Morgunblaðið - 26.01.1997, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
MEÐ HELSTU popp-
sveitum síðustu ára aust-
ur á Bretlandseyjum er
Simply Red-flokkurinn,
sem hefur reyndar
lengstaf verið eins manns
verk, söngvarans knáa
Micks Hucknalls. Félagar
hans hafa sumir sakað
hann um ólýðræðisleg
vinnubrögð, en Hucknall
veit hvað hann vill eins
og sannast á safnplötu
helstu laga sveitarinnar
og kom út seint á liðnu
ári.
Simply Red fagnaði tíu
ára afmæli með
breiðskífunni Greatest
Hits sem á eru fimmtán
lög, allt frá fyrsta lagi
Hucknalls
sem náði
vinsæld-
um í lagið
Angel
sem naut
hylli fyrir
fáum vik-
um. I
gegnum
tíðina hef-
ur
Hucknall
stýrt
sveitinni styrkri hendi og
náð að fella lög sín að
þeim straumum sem hæst
hafa borið; þó ekki hafí
hann verið í hópi braut-
ryðjenda hefur hann náð
að halda tónlistinni
ferskri, í það minnsta
fram undir það síðasta,
en síðasta breiðskífa
sveitarinnar seldist ekki
eins vel og vænst var.
Kannski hefur hann kom-
ist á sporið aftur með
Angel, en þar leggja hon-
um lið Fugees-liðsmenn
Lauryn Hill, Wyclef og
Praz.
Sagt hefur verið að
ferill Micks Hucknalls sé
líkt og liðinn áratugur;
áratugur uppamennsku,
íburðar og lífsnautna, en
Hucknall eigi erfiða daga
framundan því nú stefni
í meinlætalíf og nægju-
semi sem eigi ekki vel við
kvennamann og spjátr-
ung með rúbínstein í ann-
arri framtönninni. Hvað
sem því líður hlýtur safn
helstu laga Simply Red
að teljast gott, ekki síst
þegar þeim sem kaupa
gefst kostur á að kaupa
sér sérstakt Simply Red
úr eins og boðið er á
umslagi.
Léttlyndi Stilluppsteypumenn.
Morgunblaðið/Þorkell
Nafnspjald
Stillupsteypu
STILLUPPSTEYPA hefur
verið iðin við útgáfu á liðnum
árum, en þá yfirleitt í sam-
floti við aðra; það var ekki
fyrr en fyrir skemmstu að
fyrsta eiginlega útgáfan með
tónlist Stilluppsteypu leit
dagsins ljós. Sú kallast ein-
faldlega Stillupsteypa og á
henni eru fjögur lög, eins-
konar stuttskífa þó rúm-
ar tuttugu mínútur af
tónlist sé þar að fínna .
Stilluppsteypumenn
segjast hafa segj-
ast hafa ákveðið að
setja saman hálfan
disk af endurhljóð-
blönduðum lögum, og
hinn helminginn með nýju
efni, meðal annars til að
kynna hljómsveitina. „Þetta
er fyrsta alvöru útgáfan,
fyrsti diskurinn sem við fáum
fyrirtæki til að dreifa fyrir
okkur, og hugsaður sem nafn-
spjald hljómsveitarinnar, en
til þess að menn úti leggi
frekar við hlustirnar fengum
við Hafler Trio og Matt Wand
tij að endurhljóðblanda lög,
enda eru það þekkt nöfn úti,
þá sérstaklega Matt Wand.“
Þeir félagar segja lögin tvo
sem teljast ný á plötunni tek-
in upp í sumar, en endurunnu
lögin eru eldri, „Andrew Mac-
Kensie, sem skipar Hafler
Trio, endurhljóðblandaði
gamalt lag, en Matt Wand
setti saman nýtt lag úr hlut-
um úr eldri lögum“, segja
þeir og bæta við að standi til
að gera myndband við það.
Tónlist Stilluppsteypu þyk-
ir ekki vel algengileg, en þeir
félagar segja að talsverður
markaður sé fyrir tónlist
sveitarinnar úti. „Hér á landi
er eins og fáir skilji það sem
við erum að gera, en úti er
góður markaður og þannig
erum við alltaf búnir að selja
fyrir kostnaði þegar hver út-
gáfa kemur út. Það hefur
reyndar ekki komið út diskur
sem eingöngu er helgaður
okkur, hitt hefur ýmist verið
í takmörkuðu upplagi, sjö-
tommur eða vínylútgáfa,
þannig að nú er lag að
kynna nafnið almenni-
lega úti og kannski
hér heima líka.“
Stillupsteypu-
mönnum vefst tunga
um tönn þegar þeir
eru beðnir að lýsa
tónlist sinni, svara
því til að það sé verk
annarra að setja merki-
miða á tónlistina. „Við
erum ekki að halda okkur
á neinu sérstöku sviði, við
gerum bara það sem okkur
langar hverju sinni, en það
má þó segja að við erum ekki
að leika pönktónlist, sem fjöl-
margir virðast halda. Annað
sem við höfum rekið okkur á
er að fólk heldur að við séum
afskaplega þunglyndir, en
þvert á móti erum við frekar
léttlyndir og bregðum oft á
leik í tónlistinni og lagaheit-
um, þó það sé kannski kímni
sem aðrir skilja ekki.“
GusGus
perlur
GUS GUS-flokkurinn hefur er kominn á mála hjá
einni virtustu útgáfu Bretlands, 4AD, og hefur feng-
ið frábæra dóma fyrir það sem sveitin hefur sent frá
sér ytra hingað til. Framundan er ferð um heiminn,
útgáfa á fyrstu breiðskífunni ytra og íj'ölmiðlastúss
út í eitt. Fyrsta skrefið í þeim leik verða tónleikar
flokksins í Perlunni næstkomandi föstudag, sem með-
al annars eru haldnir fyrir fríðan hóp blaðamanna,
sjónvarpsmanna, útsendara útgáfu- og dreifingarfyr-
irtækja og þorra starfmanna 4AD, sem steðja hingað
til lands til að sjá á sviði nýjustu sveit fyrirtækisins
og þá sem það gerir sér mestar vonir um.
eftir Áma
Matthíasson
Sigurður Kjartansson,
Magnús Jónsson og
Hafdís Huld, þriðjungur
Gus Gus, segja að tón-
leikarnir séu haldnir á
vegum 4AD, en upphaf-
lega hafi staðið til að
halda fyrstu tónleikana í
Lundúnum. „Við höfum
aftur á móti ekki legið á
þeirri skoðun okkar að
við viljum helst starfa hér
á landi og þá þótti ___
heillaráð að halda
fyrstu tónleikana
hér í stað þess að
setja eitthvað upp
í klúbb í Lundún-
um sem allir hafa
komið hundrað
sinnum í.“ Þau
segja að ekki síst
fyrir þá sök að
tónleikarnir séu á íslandi
hafi grúi ákveðið að koma
til að sjá sveitina á sviði.
Þar á meðal eru menn frá
MTV, en mynda á þijú
lög fyrir Alternative
Nation-þátt MTV, sem
stjórnandi þáttarins,
Toby Amos kemur hingað
af því tilefni, og fleiri
sjónvarpsstöðvum, bresk-
um stórblöðum á við In-
dependent, tímaritum
eins og Face og iD og svo
mætti lengi telja. „Til við-
bótar við þetta gengi
verða síðan frammámenn
og starfsmenn fyrirtækja
sem eiga eftir að dreifa
plötunni okkar í hvetju
landi fyrir sig, menn frá
Þýskalandi, Frakklandi
og Japan og góður hópur
frá Warner í Bandaríkj-
unum, en menn þar á bæ
hafa ákveðið að leggja
vinnu í að
kynna og selja
plötuna okkar
þar í landi,“
segja
þau en einnig verður selt
inn á tónleikana, átta
hundruð miðar alls, og
eingöngu í forsölu.
Þau Sigurður, Hafdís
og Magnús taka undir að
vissulega sé Gus Gus
hópurinn sérkennilega
samsettur, kvikmynda-
gerðarmenn, plötusnúð-
ar, söngvarar og hljóð-
færaleikarar, og að ekki
verði allir á svið-
inu; það sé af-
káralegt að búa
til verkefni bara
til að koma sem
flestum á svið.
„Það eru þó allir
að vinna að tón-
leikunum, það
þarf að stýra ljós-
um og sviðsbún-
aði; það fléttast allt sam-
an.“ Þau segja að einn
til níu verði þó á sviðinu,
breytilegt eftir því sem
fram fer, en alls er flokk-
urinn með ríflega klukku-
stundar dagskrá. Þau
segja að lögin hafi tekið
allmiklum breytingum
frá því sem var á breið-
skífunni sem kom út hér
á landi fyrir hálfu öðru
ári, bæði vegna þess að
mikið hafi gerst í tónlist
sveitarinnar, meðal ann-
ars fyrir tilverknað
endurhljóðblandana, en
einnig sé allt annað að
standa á sviði en dunda
í hljóðveri.
Til upphitunar verður
Vuca, íslenskur tónlistar-
maður sem heitir Arni
Valur upp á íslensku, og
einnig treður Skari skrípó
upp. Húsið verður opn-
að kl. 21.00, en Gus
Gus hefur leik
sinn uppúr kl.
23.00.
Afmælis
safn