Morgunblaðið - 21.01.1997, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunbiaðið/KHstján JÓHANN Már Jóhannsson söngv-
HUSFYLLIR varð á tónleikum til styrktar Ólafi Helga Gíslasyni arj var einn þeirra sem fram kom
sem missti báða fætur og fingur á siðasta ári í kjölfar veikinda. a tónleikunum, undirleikari hans
var Guðjón Pálsson.
Styrktartónleikar í Glerárkirkju
Söfnunin skilaði um 1,2 milljónum
HÚSFYLLIR varð á tónleikum
til styrktar Ólafi Helga Gísla-
syni, Brúnum í Aðaldal, sem
haldnir voru í Glerárkirkju um
helgina.
Hann hefur átti við veikindi að
stríða, greindist ungur með
skemmd í nýra og varð að fara
reglulega í nýrnavél. Fyrir 14
árum fékk hann nýra í Danmörku
og náði þeirri heilsu að geta unn-
ið að búskap með foreldrum sín-
um næstu árin. Fyrir þremur
árum fór ígrædda nýrað að gefa
sig og verður Ólafur Helgi nú að
fara reglulega í nýrnavél. A síð-
asta ári þurfti að taka af honum
báða fætuma vegna dreps og
skömmu seinna einnig fingur.
Hann dvelur nú á Landspítalanum
og er farinn að standa í gervifæt-
ur. Hefur hann tekið veikindum
sínum með jafnaðargeði og
stefnir að því að komast sem fyrst
í þjónustuíbúð fyrir fatlaða.
Alls söfnuðust riflega 1,2 millj-
ónir króna á tónleikunum, með
styrktarlínum og því fé sem lagt
hefur verið inn á reikning söfn-
unarinnar. Aðstandendur tónleik-
anna em ánægðir með árang-
urinn, segja hann hafa farið fram
úr björtustu vonum.
Meðal þeirra sem framkoniu
var Tjarnarkvartettinn, Álfta-
gerðisbræður, Karlakór Eyja-
fjarðar, Sálubót.sem er blandaður
kór úr S-Þingeyjarsýslu, þá sungu
frændurnir Jóhann Már Jóhanns-
son og Örn Birgisson. Sr. Pétur
Þórarinsson ávarpaði samkom-
una og Þráinn Karlsson las upp.
Unnið að stofnun
sumarháskóla
UNNIÐ er að stofnun sumarháskóla
á Akureyri og hefur atvinnumála-
nefnd bæjarins samþykkt að veita
700.000 krónur til verkefnisins.
Samstarfshópur um sumarháskóla á
Akureyri, hefur skilað skýrslu um
málið og innan atvinnumálanefndar
hefur verið fjallað um hvernig best
væri að standa að skipulagi verkefn-
isins og fjármögnun.
Starfsmenn Háskólans á Akureyri
hafa lýst sig fúsa til samstarfs og
til greina kemur að Háskólinn leggi
til aðstöðu vegna verkefnisins. Einn-
ig er ráðgert að aðrir aðilar komi
að verkefninu, ferðaþjónustuaðilar,
Gilfélagið og fleiri. Hugmyndin er
að bæði innlendir og erlendir náms-
menn geti sótt skólann.
Starfsmaður ráðinn
tímabundið
Berglind Hallgrímsdóttir, starfs-
maður á Atvinnumálaskrifstofu Ak-
ureyrarbæjar, segir að á næstunni
verði kannaður rekstrargrundvöllur
slíkrar stofnunar á Akureyri og þá
í nánu samstarfi við HA. Ákveðið
hefur verið að ráða starfsmann í 50%
stöðu tímabundið í 7-8 mánuði og
er verið að ganga frá samningi við
Örnu Ýr Sigurðardóttur, guðfræð-
ing, um að taka starfið að sér.
„Það er mjög erfitt að meta þörf-
ina fyrir slíkan skóla en þær stofnan-
ir sem við höfum haft samband við
hafa sýnt málinu áhuga og það eru
augljósir möguleikar á að nemendur
erlendra háskóla komi hingað. Varð-
andi kennsluefni kemur ýmislegt til
greina, bæði akademísk námskeið,
sem hægt væri að vinna í samstarfi
við erlenda háskóla og einnig eru
uppi hugmyndir um önnur námskeið
sem höfðað gætu til almennings. Það
er þó ekkert frágengið."
Stefnt að því að byrja í sumar
Berglind segir að áhugi sé fyrir
samstarfsverkefni við háskóla í
Kanada, einnig að setja upp mynd-
listarnámskeið og koma á ráðstefnu
um barnaheimspeki, svo eitthvað sé
nefnt. „Undirbúningsverkefnið snýr
að því að kanna ýmsa möguleika á
rekstri slíkrar stofnunar til framtíðar
en ekki er gert ráð fyrir að skólinn
verði rekinn af sveitarfélaginu til
lengri tíma. Þetta þarf að vera sjálf-
bær stofnun en þó að kannaðir verði
möguleikar á styrkjum, t.d. úr er-
lendum sjóðum."
Stefnt er að því að starfsemi skól-
ans heQist í einhverjum mæli í sum-
ar, í júlí og byijun ágúst. „Síðan
verður dæmið gert upp af þeim aðil-
um sem að þessu máli koma og
ákveðið með framhaldið," sagði
Berglind.
Skrifstof ustarf - Akureyri
Stórt og öflugt framleiðslufyrirtæki óskar að ráða starfsmann
á skrifstofu fyrirtækisins.
• Starfið felst í útreikningi launa og annarri launavinnslu,
símasvörun og almennum skrifstofustörfum.
• Áskilin er reynsla í launavinnslu ásamt tölvukunnáttu.
Lögð er áhersla á sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð í
mannlegum samskiptum.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu okkar fyrir
31. janúar nk. þar sem umsóknareyðublöð liggja frammi
og nánari upplýsingar eru veittar:
Endurskoðun Akureyri hf.
löggiltir endurskoðendur
Glerárgötu 24, Akureyri - Sími 462 6600 - Fax 462 6601
Endurskoðun - Skattaráðgjöf - Rekstrarráðgjöf - Bókhald
RÁÐNINGAR
Notuðu
ekki örygg-
isbelti
FJÓRTÁN ökumenn hafa verið
kærðir síðustu daga fyrir að nota
ekki öryggisbelti.
Samkvæmt upplýsingum iög-
reglu er meirihluti þeirra sem
kærður er fyrir að nota ekki ör-
yggisbelti ungt fólk, sem ætla
mætti að hefði vanist því að nota
belti þegar það lærði á bíl.
Kunna ekki á stefnuljós
Lögreglu þykir Akureyringar
einnig eiga margt ólært í notkun
stefnuljósa. Svo virðist sem sum-
um sé ofraun að færa til stefnu-
ljósarofann, að ekki sé talað um
nógu tímanlega áður en aksturs-
stefnu er breytt. Alltof margir láti
sér nægja að gefa nokkur blikk
Björgunarsveitarmaður á snjóflóða-
námskeiði hætt kominn
Lenti í þremur
snjóflóðum
í Hlíðarfjalli
LITLU munaði að illa
færi er Leónard Birg-
isson, formaður
Flugbjörgunarsveit-
arinnar á Akureyri,
lenti í þremur snjó-
flóðum í Hlíðarfjalli
sl. sunnudag. León-
ard komst af eigin
rammleik niður á
veg, skammt fyrir
ofan bæinn Hlíðar-
enda, eftir að hafa
krafsað sig upp úr
einu snjóflóði, flotið
ofan á tveimur til við-
bótar og gengið í
rúmlega hnédjúpum
snjó í einar þijár
klukkustundir. í samtali við
Morgunblaðið í gær sagðist León-
ard vissulega hafa verið heppinn
að sleppa heill úr fjallinu. „Mér
tókst að halda ró minni allan tím-
ann og það skiptir miklu máli við
svona aðstæður.“
Björgunarsveitir
kallaðar út
Sex björgunarsveitarmenn til
viðbótar voru þarna á ferð, fimm
komust fljótlega í göngukofa í
fjallinu eftir að veðrið versnaði
en sá sjötti, sem einnig villtist
frá félögum sínum, gekk fram á
vélsleða hópsins og beið þar eft-
ir aðstoð. Félagarnir fimm köll-
uðu eftir aðstoð björgunar-
sveitarmanna á Akureyri, strax
og ljóst var að tveir þeirra höfðu
orðið viðskila við hópinn og var
um 30-40 manna hópur kallaður
út. Snjótroðari sótti mennina
fimm í gönguskálann og mann-
inn sem var við vélsleðann.
Björgunarsveitarmenn á
Akureyri voru á viðamiklu snjó-
flóðanámskeiði um helgina og á
sunnudag hélt 7 manna hópur
upp í Hlíðarfjall til að skoða
aðstæður þar. Um kl. 14.30-15
kom hópurinn að stað þar sem
fallið hafði snjóflóð, skammt
norðan við svokallaðan Manns-
hrygg. Björgunarsveitarmenn-
irnir fóru að þeim stað sem snjó-
hengjan brotnaði og gerðu þar
m.a. alls kyns próf-
anir og mælingar.
Leónard sagði að
þegar hópurinn ætl-
aði að halda af
staðnum um tveim-
ur klukkustundum
síðar, hafi verið
komið leiðindakóf.
„Fljótlega versnaði
veðrið og var varla
stætt á köflum. Ég
missti fljótlega af
félögum mínum og
þar sem kófið var
mikið og skyggnið
slæmt átti ég erfitt
með að lesa af átta-
vitanum. Ég festi
því niður skíðin, stafina og bak-
pokann og ætlaði að halda kyrru
fyrir meðan veðrið gengi yfir.
Þar sem ég var vel búinn hefði
ég getað haldið kyrru fyrir alla
nóttina ef því hefði verið að
skipta.“
Krafsaði sig upp
úr flóðinu
Skömmu síðar varð Leónard
fyrir nokkuð stóru snjóflóði, sem
hreif hann með sér niður hlíðina.
„Þegar flóðið stoppaði náði ég
að krafsa mig upp úr því en i
þann mund sem ég stóð upp, kom
önnur spýja og þeytti mér enn
lengra. Er seinna flóðið
stöðvaðist tók ég á rás og komst
upp á einhvern hól að mér fannst,
settist þar á stein og mat
stöðuna. Er ég hafði setið þar í
stutta stund, kom þriðja fíóðið
og hreif mig mér sér. Er flóðið
stoppaði komst ég út úr kófinu
og gat þá áttað mig á
staðháttum. Ég stillti áttavitann
í austur og fljótlega sá ég ljósin
í bænum og setti þá stefnuna á
Hlíðarenda. Er ég kom niður á
veg hitti ég fyrir félaga mína á
vélsleðum, sem skömmu áður
höfðu rekist á slóð mína.“
Leónard var nokkuð stifur í
fótunum eftir átökin en þó hinn
hressasti og hann var mættur til
vinnu í gær eins og ekkert hefði
í skorist.
Morgunblaðið/Kristján
Leónard Birgisson
eftir að beygt hefur verið, sem er
alltof seint.
Tveir ökumenn voru kærðir fyr-
ir of hraðan akstur og ógætilegan
akstur, einn fyrir að aka gegn
rauðu ljósi og einn fyrir að aka
án réttinda. Númer voru tekin af
þremur bílum vegna vanrækslu á
skoðun. Þá stöðvaði lögregla all-
margar bifreiðar sem ekki voru
með ljósabúnað í lagi.
Sjö manns gistu fangageymslur
vegna ölvunar og í sumum tilvik-
um átaka, en þeim sem voru við-
ræðuhæfir og rólegir var ekið
heim.
-----♦ ♦ ♦---
Hádegissam-
vera í Glerár-
kirkju
HÁDEGISSAMVERUR eru í Gler-
árkirkju á miðvikudögum frá kl.
12 til 13.
Þær hefjast með orgeltónlist,
sálmur er sunginn, ritningarvers
íhugað og að lokum er gengið til
altaris og fyrirbæna.
Að stundinni lokinni er boðið
upp á léttan hádegisverð gegn
vægu gjaldi. Samverustundin og
hádegisverður stendur yfir í um
klukkustund, þannig að margir
ættu að geta notað hádegishlé
sitt til að sækja þessar samveru-
stundir í Glerárkirkju á miðviku-
dögum.
----♦ ♦ ♦----
Mömmu-
morgunn
ÁRNÝ Runólfsdóttir flytur fyrir-
lestur á mömmumorgni í safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju á morgun,
miðvikudag. Hann stendur frá kl.
10 til 12 og eru leikföng og bæk-
ur til staðar fyrir börnin. Allir for-
eldrar velkomnir með börn sín.
Gengið er inn um kapelludyrnar.