Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 E 39 SALTAÐOG ÞVl’ fjær sem menn eru frá heimahögun- um, því meiri áherslu leggja þeir á að viðhalda þeim jólahefðum sem þeir eru aldir upp við. Sú er að minnsta kosti reynsla Norð- mannsins Leif Myrdal, sem kennir norsku og stundar nám í Þroskaþjálfa- skólanum. Eftir að hann flutti til ís- lands, hóf hann að verka kjöttil jólanna, svokallað pinn- ekjott, auk þess sem hann hefur tekið til hendinni við smá- kökubakstur, þó misjafnlega hafi tek- ist til. Leif hefur búið hér á landi í sjö ár, en hann er kvæntur séra Þóreyju Guð- mundsdóttur. Leif er frá Björgvin, sem er á vestur- strönd Noregs, en hann segir jól- asiðina ólíka eftir því hvar í Noregi menn búi. Á aðfangadagskvöld sýður hann lambasíðu, sem hefur verið látin hanga og þorna frá því í byrjun október, en þá hefur hún legið í saltpækli í tvær vikur. Á Þorláks- messu er síðan skorin niður á milli rifjanna, og bitarnir útvatnaðir í sólarhring. Þeir eru soðnir, sumir sjóða pinnekjatt á birkiteinum, sem lagðir eru í botninn á pottinum en Leif segist ekki hrifinn af því. „Þetta er mjög feitt kjöt, óhollt og gott og borið fram með kartöflum og rófustöppu, sem krydduð er með múskati," segir Leif. Þórey heldur í sínar íslensku hefðir, hangikjöt er einnig á jólaborðinu. Það er afar misjafnt hvernig verkun kjötsins tekst, en það er undir hita og raka komið. Þurrkuð og söltuð lambasíða er mest borð- uð á vesturströndinni að sögn Leifs, hann segir reykta síðu einn- ig til. í Austur-Noregi tíðkist hins vegar að borða svínasíðu og steikta medisterpylsu með súrkáli. í Þrændalögum gæði menn sér hins vegar lambarifjum og lutfiski. Þegar Leif saltar og þurrkar lamba- síðuna, verkar hann einnig lamba- læri, svokölluð fenalár, sem eru látin hanga til vors. Á hans heima- slóðum tíðkast að bíða með að gæða sér á lærinu þar til gaukurinn hefur látið heyra í sér, en hér bíða Norðmennirnir fram til þjóðhátíð- ardagsins, 17. maí. matargerð," segir Leif. Af öðrum jóla- mat sem hann hef- ur haldið í má nefna smákökur, bæði svokallaða smultr- inger og berlínarkr- ansa. Smultringer eru steiktir í feiti líkt og kleinur og segir Leif kúnst að gera það svo vel sé. „Síðast urðu þeir svo harðir að það mátti rota mann með þeim. En það er hægara sagt en gert að læra að gera mat sem er aðeins borðaður einu sinni á ári.“ Hundur til altaris Ein helsta jóla- minning Leifs er hins vegar tengd kirkjusókn en ekki matarvenjum. Hann er frá bóndabæ sem stendur nú í útjaðri Bergen og þar á bæ voru tveir hundar. Annar þeirra gaf upp öndina skömmu fyrir jól og hinn var ósköp einmana. Þegar fjölskyldan fór til kirkju á aðfanga- dag, var hann lokaður inni í eld- húsi. Þegar komið var heim úr kirkju kom í Ijós að hundurinn hafði reynt að komast út um gluggann með því að naga gluggapóstana. Hafði honum orðið svo vel ágengt að eldúsið var fullt af spæni og skipta þurfti um gluggapósta. Næsta ár var hundurinn lokaður inni í viðarskýli áður en haldið var til kirkju. Hún var svo full af fólki að opnað varð út, auk þess sem fólk sat hvar sem því var við kom- ið, meira að segja upp við altarið. Eina lausa plássið var fyrir miðju altari. í miðri messu skýtur hundur- inn hins vegar upp kollinum í kirkj- unni, skellir sér upp að altari og gólar ákaflega í takt við lúðrasveit- ina sem lék jólalög. Presturinn brást ókvæða við, elti hundinn um allt og sparkaði honum að endingu út. Hundurinn lét ekki segjast, en þá tók faðir Leifs til sinna ráða, náði hundinum og sendi hann heim í leigubíl. Smultringer 150 g smjör __________1 14 dl sykur________ _____________3 egg_____________ 3 dl rjómi Morgunblaðið/Golli SÖLTUÐ lambasíðan hefur hangið og þornað frá þvf í byrjun október. Leif hugar að henni öðru hverju. Jólaþorskur Á jóladag er þorskur víða á borð- um Norðmanna, en ekki þó hjá Leif. Þórey segist lítt hrifin af þeim sið að borða soðinn þorsk með kartöfl- um og feitinni af soðnu pinnekjott, eins og tíðkist á vesturströndinni, að ekki sé minnst á lutfisk, sem margir hafa kynnst. „Þetta eru mjög gamlir siðir og því einfaldir. Á jólum er ekki verið að streitast við flókna ________14 tsk kgrdemommur__________ 4 tsk lyftiduft ___________10-11 dl hveiti__________ Sykur og smjör hrært saman, egg- in þeytt og þeim og mjólkinni bætt út í til skiptis við þurrefnin. Hnoðið og fletjið út í mjóa rúllu, skerið niður í langa bita, sem hnýttur er einn hnútur á. Steikt í feiti, tólg eða jurtafeiti, eins og kleinur. Vtingo . mountain jakki: Ur protex 6000 _ „ vatnsheldu ethi kr. j.Tt.UuU áður 19.800 með útöndun. flís peysur: Nýtt útlit, Titir og I CO/ mikið úrval. I J/O Þvkkar og loftmiklar. Frá kr. 5.015. nimbus sett: Úr delfy 1000 _ vatnsheldu efhi | | OfVT með útöndun. kr. XX.LIUL/ Jakki og buxur. áður 14.100 ITALSKIR GONGUSKC stubat skór: kr 6.980 áöur 8.700 Vatnsvarðir með sympatex. hæjilegir skór fyrir léttar gögnuferéir. SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavík s.5ll 2200 BALLY Jólagjöfin hennar Jólagjöfin hans SKÓUERSLUN KÓPAVOGS HAMRABORG 3, SÍMI 554 1754.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.