Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 36
36 E SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÁ ÞVÍ að Kirsten Friðriksdóttir
dönskukennari greindist með syk-
ursýki fyrir þremur árum, hefur hún
verið dugleg að prófa sig áfram
með uppskriftir, aðlaga gamlar og
góðar uppskriftir og búa til nýjar.
Hún segir lítinn vanda að laga
uppskriftirnar að þörfum sínum.
Þær geta einnig nýst þeim sem
minnka vilja við sig sykurinn og
fituna en sykursjúkir verða að
fækka hitaeiningunum eins og
kostur er. Notar Kirsten jógúrt,
fitusnauðan sýrðan rjóma og kota-
sælu eins mikið og hægt er. í einni
uppskriftanna er vín, sem hún seg-
ist þola, sé það í mjög litlu magni.
Ekki sé þó víst að það eigi við alla
sykursjúka.
Allar uppskriftir nema ostakak-
an og tofukakan eru fyrir 4.
Athuga þarf að uppskriftir þar
sem notuð er strásæta má aldrei
baka við meiri hita en ca. 180-190°
C-annars hverfur sætubragðið.
Kotasœluábœtir
meó ávaxtasósu
________1 dós kotosaalo_____
_____1 sítróno, börkur og safi
________5 blöð matarlím_____
________1 msk strásæto_____
_______2 dl rjómi, þeyttur___
2 eggjohvítur, stífþeyttar
Matarlímsblöðin fyrst lögð í
bleyti og síðan brædd í safanum
af sítrónunni. Sítrónuberkinum og
strásætunni bætt út í kotasæluna
og matarlíminu þegar það er að-
eins farið að kólna. Þeytta rjóman-
um og eggjahvítunum er síðan
bætt varlega út í. Sett í 4 bolla
og látið stífna í ísskáp. Þegar bera
skal ábætinn fram er bollunum
dýft örstutt í heitt vatn og innihald-
inu hvolft á disk eða grunna skál.
m
KOTASÆLUÁBÆTIR með ávaxtasósu. Bragðgóður eftirréttur og ekki
spillir fyrir að hann er sykur- og fitusnauður.
KIRSTEN FRIÐRIKS-
DÓTTIR lumar á syk-
ur- og hitaeininga-
snauóum ef tirrétta-
uppskriftum fyrir
félk meó sykursýki,
m jólkurof næmi og
sjálfsofnæmi
Ávaxtasósa úr einhverjum ávöxt-
um, t.d. kiwi, ástríðuávöxtum, jarð-
arberjum eða bláberjum sett í
kring á diskinn. Skreytt með ávöxt-
um eða strimlum af sítrónu- eða
appelsínuberki.
Kaffimús
2 eggjarauður
____________i egg____________
l'/z dl léttmjólk
1 msk skyndikaffi
2 blöð matarlim
3 msk strósæto
12 msk (írskt) viskí)
1 eggjahvíta, stífþeytt
Tll skrauts
1 eggjahvíto, stífþeytt
4 msk sýrður rjómi 10%
Eggjarauður og eggið hrært
saman. Mjóik og skyndikaffi hrært
saman við. Eggjablandan er síðan
hituð varlega (að suðumarki) þar
til hún þykknar og hrært stöðugt í
á meðan.
Matarlímsblöðin sett í bleyti og
síðan hrært saman við heita blönd-
una. Þegar blandan er farin að
kólna er strásætunni (og viskíinu)
bætt í. Að lokum er ein stífþeytt
eggjahvíta hrærð varlega saman
við og músin sett í 4 ábætisglös.
Látið kólna í ísskáp.
Við framreiðslu er síðasta
eggjahvítan stífþeytt og í hana
bætt 4 msk af sýrðum rjóma. Þetta
er síðan sett ofan á ábætinn. (Ekki
hægt að gera fyrr en á síðustu
stundu, því annars fer loftið úr
eggjahvítunni).
Tofu-„osfakaka"
Botn
50 g sólblóma
SÚKKULAÐIKAKA.
Þeir sem hafa sykursýki
eða skert sykurþol verða
að forðast sætabrauð og
sælgæti sem og mat-
væli sem innihalda mikla fitu. í
fyrstu kann að virðast sem þeir
verði þá að lifa meinlætalífi hvað
fæðu varðar en því fer fjarri. Ef
viljinn erfyrir hendi er enginn vandi
að útbúa fallegt veisluborð þar
sem allir geta fundið eitthvað við
sitt hæfi.
EPLAOSTAKAKA.
RÚLLUTERTA með mokkakremi,
piparkökur og möndlu-apríkósukökur.
MEINLÆTAUF
KONÍAKSSTANGIR.
mjöl og mjólk þeytt saman í potti
og hitað meðan hrært er stöðugt
í. Soðið í u.þ.b. 1 mín., en þá er
matarlíms-kaffiblöndunni bætt út
í. Kælt og þeytta rjómanum bætt
saman við.
Kreminu er smurt á kælda kök-
una, hún rúlluð upp og skreytt með
blöndu af kókosmjöli og kakói.
Einnig er hægt að nota sultu fyrir
sykursjúka í stað kremsins.
Uppskriftin er 6-7 K.
Vilja gleymast
Talið er að tæplega fimm þús-
und íslendingar séu með sykursýki
Þrátt fyrir það vilja sykursjúklingar
gleymast og yfirleitt hafa þeir litla
ástæðu til að opna blöð og tímarit
um kökur og kræsingar á borð við
þetta.
Kirsten Friðriksdóttir, dönsku-
kennari við Verzlunarskóla íslands,
og Aðalheiður Ríkarðsdóttir, einn
af eigendum heildverslunarinnar
Lyru, hafa báðar áhuga á málefn-
um sykursjúklinga. Þær hafa feng-
ist við að búa til uppskriftir að
kökum, tertum og eftirréttum sem
sykursjúklingar geta gætt sér á til
jafns við aðra veislugesti og eru
svo örlátar að leyfa lesendum
Morgunblaðsins að njóta afrakst-
ursins.
„Sykurbrúnaðar"
kartöflur
Aðalheiður notar sérstakan
gervisykur, atwel, í uppskriftirnar
sínar. Þeir sem sakna þess að
hafa brúnkál og brúnaðar kartöflur
með jólasteikinni geta tekið gleði
sína á ný því hægt er að nota at-
wel-sykurinn í stað venjulegs syk-
urs til að búa meðlætið til. Þá
þarf að hafa í huga að bræða atw-
el-sykurinn fyrst í vatni yfir hita og
bæta smjörinu síðan út í, annars
vill hann kekkjast. Það sama á við
þegar sultur eru gerðar úr „sykrin-
um“. atwel-sykurinn þeytist líka vel
með eggjum en þá verður að byrja
á að þeyta eggin og strá „sykrin-
um" síðan út á meðan þeytt er
áfram. Einn desilítri af atwel-
sykrinum jafnast á við u.þ.b. 100
g sykurs.
Rétt er að minna á að ef ávext-
ir er notaðir í uppskriftir fyrir sykur-
sjúka verður að bæta kolvetna-
fjölda ávaxtanna við heildarfjölda
kolvetna í uppskriftinni. Síðan er
ráð að útbúa fallegan ostabakka
með grænmeti og vínberjum ef von
er á sykursjúkum vini eða vanda-
manni í heimsókn.
Súkkulaóikaka
225 g hveiti
1 dl kakó
_________1 tsk sódgduft_______
_________2 dl súrmjólk
___________2 dl atwel_________
_____________2e99_____________
100 g smjörlíki, brætt og kælt
Krem
_________3 dl atwel_________
___________1 dl kakó_________
_____________1 egg____________
100 g smjör
Egg og atwel hrært saman.
Smjörlíki bætt í og svo súrmjólk-
inni og hveiti/kakó/sódadufts-
blöndunni á víxl. Deigið má þynna
með köldu kaffi eða mjólk ef þurfa
þykir.
Bakað við 180°C í u.þ.b. 20 mín.
Krem
Öllu hrært saman og þynnt með
köldu kaffi eða mjólk ef þurfa þykir.
Kakan er u.þ.b. 15 K.(1 K er mæli-
eining fyrir 10g af kolvetnum).
E.t.v. skreytt með ávöxtum (kiwi,
jarðarber, mandarínur), en þá
reiknast ávextirnir til viðbótar.
Epla-ostakaka
Botn
135 g smjör
/i dl atwel
'á tsk vanilludropar
150 g hveiti
Fylling
250 g rjómgostur
14— 1 dl atwel
____________f e99___________
______!4 tsk vanilludropar__
______1 msk kartöflumjöl____
__________1 msk atwel_______
__________Vi tsk konill_____
3 epli, ofhýdd og skorin í þunnar
__________sneiðar___________
60 g hnetuspænir
Smjöri, atwel og vanilludropum
hrært saman uns hræran verður
létt og Ijós. Hveitinu blandað vel
saman við. Botn og hliðar á 20 sm
klemmuformi klædd með deiginu.
Rjómaostur og sykur hrært
saman og egginu og vanilludrop-
um bætt út í. Blöndunni hellt í
formið.
Kanil, atwel og kartöflumjöli
blandað saman. Eplasneiðunum
raðað ofan á blönduna í forminu
og kanilblöndunni stráð yfir.
Hnetuspónunum einnig. Bakað í
10 mín. við 225°C. Hiti lækkaður
í 200°C og bakað í 25 mín. til við-
bótar.
Uppskriftin er u.þ.b. 15 K.
mmmmmmmmmmmmmmmmms
Mokkarúlluterta
____________4 egg____________
__________1 'á dl atwel______
2 msk kartöflumjöl (25 g)
60 g hveiti (1 dl)
1 tsk lyftiduft
Krem
2 eggjarauður
__________2 msk gtwel________
2 tsk maizenamjöl
__________1 dl mjólk_________
2 matarlímsblöð, lögð í bleyti í
__________5-10 mín.__________
2 tsk skyndikaffiduft, leyst upp í
______ögn of sjóðondi vatni__
1 dl rjómi, þeyttur
Til skrauts
kókosmjöl og kakó
Eggin þeytt vel. Atwel sigtað út
í meðan þeytt er. Kartöflumjöl,
hveiti og lyftidufti blandað varlega
út í með sleikju. Deiginu hellt á
bökunarpappír sem hefur verið
mótaður í 40x40 sm „form“.
Bakað í 8-10 mín. við 200°C í
miðjum ofni.
Kælt á bökunarpappír sem kó-
kosmjöli hefur verið stráð á, papp-
ír settur ofan á og síðan rakt stykki.
Krem
Eggjarauður, atwel, maizena-
mmmmmmmmmmmmmmmm
Piparkökur
500 g hveiti
_________2/4 dl gtwel_____
_________180 g smjörlíki__
2 tsk mgtgrsódi
4 tsk kanill
_________2 tsk negull_____
_______'/2 tsk pipgr______
_________1 dl mjólk_______
1 tsk síróp
Hnoðað deig eða gert í mat-
vinnsluvél. Kælt. Flatt út og
stungnar út piparkökur sem bak-
aðar eru við 200°C í 10-15 mínút-
ur.
Uppskriftin er u.þ.b. 33 K.
Koniaksstangir
____________200 g smjör_____________
____________1 dl atwel______________
____________300 g hveiti____________
'á dl koníak eða sterkt kaffi
súkkulaði (ef vill) (sykurlaust- eða
suðusúkkulaði)
Smjöri og atwel blandað saman.
Hveiti hnoðað upp í, ásamt koníaki
eða kaffi eða blöndu af kaffi og
koníaki. Mótað í lengjur. Einnig er
þægilegt að gera deigið í mat-
vinnsluvél, hafa vökvann heldur
meiri og sprauta deiginu úr rjóma-
sprautu meðan það er nýhnoðað
og mjúkt. Bakið í 10-12 mínútur
við 175°C.