Morgunblaðið - 21.01.1997, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 49
I -------------------------
Bændasamtökin
Mengunar-
varnir upp-
fylli ýtrustu
kröfur
! Á STJÓRNARFUNDI Bændasam-
• taka íslands föstudaginn 17. janúar
var samþykkt eftirfarandi ályktun
um fyrirhugað álver í Hvalfírði:
„Stjórn Bændasamtaka Islands
fagnar þeirri umræðu sem orðið
hefur um mengun og mengunar-
varnir vegna fyrirhugaðrar bygg-
ingar álvers á Grundartanga. Sú
staðsetning orkar mjög tvímælis,
þar sem mikill landbúnaður er
stundaður í næsta nágrenni báðum
megin Hvalfjarðar og fleiri rök
* gegn þeirri staðsetningu en með
henni.
Stjórnin leggur ríka áherslu á
að mengunarvarnir í stóriðju séu
samkvæmt ýtrustu kröfum, sér-
staklega ef svo fer að verksmiðjan
verði reist á Grundartanga sem er
í blómlegu landbúnaðarhéraði.
Jafnframt verði tryggt, að þeir íbú-
ar sem hlut eiga að máli geti treyst
| því að tilkoma verksmiðjunnar ógni
| ekki lífsafkomu þeirra. Stjórnin lít-
Íur svo á að framtíðarlausnir í at-
vinnu- og orkumálum þjóðarinnar
séu ekki einvörðungu stóriðja held-
ur verði áherslan að vera á atvinnu-
rekstur sem fellur betur að þeirri
ímynd sem við höfum skapað okkur
um hreint og ómengað land.“
i
i
i
i
i
i
<
<
(
(
I
(
(
I
(
I
(
i
Málstofa um
skipulag mið-
hálendisins
MÁLSTOFA verður haldin í um-
hverfís- og byggingaverkfræðiskor
Háskóla íslands í dag, þriðjudaginn
21. janúar, kl. 16 í stofu 158 í
VR-II við Hjarðarhaga.
Frummælendur verða: Júlíus Sól-
nes, fyrrverandi umhverfisráðherra:
Miðhálendi íslands sem þjóðgarður
í almenningseign, Gísli Gíslason,
landslagsarkitekt frá Landmótum
hf.: Kynning á skipulagstillögu
Svæðisskipulagsnefndar miðhá-
lendisins og Trausti Valsson, skipu-
lagsfræðingur: Sjónarmið sam-
gangna ferðamennsku og orkunýt-
ingar.
Nýtt mynd-
band um Jafn-
réttisráð
JAFNRÉTTISRÁÐ hefur gefið út
myndband um Jafnréttisráð 20 ára.
Myndband er framleiðandi en gerð
þess var studd af aðilum í atvinnu-
lífinu. I myndinyi er staða kvenna
og karla árið 1996 skoðuð með hlið-
sjón af þeim árangri sem náðst
hefur í baráttunni fyrir jöfnum rétt-
indum kynjanna.
í fréttatilkynningu frá Myndbæ
segir: „Jafnréttisráð er ráðgefandi
aðili fyrir atvinnulífið og stjórnvöld.
í myndinni er einkum horft til þess
hvaða áhrif ráðið og jafnréttislögin
hafa haft úti á vinnumarkaðinum.
Þannig mun myndin gefa glögga
mynd af stöðu atvinnulífsins í dag.
Á þessum 20 árum hefur talsverð
breyting orðið á viðhorfum stjórn-
enda í atvinnulífinu og atvinnurek-
enda til jafnréttis karla og kvenna.
Nægir þar að nefna fjölgun kvenna
í ábyrgðarstöðum og yfirlýstar jafn-
réttisáætlanir stofnana, fyrirtækja
og bæjarfélaga. Slíkar áætlanir
hefðu nánast verið óhugsandi fyrir
2 áratugum.
Markvert tímabil í sögu jafnrétt-
is kynjanna er að baki. Því er tíma-
bært að staldra við og segja frá
þeim góða árangri sem náðst hef-
ur. Á þessum tímamótum gefst
tækifæri á að kynna þá framtíðar-
sýn sem Jafnréttisráð hefur, fyrir
hönd karla og kvenna í landinu.“
Nýjung hjá
Germaníu
ÞÝSK-ÍSLENSKA menningarfélag-
ið Germaníu hyggst, auk hefðbund-
inna þýskunámskeiða, bjóða upp á
nýtt þýskunámskeið sem hefst í febr-
úar nk. og stendur yfir í um það bil
tíu vikur. Um er að ræða undirbún-
ingsnámskeið fyrir hið viðurkennda
þýskupróf „Zertifikat Deutsch als
Fremdsprache“.
Prófað er í fimm færnisþáttum:
Munnlegri færn, lesskilningi, rit-
færni, hlustunarskilningi og mál-
fræði og orðaforða.
„Þátttakendur námskeiðsins fá
góða þjálfun í talmáli, rituðu máli
og málfræði. Til þess að æfa nem-
endur í því að skilja þýskt talmál
verður notast við myndbönd. Prófað
verður í maí. Þeir sem ná prófinu
fá sérstakt prófskírteini sem þeir
geta lagt inn hjá vinnuveitendum
og skólum. Námskeiðið hentar þeim
sem hafa allgóðan grunn í þýsku
(til dæmis tvö til þijú ár í framhalds-
skóla).
Kennari á námskeiðinu verður
Rebekka Magnúsdóttir-Olbrich, MA
í þýskum fræðum frá háskólanum í
Munchen.“
Námskeið í
áfalla- og stór-
slysasálfræði
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveggja daga nám-
skeiði í áfalla- og stórslysasálfræði
(sálræn skyndihjálp) 23. og 30. jan-
úar nk. Kennt verður frá kl. 19-22
báða dagana. Námskeiðið er ætlað
fyrir alla þá sem áhuga hafa á
áfalla- og stórslysasálfræði og eru
eldri en 15 ára. Væntanlegir þátt-
takendur þurfa ekki að hafa neina
fræðilega þekkingu né reynslu á
þessu sviði. Námskeiðshaldari verð-
ur Lárus H. Blöndal sálfræðingur.
Námskeiðið verður haldið í Fáka-
feni 11, 2. hæð.
Námskeiðið inniheldur almenna
kynningu í áfalla- og stórslysasál-
fræði þar sem megininntakið eru
þau áhrif og afleiðingar sem váleg-
ir atburðir geta haft á fólk og hvern-
ig hægt sé að draga úr mannlegum
þjáningum í kjölfar þeirra eða í
tengslum við þau.
Önnur námskeið hjá Reykjavík-
urdeild RKÍ á næstunni eru þessi:
Námskeið í almennri skyndihjálp
hefst fimmtudaginn 23. janúar kl.
19. Kennt verður til kl. 23 og einn-
ig verður kennt 27. og 28. janúar.
Námskeiðið verður haldið í Ármúla
34. Helgarnámskeið verður dagana
25. og 26. janúar. Bæði ofangreind
námskeið verða 16 kennslustundir.
Hjúkrunarráð
við Sjúkrahús
Reykjavíkur
UNDIRBÚNINGUR að stofnun
hjúkrunarráðs við Sjúkrahús
Reykjavíkur hefur staðið yfir und-
anfarin ár. Vinnuhópur sem unnið
hefur að undirbúningi boðar til
stofnfundar og mun hann verða
haldinn miðvikudaginn 22. janúar
kl. 14.30-16 í borðsal Sjúkrahúss
Reykjavíkur í Fossvogi.
„Meginhlutverk ráðsins er þrí-
þætt; að efla hjúkrun á stofnun-
inni, faglega og stjómunarlega, að
vera vettvangur fyrir alhliða um-
ræðu í hjúkrun og að vera ráðgef-
andi aðili innan stofnunar og utan.
í ráðinu munu eiga sæti allir
hjúkrunarfræðingar innan SHR
sem verið hafa lengur í starfí en
eitt ár. Stjóm er skipuð fulltrúum
frá öllum sviðum spítalans, svo og
formanni, varaformanni og ritara.
Á vegum ráðsins munu verða starf-
andi fjórar nefndir, þar af tvær sem
hingað til hafa verið á vegum hjúkr-
unarstjórnar. Með stofnun hjúkrun-
arráðs er stigið skref í átt að dreifi-
stýringu, en slíkt er eitt af stjórnun-
arlegum markmiðum stofnunarinn-
ar,“ segir í fréttatilkynningu.
FRÉTTIR
reldralaus börn, Upphæö 5.5 miljón, Stuðnitigsaðiiar:
Morgnnblaðið/Þorkell
Afhenti gám með tækjum
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra afhenti sl. laugardag
Jouri A. Rechetov sendiherra
Rússa gám fullan af tækjum til
nota á barnaheimili í Friazno í
Moskvu. Á þessu barnaheimili
dvelja mörg fjölfötluð börn.
Tækjagjöfin er samnorrænt
hjálparverkefni sem Lionsmenn
á íslandi hafa skipulagt. Heildar-
Ferðastyrkir til
fræðimanna
ÍSLANDSDEILD Letterstedtska
sjóðsins mun veita ferðastyrki á
árinu 1997 til íslenskra vísinda- og
fræðimanna sem ferðast vilja til
Norðurlanda á árinu í rannsóknar-
skyni.
„Ekki er um eiginlega náms-
styrki að ræða heldur koma þeir
kostnaður er 5 miUjónir króna.
Þar af leggja íslenskir Lions-
menn fram eina milljón og ís-
lenska ríkið lagði fram 500 þús-
und krónur. Afhendingin var í
tengslum við Norrænt þing Li-
onsmanna sem stóð yfir í Reykja-
vik í síðustu viku. Mótið sóttu 300
Lionsmenn, þar af um 200 er-
lendir.
einir til greina sem lokið hafa námi
er hyggja á frekari rannsóknir eða
þekkingarleit á starfssviði sínu svo
sem við rannsóknir á vísinda- eða
fræðistofnunum eða með þátttöku
í fundum eða ráðstefnum.
Umsóknir með greinagóðum
upplýsingum um tilgang ferðar skal
senda til ritara íslandsdeildar Lett-
erstedtska sjóðsins, Þórs Magnús-
sonar þjóðminjavarðar, Þjóðminja-
safni íslands, segir í fréttatilkynn-
ingu frá sjóðnum.
Biblíulestrum
dreift í 9000
eintökum
HIÐ íslenska Biblíufélag sendi nú
um áramótin enn frá sér ritið Biblíu-
lestrar sem er áætlun um daglegan
Biblíulestur árið 1997. Að þessu
sinni er ritið gefíð út í tveimur gerð-
um, annars vegar hefðbundinni
handhægri útgáfu í fremur litlu broti
og hins vegar í stærra broti með
læsilegra letri fyrir sjóndapra.
Ritinu er dreift endurgjaldslaust
til allra sem þess óska og er hægt
að snúa sér til afgreiðslu Hins ís-
lenska Biblíufélags í Guðbrands-
stofu, Hallgrímskirkju, með óskir
þar um.
Ástandinu
í Suður-Kóreu
mótmælt
FORMENN ASÍ og BSRB hafa sent
utanríkisráðherra bréf þar sem mót-
mælt er því ástandi sem nú ríkir í
Suður-Kóreu. Jafnframt hefur stjóm
BSRB sent frá sér eftirfarandi álykt-
un:
„Stjóm BSRB fordæmir harðlega
framkomu stjómvalda í Suður-
Kóreu við verkalýðshreyfinguna þar
og hvetur ríkisstjórn íslands til að
mótmæla breytingum á vinnulög-
gjöfinni í Suður-Kóreu sem gera
rétt launafólks og samtaka þeirra
að engu. Breytingamar em brot á
mannréttindum og á mörgum
gmndvallarsamþykktum Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar sem ís-
lendingar em aðilar að.“
Verslun hættir
EBAS gjafavörur á Laugavegi 103
hættir rekstri frá og með 1. febrúar
og er rýmingarsala hafin.
Ur dagbók lögreglunnar
í DAGBÓK helgarinnar em 350
tilvik færð til bókar. Tilkynningar
vegna hávaða og ónæðis innan
dyra vom 16 talsins, afskipti voru
höfð af 29 manns vegna ölvunar-
háttsemi á almannafæri. Skráð
eru 6 slys og óhöpp, 4 líkamsmeið-
ingar, 20 eignarspjöll, 12 innbrot
og 9 þjófnaðir.
Tuttugu og þrír voru kærðir
fyrir of hraðan akstur og 9 af
þeim sem stöðvaðir voru í akstri
eru gmnaðir um ölvunarakstur.
Tilkynnt var um 29 umferðar-
óhöpp til lögreglu.
Með sundskýlu og legókubba
Á föstudagsmorgun var til-
kynnt um innbrot við Hverafold,
við Gullengi og við Laugaveg. Úr
bifreiðunum var m.a. stolið geisla-
spilumm, útvarpi, íþróttatösku,
snyrtidóti og skólatösku. Spennt-
ur var upp gluggi húss við Loga-
fold og þaðan stolið myndbands-
tæki og hljómflutningstækjum.
Talsverðu magni af tóbaki og
skiptimynt var stolið í innbroti í
söluturn á Eiðistorgi.
Á laugardag var tilkynnt um
innbrot í bifreið við Hraunbæ. Á
sunnudag var tilkynnt um innbrot
í fyrirtæki við Stórhöfða og úr
henni stolið geislaspilara. Þá var
farið inn í fyrirtæki við Vagnhöfða
og þaðan stolið skiptimynt.
Á föstudag var maður staðinn
að hnupli úr verslunum við
Laugaveg. Hafði honum t.d. tek-
ist að ná sér í sundskýlu, leg-
okubba og tóm myndbandshulst-
ur áður en hann var gómaður.
Hlutunum var skilað til hinna
ýmsu verslana og maðurinn færð-
ur á lögreglustöð. Skömmu síðar
var kona handtekin á heimili sínu
í Kópavogi eftir að hún hafði stol-
ið síma úr verslun við Grensás-
veg.
Um miðjan dag á föstudag
varð drengur á reiðhjóli fyrir bif-
Eignar-
spjöll og
innbrot
reið á Nesvegi. Hann var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild.
Þá datt stúlka og fór úr hnjálið
er hún var á jazzballettæfingu.
Henni var komið í liðinn aftur
og síðan flutt á slysadeild með
sjúkrabifreið.
Símadóni kærður
Aðfaranótt laugardags kom til
slagsmála á veitingastað við Vita-
stíg. Flytja þurfti einn aðila á
slysadeild. Stúlka var flutt á
slysadeild eftir að hafa rekið sig
á inni á veitingastað við Tryggva-
götu. Maður hljóp utan í bifreið
í Bankastræti og meiddist minni-
háttar á höfði. Hann var fluttur
á slysadeild og síðan vistaður í
fangageymslunum.
Fjarlægja þurfti tvo pilta eftir
ólæti í strætisvagni á Suðurlands-
braut.
Á laugardag slasaðist drengur
á skíðabretti í Bláfjöllum er hann
fór þar fram af stökkpalli og ætl-
aði síðan í hring. Hann hlaut
áverka á rófubein, bak og háls
og var því fluttur á slysadeild með
sjúkrabifreið. Bifreið valt heilan
hring og hafnaði á akstursstef-
numerki eftir árekstur tveggja
bifreiða við gatnamót Réttarholts-
vegar og Sogavegar á laugardag.
Meiðsli urðu ekki á fólki, en bif-
reiðirnar voru óökufærar á eftir.
Á laugardagskvöld kærði ung
kona símaónæði manns, sem hafði
verið með ítrekaða dónatilburði
við hana. Auðveldara en áður er
að eiga við og fylgja eftir slikum
málum því orðið er algengt að
fólk hafí símnúmerabirti tengdan
símtækjum sínum.
Drengur var fluttur á slysadeild
með skurð á hálsi eftir að hafa
fallið á Skautasvellinu. Um nótt-
ina voru tveir piltar handteknir í
Grafarvogi eftir að þeir höfðu
farið fyrir hópi pilta um svæðið
og brotið m.a. rúður í grunnskóla
og leikskóla. Þeir voru vistaðir að
Stuðlum.
Talinn vera með skammbyssu
Fjórum drengjum var ekið heim
til sín í Vesturbænum eftir að
þeir höfðu reynt að vinna
skemmdir á leiktækjum á leikvelli
við Tómasarhaga. Tilkynnt var
um mann með skammbyssu innan
klæða á veitingastað við Vestur-
götu. Við nánari athugun reyndist
vera um leikfangabyssu að ræða.
Maðurinn var færður á lögreglu-
stöð, en að viðtali loknu var hann
fijáls ferða sinna.
Maður var sleginn með glasi á
eyra á veitingahúsi við Austur-
stræti. Hann var fluttur á slysa-
deild. Árásaraðilinn var farinn af
vettvangi, en vitað var hver hann
er.
Til slagsmála kom á milli nokk-
urra manna við Háholt í Mos-
fellsbæ. Aðilar voru róaðir niður
og síðan fluttir heim til sín. Eng-
ar skrámur hlutust af.
Tilkynnt var um reykjarlykt frá
húsi við Skólavörðustíg er líða tók
á nóttina. Þar mun maður hafa
ætlað að elda sér næturmat, en
sofnað út frá hlóðunum. Ekkert
tjón hlaust af.
Lögreglumenn þurftu að hafa
afskipti af nokkrum unglingum,
sem gerðu sér það að leik að klifra
utan á fjölbýlishúsi við Háaleitis-
braut. Er lögreglumennirnir ætl-
uðu að hafa tal af unglingunum
veittust tveir þeirra að þeim. Þeir
voru færðir á lögreglustöð.