Morgunblaðið - 01.11.1996, Page 48

Morgunblaðið - 01.11.1996, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ 48 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 BREF TIL BLAÐSINS Dýraglens Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Í©1996 Tribune Media Services, li All Rights Reserved. é<SHéLTAÐ é/IÁIL /% H£&M(J&uet>GTU £&d\ hblþuæ S'SewHEe- \~7nh uc/p ’mhl/bog é<s /1*0N PEYJA SEM Hoe/*AUZ! s-—y Grettir % Tommi og Jenni Liggur „þeim“ lífið á? Frá Ástu Dís Óladóttur: ÞEGAR við heyrum fréttir af alvar- legum slysum í umferðinni er það langoftast vegna of mikils hraða. Þess vegna finnst mér það einkenni- legt að sex stjómarþingmenn hafi lagt fram tiliögu á Alþingi til breytingar á 37. grein umferðar- laganna um að færa hámarks- hraðann úr 90 km á klukkustund í 110 á bundnu slit- lagi utan þéttbýl- is. Ef þessi tillaga yrði samþykkt hefði hún án nokkurs vafa í för með sér gríðarlega slysaaukningu, mun fleiri myndu slas- ast alvarlega og dánartíðnin myndi aukast. Þetta myndi hafa í för með sér hærri útgjöld fyrir þjóðfélagið, en sá kostnaður er í dag um 12-14 millj- arðar króna og finnst flestum nóg um. Hafa ber i huga að meiri hraði táknar minni stjóm á ökutæki. Því meiri sem hraðinn er því meiri er hættan á alvarlegum slysum. Ef okk- ar ágætu þingmenn samþykkja þessa tillögu eru þeir í raun að margfalda hættuna fyrir okkur hin sem viljum vera eins örugg og kostur er. í þætt- inum „ísland í dag“ á Stöð tvö 28. október sl. kom Vilhjálmur Egilsson fram fyrir hönd þingmannanna sex og sagði meðal annars að hann hefði nú keyrt víða um í Evrópu og væm vegimir þar ekki sambærilegir við íslenska vegakerfið. Þama er hann í raun að mæla gegn tillögu sinni. í þættinum kom einnig fram að hér á landi væm engar „hraðbrautir“ og hlýtur það, lesandi góður, að segja okkur aðeins eitt. Islenska vegakerf- ið þolir ekki hraðaaukningu upp í 110 km á klukkustund. Þingmennirnir nefna að breytingin verði gerð með tilliti til betra vega- kerfís ogtil samræmis við þau hraða- takmörk sem gilda í nágannaríkjum okkar, en þar gildir almennt 80 km hámarkshraði á sambærilegum veg- um og em hér á landi. Þeir nefna einnig að núgildandi hámarkshraði sé barn síns tíma og sé ekki lengur raunhæf viðmiðun, og þá langar mig að spyija: Viðmiðun við hvað? Ætla þingmennirnir í alvörunni að halda því fram að þetta sé raunhæft? Væri ekki nær að nota fjármuni ís- lenska ríkisins í uppbyggingu vega og koma þannig frekar í veg fyrir slys heldur en að auka hættuna á þeim til muna með hraðaaukningu? Að lokum má nefna það sem þing- mennirnir sjálfir benda á í þessari breytingatillögu sinni að skv. 36. grein umferðarlaganna beri að haga akstri í samræmi við aðstæður, þarna koma þeir sjálfir með rök gegn sinni eigin tillögu. Eftir þessu ákvæði iag- anna er ekki hægt að fara, ætli menn að aka á 110 kílómetra hraða. Svo einfalt er það nú. Ég skora á alþingismenn að fella þessa tillögu, því eins og núverandi aðstæður sýna stenst þessi aukning á hámarkshraðanum hreinlega ekki. Hvorki þingmönnum né okkur hinum liggur lífið á. ÁSTA DÍS ÓLADÓTTIR, nemi í Háskóla íslands. Slæm áhrif frá farsímum Frá Ragnhildi Björgvinsdóttur: ÉG HEF lengi ætlað að gera athuga- semdir við hina svokölluðu GSM- síma. Þeir, og einnig t.d. sjónvarps- tæki og örbylgjuofanar, senda frá sér rafsegulbylgjur sem margir þola illa eða ekki. Þetta óþol getur lýst sér í mikilli þreytu, slappleika, höf- uð- og vöðvaverkjum og í slæmum tilfellum getur fólk orðið rúmfast, undirlagt af verkjum. Þessar bylgjur mælast mjög sterk- ar í nágrenni aðalstöðva fyrirtækja eins og Sjónvarpsins og Pósts og síma og er ég mjög hissa á að eng- inn, sem er iila haldinn af þessu óþqli, skuli hafa látið í sér heyra. í Svíþjóð er talið að rúmlega 250 þúsund manns þjáist vegna þessa. í Bandaríkjunum og víða á Norðurlönd- um_ er þetta viðurkennt vandamál. Ýmsir aðilar hér á landi láta þessi mál sig skipta en á þá er lítið hlust- að. Veit ég að hannað hefur verið tæki sem vinnur á móti þessum bylgj- um en þessir aðiiar fá því miður engan styrk frá hinu opinbera til að geta haldið áfram rannsóknum sín- um. Mál er að landlæknir láti kanna þetta. Því bið ég alla þá sem telja sig þjást af svona óþoli að láta í sér heyra, svo vandamálið verði ekki þagað í hel. RAGNHILDUR BJÖRGVINSDÓTTIR, Hlíðarvegi 16, Kópavogi. Halló? Hver? Já, þetta er Já, eins og ég sagði, þetta Prófaðu „það”. hann... ha.... já, þetta er hann... er hann. Enn hafa borist óskir um framhald á þáttum þessum. Því hefur verið afráðið að bæta nóvembermánuði við. Hvað skal segja? 53 Væri rétt að segja: Tvö skip koma í ár meðan fimm komu í fyrra. Svar: Samtengingin meðan merkir „á sama tíma sem“ og er því með öllu fráleit í þessu sambandi. Rétt væri að segja: Tvö skip koma í ár, en fimm komu í fyrra. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.