Morgunblaðið - 26.01.1997, Qupperneq 18
18 B SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNIIAÍ JCZI Y^lhJCJAR
Kögun hf. er ungt og ört vaxandi fyrirtæki sem annast rekstur og
viðhald á vél- og hugbúnaði íslenska loftvarnakerfisins á Keflavíkur-
flugvelli.
Um er að ræða umfangsmikið tölvu- og fjarskiptakerfi byggt á margs
konar vélbúnaði. Kerfið vinnur úr fluggögnum frá ratsjám og öðrum
sams konar kerfum í öðrum löndum. Við smíði og viðhald kerfisins
er unnið eftir bandarískum gæða- og hönnunarstöðlum og mikil
áhersla lögð á formleg vinnubrögð og aðferðafræði.
Eftirfarandi starf er laust til umsóknar:
Verkfræðingur
/ tæknif ræðingur
Starfið felst í hönnun og úrvinnslu breytinga
á tölvu- og samskiptabúnaði kerfisins. Um-
sækjendur þurfa að vera tilbúnir að takast á
við flókin og krefjandi verkefni, geta unnið
sjálfstætt og vera fljótir að tileinka sér ný
vinnubrögð. Góð enskukunnátta er skilyrði.
Umsóknum er tilgreini menntun og fyrri störf
skal skilað á skrifstofu fyrirtækisins í Veg-
múla 2, 108 Reykjavík, eigi síðar en 3. febr-
úar nk. Nánari upplýsingar veittar á skrif-
stofu fyrirtaekisins á Keflavíkurflugvelli í síma
425 2179. Öllum umsóknum verður svarað.
VEÐURSTOFA
ÍSLANDS
Á Veðurstofu íslands eru eftirtalin störf laus
til umsóknar:
Sérfræðingur á Þjónustusviði
Starfið felst einkum í úrvinnslu úr tölvureikn-
uðum veðurspám og að þróa sérþjónustu
af ýmsu tagi.
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í veð-
urfræði, jarðeðlisfræði, eðlisfræði, stærð-
fræði eða í skyldum greinum. Staðgóð þekk-
ing á tölfræði er æskileg. Hann þarf að vera
vanur hugbúnaðargerð og hafa þekkingu og
reynslu af UNIX og Windows stýrikerfum og
forritunarmálunum C og Fortran.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Haf-
steinsson, aðstoðarforstöðumaður Þjón-
ustusviðs.
Verkfræðingur/-
byggingartæknifræðingur
á Úrvinnslu- og rannsóknasviði. Starfið felst
í rannsóknum á varnarvirkjum vegna snjó-
flóða svo og að annast ráðgjöf og umsögn
í varnarvirkjamálum skv. ákvörðun stjórn-
valda um hlutverk Veðurstofunnar. Æskilegt
er að umsækjandi hafi reynslu af þessum
málum. Um hlutastarf getur verið að ræða.
Nánari upplýsingar veitir Trausti Jónsson, for-
stöðumaður Úrvinnslu- og rannsóknasviðs.
T æknif ræðingur/raf eindavirki
með reynslu á sviði mælitækni óskast til
starfa á Tækni- og athuganasviði. Starfið
felst einkum í viðhaldi og rekstri sjálfvirkra
mælitækja og tilheyrandi búnaðar.
Nánari upplýsingar veitir Flosi Hrafn Sigurðs-
son, forstöðumaður Tækni- og athugunar-
sviðs.
Kerfisfræðingur í Upplýsinga-
tæknideiid
Starfið felst einkum í uppsetningu og umsjón
með PC-tölvum og aðstoð við PC-notendur.
Nauðsynlegt er að umsækjandi þekki Micro-
soft hugbúnað og hafi reynslu af PC-vélum
í nettengdu umhverfi.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt
og eiga auðvelt með að umgangast fólk.
Nánari upplýsingar gefa Halla Björg Baldurs-
dóttir, forstöðumaður Upplýsingatæknideildar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun, fyrri störf og meðmælum, ef fyrir
hendi eru, skuiu sendar til Veðurstofu ís-
lands, Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík, fyrir
10. febrúar nk.
Leikskólar Seltjarnarness
Lausar stöður við leikskólann
Mánabrekku v/Suðurströnd
Leikskólakennarar eða starfsmenn með
sambærilega menntun óskast til starfa við
leikskólann Mánabrekku. Leikskólinn Mána-
brekka er nýr 4 deilda glæsilegur leikskóli
sem býður upp á mikla möguleika varðandi
fjölbreytt uppeldisstarf. í dag starfa 7 leik-
skólakennarar við skólann.
Hafið samband og kynnið ykkur starfsemina.
Upplýsingar gefur Dagrún Ársælsdóttir leik-
skólastjóri í síma 561 1375.
Einnig veitir leikskólafulltrúi upplýsingar um
störfin í síma 561 2100.
Leikskólar Seltjarnarness eru reyklausir
vinnustaðir.
Leikskólafulltrúi.
Raunvísindastofnun
Háskólans
Laus sérfræðingastörf
Við Raunvísindastofnun Háskólans eru eftir-
talin sérfræðingastörf laus til umsóknar.
Ráðið verður í störfin til 1 -3 ára frá 1. septem-
ber nk.
a) Tvö störf sérfræðinga við Eðlisfræðistofu.
Umsóknir sem falla vel að áhersluatriðum
Eðlisfræðistofu, einkum Ijósfræði og eðl-
isfræði þéttefnis, njóta að öðru jöfnu for-
gangs.
Nánari upplýsingar veitir Hafliði P. Gísla-
son, forstöðumaður, haflidi@raunvis.hi.is
b) Eitt starf sérfræðings við Efnafræði-
stofu. Æskilegt er að sérfræðingurinn
starfi á sviði Ijósefnafræði.
Nánari upplýsingar veitir Jón K.F. Geirs-
son, forstöðumaður, jkfg@raunvis.hi.is
c) Eitt starf sérfræðings við Jarðfræði-
stofu. Sérfræðingnum er ætlað að starfa
að athugun á rannsóknaviðbúnaði vegna
eldvirkni. Ótímabundin ráðning kemur til
álita í þetta starf.
Nánari upplýsingar veitir Leifur A. Símon-
arson, forstöðumaður,
leifuras@raunvis.hi.is
d) Eitt starf sérfræðings við Reiknifræði-
stofu. Sérfræðingnum er ætlað að starfa
á sviði tölvunarfræði.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan G.
Magnússon, forstöðumaður,
kgm@rhi.hi.is
e) Tvö störf sérfræðinga við Stærðfræði-
stofu. Ótímabundin ráðning kemurtil álita
í annað starfið.
Nánari upplýsingar veitir Þórður Jónsson,
forstöðumaður, thjons@raunvis.hi.is
Sérfræðingarnir verða ráðnir til rannsókna-
starfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands
er háð samkomulagi milli deildarráðs raun-
vísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofn-
unar Háskólans, og skal m.a. ákveðið hvort
kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu við-
komandi starfsmanns.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi
eða tilsvarandi háskólanámi og starfað
minnst eitt ár við rannsóknir.
Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð um
menntun og vísindaleg störf, auk ítarlegrar
lýsingar á fyrirhuguðum rannsóknum. Æski-
legt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3
dómbærum mönnum á vísindasviði umsækj-
anda um menntun hans og vísindaleg störf.
Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu um-
slagi sem trúnaðarmál.
Laun samkvæmt kjarasamningi Félags há-
skólakennara og fjármálaráðherra.
Umsóknir skulu hafa borist framkvæmda-
stjóra Raunvísindastofnunar Háskólans,
Dunhaga 3, 107 Reykjavík, fyrir 10. mars
1997.
\/erkfræðistofan AFL ehf. óskar eftir að ráða:
Verkf ræðing eða tæknif ræðing
á sviði iðnstýringa og hönnunar rafkerfa.
Viðkomandi þarf að hafa nokkra reynslu af
iðnstýringum auk kunnáttu í raflagnateikn-
ingum fyrir iðnað og orkuver. Kunnátta í tei-
kniforritunum Autocad eða Elcad er nauð-
synleg. Æskileg er kunnátta í notkun skjá-
myndakerfa fyrir iðnað.
Töivunarfræðing eða kerfisfræðing
til að vinna að þróun og uppsetningu á vöru-
húsi gagna og upplýsingateningum (OLAP).
Krafist er þekkingar á töflugagnagrunnum
og hlutbundinni hugbúnaðargerð. Leitað er
eftir ungum og áhugasömum starfsmanni.
Umsókn ásamt upplýsingum um menntun,
reynslu og fyrri störf sendist Mbl. merkt
T - 4092“ fyrir 4. febrúar.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu í reyk-
lausu umhverfi.
VEGAGERÐIN
VERKSTlðRI
PATREKSFJÖRDUR
Staða verkstjóra hjá Vegagerðinni á Patreksfirði er
laus til umsóknar. Um fullt starf er að ræða og
æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun skv. kjarasamningi Verkstjórasambands
íslands.
Starfssvið
• Almenn verkstjórn verka- og vélamanna.
• Ýmis verkefni tengd rekstri áhaldahúss og
viðhaldi vega.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af verkstjórn.
• Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið námskeiði
Verkstjórnarfræðslunar.
• Góðir samstarfshæfileikar.
PATREKSFJÖRDUR
Staða vélamanns hjá Vegagerðinni á Patreksfirði
er laus til umsóknar. Um fullt starf er að ræða og
æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun skv. kjarasamningi VMSf.
Starfssvið
• Stjórn vinnuvéla og bifreiða.
• Almenn verkamannastörf.
• Ýmis verkefni tengd viðhaldi vinnuvéla og
bifreiða.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Æskilegt er að viðkomandi hafi réttindi til að aka
bifreið sem er 3.500 kg að heildarþyngd eða
meira og hafi réttindi til að stjórna vinnuvélurn.
• Góðir samstarfshæfileikar.
Nánanir upplýsingar veitir Eiður B, Thoroddsen hjá
Vegagerðinni á Patreksfirði i síma 456 1533.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar „Vegagerð - Patreksfjörður"
fyrir 10. febrúar nk.
RÁÐGARÐURhf
SllC®NUNARCXíREKSIRARRÁEX]5CF
Furugarftl 5 108 Raykjavlk Sfml S33 1800
Pax; 833 1808 Hitfang: rgmldlun8tr«kn«t.lt
Hnlmailfta: http://www.tr9knait.ls/radgardur