Morgunblaðið - 26.01.1997, Side 32
32 B SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hátíðarsýning
á Fögru veröld
Fyrirlestur um
þjóðgarða Ameríku
Jí„LIONSKLÚBBURINN Þór
stendur fyrir, í samvinnu við Leik-
félag Reykjavíkur, listamenn og
Mótorsmiðjuna, sérstakri hátíðar-
sýningu í kvöld kl. 19, á leikritinu
Fagra veröld eftir Karl Ágúst
Úlfsson," segir í fréttatilkynningu
frá Lionsklúbbnum Þór.
Þar segir jafnframt: „Leikritið
fjallar um borgarskáldið Tómas
Guðmundsson, svo vill til að Tóm-
as Guðmundsson var einn af stofn-
endum Lionsklúbbsins Þórs og
þótti því við hæfi að standa fyrir
>■
sérstakri sýningu í fjáröflunar-
skyni. Ágóði af sýningunni
rennur til styrktar Mótorsmiðj-
unni, en Mótorsmiðjan vinnur
mjög athyglisvert starf með ungl-
ingum á höfuðborgarsvæðinu, og
verður notaður til kaupa á verk-
færum og uppbyggingar torfæru-
brautar Mótorsmiðjunnar."
Loks segir að fyrir sýninguna
muni Bubbi, Sniglabandið og fleiri
listamenn skemmta sýningargest-
um og að þeir gefi vinnu sína.
FYRSTI fræðslufundur Hins ís-
lenska náttúrufræðifélags á ný-
byijuðu ári verður mánudaginn 27.
janúar kl. 20.30. Fundurinn verður
haldinn í stofu 101 í Lögbergi. Á
fundinum flytur Þóra Ellen Þór-
hallsdóttir, prófessor í grasafræði,
erindi sem hún nefnir: Þjóðgarðar
í Bandaríkjum Norður-Ameríku.
í fyrirlestrinum verða sýndar
myndir og sagt frá nokkrum þjóð-
görðum í Bandaríkjunum. Einkum
verður fjailað um gróðurfar og
einnig um önnur sérkenni þeirra.
Yellowstone, elsti þjóðgarður
heims, er gríðarstór að flatarmáli,
á stærð við Vatnajökul. Hann er
þekktur fyrir stórbrotið landslag
en ekki síður fyrir ríkulegt dýralíf.
Um þrír fjórðu hlutar hans brunnu
í miklum skógareldum árið 1988.
Rocky Mountains-þjóðgarðurinn
spannar yfir 2.000 metra hæðar-
mun og þar sjást vel gróðurbreyt-
ingar með hæð, frá skógum úr
ponderosafurum neðst upp í trjá-
lausa túndru í nær 4.000 metra
hæð. Everglades-þjóðgarðurinn er
einstætt, marflatt votlendi á syðsta
hluta Flórídaskaga. Lífríki Ever-
glades er nú ógnað vegna síaukinn-
ar byggðar sem raskar vatnabú-
skap og útbreiðslu framandi
plöntutegunda. í Mesa Verda-þjóð-
garðinum og Canyon de Chelly-
friðlandinu í Arizona eru sérkenni-
legar og vel varðveittar indíána-
byggðir með húsum sem hlaðin
voru inn í hvelfingar í miklum gljú-
frum. Landslag er þama einnig
stórbrotið og hrjóstrugt. Ef tími
vinnst til verður einnig stuttlega
sagt frá Arches-þjóðgarðinum.
-----» ♦ ♦-----
Samningar
um frið í Mið-
Austurlöndum
HANAN Goder, sendiráðsritari í
sendiráði ísraels í Ósló flytur á
þriðjudagskvöldið erindi um ísrael
og samninga um frið í Mið-Austur-
löndum. Erindið verður flutt í íþrótt-
amiðstöðinni í Laugardal, húsi 1, 2.
hæð og hefst hann kl. 20.
í fréttatilkynningu frá ræðis-
manni ísraels á íslandi segir að
Goder muni fjalta um stöðuna í
samningamálum ísraels og PLO og
friðarhorfur í þessum heimshluta og
svara fyrirspurnum að því búnu.
Fundurinn er öllum opinn.
LEIÐRÉTT
Mat á öryggi fólks
í brennandi byggingum
ÞAU mistök urðu við frágang
fréttatilkynningar um fyrirlestur
Gunnars H. Kristjánssonar að mein-
legar villur slæddust með. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum og endurbirtir hér frétta-
tilkynninguna:
„Mánudaginn 27. janúar næst-
komandi mun Gunnar H. Kristjáns-
son, verkfræðingur, halda opinber-
an fyrirlestur sem nefnist: Mat á
öryggi fólks í brennandi bygging-
um. Fyrirlesturinn, sem er loka-
áfangi náms til meistaraprófs við
verkfræðideild Háskóla íslands,
verður haldinn í stofu 157 í húsi
verkfræði- og raunvísindadeildar
VRII við Hjarðarhaga og hefst hann
kl. 16.15.
Gunnar Kristjánsson lauk prófi
frá verkfræðideild Háskóla íslands
1992. Jafnframt störfum sínum hjá
Brunamálastofnun ríkisins hefur
Gunnar lagt stund á rannsókn-
artengt framhaldsnám við Háskóla
íslands og Tækniháskólann í Lundi.
Umsjónamefnd með náminu skipa
dr. Björn Karlsson, Tækniháskólan-
um í Lundi, Bergsteinn Gizurarson,
brunamálastjóri, og Ragnar Sigur-
björnsson, prófessor við Háskóla
íslands, sem er formaður nefndar-
innar og aðalleiðbeinandi.
Öllum er heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir."
Tilk Doðsdagar! Púðar - Lampar 20 - 30% afsláttur
iittala l/ja ppl Laugavegi24. FINLAND Ivd 1 V- 1 simi 562 4525
I.O.O.F. 3 = 1781278 = M.A.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
I.O.O.F. 19 = 1782718 = I.
□ Gimli 5997012719 I 2
I.O.O.F. 10 = 1771278 = I
□ Helgafell 5997012719 VI 2
-rr-,
Kristniboðsfélag karia
Fundur verður í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60, mánu-
dagskvöldið 27. janúar kl. 20.30.
Benedikt Arnkelsson hefur biblíu-
lestur. Allir karlmenn velkomnir.
Aðalfundur félagsins verður á
sama stað 10. febrúar kl. 20.30.
Stjórnin.
Miðilsfundur!
Kl. 20.00.
Opinn miðilsfund-
ur með Þórhalli
Guðmundssyni
verður haldinn í
Bæjarbíói, Hafn-
arfirði, miðviku-
daginn 29. janúar
Húsið verður opnað kl. 19.00.
Aögangseyrir kr. 1.000,-.
Forsala í síma 565-4087 eftir kl.
17.00.
Kl. 11.00. Sunnudagaskóli.
Kl. 20.00. Hjálpræðissamkoma.
Elsabet Daníelsdóttir talar.
Allir velkomnir.
Mánudag kl. 15.00. Heimilasam-
band. Valgerður Gisladóttir talar.
Allar konur velkomnar.
Orð lifsins,
Grensásvegi8
Samkoma og sunnudagaskóli kl.
11. Ásmundur Magnússon précf-
ikar. Kennsla i kvöld kl. 20.00.
Samkoma á miðvikud. Id. 20.
Allir hjartanlega velkomnirl
Morgunsamkoma
4B kL 11.00. Sér stund fyrir
bömin. Sameiginleg máitið eft-
ir stuncfina. Fólk taki með sér
mat á htaðborg. Gönguferð á
eftir, ef veður leyfir.
Almenn samkoma í Breiðhoits-
kirkju kL 20.00.
Lofgjörð, fyrirbænir og vitnisburð-
ur. Olaf Engsbráten predikar.
Allir velkomnir.
Dulheimar
Sálarfriður i Hlégarði
Vertu með, komdu og taktu þátt
í skemmtilegri og uppbyggjandi
dagskrá sem er:
• Skyggnilýsing.
• Hlutskyggni.
• Lestur í litaborða.
• Gospel tónlist.
• Heilun.
Mætum öll í félagsheimilið Hlé-
garð, Mosfellsbæ, mánudags-
kvöldið 27. jan. kl. 20.30. Fund-
argjald kr. 1.000. Mætið tíman-
'lega.
Dulheimar, sími 581 3560.
Námskeið í kinesiologi
Kennt er að
vinna með jafn-
vægi huga og
líkama í sam-
ræmi við heild-
ræna sýn á til-
veruna. Kennt
er að vinna með orkuflæðið í
tengslum við kínverska nála-
stungukerfið.
Steitulosun -- jákvæð hugsun -
sjálfsþekking.
Bryndís Júllusdóttir,
kinesiolog.
Skráning
í síma 486 3333.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Morgunsamkoma kl. 11.00
Samúel Ingimarsson talar um
grundvöll kirkjunnar.
Kvöldsamkoma kl. 20.00
Gestir frá Vineyard kirkjunni á
Keflavíkurflugvelli.
Tilbeiðsla og fyrirbænaþjónusta.
„Sjá, nú hef ég nýtt fyrir stafni,
það rekur þegar að votta fyrir
því - sjáið þér það ekki?" Jes.
13.19.
Pýramídinn -
andleg
miðstöð
Matthildur
Sveinsdóttir
tarotlesari verð-
ur með tarot
námskeið helg-
ina 1. og 2. febr-
úar á Major spil-
um, minni spil-
um, táknmáli spilanna og lögn-
um þeirra. Matthildur verður
einngi með einkatíma. Upplýs-
ingar og bókanir í símum
588 1415 og 588 2526.
KROSSINN
Sunnudagur:
Almenn samkoma i dag
kl. 16.30. Barnagæsla meðan á
samkomu stendur.
Þriðjudagur:
Biblíulestur kl. 20.30
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Hverfisgötu 105,1. hæð,
sími 562 8866
Samkoma kl. 20.00.
„Hvað stoppar þessa kynslóð?".
Prédikarar Hilmar Kristinsson
og Linda Magnúsdóttir. Frelsis-
hetjurnar kl. 11 - krakkakirkja.
Þriðjudaginn kl. 20.00: Almenn
samkoma.
Föstudagskvöld kl. 21.00:
Gen-x kvöld fyrir ungu kynslóö-
ina. Allir velkomnir.
Samkoma kl. 16.30 í Bæjar-
hrauni 2, Hafnarfirði.
Predikun: Stefán Ágústsson.
Barnastarf meðan á samkomu
stendur.
Mánudagur: Bænastund
kl. 20.00.
Miðvikudagur: Biblíulestur
kl. 20.30.
Alllr velkomnlr.
Aoaistöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28
Samkoma í dag kl. 17. Vitnis-
burðir KSS-inga: Sigurður Bjarni
Gíslason, BaldurH. Ragnarsson,
Gísli Geir Harðarson og Petra
Eiríksdóttir. Ten Sing hópurinn
syngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
fomhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16. Fjöl-
breyttur söngur. Samhjálparkór-
inn tekur lagiö. Barnagæsla.
Ræðumenn Björg Lárusdóttir og
Þórir Haraldsson. Kaffi að lokinni
samkomu. Allir velkomnir.
Fyrsta „opna hús“ ársins verð-
ur laugardaginn 1. febrúar kl.
14-17.
Samhjálp.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í dag kl.
16.30.
Ræðumaöur Hafliði Kristinsson.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir
söng. Barnagæsla fyrir börn
undir grunnskólaaldri meðan á
samkomu stendur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Þriðjudagur: Samvera á vegum
systrafélagáins kl. 20.30.
Miðvikudagur: Lofgjörö, bæn
og biblíulestur kl. 20.00.
Föstudagur: Krakkaklúbburinn
kl. 18.00, fyrir öll börn á aldrinum
3ja - 12 ára. Unglingasamkoma
kl. 20.30.
FERÐAFÉLAG
# ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Öðruvisi sunnudagsferðir
26. janúar 1997 kl. 10.30.
1. Skíðaganga út í bláinn. Farið
verður á hagstætt skíðagöngu-
svæði í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins. Fararstj. Bolli Kjart-
ansson.
2. Óvissufjallganga Fararstjóri
velur gott fjall til að ganga á.
Mætið vel búin. Fararstjóri: Jón-
as Haraldsson. Brottför frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinni 6.
Heimkoma um kl. 16.00. Verð
1.000 kr.
Þorraferð og þorrablót í Freys-
nesi 8.-9. febrúar. Fá pláss
laus. Miðar á skrifstofu.
Ferðafélag íslands.
Frá Sálarrannsóknarfélagi
íslands
Sálarrannsókn-
arfélag íslands í
samvinnu við
Erlu Stefánsdótt-
ur, sjáanda, hef-
ur ákveðið að
bjóða mikið veik-
um einstaklingum
og öldruðum upp á einkatíma,
þar sem fjallað verður um dauð-
ann og lífið fyrir og eftir hann frá
sjónarhóli spíritista og þeirra,
sem geta séð yfir landamæri lífs
og dauða.
Einkatímarnir geta verið í hús-
næði SRFl, í heimahúsum eða,
að fengnu leyfi, á sjúkrastofnun-
um. Verð háð aðstæðum hverju
sinni.
Frekari upplýsingar i síma
551 8130 milli kl. 10-12 og
14-16 og á skrifstofunni, Garða-
stræti 8, alla virka daga.
SRFl.
Frá Sálarrannsóknarfélagi
íslands
Huglæknarnir og miðlarnir
Bjarni Kristjánsson, Guðrún
Hjörleifsdóttir, Hafsteinn Guð-
björnsson, Kristin Karlsdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttir, Margrét
Hafsteinsdóttir, María Sigurðar-
dóttir og Þórunn Maggý Guð-
mundsdóttir starfa öll hjá félag-
inu og bjóða upp á einkatíma.
Auk þess býður Bjarni Kristjáns-
son upp á umbreytingafundi fyr-
ir hópa.
Bæna- og þróunarhringir, sem
Friðbjörg Óskarsdóttir leiðir, eru
vikulega á mánudögum og
þriðjudögum.
Bjarni Kristjáns-
á son, miöill og
huglæknir, hefur starfað hjá SRFÍ
á fjórða ár.
Bjarni býður uppá einkatíma vikulega á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Fimmtudaginn 30. janúar kl.
20.30 verður á vegum SRFi op-
inn heilunarfundur með Kristínu
Þorsteinsdóttur í húsakynnum
Sjálfeflis, Nýbýlavegi 30, Kópa-
vogi. Allir velkomnir á meðan
húsrum leyfir. Frjáls framlög.
í mars kemur breski umbreyting-
amiðillinn Diane Elliott og um
mánaðamót maí-júní breski hug-
læknirinn Joan Reid. I mai kemur
velski miðillinn og kennarinn
Colin Kingshot til starfa. Nánar
auglýst síðar.
Frekari upplýsingar í síma
551 8130 milli kl. 10 og 12 og
14 og 16 alla virka daga og á
skrifstofunni, Garðastræti 8.
SRFl.
Dagsferð 26. janúar
kl. 10.30 Raðganga Útivistar.
2. áfangi, Bæjarsker-Stafnnes.
Verð 1.300/1.500.
Dagsferð 1. febrúar
kl. 10.00 Dagsferð jeppadeild-
ar. Valið verður milli þriggja leiða
eftir veðri og færð. Mæting hjá
Nesti í Ártúnsbrekku.
Allir velkomnir.
Dagsferð 2. febrúar
kl. 10.30 Gömul verleið.
Kl. 10.30 Skíðaganga, Mosfells-
heiði, Borgarhólar, Bringur.
Netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
GPS námskeið
27. og 28.janúar
kl. 20.00. Loksins GPS nám-
skeiö. Kennt á tækin, rétt notkun
korta við leiðarval. Komiö með
eigin GPS tæki. Námskeiðið er
haldiö í samvinnu við Björgunar-
skóla Landsbjargar. Verð kr.
2000, öll námsgögn innifalin.
Skráning á skrifstofu Útivistar.
Allir velkomnir.
Áttavitanámskeið
10. og 12. febrúar
kl. 20.00. Kennd verður rétt
meðferð áttavita, kortalestur,
stefna fundin af kortiog sett á
kort, staðsetningar með miðun-
um, misvísun og fleira. Verð
kr. 1.800, innifalið vandað
fræðslurit um rötun.
Skráning á skrifstofu Útivistar.
Allir velkomnir.