Morgunblaðið - 01.11.1996, Page 60
-33r-
HEIMILISLÍNAN
- Heildarlausn áfjármálum
einstaklinga
(^) BÚNAÐARBANKI ISIANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENJRUM.IS / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI 1
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Hagnaður af fiskveiðum
í fyrra um 1,4 milljarðar
Fyrirtæki í Seattle í
greiðslustöðvun
Milljón
dollara
krafa IS
líklega
greidd
FYRIRTÆKIÐ Richardson Inter-
national Ltd. í Seattle hefur fengið
greiðslustöðvun vegna lausafjár-
vanda, en fyrirtækið hefur meðal
annars átt viðskipti við íslenskar
sjávarafurðir hf. vegna kaupa á
fiskímjöli frá Kamtsjatka. Krafa ÍS
á hendur Richardson nemur tæpri
milljón dollara, eða um 67 milljón-
um króna, og segir Benedikt
Sveinsson, forstjóri ÍS, mestar líkur
á að krafan verði greidd að fullu.
Samkvæmt upplýsingum frá
skiptarétti í Washington-fylki nær
úrskurður um greiðslustöðvun til
Richardson International og
dótturfyrirtækis þess. Eignir fyrir-
tækisins eru metnar á tæpar 32
milljónir dollara, en heildarkröfur
nema 31,5 milljónum.
Eignir umfram skuldir
„Fyrirtækið í Seattle, sem við
eigum viðskiptakröfu á, er að
ganga í gegnum íjárhagslega end-
urskipulagningu og á eignir um-
fram skuldir,“ sagði Benedikt
Sveinsson í samtali við Morgun-
blaðið. „Sett hefur verið saman
nefnd lánardrottna, sem fylgist
með framvindu málsins. Það er mat
þeirra lögfræðinga, sem um þetta
fjalla, að endurskipulagningin eigi
að geta tekist og kröfur fáist
greiddar."
Benedikt sagði að Richardson
hefði keypt fiskimjöl frá Kamt-
sjatka, þar sem ÍS hefur haft um-
svif undanfarin 3 ár, í samstárfi
við rússneska útgerðarfyrirtækið
UTRF. „í þeim viðskiptum veltum
við mjög háum upphæðum og þetta
skiptir ekki sköpum. Kröfur af
þessu tagi innheimtast oft hægt.“
Ætla að klífa
Everest
ÞRÍR íslendingar, Björn Ólafsson,
Einar Stefánsson og Hallgrímur
Magnússon, stefna að því að verða
fyrstir íslendinga til að klífa Ever-
est, hæsta fjall veraldar. Ferðin verð-
ur farin næsta vor og stefna þeir að
því að nátindinum átímabilinu 5.-15.
maí.
■ Leggja á Everest/6
HREINN hagnaður af fiskveiðum á
síðasta ári var um 4% af tekjum,
eða um 1,4 milljarðar króna. Horfur
eru á að hagnaður af veiðunum á
þessu ári verði svipað hlutfall, en
upphæðin verður líklega hærri nú
vegna aukins afla. Áætlað er að á
þessu ári fari fískaflinn yfir tvær
milljónir tonna í fyrsta skipti. Fyrstu
9 mánuði ársins nam heildarútflutn-
ingur sjávarafurða 69,2 milljörðum
króna, sem er 9,4% aukning miðað
við sama tíma í fyrra. Áætlað er að
á öllu árinu skili þessi útflutningur
94 milljörðum króna, sem er 7%
aukning frá fyrra ári.
Þessar upplýsingar komu fram í
erindi Sveins Hjartar Hjartarsonar,
hagfræðings Landssambands ís-
SÓL er lágt á lofti þessa dagana
og getur sólskinið verið varasamt
í umferðinni. Að sögn lögreglu
er ævinlega nokkuð um árekstra
á sólardögum að vetrarlagi, eink-
um í byijun vetrar þegar fólk
lenskra útvegsmanna, á aðalfundi
þess í gær. Hann sagði að allir út-
gerðarflokkar hefðu verið reknir
með hagnaði á síðasta ári, á bilinu
1% til 10,9% af tekjum. Um þessar
mundir væri sjávarútvegurinn rek-
inn með lítils háttar tapi og vægi
þar þyngst 12,5% tap á frystingu
í landi.
„Flest bendir til þess að staða
útgerðar sé almennt góð um þessar
mundir. Það fer þó eftir því hve
skuldsettar einstakar útgerðir eru.
Mörg fyrirtæki í greininni eru mjög
skuldug vegna uppsafnaðs vanda á
liðnum árum. Mikilvægt er að at-
vinnugreininni gefist svigrúm til
þess að laga fjárhagslega stöðu
sína. Til þess að svo megi verða,
Varasöm
vetrarsól
er nauðsynlegt að opinberir aðilar
stilli skattakröfum sínum í hóf og
jafnframt sé gætt aðhalds og ráð-
deildar í rekstri fyrirtækjanna,“
sagði Sveinn Hjörtur.
Fyrir fundinum liggja fjölmargar
tillögur. Meðal annars er lagt til að
frumherjar í veiðum utan landhelgi,
njóti þess við úthlutun aflakvóta.
Jafnframt er því mótmælt að tengsl
verði á milli aflaheimilda utan og
innan lögsögu. Þá liggur fyrir fund-
inum tillaga um afnám gildandi
reglna um úreldingu fiskiskipa og
verði útgerðum í sjálfsvald sett hve
stórum skipum þær beiti til að sækja
heimilan afla sinn úr sjó.
■ Aðalfundur LÍÚ/16
virðist enn ekki hafa áttað sig á
aðstæðum. Lögreglumenn segja
að rétt sé að nota sólskyggnin,
hafa sólgleraugu í bilnum og
„gizka“ ekki — aka þvi aðeins af
stað að útsýnið sé tryggt.
Utanríkisráðherra um tillögu Svía og Finna um tengsl ESB og VES
Sættum okkur ekki við
að VES glati sjálfstæði
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði í ræðu sinni um utan-
ríkismál á Alþingi í gær að Island
gæti ekki sætt sig við að Evrópusam-
bandið gæfi Vestur-Evrópusamband-
inu (VES) fyrirmæli og VES glataði
þannig sjálfstæði sínu í reynd. Island
á aukaaðild að VES.
* Halldór vísaði í ræðunni óbeint til
tillögu, sem Svíþjóð og Finnland
lögðu sameiginlega fram á ríkjaráð-
stefnu ESB síðastliðið vor. Þar er
kveðið á um að hin sameiginlega
utanríkis- og öryggismálastefna
bandalagsins verði útvíkkuð þannig
að hún taki einnig til fríðargæzlu,
beitingar hervalds til að koma á friði,
kreppustjórnunar og björgunarað-
gerða, en þetta eru hin svokölluðu
Petersberg-verkefni, sem gert hefur
verið ráð fyrir að VES geti tekið að
sér, í sumum tilfeilum með því að
fá lánuð bandarísk hergögn og fjar-
skipta- og stjórnkerfi NATO.
Svíar og Finnar leggja til að Evr-
ópusambandið geti tekið ákvarðanir
um verkefni af þessu tagi og falið
VES að framkvæma þau. 011 aðildar-
ríki ESB megi taka þátt í fram-
kvæmdinni, en þau séu heldur ekki
skyldug til þess. Tillagan hefur hlot-
ið góðar undirtektir á ráðstefnunni.
„Áherzla einstakra nýrra aðildar-
ríkja ESB, sem ætíð hafa lagt mikið
af mörkum á þessu sviði, en eru
ekki aðilar að vestrænu varnarsam-
starfi, er mjög skiljanleg. Lausnin
má þó ekki felast í því að Evrópusam-
bandið gefi Vestur-Evrópusamband-
inu fyrirmæli og það síðarnefnda
glati þannig sjálfstæði sínu í reynd.
Slpct gætum við Islendingar jafnilla
sætt okkur við og innlimun VES í
ESB,“ sagði utanríkisráðherra.
EFTA-ríkin fá gögn
Halldór vék í ræðunni að sam-
skiptum íslands og Evrópusam-
bandsins og sagði aðild íslands að
ESB ekki á dagskrá núverandi ríkis-
stjórnar, en mikið væri í húfi fyrir
Island að eiga góð samskipti við sam-
bandið og aðildarríki þess. Hann
sagði ESB m.a. hafa fallizt á þá ósk
EFTA-ríkjanna að þau fái öll gögn,
sem Iögð eru fram á ríkjaráðstefnu
sambandsins, eftir að fulltrúar aðild-
arríkjanna hafi rætt efni þeirra.
Sendiskrifstofa í Vín í athugun
Utanríkisráðherra fjallaði um
starfsemi Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu (ÖSE) og mikil-
vægi hennar. „ísland hefur ekki full-
trúa við stofnunina og er því heldur
óhægt um vik að fylgjast með, taka
þátt í, eða hafa áhrif á það starf sem
þar fer fram. í því ljósi er utanríkis-
ráðuneytið að kanna möguleika á því
að opna á ný sendiskrifstofu í Vín.“
■ ísland styðji/8
Rifsnesið
undir-
mannað
við strandið
SJÖ skipveijar voru skráðir á Rifs-
nesið SH-44 sem strandaði við
Grímsey í síðustu viku en aðeins
fímm voru um borð þegar óhappið
varð. Enginn vélstjóri með fullgild
réttindi var á meðal þeirra. Hrað-
frystihúsið á Hellissandi gerir
skipið út.
Áðspurður segir Ólafur Rögn-
valdssson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, það rétt að ekki
hafi allir skráðir skipveijar verið
um borð, en segir að það hafi
engin áhrif haft á þær aðstæður
sem leiddu til strandsins.
Útgerðin óskaði í gær eftir sjó-
prófum við Héraðsdóm Norður-
lands eystra á Akureyri og hefjast
þau á miðvikudag.