Morgunblaðið - 01.11.1996, Side 47

Morgunblaðið - 01.11.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 47 FRETTIR Ekki frum- kvæði Stál- smiðjunnar ÁGÚST Einarsson, forstjóri Stál- smiðjunnar hf., segir að fyrirtæki hans hafi ekki átt frumkvæði að því að Samtök iðnaðarins skrifuðu fjármálaráðuneytinu bréf, þar sem óskað var eftir athugun á ríkis- styrk, sem spænsk skipasmíðastöð fékk vegna endurbóta á skipi Granda hf., Snorra Sturlusyni. í Morgunblaðinu í gær var, vegna rangra upplýsinga, sagt að Samtök iðnaðarins hefðu kært málið fyrir hönd Stálsmiðjunnar, sem einnig bauð í endurbæturnar á skipinu. Ágúst segir að í Málmi, sem séu samtök skipasmiðja innan Samtaka iðnaðarins, hafi mönnum þótt tilboð Spánveijanna grunsamlega lágt. Stálsmiðjan hafi hins vegar ekki átt frumkvæði að því að lögfræðing- ur samtakanna óskaði eftir úttekt á því hvort ríkisstyrkurinn til Spán- veijanna samrýmdist evrópskum j afnræðisreglum. Málþing um sjónræna sagnfræði MÁLÞING um sjónræna sagnfræði verður haldið í Safnaðarheimili Frí- kirkjunnar, Laufásvegi 13, föstu- dagskvöldið 1. nóvember kl. 20, á vegum Félags sagnfræðinga. Að lokinni stuttri kynningu verða óformlegar pallborðsumræður með þeim Árna Snævarr, fréttamanni, Gísla Gunnarssyni, sagnfræðingi, Gunnari Karlssyni, sagnfræðingi og Siguijóni Baldri Hafsteinssyni, mannfræðingi. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Basar o g kaffi- sala í Sunnuhlíð HAUSTBASAR verður haldinn í Dagdvöl Sunnuhlíðar á morgun laugardag kl. 14. Þar verða á boð- stólum munir sem unnir eru af fólki í dagdvöl, einnig heimabakaðar kökur og lukkupakkar. Kaffisala verður í matsal þjón- ustukjarna og heimabakað meðlæti á boðstólum. Allur ágóði rennur til styrktar starfsemi Dagdvalar i Sunnuhlíð. Bingó til styrktar móður Teresu KAÞÓLSKA unglingafélagið Píló efnir til bingós í kvöld kl. 20 í safn- aðarheimili Landakotskirkju að Hávallagötu 16. Ágóðinn rennur óskiptur til móð- ur Teresu frá Kalkútta til að styrkja líknarstarf systra hennar, einkum hér á landi. Allir eru velkomnir. Á MYNDINNI eru f.v.: Erlingur Jóhannsson sundþjálfari, Ólafur Jensson, fv. formaður ÍF, Ólymp- íufarar ÍFR, Kristín Rós Hákonardóttir, Birgir Rúnar Gunnarsson, Pálmar Guðmundsson og Ólafur Eiríksson. Kristín Guðmundsdóttir sundþjálfari, Óskar Jóhannsson, formaður ÍFR, og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF. IFR heiðrar afreksfólk NYLEGA bauð Iþróttafélag fatl- aðra í Reykjavík Ólympíukepp- endum þess og þjálfara til kaffi- samsætis í félagsmiðstöð sinni að Hátúni 14. Jafnframt bauð félagið fráfarandi formanni íþróttasambands fatlaðra, Ólafi Jenssyni, og nýkjörnum for- manni, Sveini Áka Lúðvíkssyni. „Ólafi var þakkað mikið og gott starf og Sveini Áka, sem er félagsmaður IFR, óskað velfarn- aðar í starfi. í ávarpi sínu til Atlanta-far- anna, gat formaður félagsins, Óskar Jóhannsson, þess m.a. að ekkert íþróttafélag í heiminum geti státað af slíkum árangri í Ölympíukeppni og ÍFR þar sem fjögurra manna sundsveit félags- ins vinnur til fimm gullverð- launa, einna silfurverðlauna og fernra bronsverðlauna og setur auk þess fjögur heimsmet,“ segir í fréttatilkynningu. Keppendur ÍFR á Ólympíumóti fatlaðra í Atlanta voru Birgir Rúnar Gunnarsson, Kristín Rós Hákonardóttir, Ólafur Eiríksson og Pálmar Guðmundsson. Þjálf- ari þeirra er Kristín Guðmuns- dóttir og var þeim öllum veitt viðurkenning fyrir afrek sín. Fyrrverandi og núverandi for- manni íþróttasambands fatlaðra voru einnig færðar gjafir í þakk- lætis- og virðingarskyni. Auk þjálfunar sundfólksins fer mikil starfsemi fram á vegum Iþróttafélags fatlaðra í Reykja- vík, í húsi þess að Hátúni 14, þar sem fjölbreyttar íþróttagreinar eru stundaðar. Auk þess starfar endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúklinga þar. Pabbadagur á Löngum laugardegi KAUPMENN við Laugaveg og í miðborginni standa fyrir pabbadeginum á íslandi á morgun, 2. nóvember, á Löng- um laugardegi en pabbadagur er haldinn hátíðlegur víða um heim í byijun nóvember ár hvert. í tilefni dagsins bjóða herra- fataverslanir í miðborginni til leiks sem ber heitið „Ljótasta bindið". Leikurinn fer þannig fram að einhver flölskyldumeð- limurinn kemur með bindi af heimilisföðurnum og skilar því í einhveija af þeim verslunum sem þátt tekur í leiknum. Bind- um má þó skila í fleiri en eina verslun. Bindið skal merkja með nafni, heimili og síma. í dagslok velur starfsfólk hverrar versl- unar ljótasta bindið. Eigandinn fær vegleg verðlaun frá þeirri verslun sem bindinu var skilað ti). Fjöldi verslana við Laugaveg og nágrenni verða með ýmis tiiboð í tilefni dagsins. Á Löng- um laugardegi eru verslanir við Laugaveg og nágrenni opnar tilkl. 17. I miðborginni eru 375 versl- anir og ótrúlegur fjöldi veit- ingahúsa sem gerir miðborgina að langstærsta verslunarkjarna landsins. Það er frítt í öll bíla- geymsluhús miðborgarinnar á laugardögum og í alla stöðu- mæla eftir kl. 14. Ástralskur píanóleikari á Café Romance ÁSTRALSKI píanóleikarinn Alex Tucker leikur og syngur fyrir gesti Café Operu og Café Romance alla daga vik- unnar nema mánudaga í nóv- ember. Alex Tucker er á ferðalagi um Evrópu um þess- ar mundir og segir í fréttatil- Alex kynningu að ucker hann sé __ meðal vinsælustu skemmtikrafta Ástrala. Hann mun leika fyrir matargesti á Café Óperu og síðar um kvöldið á Café Romance. Dulrænir dagar í Gerðubergi SÁLARRANNSÓKNARFÉLAG ís- lands, SRFÍ, gengst fyrir dulrænum dögum í fjórða sinn 1. og 2. nóvem- ber í menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi. Dagskráin hefst í kvöld kl. 20.30 með hörpuleik og tvenns konar miðlun. Á laugardag eru erindi fyrri hluta dagsins, miðlun eftir hádegi og að lokum heilun eða huglækn- ingar. Frekari upplýsingar á skrifstofu SRFÍ, Garðastræti 8. ■ GULLÖLDIN. Á föstudags- og laugardagskvöld skemmtir hljóm- sveitin Sælusveitin til kl. 3 báða dagana. Á laugardagskvöld kl. 21 skemmtir Heiðar Jónsson snyrtir. Aðgangur er ókeypis. Veitingahúsið er opnað kl. 13.30 á laugardögum og sunnudögum. Leiðrétt Málverk á hliðinni ÞAU mistök urðu við birtingu á umsögn í Morgunblaðinu í gær um sýningu í Sýningarsalnum við Hamrinum, að mypd af málverki Gunnars J. Straumland snéri öfugt þannig, að málverkið lá á hliðinni. Hægri hlið málverksins snéri niður, en myndin átti að vera með höfuð- formið upp. Morgunblaðið biðst af- sökunar á þessum mistökum. /Y\ McDonaid's I ■ I TM Gæði, þjónusta, hreinlæti og góð kaup Passamyndir • Portretmyndir Barnaljósmyndir • Fermingarmyndir BrúÖkaupsmyndir • Stúdentamyndir PETUR PETURSSON LJÓSMYNDASTÚDÍÓ LAUGAVEGI 24 • SÍMl 552 0624 KYNNING í KÓPAVOGS APÓTEKI í dag kl.l 4-18 APÓTEK SKEIFAN, Skeifunni, ó morgun kl. 10-15 MIKILL AFSLATTUR Happdrætti - ókeypis húðgreining Slæm húð - bólur - baugar - augnpokar - hrukkur - glansandi húð - varaliturinn helst illa á - rauð húb. Við ráðleggjum og lögum þaö sem hægt er.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.