Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Fáðu þér „Bita af
Reykjavík“
Frá Níelsi Árna Lund:
ÉG VIL vekja athygli sem flestra
á því að nú um komandi helgi, 2.
og 3. nóvember, mun Lionsklúbbur-
inn Víðarr standa fyrir sýningu í
Perlunni undir nafninu „Biti af
Reykjavík".
Þetta er fjáröflunarverkefni fyr-
ir Lionsklúbbinn Víðarr sem mun
veija ágóðanum til líknarmála. A
undanförnum árum hefur klúbbur-
inn styrkt íjölmörg slik málefni og
má þar nefna aðstoð við Kvennaat-
hvarfið, tækjakaup til Landspítal-
ans, aðstoð við Stígamót, tækja-
kaup til sjónverndar, stuðningur
við Arnarholt á Kjalarnesi, mynd-
bandagerð til forvarnar gegn
vímuefnum, gróðurvernd, félagi
einhverfra lagt lið, tölvubúnaður
fyrir fatlaða nemendur í Háskóla
íslands o.fl., o.fl.
Þessi verkefni eru í sjálfu sér lík
öðrum styrktarverkefnum sem Li-
onsklúbbarnir um allt land standa
fyrir og fullyrða má að mörg þeirra
eru í reynd verkefni sem hið opin-
bera á að standa fyrir.
Til að hægt sé fyrir klúbbana
að styðja líknarverkefni verða þeir
að afla fjármagns og það gera
þeir með ýmsu móti. Fjáröfiunar-
leiðir margra þeirra eru vel þekkt-
ar, hvort sem er innan ákveðinna
byggða eða bæjarkjarna eða á
landsvísu og nægir þar að nefna
Rauðu íjöðrina sem allir lands-
menn kannast við.
Lionsklúbburinn Víðarr hefur
aflað fjár með ýmsu móti og má
þar m.a. nefna tekjur af Víðarrs-
blóti sem er þorrablót klúbbsins,
merkja- og perusölu, hreinsun
Reykjavíkurtjarnar og Hellisheið-
ar, markaðssölu í miðbæ Reykja-
víkur svo eitthvað sé nefnt. Flest
eru þetta fjáröflunarverkefni sem
aðrir kúbbar eru einnig að fást
við. Því ver það ákveðið að reyna
eitthvað nýtt og ákveðið að standa
fyrir verkefninu „Biti af Reykja-
vík“, sem er veitingahúsakynning
í formi sýningar á starfsemi
þeirra.
Þetta er í fyrsta sinn sem sýn-
ing af þessu tagi er framkvæmd
hér á landi. Víða um heim eru
uppákomur sem þessar vel þekkt
fyrirbæri sem sóst er eftir að taka
þátt í af hálfu veitingahúsa. Ekki
síður eru þær vinsælar af almenn-
ingi sem notar tækifærið og kynn-
ir sér starfsemi þeirra.
Forseti borgarstjórnar Reykja-
víkur, Guðrún Ágústsdóttir, opnar
sýninguna á laugardaginn kl. 13.
Opið verður þann dag til kl. 18 og
er opið á sama tíma á sunnudag-
inn. Á þeim tíma munu fjölmörg
veitingahús á höfuðborgarsvæðinu
kynna starfsemi sína og gefa gest-
um kost á að smakka eitthvað af
því sem þau hafa upp á að bjóða.
Ekki er ætlunin að um samkeppni
sé að ræða milli veitingahúsanna
heldur miklu fremur að kynna það
mikla og fjölbrejdta úrval af veit-
ingahúsum sem eru á Reykjavíkur-
svæðinu.
Það er ánægjulegt til þess að
vita hve margir hafa tilkynnt þátt-
töku í sýningunni eða um 35 veit-
ingahús og fyrir það viljum við
Víðarrsmenn þakka. Um leið viljum
við vænta þess að sem flestir sjái
sér fært að líta inn í Perluna, kynn-
ast þessum ágætu fyrirtækjum og
eiga þar ánægjulega dagstund.
NÍELS ÁRNILUND,
formaður Lionsklúbbsins Víðarrs.
10% afsláttur
af frönskum vörum
frá 1. til 8. nóvember
LA BAGUETTE
Frystiverslun og heildsölubirgðir
GLÆSIBÆ, SÍMI 588 2759.
OPIÐ MÁNUD. -FIMMTUD. KL. 12 -18. FÖSTUD. 12 -19. LAUGARD. KL. 10 -14.
TRI X I
á frábærum hágæða
Gilda Marx
og Tnixi leikfimifatnaöl
og sportskóm frá
AVIA
VERSLANIR
LAUGAVEGI51 - S. 551-7717 - SKEIFUNNI19 - S.568-1717
Goöur afsláttur
47 /v 'T aOA
/ CJ /A
^ u
Fyrstir koma - Fyrstin fá
HREYSTI
SPRENGIDAGAR 1.-9. NOV.
Frábærar vörur á ótrúlega góðu verói
Dæmi um verb:
Mittisúlpur fullorðinna nú kr. 4.990,
Úlpur fullorðins síðar nú kr. 6.990,
Úlpur og anorakkar nú kr. 4.990,
Le Caf íþróttagallar barna, verð frá
áður kr. 7.990 Le Caf íþróttagallar fullorðinna, verð frá kr. 3.99Ó
áður kr. 9.990 Innanhús leikfimiskór st. 28-46 kr. 1.990
áður kr. 12.900 Barnaúlpur, verð frá kr. 4.900
kr. 2.990 Kuldagallar barna, verð frá kr. 6.990
Erum nú í Nóatúni 17
»hummél
SPORTBÚÐIN
Nóatúni 17
s. 5113555