Morgunblaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FLOWER OF MY SECRET
<z
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
HTTP://WWW.
THE ARRIVAL.COM
Frumsýning: Staðgengillinn
KLIKKAÐI PRÓFESSORINN
HH)[DD[
★★★
A.I.MBL
Mynd sem lífgar j
uppá tilveruna.,
H.l
THE NUTTY
PROFESSOR
Hún er komin vinsælasta grínmynd ársins.
Eddie Murphy fer hreinlega á kostum og er
óborganlegur i óteljandi hlutverkum. The
Nutty Professor er gamanmynd fyrir alla
fjölskylduna.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Harðsvíraður málaliði tekur að sér að uppræta eiturlyfjahring
sem hefur aðalbækistöðvar í gagnfræðaskóla í suður Flórída.
Aðalhlutverk: Tom Berenger (Platoon, The Big Chill), Ernie
Hudson (Congo, The Crow), Diane Venora (Heat)
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15
BviKWNPAHÁnV í l&yi&yífCs
Sjá nánar bls. 57,
SHANGHAI TRIAD
5HANGHAI GENGIÐ
Nýasta
mynd
meistara
Zhang
Yimou
(Rauði
lampinn)
v /ív'ý, . :k-Æ V
f. ' 7i: . ’ “'(i5®'
Sýnd kl. 5 og 7.
Sýnd kl. 5 og 7. ísl. texti.
DAUÐUR
4>EAÐ
eftir Jim Jarmusch. Aðalhlutverk Johnny
Depp, Gabriel Byrne og Robert Mitchum.
Tónlist: Neil Young.
Sýnd kl. 6 og 9.
BREAKING THE WAVES
★★★v2
f sv Mbl
L GBDV
’ AÍÍyfgJn
Óvenjuleg ástarsaga sem gerist í Skotlandi oq fjallar
um unga stúlku sem giftist stafsmanni á olíuborpalli.
Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn eru þau mjög hamingjusöm
en fljotleqa dregur skugga fyrir solu er máðurinn
slasast vio störf sin og getur ekki gagnast konu sinni.
Hann telur henni trú um að eina leioin til að halda í sér
líftórunni sé að hún lýsi í smáatriðum fyrir sér
ástarsmböndum sínum. Slíkt hlýtur að enaa með
ósköpum. Allir þeir sem sáu Jerusalem ættu ekki að
missa af þessari frábæru kvikmynd.
Sýnd kl. 6 og 9.
HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Boðið upp
í val(s)
FJÖLBREYTNI er vafalaust lykilatriði í kvikmyndavali flestra sjónvarps-
stöðva. Ef fólk hefur aðgang að öllum íslensku stöðvunum er þessi fjöl-
breytni töluverð. Hins vegar getur líka verið æskilegt að innan um og sam-
an við fjölbreytnina sé vottur af samhæfðu vali og stundum örlar á slíku
sem betur fer. Islenska kvikmyndavikan í Ríkissjónvarpinu er dæmi um
þetta, og einnig þemamyndir mánaðarins á Stöð 2, sem í nóvember eru
svokaliaðar framtíðarmyndir. Stundum fær maður þó á tilfinninguna að
Stöð 2 púsli saman myndum úr bunkanum sem óvart eru á svipuðum slóð-
um efnislega fremur en að um markvisst úrval sé að ræða. Gervihnattastöð-
in TNT gerir mestanpart út á mismerkilega þematíska pakka sem ganga
frarn og aftur á dagskránni furðu lengi og hamla fjölbreytni frekar en
auka hana. Markvisst val og úrval fer því ekki alitaf saman.
Föstudagur
Sjónvarpið ►22.45 Breski saka-
málahöfundurinn Ruth Rendell virðist
hafa komið sér fyrir um sinn á þessum
stað og þessari stund með afurðir sín-
ar. Síðasta föstudag voru löggur henn-
ar Masters og Moore á ferð í Tilviljun-
um en nú er það Helluparís (Heartsto-
nes) þar sem tvær systur gruna föður
sinn um aðild að láti móðurinnar.
Anthony Andrews, Emily Mortimer
og Helen Mitchell hoppa þennan hellu-
parís.
Stöð2 ►13.00 og 0.20 Kenneth
Branagh, sá gáfaði en sjálfumglaði
listamaður, leikstýrir sjálfum sérog
fyrrverandi eiginkonu, Emma Thomp-
son, í gamanleik Shakespeares Ys og
þys útaf engu (Much Ado About
Nothing, 1993). Yfirþyrmandi og
þreytandi hundakæti einkennir leikinn
í þessari mynd sem þó er fagurlega
tekin í sólríku umhverfi. ★ ★ 1/2
Stöð2 ►21.00 Myndirnar þijár um
Karatedrenginn sem sigrast á aðstæð-
um sínum með blöndu af austrænni
heimspeki og bardagalist byijuðu
frekar þunrit og þynntust áfram út.
Sú fjórða, Karatestelpan (The Next
Karate Kid, 1994), hefur ekkert nýtt
fram að færa annað en steipuna Hil-
ary Swank í stað drengsins Ralphs
Macchio. Noriyuki „Pat“ Morita er enn
sami góði, gamli leiðbeinandinn. Leik-
stjóri Christopher Cain. ★ 1/2
Stöð 2 ►22.50 Framtíðarmynda-
þema nóvembermánaðar hefst með
Gildrunni (Trapped In Space, 1993),
byggðri á sögu Arthurs C. Clarke. Þar
segir frá hópi geimfara sem uppgötva
að súrefnisbirgðir þeirra duga aðeins
einum til heimfarar. Ég hef ekki séð
þessa sjónvarpsmynd en Martin og
Potter segja hana vel leikna, drama-
tíska og spennandi. Þau gefa ★ ★ ★
(af fimm mögulegum) og Maltin segir
hana yfir meðallagi. Meðal leikara eru
Jack Wagner, Jack Coleman og Kay
Lenz, en leikstjóri er Arthur Allan
Seidelman.
Stöð 3 ►21.05, 22.35 og 0.05 Enn
snýr James gamli Arness aftur sem
hinn stæðilegi lögreglustjóri Matt Dill-
on í sjónvarpsvestranum Réttlæti
(Gunsmoke - One Man ’s Justice) og
leitar að morðingjum. Engar umsagn-
ir liggja fyrir um myndina og ekki
heldur spennumyndina Skollaleik
Best
áTNT
Village OfThe Damned (1960)
Þessi breska mynd er greindarleg
útgáfa af vísindaskáldsögu Johns
Wyndham um lítið þorp sem fellur
í dásvefn í sólarhring og þegar
bæjarbúar vakna eru allar konum-
ar bamshafandi. Og afkvæmin eru
ekki venjuleg. George Sanders og
Barbara Shelley í framlínu leik-
hópsins. Leikstjóri Wolf Rilla.
(Laugardagur ► 21.00 og2.40).
★ ★ ★
The Magnificent Seven (1970) SI-
gildur hasarvestri Johns Sturges
um 8jö hetjur í spennandi viðureign
við bófa í Mexico, byggður á
Samúræjunum sjö eftir Kurosawa.
Frábær leikhópur með Yul Brynn-
er, Steve McQueen, Eli Wallach,
James Cobum, Charles Bronson
og fleirum í broddi fylkingar.
(Laugardagur ► 0.40) * * ★
(Blue Murder), sem sýnd er í tveimur
hlutum, í kvöld og annað kvöld. Hvorki
leikara né leikstjóra er getið í dagskrá
Stöðvar 3, hvað þá árgerðár, og allt
er þetta til baga. Kynferðisleg áreitni
á vinnustað er svo viðfangsefni Ofrík-
is (Sexual Advances) með Stephanie
Zimbalist og William Russ.
Sýn ^21.00 Hinn vinsæli gaman-
vestri Butch Cassidy And The Sun-
dance Kid (1969) með Paul Newman
og Robert Redford gat af sér fram-
hald sem í raun er þó forveri - segir
frá yngri árum þessa ágæta pars.
Butch And Sundance (ButchAnd
Sundance: TheEariy Years, 1979)
kemst ekki í hálfkvisti við eldri mynd-
ina þótt Tom Berenger og William
Katt séu geðþekkir í titilhlutverkun-
um. Leikstjóri Richard Lester. ★ ★
Sýn ^23 .35 Basl og barátta ung-
menna fyrir betra lífi í fátækrahverfi
New York er kunnuglegt söguefni
Körfuboltastrákanna (Above The
Rim, 1994). Martin og Potter segja
óþekktan leikhópinn góðan en gefa
★ ★ 1/2 (af fimm), Maltin og Block-
buster Video líka (af fjórum). Góð
fyrir körfuboltaáhugamenn.
Laugardagur
Sjónvarpið ►21.10 Togstreita kyn-
slóða í bandarískum smábæ er í
brennidepli Bláafljóts (Blue River,
1995). Jerry O’Connell og Nick Stahl
eru bræðurnir en Sam Elliott og Sus-
an Dey foreldrarnir í þessari drama-
tísku mynd, sem Martin og Potter
gefa ágæta einkunn eða ★ ★ ★. Leik-
stjóri Larry Eiikann.
Sjónvarpið ►22.55 Hasarsmellur-
inn Skaðræðisgripur (Lethal Weap-
on, 1987) staðfesti vinsældir ástralska
leikarans Mels Gibson í Bandaríkjun-
um og gat af sér framhöld og eftirlík-
ingar. Hálfgalinn harðjaxl - Gibson -
og kyrrlátur fjölkskyldufaðir - Danny
Glover - eru skrýtið löggupar á fleygi-
ferð á eftir allra handa illþýði. Horfið,
hugsið ekki, og þér munuð njóta. Leik-
stjóri Richard Donner. ★ ★ ★
Stöð 2 ►15.00 Disneymyndin Hók-
us pókus (Hocus Pocus, 1993) er
full af brellum og hamagangi en húm-
orinn vantar í sögu um uppvakningu
fornra norna f nútímanum. Ágætir
leikarar á borð við Bette Midler og
Sarah Jessica Parker fá við ekkert
ráðið. Leikstjóri Kenny Ortega. ★
Stöð 2 ^21 .25 Indverski leikstjórinn
Mira Nair klúðrar ekki beiniínis fyrstu
Hollywoodmynd sinni en Perez-fjöl-
skyldan (The Perez Family, 1995)
stendur myndum hennar Salaam
Bombay og Mississippi Masala langt
að baki enda er hún langt frá heima-
APINN og ástkona hans - gamalt piakat fyrir King Kong.
Apaspilið mikla
sérflokki þessa helgina
er sýning Ríkissjónvarpsins á einhverri
frægustu og vinsælustu mynd kvikmyndasögunnar, King Kong (1933,
sunnudagur ►15.40). King Kong var ein fyrsta hljóðmyndin sem sló
í gegn og hún markar einnig timamót hvað varðar tæknibrellur, sem
sumir segja að séu magnaðri en allar samanlagðar tölvubrellur
núti'mabíómynda. Hvað sem því álitamáli liður er King Kong hin
besta skemmtun. Sagan er af risavöxnum apa sem finnst á frum-
skógaeyju og er fluttur til IMew York þar sem hann verður hættu-
lega ástfanginn af ungri leikkonu - Fay Wray, sem ekki þarf að leika
mikið en skrækir þeim mun meira. Og þegar apinn krefst frelsis
síns þarf ekki að spyrja að leiksiokum. Lokaatriðið uppi á Empire
Statebyggingunni er kvikmyndaklassík. Hreyfimyndatækni brellu-
meistarans Willis O’Brien og tónlist Max Steiner eru aðalsmerki
King Kong, en ekki má heldur gleyma leikstjóra myndarinnar Merian
C. Cooper, fyrrverandi herforingja og ævintýramanni. Hann hóf fer-
il sinn í kvikmyndum, ásamt samstarfsmanni sfnum Ernest B. Scho-
edsack, með heimildamyndum, en ekkert leikinna verka hans komst
með tærnar þar sem Kong hafði hælana. Árið 1947 stofnuðu þeir
Cooper og John Ford eigið framleiðslufyrirtæki, hann fékk Oscars-
verðlaun árið 1952 fyrir nýsköpun sína í kvikmyndaiðnaðinum, en
áður en hann lést árið 1973 var hann gleymdur og starfaði sem
mótelstjóri í Kaliforníu. ★ ★ ★
slóðum í gamansamri örlagasögu kúb-
versks flóttamanns í Flórída. Góður
leikhópur - Anjelica Huston, Marisa
Tomei, Alfred Molina, Chazz Palmint-
eri - hjálpartil. ★ ★
Stöð 2 ►23.10Þungerábyrgð
Johns Carpenter en hin sígilda barna-
píuhrollvekja hans Hrekkjavaka
(Halloween, 1978) ungaði út endalaus-
um vondum eftirlíkingum og fram-
höldum um dulmagnaðan fjöldamorð-
ingja sem slátrar öllum sem fyrir verða
en af einhveijum ástæðum eru það
einkum föngulegar skvísur. Gerð af
mikilli tækni og kunnáttu, full óhugn-
aðar og spennu. Jamie Lee Curtis
varð stjarna með þessari mynd.
★ ★ ★
Stöð 2 ►0 .50 Rudyard Kipling skrif-
aði smásöguna sem sálfræðileg fant-
asía Heimur fyrir handan (They/T-
hey Watch, 1993) er reist á. Patrick