Morgunblaðið - 01.12.1996, Page 2
2 E SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
LEST eigum við okkur
jólaboða, eitthvað sem minnir á að
jólin eru í nánd. Mandarínur í trékassa
eða rauðu neti, austurlenskar krydd-
blöndur í ýmsu samhengi, hvort heldur
er kanilstöng í glöggbolla, negulnagli í
appelsínu eða engifer I smákökum.
Ilmurinn af nýsoðnu hangikjöti, skötu
eða rauðkáli í potti. Rétt eins og jólin
séu ein allsherjar matarhátíð, svo mjög
snýst allur undirbúningur þessarar
mestu hátíðar kristinna manna um mat.
Að ógleymdum gjöfunum.
Greniilmur, góður matur og jólagjöf,
sem valin er af umhyggju og
pakkað inn af hugkvæmni,
eru ómissandi þáttur í jóla-
haldinu en við verðum að
vera minnug þess að umbúðirnar mega
ekki bera innihaldið ofurliði. Hversu oft
höfum við ekki kinkað samþykkjandi kolli
þegar við höfum verið minnt á
að litlar gjafir gleðja ekki
síður en stórar, að hugurinn
sem að baki liggur sé það
sem máli skiptir? Og
vitum við ekki öll að það
er ekki magnið heldur
gæðin sem eiga að ráða?
Það er ekkert að því að
borða góðan og ofurlítið
óhollan mat um hátíðirnar, meira
máli skiptir að við hugum að hollustunni
hversdags. En það er kannski óþarfi að fá
sér þrisvar sinnum á diskinn.
Minnug alls þessa
fögnum við fyrsta
sunnudegi í aðventu.
Vonum að okkur
gefist ráðrúm til að njóta hennar með fjölskyldunni
og gera ef til vill eitthvað gott og gagnlegt í leiðinni.
Hlusta á jólaóratóríur og Bing Crosby syngja um hvít
jól og vona að við missum ekki sjónar á því sem er
mest um vert um jólin, jólaboðskapnum, og því að
geta lagt til hliðar allt amstur hversdagsins og notlð
jólahelginnar. Að við væntum ekki meira af jólunum
en svo að þau geti staðið undir því.
Jólahaldiö er ekki annað en það sem við ieggjum
í það. Ætli menn sér um of verður engin orka aflögu
til að njóta þess sem vel er gert. Vandamálin
leysast ekki sjálfkrafa um jólin frekar en aðra daga.
Um jólin á allt að vera eins og það hefur alltaf
verið, jólin eru hátíð hefða og fastheldni. En líf
manna breytist, ástvinir hverfa á braut og nýir koma
til sögunnar. Er jólin ganga í garð skjóta upp
kollinum endurminningar sem hægt hefur verið að
ýta til hliðar í gráma hversdagsins. Vonandi aðeins
Ijúfsárar hugsanir sem minna okkur á hversu mikils
virði það er að geta notið og fundið til.
Með von um góða aðventu og gleðileg jól.
y/j/r)a/' )/////sia/’rit/é////’
Jólin hér og þar
Jólatréð skreytt eplum 16-19
Skarfur og jólasaga 28
Opið hús á aðfangadag 34-35
Þýskir siðir og íslenskir 42-43
ítölsk skemmtan og óhátíðleg 54-55
Fast og fljótandi
Saffran um jólin 6
Heitir drykkir og yljandi 20
Nýstárlegt meðlæti 32-33
Þurrkað og saltað jólaket 39
Prúðbúið fiskihlaðborð 40-41
Kalkúni Sáms frænda 46-47
Jólavín með jólamatnum 48
Rjúpur að hætti Toscana-búa 50-51
Jólabúðingur í skjóðu 58-59
Kökur og konfekt
Þegar piparkökur bakast ...14
Dökkur ávaxtadraumur 22-23
Jólakonfektföndur 24
Norður-afrískar smákökur 26-27
Flauelsmjúk súkkulaðinautn 30-31
Ofót og örlæti
Jólin brotin til mergjar 44-45
Jólakveisa 4
Grænt og
sykurlaust
Fyrirhafnarinnar virði 10
Hátíðargrænmeti 12
Ekkert meinlætalíf 36-37
Skreytingar______________
Mamma jólabarn 52-53
Ferskar og ætar 56-57
Höfundar efnis;
Ámi Matthíasson, Áslaug
Jónsdóttir, Bogi Þór
Arason, Brynja Tomer,
Egill Egilsson, Hákon Már
Oddsson, Hrönn
Marinósdóttir, Karl
Blöndal, Kristján
Kristjánsson, María Hrönn
Gunnarsdóttir, Sigríöur
Ingvarsdóttir, Sigrún
Sveinbjörnsdóttir, Urður
Gunnarsdóttir, Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir, Þómnn
Þórsdóttir.
Hönnun: Áslaug
Snorradóttir og Magnús
Axelsson.
Umbrot: Þorsteinn Þröstur
Jakobsson.
Forsíöumynd: Kristinn
Ingvarsson.