Morgunblaðið - 01.12.1996, Síða 14
14 E SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
PIPARKÖKUSÖNGURINN fór í
handaskolum hjá bakaradreng
Hérastubbs bakara í Hálsaskógi
og kökubaksturinn varð eftir því.
Bakaradrengurinn var auðvitað
óttalegur bjáni, enda er pipar-
kökubakstur einföld athöfn sem
ætti ekki að vefjast fyrir neinum.
Þó enginn sé piparinn í þeim upp-
skriftum, sem hér eru tíndar til,
er nægilegt krydd í þeim til að
kitla bragðlaukana og gallharðir
piparunnendur geta látið það eftir
sér að lauma fáeinum piparkorn-
um í deigið, svo að kökurnar
standi undir nafni.
Venjulegt piparkökudeig hentar
ekki í piparkökuhús, til þess er
það of lint. Þvi er látin fylgja með
uppskrift að deigi
sem dugar vel til
húsdygginga.
Hjartarsaltið gerir
deigið dekkra og
vilji menn bæta um
betur má lauma
dálitlu kakói út í
það.
Húsameistarar
verða að láta
reynsluna skera úr
um hvort þeir kjósa
að skreyta hliðar og
þak hússins áður
en það er límt sam-
an eða á eftir. Lík-
lega hallast fleiri að síðari kostin-
um. Sé bræddur sykur, verður að
hafa hraðar hendur þegar húsið
er fest saman og gæta þess að
þrenna sig ekki. Einnig má festa
húsið saman með eggjahvítum og
flórsykri, en sá hræringur er not-
aður til að festa sælgæti á húsið.
Börn hafa flest gaman af því
að taka þátt í bakstri og pipar-
kökuhús eru ofarlega á óskalistan-
um. Kolbrún, 5 ára, og Stefán, 7
ára, skreyttu húsin á meðfylgjandi
myndum, auk þess sem þau tóku
virkan þátt í að hnoða og fletja út.
Það eru ekki aðeins börn sem
hafa gaman af piparkökuhúsum,
þau eru góðar jólagjafir og þá
ekki síður litlir piparkökukofar, sem
hafa verið fagurlega skreyttir.
Piparkökur
(um 100 stk.)
75 g smjör eða smjörlíki
1 /2 dl síróp
1 /2 dl (1 25 g) strásykur
1 '/2 dl púðursykur
1 '/2 dl rjómi
3 tsk. kanill
2 tsk engifer
BAKAST
3 tsk negull
4 tsk lyftiduft
10 dl (600 g) hveiti
Velgið smjör og
síróp í potti.
Blandið saman öll-
um þurrefnum og
kryddi og setjið
rjóma og síróps-
blönduna saman við.
Deigið er fremur lint
en þéttist ef það er
geymt á köldum stað.
Hnoðið deigið, fletjið
þunnt út og mótið með
myndamótum. Bakið
kökurnar í 4-5 mínútur
við 225° hita.
Piparkökuhús
1000 g hveiti
500 g hunong eða síróp
_________250 g sykur_______
4 egg (2 egg og 2 eggjarguður)
_______2 tsk hjgrtarsolt___
3 tsk brúnkökukrydd
• Hunang brætt og
kælt. Eggjum, sykri,
kryddí og lyftiefni blandað saman,
hveiti og hunangi bætt út í. Hnoð-
að. Deigið flatt út, '/2 sm þykkt
eða þynnra, sniðið eftir mótum
og bakað í tíu mínútur. Þegar hlut-
arnir eru teknir út úr ofninum má
bera þá við mótin og sníða til
meðan kökurnar eru enn heitar.
Límt saman með bræddum sykri
eða eggjahvítu og flórsykri, sem
er hrært saman og einnig notað
til að skreyta húsið.
Kalkún er kærkomin
tilbreyting á veisluborðið.
Þú færð þér einn kalkún, hvort sem
veislan er fyrir fjóra eða fjórtán, býrð til
heslihnetu og sveppatyllinguna, eldar
kalkúninn og bragðgott kjötið gerir hátíðina
enn hátíðlegri. Daginn eftir koma svo þeir sem
misstu af veislunni í kalda kalkúnasalatið.
Bækling með Ijúffengum uppskriftum og
kalda kalkúnasalatinu er að finna í næstu búð.
Reykjabúið hf. Mosfellsbæ