Morgunblaðið - 26.01.1997, Síða 17
16 B SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 B 17
ummn&unnmmtm/KtsrA fmll ttcms ».»«
Félagamir þrír í Lands-
björgu, þeir Bjöm Qlafsson
og Hallgrímur Magnússon
í Hjálparsveit skáta í Reylga-
vík og Einar K. Stefánsson
í Hjálparsveit skáta í Kópavogi, sem í vor ætla að freista
þess að klífa hæsta fjall heims, Everest, lýsa í þessari
annarri grein sinni iyrir Morgunblaðið aðdraganda leið-
angursins, leiðarvali og skipulagi fjallgöngunnar, búnaði
sem notaður verður og erfíðleikum sem við er að etja,
auk annars sem viðkemur leiðangrinum.
VIÐ erum stödd í fjalllendi
Tíbets í byijun október
1995. Hæðin er yfir 8000
metrar og hvert skref er
átak sem krefst einbeit-
ingar og viljastyrks. En
hvert þungt skref færir
mann feti nær takmark-
inu. Vinstri fram fyrir
hægri, hægri fram fyrir vinstri, í endalausum
takti: áfram, áfram!!! Áfram dragnast þrír ör-
þreyttir hjálparsveitarmenn norðan af Islandi síð-
ustu metrana á hátind Cho Oyu, sjötta hæsta
fjalls heims. Það er hins vegar erfítt að lýsa til-
fínningunni sem blandaðist við sigurgleðina þeg-
ar markinu var loks náð og næstum öll heims-
byggðin lá fyrir fótum þeim. Ekki voru það von-
brigði, ekki eftirvænting, en augun leituðu áfram
upp. Upp til Everest sem í aðeins um 30 km
flariægð reis tæpum 600 m hærra. Fram tii þessa
hafði draumurinn um Everest aðeins verið bams-
legur draumur sem litlar sem engar líkur voru
á að gæti nokkurn tíma ræst, en sá draumur
hafði nú breyst í raunhæft verkefni. Cho Oyu
leiðangurinn gekk vonum framar og styrkti leið-
angursmenn í þeirri trú að þeir gætu klifíð hæstu
fjöll heimsins. Þrátt fyrir staðfastar yfirlýsingar
um annað við heimkomuna höfðu lítil fræ skotið
rótum í hugskotinu. Þau tóku að vaxa og dafna
er mánuðimir liðu. Hvort sem mönnum líkaði
betur eða verr þá lá í loftinu hvert næsta mark-
mið væri. Everest, hæsta fjall jarðar.
Strax lá ljóst fyrir að vinna við undirbúning
yrði mikil og erfíðir þröskuldar í veginum. Mikið
var því unnið þegar stjóm Landsbjargar ákvað
að styðja við bak leiðangursmanna með því
að aðstoða við markaðsstarf og skipu-
lagningu fjáraflana, samskipti við
tryggingafélög og gerð samn-
inga við styrktaraðila leið-
angursins o.fl. Með því móti
var létt mikilli vinnu af ieið-
angursmönnum sem gátu
þar með einbeitt sér í aukn-
um mæli að æfíngum og
öðrum líkamlegum undirbún-
ingi.
Kostnaðarsamur
leiðangur
Allir
þeir sem
hyggjast
klífa Everest
frá Nepal eins og raunin
er í þessum leiðangri verða
að greiða leyfisgjöld tii
nepalskra stjórnvalda.
Hver leiðangursmað-
ur þarf að greiða á
aðra milljón króna til
þess eins að fá leyfí
til að klífa fjallið.
Engar tryggingar,
þjónusta eða annað slíkt
er innifaiið, hvað þá heldur að boðið sé upp á
endurgreiðslu ef toppnum er ekki náð. Til að
tryggja að leiðangurinn fari aðeins á þau fjöll
sem leyfi hefur fengist fyrir er fuiltrúi stjórn-
valda ávallt með í för. Hann sér einnig um að
útvega þá þjónustu sem leiðangurinn þarf, flutn-
ingabíla, gistingu, jakuxa o.s.fv. í Nepal eru
lögmál markaðarins nokkuð farin að ráða þegar
leiðangrar kaupa sér nauðsynlega þjónustu en
í Tíbet, þar sem Kínveijar undiroka tíbesku þjóð-
ina, rennur aðeins brot af þeim peningum, sem
greiddir eru fyrir þjónustuna, til innfæddra,
bróðurparturinn endar hjá stjómvöldum í Kína.
Eins og áður segir er það margháttuð þjón-
usta sem kaupa þarf af innfæddum en tjöld,
klifurbúnaður, súrefniskútar o.fl. er að mestu
flutt með frá Bretlandi eða að heiman. I heild
er kostnaður við leiðangurinn um 2,7 milljónir
á hvern ieiðangursmann sem stefnir á toppinn.
Skipulag leiðangursins
í leiðangrinum verða alls 7 evrópskir fjalla-
menn auk leiðangursstjórans, Jonathan Tinkers.
Allir hafa áður stundað Ijallamennsku í Hi-
malaya. Tinker á að baki fjölmarga leiðangra
til Himalaya og hefur verið einn atkvæðamesti
breski háíjallaklifrarinn á síðastliðnum árum.
Meðal annars hefur Tinker tekið þátt í fjórum
Everest leiðöngrum, þar af einum að vetrarlagi
og öðrum upp Norðausturhrygginn, sem er ein
erfiðasta leiðin á fjallið. Honum hefur tekist að
ná toppnum í tvígang.
Flogið verður til Katmandu, höfuðborgar
Nepal, en landamæri Nepals og Tíbets liggja
um Everestfjall. Eftir nokkurra daga vinnu við
undirbúning, ráðningu burðarmanna o.fl. verður
haldið til Lukla, sem er lítið þorp sunnán við
Everest. Þaðan er gengið á viku til tíu dögum
upp að Khumbu skriðjöklinum en við jaðar hans
verða aðalbúðirnar settar upp í 5.300 metra
hæð. Búnaður leiðangursins, sem er hvorki
meira né minna en 10 tonn að þyngd, verður
fluttur að stærstu leyti á jakuxum, en búast
má við að milli 170 og 200 dýr þurfi til koma
honum á leiðarenda. Eftir að komið er í aðalbúð-
ir hefst vinna við að koma upp búðum á fjall-
inu, sem verða alls fímm talsins. Þegar talað
er um búðir er ekki um að ræða neinar þjón-
ustumiðstöðvar heldur eru þær eitt til tvö tjöld,
ásamt matarbirgðum, sem eru sett upp með
ákveðnu millibili. Það tekur um 6 vikur að koma
upp öllum búðunum, þeim efstu í 8.000 m hæð.
Leiðin upp fjallið
Leiðin sem farin verður á fjallið er sú sama
og Hillary og Tensing fóru þegar þeir klifu það
fyrstir manna 1953. Þetta er einnig sú leið sem
oftast hefur verið farin í gegnum árin. Fjallið
hefur þó verið klifið frá öllum hliðum, og upp
ótal leiðir. En önnur algengasta leiðin er Tíbet-
megin frá, sú sem
Bretar reyndu sem
oftast við á milli-
stríðsárunum.
Leiðin liggur upp
hinn stórbrotna
Khumbu skriðjökul
YRSTI
En reynslunnar sem þarf til er ekki hægt að
afla sér nema á mun lengri tíma. Einnig er þörf
á því að kynna sér sérstaklega þær hættur sem
að geta steðjað í mikilli hæð.
Með reynsluna að vopni
Háfjallamennska gerir miklar kröfur til
manna, jafnt líkamlegar sem andlegar og oft
hefur sannast að reynslan er besta vegarnestið.
Leiðangursmenn eru allir starfandi félagar í
björgunarsveitum Landsbjargar, sem er lands-
samband allra Hjálparsveita skáta og Flugbjörg-
unarsveita í landinu. í starfí með sveitunum,
bæði í útköllum og æfingum hefur gegnum árin
safnast upp mikil reynsla af baráttu við óblíð
náttúruöfl sem birtast okkur í sinni hörðustu
mynd einmitt hér heima á íslandi. Má með
nokkrum sanni segja að þar hafí íslenskir fjalla-
menn nokkuð fram yfir félaga sína erlendis, þar
sem veður eru oft mun mildari. Til viðbótar
ótölulegum fjölda fjalla og tinda á íslandi hafa
leiðangursmenn klifíð fjölda fjalla erlendis á síð-
ustu 10 árum, þ.á m. Mt. Blanc (4800 m),
Matterhorn (4400 m) og fleiri fjöll í Ölpunum,
Mt. McKinley (6200 m) í Alaska, Pik Lenin
(7200 m) og Pik Korchenevskaya (7200 m) í
Pamir fjöllunum í Tatsikistan og loks Cho Oyu
(8200 m) í Tíbet. Þessi reynsla er ómetanleg
og algjör forsenda þess að menn treysti sér til
að ráðast í þetta verkefni.
Góður búnaður mikilvægur
Þegar mikið er lagt undir eins og í þessum
leiðangri, er lögð áhersla á að nota aðeins besta
fáanlega búnað og eins léttan og mögulegt er.
Reyndar er það svo, að stór hluti búnaðarins
er almennur búnaður til fjallaferða sem er lítið
frábrugðinn þeim sem þarf til að takast á við
íslenskt veðurfar í versta ham. Þó er hluti hans
mjög sérhæfður og aðeins notaður í háfjalla-
mennsku og í miklum kulda. Mætti þar nefna
séreinangraða skó, sérhannaða dúnsvefnpoka,
dúnsamfestinga og tjöld. Ekki má heldur gleyma
súrefnistækjum, sem reyndar eru sjaldan notuð
á fjöllum sem eru lægri en 8.000 m Vegna þess
hve mikið kuldinn eykst og loftið þynnist eftir
því sem ofar dregur er erfitt að fínna búnað sem
hentar á öllu fjallinu. Því er það oft svo að bera
þarf þann búnað sem ætlaður er fyrir toppdag-
inn alla leið í efstu búðir án þess að hann sé
nokkum tíma notaður neðar á fjallinu, t.d. súr-
efnistæki og dúnsamfestinga.
9.000
U 8.50Ó / South Coljýr
Esja nr. 10 8.000
jgr Búðir 5,7.955 m
7.500 -
Búðir4,7.468 m
6.500 Búðir 3,
Esja nr. 8 . 6.492 m
6.000 Búðir 2,6.090 nr*-
5.500 Istossinn í Khumbu- V, jökli
V£R EST-LEIÐANGURINN
ÚTBÚNAÐUR fjallamanna hefur breyst mikið í ár-
anna rás. Menn er nú mun betur búnir til að takast
á við náttúruöflin í sinni verstu mynd. Annarsvegar
má hér sjá súrefnisgrímur frá 6. áratugnum og hins-
vegar hvernig þær líta út í dag.
sem væri reyndar réttara að nefna falljökul eða
ísfall því hann er yfir 1000 metra hár og skríð-
ur fram um 1 metra á sólarhring og breytist
því stöðugt. Það þarf því alltaf að vera að finna
nýja leið i gegn um ísföllin sem myndast. Yfír
miklar spmngur þarf að fara á leiðinni og eru
þær brúaðar með löngum álstigum, sem glatast
öðru hveiju þegar þær opnast meira eða falla
saman. Khumbu ísfallið er varasamur staður
og menn reyna að vera eins fljótir þar í gegn
og hægt er.
Ofan ísfallsins er komið í Vesturdal. Fremst
í honum verða aðrar búðir, í um 6300 m hæð.
Vesturdalur er rúmlega tveggja kílómetra lang-
ur og rís um 600 m inn í botn. Þarna er ein-
hver stórkostlegasti fjallasalur á jörðinni. Þegar
horft er inn dalinn er Nuptse á hægri hönd,
7861 m á hæð og 1500 m yfír
dalbotninum. Innst í dalnum
gnæfír Lhotse, þriðja hæsta fjall
í heimi, 8501m. á hæð. En Gyðj-
an, móðir heimsins, sjálft Ever-
est, lokar svo hringnum vinstra
megin. Þetta er ægifögur ísver-
öld þar sem aldrei rignir, öll úr-
koma er í föstu formi.
Leiðin liggur upp dalinn og síð-
an upp snarbrattar Lhotsehlíðar,
huldar ís og snjó. Þriðju búðir eru
efst í dalnum í um 6900 m hæð
og fjórðu búðir í miðjum Lhotse-
hlíðum í um 7600 m hæð. Að
lokum er komið upp í skarðið á
milli Lhotse og Everest, það er
eyðilegt veðravíti þar sem hvergi
er skjól að fínna. Sífellt rok og
nístandi kuldi. í Suðurskarði, eins og staðurinn
er kallaður, eru fímmtu og efstu búðir í nær
8000 m hæð. Það er langt frá því að aliar þess-
ar búðir séu settar upp í einum áfanga. Til þess
þarf margar ferðir upp fjallið. Bæði er það vegna
þess að búnaðurinn er mikill og til að koma einu
tjaldi upp í flmmtu búðum þarf eins konar pír-
amída af mannskap og búnaði neðar á fjallinu
en einnig vegna þess að langan tíma tekur fyrir
líkamann að ná hæðaraðlögun. Nánar er vikið
að þeim þætti síðar í greininni.
Úr Suðurskarði og upp á tindinn er aðeins um
800 metra hækkun. Ein Esja eða svo. En hæðin,
kuldinn, rokið og súrefnisskorturinn gera klifrið
á toppdaginn sjálfan að nær sólarhrings ferða-
lagi sem er endapunkturinn á 6 vikna vinnu og
aðlögun neðar á fjallinu. Leiðin liggur eftir Suð-
austurhrygg, hvössum og bröttum. Rétt undir
' tindinum er hæsta torfæra í heimi, Hillary
Step, erfiður kafli sem heitir eftir þeim sem
sigraði hana fyrstur. Tindurinn sjálfur rúmar
allmarga þó sjaldan hafí verið þröng á þingi þar
uppi, í gegnum árin hafa einungis um 670 manns
náð þessu æðsta takmarki fjallamanna.
Svo má ekki gleymast að hálf leiðin, niðurferð-
in er eftir og þreyttum mönnum er hollt að fara
varlega, hvort sem er á Everest eða Esju.
Sherparnir nauðsynlegir
Tíu Sherpar verða til aðstoðar á fjallinu við
uppsetningu búða, flutning vista og annars bún-
aðar upp fjallið. Sherpar eru einn af hinum fjöl-
mörgu þjóðflokkum sem byggja Nepal. Þeir eru
fjallabúar sem búa bæði hátt og mjög af-
skekkt. Þeir Sherpar sem taka þátt í þessum
leiðangri eru allir frá sama þorpinu, en þangað
er um 2-4 daga ganga frá næsta akvegi. Þeir
eru því aldir upp við það frá blautu bamsbeini
að fara allra sinna ferða fótgangandi í fjalllendi
og því eðli málsins samkvæmt góðir fjallgöngu-
menn upp til hópa. Sumir þeirra hafa atvinnu
af aðstoð við fjallgönguleiðangra og hafa þann-
ig öðlast sérhæfingu sem tengist klifri og fjalla-
mennsku. Allir hafa þeir farið í marga leið-
angra með leiðangursstjóranum m.a. á Everest,
ásamt því að vera til aðstoðar 1995 á Cho Oyu.
Auk þessara tíu verða þrír ráðnir til að sjá um
matseld og eldhús. Æðsti Sherpinn í hveijum
fjallgönguleiðangri nefnist Shirdar og hefur með
verkstjórn Sherpanna að gera. Shirdar leiðang-
ursins heitir Babu og var iíka með á Cho Oyu.
Hann er einn sá allra besti og hefur komist á
topp Everest 6 sinnum.
Með umhverfismálin á hreinu
Á liðnum árum og áratugum hefur mikið af
rusli safnast saman í búðum fjallgöngumanna
.. . "
l %■:::% ^ 'á
LEIÐIN upp Khumbu ísfallið er margsprungin og notast er við álstiga til að kom-
ast yfir stærstu gímöldin sem geta verið fleiri tugir metra á dýpt og breytast daglega.
Ætlunin er að hafa gervihnattasíma, fartölvu
og mótald með í för sem mun gera leiðangurs-
mönnum kleift að senda heim texta sem mun
með reglulegu millibili birtast í Morgunblaðinu.
Myndbandsvélamar eru af nýjustu gerð og staf-
rænar þannig að unnt verður með aðstoð tölvu-
tækninnar að senda myndefni frá aðalbúðunum
gegnum gervihnattasímann. Fjallgöngumenn-
irnir munu hafa talstöðvar þegar þeir eru á fjall-
inu og þannig hafa samband við félaga sína í
aðalbúðum, þannig að samband við þá á ekki
að rofna nema í stuttan tíma í einu og fréttir
að berast jafnóðum. Þetta má bera saman við
að 10 dagar liðu frá því að hátindi Cho Oyu
var náð og þar til fréttirnar bárust til íslands
og þá voru nær þijár vikur frá því að síðast
heyrðist í leiðangrinum.
Þunna loftið veldur erfiðleikum
Styrkur súrefnis í andrúmsloftinu fellur hratt
með aukinni hæð yfir sjávarmáli, en gróflega
má reikna með því að styrkur súrefnis á toppi
Everest sé um 30% af því sem hann er í Reykja-
vík. Vel þjálfaður maður mæðist við það eitt
að draga andann. Til dæmis myndi hjarta kyrr-
setumanns sem án hæðaraðlögunar væri fluttur
á Everest sem og öðrum fjöllum í Himalaya.
Sérstaklega á þetta þó við þau fjöll sem löng
ganga er að. Verður því allur búnaður og allt
sorp sem til fellur frá leiðangrinum flutt til
baka og fargað á fullnægjandi hátt. Einnig er
ætlunin að leggja okkar af mörkum við hreinsun
fjallsins og verður í því skyni tekið eins mikið
af eldri búnaðarleifum og rusli og kostur er.
Undirbúningur
Undirbúningur leiðangurs af þessu tagi tekur
mörg misseri. Þar kemur margt til. Öflun búnað-
ar og leyfa, fjáraflanir, æfingar og fjallaferðir.
Leiðangursmenn
Þeir Björn Ólafsson, Ilallgrímur Magnús-
son og Einar K. Stefánsson leggja í leiðang-
urinn í lok mars og gera ráð fyrir að koma
aftur til landsins í byrjun júni. Aður hafa
þeir félagar klifið mörg háfjöll, og m.a.
náðu þeir lengst íslenskra fjallamanna þeg-
ar þeir klifu sjötta hæsta fjall jarðar, Cho
Oyu, haustið 1995. Alls eru íslensku leið-
angursmennirnir fimm. Auk fjallgöngu-
mannanna verða með í för Jón Þór Víg-
lundsson, myndatökumaður sjónvarpsins,
og Hörður Magnússon, bróðir Hallgríms,
en hann verður fjallgöngumönnunum og
Jóni til aðstoðar.
í hægindastól sínum á topp Everest slá upp
undir 200 slög á mínútu og springa, þó svo
hann sæti grafkyrr í stólnum. Algengt er að
hvíldarpúls fari í um og yfír 120 slög á mínútu,
þrátt fyrir að rétt sé staðið að hæðaraðlögun,
og öndunartíðnin allt að tvöfaldast. Það er því
ljóst að klifur á hæstu fjöll heims er gríðarlegt
álag á líkamann. Til að setja þessa miklu hæð .
í samhengi má geta þess að Everest er 8.848 m
á hæð eða 29.029 fet, sem er ekki mikið undir
flughæð flugvéla í millilandaflugi. Sú hæð jafn-
gildir tífaldri hæð Esjunnar..
Hæðarveikin lúmsk
Einn fylgifiska þess að stunda háfjallaklifur
er hættan á hæðarveiki. Við minni styrk súrefnis
í andrúmsloftinu bregst líkaminn við með því að
auka öndunartíðni og hjartslátt og fjölga rauðum
blóðkomum. Fjölgun rauðra blóðkoma og vök-
vatap við örari öndun veldur því að blóð þykknar
og blóðflæði til húðar verður lélegra, sem eykur
hættu á kali. Aukin öndunartíðni leiðir einnig til
þess að líkaminn tapar meiri koltvísýringi en við -
eðlilegar aðstæður og við það raskast sýru/basa
jafnvægi líkamans. Það hefur í för með sér vökva-
söfnun í frumum, eða það sem oft er kallað bjúg-
myndun. í vægustu mynd veikinnar verðum við
vör við höfuðverk, en alvarlegra ástand er hin
eiginlega hæðarveiki sem er lungna- eða heila-
bjúgur, sem hvort tveggja er banvænt. Oft hefur
hæðarveikin einhvem aðdraganda og þeir sem
til þekkja geta þá þekkt einkennin, sérstaklega
ef um annan en þá sjálfa er að ræða. Hafí menn
vissu fyrir því að hæðarveiki sé á ferðinni og
jafnvel þó aðeins sé um grun að ræða, verður
skilyrðislaust að koma viðkomandi niður sam-
stundis, sé þess nokkur kostur. Til eru ýmis ráð
til að bæta ástandið og er þeim hiklaust beitt
samhliða niðurflutningi. Mætti þar nefna súrefn-
is- og lyfjagjöf eða að koma viðkomandi fyrir í
léttum uppblásanlegum þrýstiklefa sem margir--
leiðangrar em með.
Upp og niður
Eitt af því sem fólk sem ekki þekkir til há-
fjaliamennsku undrast hvað mest þegar verið er
að lýsa gangi leiðangra af þessu tagi, eru hinar
síendurteknu ferðir upp og niður fjallið. Þama
er um hæðaraðlögun að ræða. Áreynslan á líkam-
ann er svo mikil að jafnvel þó ekkert sé aðhafst
nema að borða og sofa, þá er gengið smátt og
smátt á orkubirgðimar og viðkomandi veslast
upp. Það er því ekki hægt að hækka sig jafnt
og þétt upp fjallið heldur verður alltaf að fara
nægilega langt niður á milli til að gefa líkaman- ‘
um tækifæri til þess að hvflast eðlilega og ná
upp orku fyrir næsta áfanga. Vandinn er að
þekkja hve mikið má leggja á sig í hverri ferð.
Því miður er ekki hægt að gefa neina einfalda
almenna reglu sem menn geta farið eftir, því
hæðaraðlögun er í raun lífeðlisfræðileg breyting
í líkamanum og afar breytilegt er milli einstakl-
inga hversu hratt hún gengur fýrir sig. Hefur
það ferli ekkert með líkamlegt atgervi að gera
og menn geta ekki þróað með sér hæfileikann
að neinu leyti. Einnig tapast hæðaraðlögun fljótt.
Menn verða því að læra af reynslunni hvemig
þeir aðlagast hæð og þess vegna er mikilvægt
að hafa þolinmæði til þess að byrja á lágum fjöll-
um fyrst og hækka sig svo jafnt og þétt. Súrefn-
istækin eru notuð þegar komið er yfír 8000 m
hæð. Þau era fyrst og fremst til að létta undir
á lokadaginn og til nota í neyðartilfellum en..
ekki er hægt að treysta á þau fullkomlega. Bún-
aðurinn er þungur og einungis er hægt að hafa
með í förtakmarkað magn súrefnis. Hæðaraðlög-
un verður því að vera eins góð og kostur er.
Toppurinn
Þó svo allur undirbúningur miðist við það að
toppnum verði náð um miðjan maí, er margt
sem getur komið í veg fyrir að settu marki
verði náð. Veður geta verið mjög slæm og kom-
ið hefur fyrir að enginn leiðangur hafi komið
manni á toppinn í heilt ár. Tölfræðin segir að
aðeins 30-40% leiðangra koma einhveijum leið-
angursmanna á toppinn og þá sitja samt ein-
hveijir eftir með sárt ennið. Það er því ekki
sjálfgefið að toppnum verði náð.
Engin óþarfa áhætta
Margir af vinum okkar og ættingjum hafa
áhyggjur af því að verið sé að bjóða hættunni
heim þegar lagt er upp í leiðangra erlendis,
enda er það ekkert óeðlilegt því menn óttast jú
oft það sem þeir þekkja ekki. Það er rétt að
háfjallamennska er í eðli sínu ekki hættulaus
og menn eru að reyna sig á mörkum þess sem
líkaminn þolir. Staðreyndin er hins vegar sú að
með góðum búnaði, réttu viðhorfi og mikilli
reynslu er hægt að lágmarka hættuna. Stór
hluti reynslunnar snýst um það að þekkja tak-
mörk sín og sem flestar hliðar á duttlungum
náttúrunnar. Smátt og smátt verða viðbrögð við
óvæntum atvikum ósjáifráð og eðlislæg. Hve
langt á að ganga verður hver og einn að ski!-
greina fyrir sig og til þess er enginn hæfari en
hann sjálfur. Hæfíleikinn til þess að meta að-
stæður rétt og geta snúið við skiptir öllu máli.
Það að snúa við er alltaf sárt, sérstaklega þeg-
ar toppurinn er nærri, en það er hlutur sem við
höfum upplifað og myndum ekki hika við að
endurtaka ef okkur litist svo á. Þó svo að leiðang-
ursmenn muni gera allt hvað þeir geta til þess
að ná settu marki er aðalmarkmiðið alltaf að
koma heilir heim.
I