Morgunblaðið - 26.01.1997, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ
20 B SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997
Leikskólakennari/
leikskólastjóri
Leikskólinn Álfaborg á Svalbarðseyri óskar
eftir að ráða leikskólakennara eða leikskóla-
stjóra í 100% stöðu vegna fæðingarorlofs.
Svalbarðseyri er í 12 km fjarlægð frá Akur-
eyri.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf
15. mars nk. og er umsóknarfrestur til
15. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veita: Katrín Guðjóns-
dóttir, leikskólastjóri, eða Ragna Erlingsdóttir,
aðstoðarleikskólastjóri, í síma 462 4901 milli
kl. 8-17 alla virka daga.
Fjármálastjóri
Knattspyrnusamband íslands óskar að ráða
fjármálastjóra. Verkefni fjármálastjóra er
umsjón með fjármálum, bókhaldi og áætl-
anagerð ásamt ýmsum störfum á skrifstofu
KSÍ. Góð bókhaldskunnátta skilyrði og æski-
legt að viðkomandi hafi unnið í Word og
Excel.
Skriflegum umsóknum skal skilað á skrifstofu
KSÍ, íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykja-
vík, eigi síðar en fimmtudaginn 30. janúar.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Sérfræðingur í
háls-, nef- og
eyrnalækningum
70% staða sérfræðings í háls,- nef- og eyrna-
lækningum við háls-, nef- og eyrnadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er laus
til umsóknar.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega
þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta,
samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Umsóknarfrestur er til 10. mars 1997.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur
Sveinsson, yfirlæknir.
Umsóknir, á þar til gerðum eyðublöðum,
ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins,
Halldóri Jónssyni.
Öllum umsóknum verður svarað.
Forstöðumaður
eldhúss - stjórnun-
arstaða
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns
eldhúss FSA. Um er að ræða heila stöðú sem
veitist frá 1. mars nk. eða eftir samkomu-
lagi. Forstöðumaður er yfirmaður starfs-
manna eldhúss og ber stjórnunarlega og
rekstrarlega ábyrgð á starfsemi eldhússins,
matreiðslu á fæði fyrir sjúklinga og rakstri
mötuneytis fyrir starfsmenn.
Umsækjendur þurfa að hafa meistararéttindi
í matreiðslu eða hafa lokið námi í matar-
fræði, næringarfræði eða öðrum skildum
greinum. Við ráðningu verður ennfremur lögð
áhersla á nám eða reynslu í stjórnum, frum-
kvæði og góða hæfni til samskipta.
Umsóknir sendist Vigni Sveinssyni, aðstoð-
arframkvæmdarstjóra, fyrir 15. febrúar nk.
og veitir hann jafnframt nánari upplýsingar
um starfið.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
- reyklaus vinnustaður -
Ferðamálafulltrúi
Auglýst er staða ferðamálafulltrúa með
aðsetri á Sauðárkróki. Starfssvæði Skaga-
fjörður. Um er að ræða hálfa stöðu. Umsókn-
ir sendist fyrir 15. febrúar nk. til skrifstofu
Héraðsnefndar Skagfirðinga á Sauðárkróki,
þar sem hægt er að fá nánari upplýsingar.
Héraðsnefnd Skagfirðinga,
Skagfirðingabraut 17-21,
550 Sauðárkrókur, sími 453 5737.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
óska að ráða eftirtalið starfsfólk í neðan-
greinda leikskóla:
Garðaborg/Bústaðaveg
Leikskólakennari eða annað uppeldismennt-
að starfsfólk í 50% afleysingastöðu eftir
hádegi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Kristín Ein-
arsdóttir í síma 553 9680.
Leikgarður/Eggertsgötu
Leikskólakennari eða annað uppeldismennt-
að starfsfólk í 100% stöðu.
Upplýsingargefurleikskólastjóri, Sólveig Sig-
urjónsdóttir, í síma 551 9619.
Rofaborg/Skólabæ
Leikskólakennari eða annað uppeldismennt-
að starfsfólk í 50% stöðu eftir hádegi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Þórunn
Gyða Björnsdóttir, í síma 567 2290.
Sæborg/Starhaga
Leikskólakennari eða annað uppeldismennt-
að starfsfólk í 100% stöðu.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Þuríður
Anna Pálsdóttir, í síma 562 3664.
Ægisborg/Ægissíðu
Leikskólakennari eða annað uppeldismennt-
að starfsfólk í 100% stöðu.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Elín Mjöll
Jónsdóttir í síma 551 4810.
Stuðningsstarf
Laufásborg/Laufásveg
Leikskólakennari eða þroskaþjálfi í 75%
stuðningsstarf.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Jóhanna
Thorsteinson, í síma 551 7219.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552 7277.
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
Viðskiptafræðingar
lögfræðingar
Verkefnisstjóri skattaeftirlits ríkisskatt-
stjóra óskar eftir að ráða deildarstjóra til
starfa.
Starfið felst í umsjón með og skipulagningu
afmarkaðra verkefna skatteftirlits undir
stjórn verkefnisstjóra skatteftirlits ríkisskatt-
stjóra í samráði við skattstjóra viðkomandi
umdæma. Gerðar eru kröfur um háskóla-
menntun í viðskiptafræði, hagfræði eða lög-
fræði. Þekking á skattalegu umhverfi fyrir-
tækja og einstaklinga og reynsla af tengdum
störfum æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Árni Harðarson
í síma 563 1100.
Á lögfræðisviði tekjuskattsskrifstofu er
laust til umsóknar starf sem felst í umsjón
með framkvæmd laga um fjármagnstekju-
skatt. Gerðar eru kröfur um háskólamenntun
í viðskiptafræði, hagfræði eða lögfræði.
Staðgóð þekking á fjármagnsmarkaði eða
reynsla á sviði skattamála er æskileg.
Á einstaklingssviði tekjuskattsskrifstofu er
laust til umsóknar starf sem felst m.a. í af-
greiðslu skatterinda, upplýsingagjöf og al-
mennri túlkun skattalaga. Gerðar eru kröfur
um háskólamenntun í viðskiptafræði, hag-
fræði eða lögfræði. Reynsla á sviði skatta-
mála er æskileg.
Á lögfræðisviði virðisaukaskattsskrifstofu
er laust til umsóknar starf sem felst m.a. í
afgreiðslu skatterinda, samningu kröfugerða
vegna kæra til Yfirskattanefndar og al-
mennri túlkun skattalaga. Gerðar eru kröfur
um háskólamenntun í lögfræði.
Nánari upplýsingar veita deildarstjórar lög-
fræðisviða tekjuskatts- og virðisaukaskatts-
skrifstofu í síma 563 1100.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf
1. mars nk.
Launakjör taka mið af samningum BHMR.
Umsóknir þar sem fram komi m.a. upplýs-
ingar um menntun, starfsreynslu og með-
mælendur sendist embætti ríkisskattstjóra,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Umsóknar-
frestur er til mánudagsins 10. febrúar nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvarðanir hafa verið teknar um ráðningu.
Sölu- og markaðsstjóri
Fyrirtækið er eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði ferðamála.
Sölu- og markaðstjóri mun hafa umsjón með sölu- og markaðsálum, annast áætlanagerð ásamt
skipulagningu söluherferða og markaðsátaka, sjá um auglýsinga- og kynningarmál auk þess að sinna
samskiptum við viðskiptavini innanlands sem utan.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu menntaðir á viðskipta- og markaðssviði auk þess að hafa
haldbæra reynslu af markaðsmálum. Leitað er að hugmyndafrjóum, sjálfstæðum og framtakssömum
aðila sem tilbúinn er að takast á við áhugavert og krefjandi starf í líflegu starfsumhverfi. Kostur er
þekking og reynsla á sviði ferðamála. Góð enskukunnátta nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar n.k. Ráðning verður skv. nánara samkomulagi. Unnið
verður með allar umsóknir í fyllsta trúnaði.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Harðardóttir. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á
skrifstofunni, sem opin er frá kl.10-16, en viðtalstímar frá kl.10-13.
STRAlGALLUP
STARFSRÁÐNINGAR
Mörkinni 3,108 Reykjavík Sími: 588 3031, bréfsími: 588 3044
m H Wlli1 Guðný Harðardóttir