Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FLOWER OF MY SECRET <z HASKOLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó HTTP://WWW. THE ARRIVAL.COM Frumsýning: Staðgengillinn KLIKKAÐI PRÓFESSORINN HH)[DD[ ★★★ A.I.MBL Mynd sem lífgar j uppá tilveruna., H.l THE NUTTY PROFESSOR Hún er komin vinsælasta grínmynd ársins. Eddie Murphy fer hreinlega á kostum og er óborganlegur i óteljandi hlutverkum. The Nutty Professor er gamanmynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Harðsvíraður málaliði tekur að sér að uppræta eiturlyfjahring sem hefur aðalbækistöðvar í gagnfræðaskóla í suður Flórída. Aðalhlutverk: Tom Berenger (Platoon, The Big Chill), Ernie Hudson (Congo, The Crow), Diane Venora (Heat) Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15 BviKWNPAHÁnV í l&yi&yífCs Sjá nánar bls. 57, SHANGHAI TRIAD 5HANGHAI GENGIÐ Nýasta mynd meistara Zhang Yimou (Rauði lampinn) v /ív'ý, . :k-Æ V f. ' 7i: . ’ “'(i5®' Sýnd kl. 5 og 7. Sýnd kl. 5 og 7. ísl. texti. DAUÐUR 4>EAÐ eftir Jim Jarmusch. Aðalhlutverk Johnny Depp, Gabriel Byrne og Robert Mitchum. Tónlist: Neil Young. Sýnd kl. 6 og 9. BREAKING THE WAVES ★★★v2 f sv Mbl L GBDV ’ AÍÍyfgJn Óvenjuleg ástarsaga sem gerist í Skotlandi oq fjallar um unga stúlku sem giftist stafsmanni á olíuborpalli. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn eru þau mjög hamingjusöm en fljotleqa dregur skugga fyrir solu er máðurinn slasast vio störf sin og getur ekki gagnast konu sinni. Hann telur henni trú um að eina leioin til að halda í sér líftórunni sé að hún lýsi í smáatriðum fyrir sér ástarsmböndum sínum. Slíkt hlýtur að enaa með ósköpum. Allir þeir sem sáu Jerusalem ættu ekki að missa af þessari frábæru kvikmynd. Sýnd kl. 6 og 9. HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA Boðið upp í val(s) FJÖLBREYTNI er vafalaust lykilatriði í kvikmyndavali flestra sjónvarps- stöðva. Ef fólk hefur aðgang að öllum íslensku stöðvunum er þessi fjöl- breytni töluverð. Hins vegar getur líka verið æskilegt að innan um og sam- an við fjölbreytnina sé vottur af samhæfðu vali og stundum örlar á slíku sem betur fer. Islenska kvikmyndavikan í Ríkissjónvarpinu er dæmi um þetta, og einnig þemamyndir mánaðarins á Stöð 2, sem í nóvember eru svokaliaðar framtíðarmyndir. Stundum fær maður þó á tilfinninguna að Stöð 2 púsli saman myndum úr bunkanum sem óvart eru á svipuðum slóð- um efnislega fremur en að um markvisst úrval sé að ræða. Gervihnattastöð- in TNT gerir mestanpart út á mismerkilega þematíska pakka sem ganga frarn og aftur á dagskránni furðu lengi og hamla fjölbreytni frekar en auka hana. Markvisst val og úrval fer því ekki alitaf saman. Föstudagur Sjónvarpið ►22.45 Breski saka- málahöfundurinn Ruth Rendell virðist hafa komið sér fyrir um sinn á þessum stað og þessari stund með afurðir sín- ar. Síðasta föstudag voru löggur henn- ar Masters og Moore á ferð í Tilviljun- um en nú er það Helluparís (Heartsto- nes) þar sem tvær systur gruna föður sinn um aðild að láti móðurinnar. Anthony Andrews, Emily Mortimer og Helen Mitchell hoppa þennan hellu- parís. Stöð2 ►13.00 og 0.20 Kenneth Branagh, sá gáfaði en sjálfumglaði listamaður, leikstýrir sjálfum sérog fyrrverandi eiginkonu, Emma Thomp- son, í gamanleik Shakespeares Ys og þys útaf engu (Much Ado About Nothing, 1993). Yfirþyrmandi og þreytandi hundakæti einkennir leikinn í þessari mynd sem þó er fagurlega tekin í sólríku umhverfi. ★ ★ 1/2 Stöð2 ►21.00 Myndirnar þijár um Karatedrenginn sem sigrast á aðstæð- um sínum með blöndu af austrænni heimspeki og bardagalist byijuðu frekar þunrit og þynntust áfram út. Sú fjórða, Karatestelpan (The Next Karate Kid, 1994), hefur ekkert nýtt fram að færa annað en steipuna Hil- ary Swank í stað drengsins Ralphs Macchio. Noriyuki „Pat“ Morita er enn sami góði, gamli leiðbeinandinn. Leik- stjóri Christopher Cain. ★ 1/2 Stöð 2 ►22.50 Framtíðarmynda- þema nóvembermánaðar hefst með Gildrunni (Trapped In Space, 1993), byggðri á sögu Arthurs C. Clarke. Þar segir frá hópi geimfara sem uppgötva að súrefnisbirgðir þeirra duga aðeins einum til heimfarar. Ég hef ekki séð þessa sjónvarpsmynd en Martin og Potter segja hana vel leikna, drama- tíska og spennandi. Þau gefa ★ ★ ★ (af fimm mögulegum) og Maltin segir hana yfir meðallagi. Meðal leikara eru Jack Wagner, Jack Coleman og Kay Lenz, en leikstjóri er Arthur Allan Seidelman. Stöð 3 ►21.05, 22.35 og 0.05 Enn snýr James gamli Arness aftur sem hinn stæðilegi lögreglustjóri Matt Dill- on í sjónvarpsvestranum Réttlæti (Gunsmoke - One Man ’s Justice) og leitar að morðingjum. Engar umsagn- ir liggja fyrir um myndina og ekki heldur spennumyndina Skollaleik Best áTNT Village OfThe Damned (1960) Þessi breska mynd er greindarleg útgáfa af vísindaskáldsögu Johns Wyndham um lítið þorp sem fellur í dásvefn í sólarhring og þegar bæjarbúar vakna eru allar konum- ar bamshafandi. Og afkvæmin eru ekki venjuleg. George Sanders og Barbara Shelley í framlínu leik- hópsins. Leikstjóri Wolf Rilla. (Laugardagur ► 21.00 og2.40). ★ ★ ★ The Magnificent Seven (1970) SI- gildur hasarvestri Johns Sturges um 8jö hetjur í spennandi viðureign við bófa í Mexico, byggður á Samúræjunum sjö eftir Kurosawa. Frábær leikhópur með Yul Brynn- er, Steve McQueen, Eli Wallach, James Cobum, Charles Bronson og fleirum í broddi fylkingar. (Laugardagur ► 0.40) * * ★ (Blue Murder), sem sýnd er í tveimur hlutum, í kvöld og annað kvöld. Hvorki leikara né leikstjóra er getið í dagskrá Stöðvar 3, hvað þá árgerðár, og allt er þetta til baga. Kynferðisleg áreitni á vinnustað er svo viðfangsefni Ofrík- is (Sexual Advances) með Stephanie Zimbalist og William Russ. Sýn ^21.00 Hinn vinsæli gaman- vestri Butch Cassidy And The Sun- dance Kid (1969) með Paul Newman og Robert Redford gat af sér fram- hald sem í raun er þó forveri - segir frá yngri árum þessa ágæta pars. Butch And Sundance (ButchAnd Sundance: TheEariy Years, 1979) kemst ekki í hálfkvisti við eldri mynd- ina þótt Tom Berenger og William Katt séu geðþekkir í titilhlutverkun- um. Leikstjóri Richard Lester. ★ ★ Sýn ^23 .35 Basl og barátta ung- menna fyrir betra lífi í fátækrahverfi New York er kunnuglegt söguefni Körfuboltastrákanna (Above The Rim, 1994). Martin og Potter segja óþekktan leikhópinn góðan en gefa ★ ★ 1/2 (af fimm), Maltin og Block- buster Video líka (af fjórum). Góð fyrir körfuboltaáhugamenn. Laugardagur Sjónvarpið ►21.10 Togstreita kyn- slóða í bandarískum smábæ er í brennidepli Bláafljóts (Blue River, 1995). Jerry O’Connell og Nick Stahl eru bræðurnir en Sam Elliott og Sus- an Dey foreldrarnir í þessari drama- tísku mynd, sem Martin og Potter gefa ágæta einkunn eða ★ ★ ★. Leik- stjóri Larry Eiikann. Sjónvarpið ►22.55 Hasarsmellur- inn Skaðræðisgripur (Lethal Weap- on, 1987) staðfesti vinsældir ástralska leikarans Mels Gibson í Bandaríkjun- um og gat af sér framhöld og eftirlík- ingar. Hálfgalinn harðjaxl - Gibson - og kyrrlátur fjölkskyldufaðir - Danny Glover - eru skrýtið löggupar á fleygi- ferð á eftir allra handa illþýði. Horfið, hugsið ekki, og þér munuð njóta. Leik- stjóri Richard Donner. ★ ★ ★ Stöð 2 ►15.00 Disneymyndin Hók- us pókus (Hocus Pocus, 1993) er full af brellum og hamagangi en húm- orinn vantar í sögu um uppvakningu fornra norna f nútímanum. Ágætir leikarar á borð við Bette Midler og Sarah Jessica Parker fá við ekkert ráðið. Leikstjóri Kenny Ortega. ★ Stöð 2 ^21 .25 Indverski leikstjórinn Mira Nair klúðrar ekki beiniínis fyrstu Hollywoodmynd sinni en Perez-fjöl- skyldan (The Perez Family, 1995) stendur myndum hennar Salaam Bombay og Mississippi Masala langt að baki enda er hún langt frá heima- APINN og ástkona hans - gamalt piakat fyrir King Kong. Apaspilið mikla sérflokki þessa helgina er sýning Ríkissjónvarpsins á einhverri frægustu og vinsælustu mynd kvikmyndasögunnar, King Kong (1933, sunnudagur ►15.40). King Kong var ein fyrsta hljóðmyndin sem sló í gegn og hún markar einnig timamót hvað varðar tæknibrellur, sem sumir segja að séu magnaðri en allar samanlagðar tölvubrellur núti'mabíómynda. Hvað sem því álitamáli liður er King Kong hin besta skemmtun. Sagan er af risavöxnum apa sem finnst á frum- skógaeyju og er fluttur til IMew York þar sem hann verður hættu- lega ástfanginn af ungri leikkonu - Fay Wray, sem ekki þarf að leika mikið en skrækir þeim mun meira. Og þegar apinn krefst frelsis síns þarf ekki að spyrja að leiksiokum. Lokaatriðið uppi á Empire Statebyggingunni er kvikmyndaklassík. Hreyfimyndatækni brellu- meistarans Willis O’Brien og tónlist Max Steiner eru aðalsmerki King Kong, en ekki má heldur gleyma leikstjóra myndarinnar Merian C. Cooper, fyrrverandi herforingja og ævintýramanni. Hann hóf fer- il sinn í kvikmyndum, ásamt samstarfsmanni sfnum Ernest B. Scho- edsack, með heimildamyndum, en ekkert leikinna verka hans komst með tærnar þar sem Kong hafði hælana. Árið 1947 stofnuðu þeir Cooper og John Ford eigið framleiðslufyrirtæki, hann fékk Oscars- verðlaun árið 1952 fyrir nýsköpun sína í kvikmyndaiðnaðinum, en áður en hann lést árið 1973 var hann gleymdur og starfaði sem mótelstjóri í Kaliforníu. ★ ★ ★ slóðum í gamansamri örlagasögu kúb- versks flóttamanns í Flórída. Góður leikhópur - Anjelica Huston, Marisa Tomei, Alfred Molina, Chazz Palmint- eri - hjálpartil. ★ ★ Stöð 2 ►23.10Þungerábyrgð Johns Carpenter en hin sígilda barna- píuhrollvekja hans Hrekkjavaka (Halloween, 1978) ungaði út endalaus- um vondum eftirlíkingum og fram- höldum um dulmagnaðan fjöldamorð- ingja sem slátrar öllum sem fyrir verða en af einhveijum ástæðum eru það einkum föngulegar skvísur. Gerð af mikilli tækni og kunnáttu, full óhugn- aðar og spennu. Jamie Lee Curtis varð stjarna með þessari mynd. ★ ★ ★ Stöð 2 ►0 .50 Rudyard Kipling skrif- aði smásöguna sem sálfræðileg fant- asía Heimur fyrir handan (They/T- hey Watch, 1993) er reist á. Patrick

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.