Morgunblaðið - 21.01.1997, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓ í BORGIMNi
Amaldur Indriðason/Sæbjöm Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Kvennaklúbburínn ir A-Vi
Þrjár góðar gamanleikkonur, Hawn,
Midler og Keaton, fara á kostum sem
konur sem hefna sín á fyrrum eigin-
mönnum sínum. Léttmeti.
Lausnargjaldið -kir-k
Gibson leikur auðkýfing sem lendir í
því að syni hans er rænt. Snýr dæm-
inu við og leggur lausnarféð til höfuðs
skálkunum. Gibsonmynd í góðum gír.
Blossi k'/i
Steven Seagal minnir á feitan jóla-
svein í sínum austurlensku litklæðum
og gerist ósennilegri hasarmyndahetja
með hverju árinu.
HríngjarínníNotreDame kkk
Vönduð, falleg flölskyldumynd byggð
á hinni sígildu sögu um tiivistarkreppu
kroppinbaksins í Frúarkirkju. Litlaus
tónlist, snjöll íslensk talsetning.
SAMBÍÓIN
ÁLFABAKKA
Ógleymanlegt kVi
Leikstjórinn John Dahl og Linda Fior-
intino gera jafn lélega sakamálamynd
og síðasta, The Last Seduction, var
góð.
Lausnargjaldið kkk
(sjá Bíóborgina)
Jack k k'h
Mistæk, sérstæð mynd um grunn-
skólanema sem eldist á fjórföldum
hraða veldur aðdáendum Coppola von-
brigðum en Robin Williams vinnur vel
úr erfiðu hlutverki.
Djöflaeyjan kkk'h
Friðrik Þór, Einar Kárason, óaðfinnan-
legur leikhópur og leiktjaldasmiður og
reyndar allir sem tengjast Djöflaeyj-
unni leggjast á eitt að gera hana að
einni bestu mynd ársins. Endursköpun
braggalífsins er í senn fyndið, sorglegt
og dramatískt.
Saga af morðingja k k
James Woods er eina ástæðan til að
sjá þessa tilfinningasnauðu smámynd
um fangelsisvist og aftöku eins ill-
ræmdasta íjöidamorðingja í sögu
Bandaríkjanna.
Gullgrafararnir k'h
Meinleysis stúlkumynd sem minnir á
Stikilsberja Finn og Tom Sawyer en
kemst ekki með tærnar sem þeir félag-
ar höfðu hælana.
Gulleyja Prúðuleikaranna k
Fislétt, fjölskylduvæn útgáfa af ævin-
týrinu góða með tónlist, teiknifígúrum
og leikurum í bland.
HÁSKÓLABÍÓ
Leyndarmál og lygar ★ ★ ★ ★
Meistaraverk frá Mike Leigh um
mannleg samskipti, gleði og sorgir og
undarlegar uppákomur í lífí bresks
almúgafólks.
Pörupiltar k k
Fjórir vinir verða fyrir hroðalegri lífs-
reynslu í æsku. Myndin stekkur áfram
um nokkur ár, tími hefndarinnar renn-
ur upp og nær sér ekki aftur á strik.
Brimbrot kkkVi
Besta mynd Lars Von Triers fjallar
um nútíma píslarvott í afskekktu og
þröngsýnu samfélagi. Myndin er á sinn
hátt kraftaverk þar sem stórkostlegur
leikur Emely Watson ber langhæst.
Hamsun k kk
Vel leikin og skrifuð mynd um efri
ár norska skáldjöfursins Knud Hams-
un, einkum sorgleg afskipti hans af
Nasistum. Ein margra mynda uppá
síðkastið sem líður fyrir óhóflega
lengd.
Drekahjarta k k
Góðar brellur í lítt spennandi ævintýri
duga ekki til að bjarga handriti sem
rekur á reiðanum.
Gosi k k
Ævintýrið nær ekki flugi en er prýði-
leg skemmtun yngri bíógestum sem
njóta best ísl. talsetningarinnar.
KRINGLUBÍÓ
íhefndarhug kkVi
Alec Baldwin fer vel með hlutverk
fyrrum byttu og lagavarðar sem
dregst á ný inní vafasöm viðskipti við
bófa og löggur. Ýmislegt vel gert en
fléttumar og persónumar of margar.
Lausnargjaldið (Sjá Bíóborgin)
Moll Flanders k k
Rómantískt 18. aldar drama byggt á
hinni vinsælu skáldsögu Daniels
DeFoe. Kvikmyndagerðin er líkust því
er maður flettir fallegri myndabók,
allt afar átakalítið, slétt og fellt.
LAUGARÁSBÍÓ
Eldfim ást k k
Hijúf og hrá, svört kómedía fyrir þá
sem vilja kynnast öðruvísi, bándarísk-
um kvikmyndum.
Flótti k k
Aldrei beint leiðinleg hringavitleysa
þar sem leikstjórinn, Kevin Hooks
nýtir sér flestar klisjur „félagamynd-
anna“ án þess að bæta miklu við teg-
undina.
Jólahasar (Sjá Regnboginn)
Svanaprinsessan k k
Enginn Disney-teiknimyndaljómi en
brúkleg yngstu börnunum og talsetn-
ingin hefur tekist prýðilega.
REGNBOGINN
Banvæn bráðavakt k k'h
Haganlega samansett, lítil spennu-
mynd sem skilur fátt eftir en er
góð og fagmannleg.
Slá ígegn kkkVi
Tom Hanks slær í gegn sem handrits-
höfundur, leikari og er litlu síðri í sínu
fyrsta leikstjórnarverkefni sem er
söguskoðun á hinum poppaða, sjöunda
áratug, á meðan sakleysið réð ríkjum
og tekst að segja það sem hann ætlar
sér áreynslulaust.
Jólahasar k k
Amold misráðinn í enn einu gaman-
hlutverki sem hann ræður ekki við sem
skyldi, á að leika með vöðvunum.
Heldur ómerkileg, en á sína spretti.
Reykur k kk'h
Einfaldleiki og góð sögumennska ein-
kenna eina bestu mynd síðari ára og
gera hana að listaverki þar sem Harv-
ey Keitel hefur aldrei verið betri en
tóbakssölumaður „á horninu" í New
York.
Einstirni kkkVi
Einn snjallasti sögumaður samtímans,
John Sayles, fléttar af snilld nútíð og
þátíð í sofandalegum landamærabæ
þar sem ýmislegt kraumar undir niðri.
Mynd sem kvikmyndaunnendur mega
ekki missa af.
Svanaprinsessan kk
(sjá Laugarásbíó)
STJÖRNUBÍÓ
RuglukoIIar k k
Skólamyndir teknar á beinið af öðrum
Zuckerbræðra, útkoman mjög léttvæg
fundin.
Matthildurk k k
Frábær kvikmyndagerð um hina und-
ursamlegu Matthildi, ógeðslega lélega
foreldra hennar og skólastjórann
Frenju - sem hatar böm sérstaklega.
Djöflaeyjan kkkVi
(Sjá Sambíóin, Álfabakka).
MORGVN
BLAÐSINS
Fjármál pldtyldonnar
Sunnudaginn 2. febrúar nk. gefur Morgunblaðið út hinn árlega blaðauka,
Fjármál fjölskyldunnar. Blaðaukinn mun væntanlega nýtast lesendum vel við gerð
skattframtalsins, en frestur til að skila framtalinu rennur út mánudaginn 10. febrúar nk.
Blaðaukinn fjallar um flest það sem viðkemur sköttum og fjármálum heimilanna.
Meðal efnis:
■ Breytingar á skattareglum.
Hvaða áhrif hafa þær?
■ Skattaafsláttur
■ Endurgreiðsla skatta
■ Leiðbeiningar varðandi
skattframtalsgerð
■ Breytingar á
iífeyrissjóðakerfinu
■ Greiðsluþjónusta bankanna
■ Fjárfestingaleiðir
almennings
■ Viðtöl o.fl.
Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn auglýsingadeildar
í síma 569-1171 eða með simbréfi 569-1110.
stur auglýsingapantana
1. 12.00 mánudaginn 27. janúar.
- kjarni málsins!
Þemavika
um ofbeldi
ÞEMAVIKA Sjónvarpsins, Ríkisút-
varpsins og Rásar 2 um ofbeldi
hefst í dag. Að sögn Áslaugar Dóru
Eyjólfsdóttur, kynningarstjóra
Sjónvarpsins, verður fjallað.um of-
beldi á Islandi í ýmsum myndum,
orsakir og afleiðingar og annað sem
tengist ofbeldi.
Gaui litli mun fjalla um einelti í
skólum í Dagsljósi í kvöld. Þá verð-
ur fjallað um kynferðislegt ofbeldi
sem beinist gegn börnum og ungl-
ingum í Kastljósi. Kolfinna Bald-
vinsdóttir mun fj'alla um meðferð
réttarkerfisins á ofbeldismálum í
Dagsljósi á fimmtudag.
I Stundinni okkar verður fjallað
um hrekkjusvín og að síðustu verða
áhrif og afleiðingar ofbeldis í sjón-
varpi og kvikmyndum tekin fyrir í
Dagsljósi á mánudag. „Einnig verð-
ur fjallað um ofbeldi í máli og mynd-
um bæði í fréttum og á milli dag-
skrárliða," segir Áslaug Dóra.
Áhrifarík viðtöl um
ofbeldi unglinga í Ó-inu
Fjallað verður um ofbeldi ungl-
inga í O-inu í kvöld. „Þar munum
við skoða það ofbeldi sem á sér
stað í miðbænum um helgar og á
stöðum þar sem krakkar safnast
saman," segir Kristín Björg Þor-
steinsdóttir, upptökustjóri.
„Það eru mjög áhrifarík viðtöl í
þættinum. Annars vegar við Guggu
sem er hreyfihömluð eftir líkams-
árás í miðbænum fyrir þremur árum
og hins vegar við stúlkuna sem var
dæmd fyrir líkamsárásina. Eins
tölum við við strák sem varð fyrir
hnífsstungu í brjóstið fyrir rúmu
ári.“
Ný myndbönd
20.jan White Man. 22.jan. Truth About Cats
21.jan. Fargo. and Dogs.
21.jan. Fresh. 22.jan. Babysitters Club.
21.jan. Natural Enemy. 22.jan. Murderous Intent.
21.jan. Hollow Reed. 21.jan. Chasingthe Dragon. 23.jan. Spy Hard.
FJALLAÐ verður um ofbeldi
í miðbænum.
Kristín Björg segir að fylgst verði
með starfi á slysadeild eina nótt.
Þá sé talað við Jón Baldursson,
yfirlækni á slysadeild, Omar Smára
Ármannsson, lögreglumann, og
Rúdolf Adolfsson, sem er geðhjúkr-
unarfræðingur og annast áfalla-
hjálp eftir líkamsárásir. Einnig
komi skilaboð frá hópi sem heiti
„Ungt fólk gegn ofbeldi".
„Oft er þetta ofbeldi til komið
vegna þess að venjulegir krakkar
tryllast við notkun áfengis og vímu-
efna,“ segir Kristín Björg. Fleira
fæst hún ekki til að gefa upp og
verða þeir sem eru forvitnir að fylgj-
ast með þættinum í kvöld til að
komast að því hvaða tökum ofbeldi
unglinga verður tekið.