreppi 1921. Var gaman að koma þangað með honum á áður- nefndum ferðalögum og finna stoltið yfir framgangi hans á lífsleiðinni. Hann stundaði nám í héraðsskólan- urn á Laugarvatni og í Samvinnu- skólanum og dijúgt hefur sjálfsnám hans alia tíð verið því hann gegndi mörgum störfum sem nú teljast ekki fær öðrum en háskólagengnu fólki. Pétur varð fyrst skrifstofustjóri Landssmiðjunnar, síðan forstjóri Inn- flutningsskrifstofunnar og forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins. Hann varð framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar og forstjóri Álafoss. Hann varð starfsmannnastjóri Sigölduvirkjunar og forstjóri Norðurstjörnunnar í Hafnarfirði. Starfaði hann lengi fyrir Framkvæmdastofnun ríkisins og tók ýmis þessara starfa að sér fyrir hana,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.