Morgunblaðið - 21.01.1997, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
t
Innilegt þakklæti sendum við öllum,
sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför bróður míns og frænda,
SKÚLA EINARSSONAR.
Helga Þórðardóttir,
Erla Þórðar.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR KRISTJÁNS
SIGURGEIRSSONAR,
Klauf,
Eyjafjarðarsveit.
Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Geir Guðmundsson, Heiðbjört Eiríksdóttir,
Hólmfriður Guðmundsdóttir, Jón Eggertsson,
Hjalti Guðmundsson, Guðný Ósk Agnarsdóttir,
Leifur Guðmundsson, Þórdís Karlsdóttir,
Anna Sigrfður Guðmundsdóttir, Haukur Geir Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓHANNT. KRISTJÁNSSON
fyrrv. lögregluþjónn,
hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlið, Kópavogi,
áðurtil heimilis
á Kársnesbraut 71,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 22. janúar kl. 13.30.
Sigrún Dagbjört Pétursdóttir,
Kristján H. Jóhannsson, Brynja Baldursdóttir,
Rúdólf Jóhannsson, Hrönn Kristinsdóttir,
Ari Jóhannsson, Anna Ingibergsdóttir
og barnabörn.
t
Útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
SÆUNNAR JÓFRÍÐAR
JÓHANNESDÓTTUR,
sem lést mánudaginn 14. janúar sl., fer
fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
1 22. janúar kl. 15.00.
Jóhannes Þorsteinsson,
Helga Þorsteinsdóttir,
Guðni Arnberg Þorsteinsson,
Málfríður Ólína Þorsteinsdóttir,
Steini Sævar Þorsteinsson,
Árni Hreiðar Þorsteinsson
og fjölskyldur.
„ Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
REYKJAVIKURMEISTARARNIR í sveitakeppni 1997. Talið frá vinstri: Ragnar Hermannsson, Sverr-
ir Armannsson, Jón Baldursson, Björn Eysteinsson og Sævar Þorbjörnsson. Einn meistaranna, Þor-
geir Eyjólfsson, var ekki viðstaddur verðlaunaafhendinguna.
Enn vinnur Landsbréf
Reykjavíkurmeistaratitilinn
BRIPS
Bridshöllin
Þönglabakka
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í
SVEITAKEPPNI - ÚRSLIT
18.-19. janúar - Aðgangur ókeypis.
SVEIT Landsbréfa sigraði sveit
Júlla örugglega í 64 spila úrslita-
leik, sem fram fór sl. sunnudag.
Lokatölur urðu 173 gegn 111. í
sveit Landsbréfa spiluðu Jón Bald-
ursson, Sævar Þorbjörnsson, Björn
Eysteinsson, Sverrir Ármannsson,
Ragnar Hermannsson og Þorgeir
Eyjólfsson. Sveit Landsbréfa hefir
lengi verið sigursæl í Reykjavíkur-
mótinu og var þetta í ellefta sinn,
sem Jón Baldursson vinnur þennan
titil.
Leikurinn hófst kl. 11 og vann
sveit Landsbréfa fyrstu lotuna
21-15. Sveitin vann einnig aðra
lotu, nú með 48 gegn 22. Júlli vann
svo þriðju lotuna 44-27 og jafnaðist
leikurinn og munaði aðeins 15 stig-
um þegar síðasta lotan byrjaði. Júlli
og félagar sáu hins vegar ekki til
sólar í síðustu lotunni sem Lands-
bréf vann 77-30.
Spilin í síðustu lotunni gáfu ýmsa
möguleika en síðasta spilið var
svona: (sjá stöðumynd)
I lokaða salnum voru spiluð 4
hjörtu og unnin 5 en í opna salnum
vakti Jakob Kristinsson í norður á
einu laufi. Jón Baldursson sagði 2
lauf sem var annað tveggja lauf eða
rauðir litir. Ólafur Lárusson dobl-
Norður
♦ AG97
▼ AKDG1083
♦ A4
♦ -
Vestur Austur
♦ 1032 ♦ K85
V 9754 11 V -
♦ KD62 ♦ 1087
♦ Á7 ♦ DG96432
Suður
♦ D64
V 62
♦ G953
♦ K1085
aði, en það lofaði 6 punktum, og
Jakob stökk í 6 hjörtu (síðasta spil-
ið í mótinu). Útspil Jóns var lágt
lauf og nú gat Jakob unnið spilið
með því að setja 8 eða 10 í laufi.
Hann reyndi kónginn og þar með
gat hann ekki fengið nema 11 slagi.
í silfursveitinni spiluðu bræðurn-
ir Hermann og Ólafur Lárussynir,
Jakob Kristinsson, Júlíus Sigurjóns-
son, Stefán Jóhannsson og Hrannar
Erlingsson.
Sveit Verðbréfamarkaðar ís-
landsbanka varð í þriðja sæti í
mótinu en þeir höfðu tapað í undan-
úrslitum fyrir Landsbréfum með 87
gegn 108. Júlli vann Hjólbarðahöll-
ina í undanúrslitum með 123 gegn
109.
Jafnhliða úrslitakeppninni spii-
uðu sveitirnar sem lentu í 6.-8.
sæti í báðum riðlum í Reykjavíkur-
mótinu um 3 sæti í íslandsmótinu.
Þar urðu miklar sviptingar og úr-
slit nokkuð óvænt.
Lokastaða efstu sveita:
Ragnar T. Jónasson 85
NEON 84
Héðinn-Schindler 83
Málning hf. 80
Símon Símonarson 75
Keppnisstjórinn Sveinn R. Eiríks-
son afhenti verðlaun í mótslok.
Frítt fyrir unglinga hjá
Bridsfélagi Reykjavíkur
Bridsfélag Reykjavíkur hefir ákveð-
ið að bæta við spiladegi það sem
eftir lifir vetrar og bjóða yngri spil-
urunum að spila frítt á jpriðjudög-
um, en þetta kemur m.a. fram í
fréttatilkynningu, sem þættinum
hefir borizt:
Bridsfélag Reykjavíkur hefur
bætt við sig spiladegi. nú spilar
félagið á þriðjudögum og miðviku-
dögum. Fyrsti þriðjudagurinn sem
verður spilaður undir stjórn BR er
þriðjudagurinn 21. janúar. Þá verð-
ur spilaður Mitchell-tvímenningur
með forgefnum spilum. 28. janúar
verður spilaður Monrad Barómeter,
og síðan Mitchell og Monrad Baró-
meter til skiptis. Spilurum undir
tvítugu er boðið upp á spilamennsku
á þriðjudögum en þeir þurfa að
borga hálft gjald ef þeir spila á
miðvikudögum. Spilurum verður
boðið upp á að leggja 500 kr. á par,
í verðlaunasjóð og rennur verð-
launasjóður aftur til 3 efstu par-
anna sem lögðu pening í hann.
Miðvikudaginn 22. janúar byijar
aðalsveitakeppni félagsins. Fyrir-
komulag fer eftir sveitafjölda og
nær keppnin yfir 6 miðvikudags-
kvöld.