Morgunblaðið - 26.01.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 B 27
Frábært tækifæri! (13085)
Til sölu glæsilegur matsölustaður miðsvæðis
í Reykjavík. Staðurinn er mjög vel tækjum
búinn, tekur um 50 manns í sæti, góð
vinnsluaðstaða ásamt fullu vínveitingaleyfi.
Staðurinn býður upp á mikla möguleika á
ýmsum sviðum í matreiðslu.
Fiskvinnsluvélar
Við getum aftur afhent „lárétta plötufrysta"
úr ryðfríu stáli, stærðir platna eftir óskum
kaupenda. „Hausingavél" úrryðfríu efni, með
eða án sugu, fyrir karfa, grálúðu og fleira
er nú til á lager.
Nýir „lausfrystar" fyrir rækju eða fiskflök, til-
búnir eftir 5-6 vikur.
as-Jo engineering Danmark,
sími 00 45 653 21999,
fax 00 45 653 23999.
Matvörubúð
Til sölu rótgróin matvöruverslun í eigin hús-
næði í gamla bænum með eða án húsnæðjs.
Nánari upplýsingar gefur Magnús á skrif-
stofu FM.
Tölvuverslun
Til sölu mjög áhugaverð tölvuverslun með
þekktum vörumerkjum.
Nánari upplýsingar gefur Magnús á skrif-
stofu FM.
Fasteignamiðstöðin ehf.,
Skipholti 50B,
sími 552 6000, fax 552 6005.
Fjárfesting íframtíð!
Innflutningsfyrirtæki á tölvusviði óskar eftir
samstarfi við fjársterka aðila jformi eignarað-
ildar og/eða láns með góðum vöxtum sem
yrðu greiddir á sex mánaða fresti og endur-
greiðslu að lánstíma loknum. Tilboð sendist
á afgreiðslu Mbl. merkt: „F - 1415“.
Geymsluhúsnæði óskast
Óska eftir að taka á leigu til lengri tíma, um
70 fm geymsluhúsnæði á jarðhæð. Staðsetn-
ing helst vestarlega í Reykjavík eða á Sel-
tjarnarnesi. Sérstakár innkeyrsludyr æskileg-
ar. Kaup koma til greina síðar.
Upplýsingar í síma 551 4458.
Rekstur félagsheimilisins
Egilsbúðar til leigu
Rekstur félagsheimilisins Egilsbúðar í Nes-
kaupstað er auglýstur til leigu.
Félagsheim-
ilið Egilsbúð er miðstöð menningar-, félags-
og skemmtanalífs í Neskaupstað og stendur
því fyrir margvíslegri og áhugaverðri starf-
semi. Meginþættir rekstursins eru: veitinga-
rekstur, gisting, dansleikjahald, skemmtana-
hald, leiga á fundaaðstöðu, kvikmyndasýn-
ingar og hvers konar félags- og menningar-
starfsemi.
Um nánari tilhögun á leigu Egilsbúðar ásamt
rekstrarfyrirkomulagi og kvöðum og skyldum
leigusala verður nánar kveðið á um í sérstök-
um leigusamningi.
Nánari upplýsingar gefa bæjarstjóri og fjár-
málastjóri í síma 477 1700. Umsóknum skal
skilað á bæjarskrifstofuna Egilsbraut 1, Nes-
kaupstað fyrir 15. febrúar nk.
Bæjarstjórinn í Neskaupstað.
Höfum verið beðnir
um að leita að vel reknum og öflugum fyrir-
tækjum í eigin húsnæði, þó ekki skilyrði, fyr-
ir trausta og fjársterka viðskiptavini okkar:
1. 150-200 milljónir, ýmislegt kemur til
greina.
2. Iðnfyrirtæki til flutnings á lands-
byggðinni, 10-30 milljónir.
3. Traustu og góðu fyrirtæki á verðbilinu
30-50 milljónir.
SStyrkir til háskóla-
náms í Bandaríkjunum
Styrkir verða veittir úr Thor Thors-sjóðnum
til háskólanáms í Bandaríkjunum skólaárið
1997-98. Umsækjendur þurfa að hafa lokið
háskólaprófi eða munu Ijúka prófi í lok náms-
árs 1996-97.
Umsóknareyðublöð fást hjá Fulbright-stofn-
uninni, Laugavegi 28, 101 Reykjavík, sími
551 0860. Umsóknum þarf að skila til félags-
ins á sama stað fyrir 10. apríl 1997.
Islensk-Ameríska félagið
Framsóknarvist
Verður haldin í dag, sunnudaginn 26. janúar
kl. 14.00 í Templarahöllinni við Eiríksgötu.
Verðlaun verða veitt.
Aðgangseyrir kr. 500. Kaffiveitingar
innifaldar.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Verkalýðssöngvakeppni
Sósíalistafélagsins
Skilaf restur til 1. febrúar 1997
Þátttaka í keppninni er öllum opin. Söngvar
til keppninnar skulu berast Sósíalistafélag-
inu, Hjaltabakka 2, 109 Reykjavík, í síðasta
lagi 1. febrúar eða póstlagt þann dag.
Söngvar skulu merktir dulnefni en rétt nafn
og heimilisfang fylgja með í lokuðu umslagi.
Verðlaun samtals kr. 80.000 og skiptist til
helminga fyrir lag og texta.
Nánari upplýsingar fást í síma 587 2264.
Sósíalistafélagið.
Menningarsjóður
Umsóknir um styrki
Hér með er auglýst eftir umsóknum um
styrki úr Menningarsjóði skv. 1. gr. reglu-
gerðar um sjóðinn nr. 707/1994.
Hlutverk Menningarsjóðs er að veita útgef-
endum og/eða höfundum fjárhagslegan
stuðning við útgáfu þeirra bóka á íslenskri
tungu, sem verða mega til eflingar íslenskri
menningu. Sérstök áhersla skal lögð á að
efla útgáfu fræðirita, handbóka, orðabóka
og menningarsögulegra rita. Jafnframt getur
sjóðurinn veitt fjárhagslegan stuðning ann-
arri skyldri starfsemi s.s. vegna hljóðbóka-
gerðar.
Umsóknum skal skilað á þartil gerðum eyðu-
blöðum til stjórna Menningarsjóðs, mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir 28. febrúar 1997.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu mennta-
málaráðuneytisins.
Stjórn Menningarsjóðs.
Próf til réttinda
leigumiðlunar
Félagsmálaráðuneytið auglýsir hér með að
próf fyrir þá sem hyggjast sækja um leyfi til
að reka leigumiðlun, skv. 2. gr. reglugerðar
nr. 675/1994 um leigumiðlun, verður haldið
28. febrúar nk. Umsóknum um að gangast
undir próf skal skilað til félagsmálaráðuneyt-
isins fyrir 24. febrúar nk. á þar til gerðum
eyðublöðum er liggja frammi í ráðuneytinu.
Félagsmálaráðuneytið,
sími 560 9100.
Viðtalstími
samgöngu-
ráðherra
á Húsavík
Halldór Blöndal, samgönguráðherra, verður
með viðtalstíma á Hótel Húsavík fimmtudag-
inn 30. janúar.
Vinsamlegast pantið tíma í símum 462 1500,
462 1504 eða 462 3557.
Samgönguráðuneytið,
3. janúar 1997.
Amerískur flugmaður
sem býr í seglbáti við sólríka strönd í
Ft. Lauderdale í Flórída óskar eftir að kynn-
ast myndarlegri, reyklausri ungri konu til að
búa hjá sér um borð, með framtíðarsamband
í huga.
Sendið uppl. og mynd til 4420 N. University
Dr., Ft. Lauderdale, Flórída, U.S.A.
Mígrensamtökin
halda fræðslufund þriðjudaginn 28. janúar
kl. 20.30 í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi, Reykjavík.
Arnar Hauksson, dr. med. fjallar um mígreni
og hormón. Kaffiveitingar.
Bakarar, framreiðslu-
menn, matreiðslumenn
og kjötiðnaðarmenn
Almennur félagsfundur um kjaramál verður
haldinn á Þarabakka 3, þriðjudaginn 28. jan-
úar kl. 17.00.
Félagar fjölmennið.
MATVÍS.
Almennur stjórnmála-
fundur á Húsavík
Halldór Blöndal, samgöngu-
ráðherra og Tómas Ingi
Olrich, alþingismaður, verða
með almennan stjórnmála-
fund á Hótel Húsavík fimmtu-
daginn 30. janúar kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Kjördæmisráð og Sjálfstæðisfélagið á Húsavík.