Morgunblaðið - 21.01.1997, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 21.01.1997, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Ljóska BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylgavík • Simi 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Aðsókn að leikrit- inu Stone Free Athugasemd vegna greinar frá Þjóðleikhúsinu Frá Leikfélagi íslands: HINN 16. janúar birtist í Morgun- blaðinu grein sem Guðrún Bach- mann, leikhúsritari Þjóðleikhússins, ritar vegna aðsóknar að leikritinu Stone Free sem Leikfélag íslands setur upp í samstarfi við Leikfélag Reykjavíkur. Þar bendir Guðrún á þá staðreynd að frá opnun Þjóðleikhússins 1950 hafi „a.m.k. 10 sýningar" náð sam- bærilegum fjölda sýninga og áhorf- enda og Stone Free. Það er rétt, einn- ig hefur Leikfélag Reykjavíkur sett upp fjölda leiksýninga sem hlotið hafa aðsókn tugþúsunda íslendinga. Guðrún nefnir réttilega að Fiðlar- inn á þakinu (árið 1969) í Þjóðleikhús- inu hafi hlotið aðsókn 53 þúsund ís- lendinga en einnig má geta þess að uppsetningu LR á Fló á skinni (árið 1972) sáu um 59 þúsund manns. Leikfélag íslands vill leiðrétta þá rangfærslu Guðrúnar að aðstandend- ur leikhússins telji að Stone Free hafi slegið aðsóknarmet allra tima hér á landi. Slíkt er fjarstæða. Að- standendur Leikfélags íslands hafa aldrei nokkum tímann látið sér detta í hug, sagt, né gefið í skyn að svo sé. Þetta á Guðrún Bachmann að vita mætavel, enda hafa aðstandendur Leikfélags íslands verið í stöðugu og góðu sambandi við hana frá stofnun félagsins. Því er óljóst hvað henni gengur til. Hins vegar hefur komið fram að frá frumsýningu Stone Free hefur verið uppselt á hverja sýningu verks- ins og fjölda aukasýninga verið bætt við. En þar sem Leikfélag íslands er sjálfstæður atvinnuleikhópur hafði félagið ekki burði til að gera samning nema til sex mánaða við starfsfólk sitt vegna sýninga á Stone Free. Af þessum sökum þarf nú að ljúka sýn- ingum fyrir fullu húsi, ómögulegt er að bæta við fleiri aukasýningum og listamenn halda nú til annarra starfa. Þegar þessar línur eru ritaðar eru þijár sýningar eftir á Stone Free sem alíar eru uppseldar og biðlistar eftir miðum á þær. í auglýsingum Stone Free hefur verið bent á þá staðreynd að sýning- in sé sú vinsælasta hér á landi árið 1996. Þeirri staðreynd fær ekkert breytt, ekki einu sinni einlægur vilji leikhúsritara íjóðleikhússins. Að- sóknarmet allra tíma hérlendis stend- ur hins vegar enn óhaggað hjá Fló á skinni og líklegt er að svo verði enn um sinn. Af hálfu Leikfélags íslands stóð ekki til að fara í meting við Þjóðleik- húsið um aðsóknartölur, enda fínnst okkur slíkt óviðeigandi. En eftir að Þjóðleikhúsið sendi frá sér grein með röngum fullyrðingum þótti okkur rétt að láta það sanna koma fram. íslendingar hafa alltaf verið mikil leikhúsþjóð. Sjaldan eða aldrei hefur framboðið verið meira. Gróskumikið starf stóru leikhúsanna er aðdáunar- vert og reglulega bætast nýjir fijálsir atvinnuleikhópar við þá flóru sem fyrir er. Það hlýtur að vera fagnaðar- efni að aðsókn að leikhúsi á íslandi virðist aukast með hveiju árinu enda þótt tölumar rokki frá einu húsi til annars milli ára. Vonandi heldur að- sókn að íslensku leikhúsi áfram að aukast um ókomin ár og hver veit nema einhvem tímann takist að ná áhorfendafjölda að einni leiksýningu yfir 60 þúsund á íslandi. Þá væri ástæða fyrir leikhúsfólk allt að gleðj- ast, hvort svo sem sú sýning verði á fjölum Þjóðleikhússins, hjá Leikfélagi Reykjavíkur eða einhveijum hinna svokölluðu fijálsu atvinnuleikhúsa. Fyrir hönd Leikfélags íslands og Stone Free, BREKI KARLSSON, KARLPÉTURJÓNSSON, MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON. Tóbakshatur og fordómar Frá Eddu Júlíusdóttur: NÚ ÞEGAR nýtt ár hefur gengið í garð, ágerast aðgerðir og mótmæla- áróður gagnvart þeim, sem reykja. Þetta vex og vex með hveijum degi sem líður - ég er ekkert að veija gerðir okkar reykingamanna, en mér finnst hart að okkur vegið, við erum eins og svörtu bömin hennar Evu og - minnir á ofsóknir nasista gagnvart gyðingum. I Morgunblaðinu þriðju- daginn 7. jan. las ég grein eftir lækni og formann tóbaksvamanefndar, mjög harða og fordómafulla grein í okkar garð þar sem hann og fjöl- skylda hans á ferð um bæinn gátu ekki notið sín fyrir þessu fólki sem alls staðar spúði eitri sínu yfir hann og hans fjölskyldu. Auðvitað eigum við reykingafólk að taka tillit til þeirra sem ekki reykja, en taka þeir tillit til okkar? Ég vil minnast á grein í þessu sama blaði, um forseta Tékklands, Vaclav Havel, sem er nýbúinn að gifta sig og ákvað um leið að hætta að reykja og bragða áfengi. Forsetinn sagðist ætla að fara sér hægt í tóbaks- bindindum, sér hefði ætíð mislíkað öfgar reyklausra, sérstaklega þessara hugsjónamanna með fanatíska augnaráðið, því fyrir þá er barátta gegn reykingum í sjálfu sér sama fíkniefnið og sígarettan er reykinga- mönnum. Eg ætla ekki að slást í þennan hóp, sagði Havel. Ég er alveg sammála honum og verstir em þeir sem hafa reykt áður og eru hættir. Víst er þetta erfitt mál, bæði fyrir þá sem reykja og hina sem reykja ekki. Ég veit að ég verð gagnrýnd fyrir að detta í hug að voga mér að skrifa þessa grein, en mér er alveg sama - ég þoli ekki þessa fordóma og nornaveiðar - nú er mál að linni. EDDA JÚLÍUSDÓTTIR, Furugrund 38, Akranesi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.