Morgunblaðið - 21.01.1997, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 25
Morgunblaðið/Ásdís
Unglingar sýna
í Ráðhúsinu
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri opnaði á föstudag
myndlistarsýninguna Hvernig líð-
ur mér í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Sýningin, sem stendur til 24. jan-
úar, er afrakstur verkefnis sem
Már sýnir
á Veraldar-
vefnum
MÁR Örlygsson sýnir um þessar
mundir nokkur verk í myndlistar-
galieríi Apple-umboðsins, sem lista-
maður janúarmánaðar.
„Ekki er víst að allir kannist við
þessa sýningaraðstöðu, en það sem
gefur henni sérstöðu er staðsetning
hennar, þ.e. á Veraldarvefnum. Gall-
eríið finnst eftir slóðinni
http://www.apple.is/gallery. Sýn-
ingin hófst þann 8. janúar og mun
standa fram til 8. febrúar nk.
Þama er á ferðinni nokkurs konar
samkvæmi mynda og máls, þar sem
viðfangsefnið er dekkri hiiðar tilver-
unnar og umkomuleysi mannsins.
Myndirnar eru bæði ljósmyndir og
verk unnin með biandaðri tækni sem
að lokum eru meðhöndluð með hjálp
tölvunnar.
unglingar í Mótorsmiðjunni unnu
að í húsnæði sem Héðinn smiðja
lánaði hópnum. Næstkomandi
sunnudag, 26. janúar, verður síðan
haldin styrktarhátíð í Borgarleik-
húsinu i tengslum við sýninguna.
VERK eftir Má.
Með hverri mynd stendur svo stutt
ljóð eða orð-hópur. Már er nemi og
starfar einnig sem vefhönnuður á
auglýsingastofu í borginni," segir í
kynningu.
Halldór Asgeirsson myndlistarmaður í Ingólfsstræti 8
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VERK Halldórs Ásgeirssonar í Ingólfsstræti 8,
„og að vatnið sýni hjarta sitt“.
Á bak við skuggann
leynist ljós
HALLDÓR Ásgeirsson myndlistar-
maður hefur opnað sýningu í Ing-
ólfsstræti 8, þar sem lituðu vatni
undir gleri er varpað á vegg með
halogenljósum. Yfirskrift sýningar-
innar, „og að vatnið sýni hjarta sitt“,
er tekið úr ljóðlínu eftir mexíkóska
ljóðskáldið Octavio Paz.
Hugmyndin að verki af þessu tagi
kviknaði í vaxandi skammdeginu
haustið 1995, þegar Halldór sat í
góðu yfirlæti við kertaljós og sötraði
rauðvín. Þá birtist sýnin honum
fyrst, flöktandi loginn frá kertinu
varpaði vínandanum á borðið og
myndaði rauða rák er leitaði lengra
inn í myrkrið. „Var ég tengdur þess-
um loga eða var það vafurlogi er
læddist að sálinni í myrkrinu?"
í byijun nóvember, sama ár, var
verkið Norðurljós, sem byggt var á
fyrrnefndri reynslu, sett upp fyrir
nemendur í Myndlista- og handíða-
skóla íslands og í kjölfarið fór Hall-
dór að beina vasaljósi að uppfylltum
glerflöskum og sjá „arkitýpísk" form
birtast á vegg. „Upp frá því gerðust
hlutirnir hratt.“
í febrúar 1996 setti listamaðurinn
„Postulana tólf“ upp í gamalli kap-
ellu í Clermont Ferrand í Frakklandi
og reyndi með halogenljósi og mis-
munandi glerílátum að endurvekja
horfna steinda glugga kapellunnar.
Um Jónsmessuna blandaði hann síð-
an bleklitum út í glerskálar fylltar
af vatni og „Vatnsaugun“ urðu til á
sýningu á Seyðisfirði - tveir dagar
liðu þar til litataumarnir náðu að
blandast saman. I lok september
„spilaði“ Halldór á
vasaljós á litaðan vökva
undir gleri útfrá sex
raftónverkum á Nor-
rænum músíkdögum í
Hafnarhúsinu og í byij-
un nóvember braut
hann upplýstan gler-
hlut á vegg í lok fyrir-
lestrar í MHÍ.
Leitin heldur áfram
Á árinu 1997 „heldur
leitin áfram", svo sem
Halldór kemst að orði,
og leikurinn hefur bor-
ist í Ingólfsstræti 8.
„Ég hafði góðan tíma Halldór
til að undirbúa sýning- Ásgeirsson
una, sem er mikilvægt,
þar sem hægt er að vinna verk sem
þetta á óteljandi vegu. Ég þreifaði
mig því áfram í rólegheitunum til
að finna rétta liti, ílát og, umfram
allt, réttu stemmninguna í salnum.
Það má eiginlega segja að ég hafí
unnið eins og vísindamaður."
Halldór segir „hið eteríska
ástand" sérstaklega heillandi og oft-
ar en ekki hafi hann verið í sér heimi
þegar hann hvarf af vettvangi eftir
„tilraunir dagsins“ í galleríinu. Hann
hafí hreinlega sogast inn í verkið.
„Eterinn varir meðan hann varir. Á
bak við skuggann leynist ljós, andinn
í flöskunni göfgar vök-
vann og vatnið sýnir
hjarta sitt.“
Glerílátin sem lista-
maðurinn notar í verkið
eru ólíkrar gerðar, „til
að bijóta upp stemmn-
inguna“ og fyrir vikið
eru myndimar á veggn-
um af mismunandi toga.
Eru ílátin keypt sérstak-
lega fyrir sýninguna en
Halldór hefur mikinn
áhuga á að fá glerlista-
mann til liðs við sig fyr-
ir verkefni framtíðar-
innar. Með þeim hætti
yrði auðveldara að út-
færa hugmyndir, auk
þess sem „alltaf er gam-
an að spyrða listgreinar saman“.
Halldór hefur komið víða við á
ferli sínum sem myndlistarmaður
enda kveðst hann óhræddur við að
kanna nýjar lendur - „ég er sífellt
leitandi." Hefur hann meðal annars
ummyndað hraun með logsuðu og
þróað þannig tengsl við glerið. Um
þessar mundir á birtan, í sinni fjöl-
breyttustu mynd, hins vegar hug
hans allan. „Ég skil ekki hvers vegna
i ósköpunum ég hef ekki gert mér
grein fyrir töfrum birtunnar hér á
landi fyrr - það eru engir tveir dag-
ar eins. Þess vegna langar mig í
fyllingu tímans að vinna verk sem
endurspeglar allan ljóshringinn á
Islandi. A því verður þó bið, þar sem
ferlið er svo skammt á veg kornið."
Sýningin er opin frá kl. 14-18
fimmtudaga til sunnudaga og stend-
ur til 16. febrúar.
449 kr.H
(Venjulegt verð
589 kr. Sparið
w 140 kr.)
■
Mc2x4=
Frá aðeirts
399!!!
ntni
Mc2 STJORNUMALTE)
enn meiri sMRmmm
Fjölskyldu/hóptilboð: 4 máltíðir eða fleiri:
Lítil Mc2 Stjörnumáltíð 399 kr. hver
Mið Mc2 Stjörnumáltíð 499 kr. hver
Stór Mc2 Stjömumáltíð 549 kr. hver
Þtá spaiið a.mJk. 72Q bn.fitá
Mc2= Tvöfaldur McOstborgari:
Tvcer safarikar kjötsneiðar og tvœr þykkar ostsneiðar.
Lítil: Mc2, lítill McFranskar, 0,25 1 gos - 449 kr.
Mið: Mc2, miðstærð McFranskar og 0,4 1 gos - 549 kr.
Stór: Mc2, stór McFranskar og 0,5 1 gos - 599 kr.
Þú sparar a.m.k. 130 kr. ffd listaverði.
/Yv
. McDonaids
■ ■ ■
AÐEINS ISTUTTAN TIMA
Langar þig...
að vita flest allt sem vitað er um líf eftir
dauðann og líklegan tilgang lífsins...
í skemmtilegum skóla eitt kvöld í viku eða eitt
laugardagssíðdegi í viku?
Og langar þig að vita hvar látnir vinir þínir og vandamenn
hugsanlega og líklega eru í dag og hvers konar þjóðfélag þar virðist
vera? Og langar þig ef til vill að setjast í mjúkan og svo sannarlega
spennandi skóla innan um glaðværa og jákvæða nemendur fyrir
hófleg skólagjöld? Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur
og yfir 500 ánægðum nemendum Sálarrannsóknarskólans sl. 3 ár.
Hringdu ogfdðu allar nánari upplýsingar um
langskemmtilegasta skólann í bænum sem í boði er í dag. Yfir
skráningardagana er svarað í sttna Sálarrannsóknarskólans
alla daga vikunnar kL 14 til 19.
Sálarrannsóknarskólinn
- „skemmtilegastl skólinn í bænum" -
Vegmúla 2,
símar 561 9015 og 588 6050.