Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 1

Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 1
104 SIÐUR B/C 95. TBL. 85. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Major segir einingii Bretlands í hættu London. Morgunblaðið. KOSNINGABARATTAN harðnaði á Bretlandi í gær og gerði John Major forsætisráðherra tilraun til að hrifsa frumkvæðið þegar hann kom óvænt fram fyrir utan breska þingið síðdeg- is með ásakanir um að einingu Bret- lands væri stefnt í voða sigraði Verkamannaflokkurinn. Tony Blair, leiðtogi Verkamanna- flokksins, varaði stuðningsmenn sína við því að láta niðurstöður skoð- anakannana um 15 til 22 prósentu- stiga forskot gera sig værukæra. „Þið verðið að beijast um hvert atkvæði," sagði Blair. „Ef við höld- um ekki vöku okkar eigum við á hættu að vakna á föstudagsmorgun með sama gamla íhaldið við völd.“ Major gerði víðreist í gær, fór bæði til Norður-írlands og Skotlands Bænagerð gegn orku- verunum Ósló. Morgunblaðiö. NORSKIR umhverfisverndar- sinnar, sem beijast gegn áformum stjórnvalda um að reisa fleiri gasorkuver, geta nú vænst aðstoðar „að ofan“. Leiðtogar norsku þjóðkirkjunn- ar hafa samþykkt að biðja alla söfnuðina um að fara með sér- stakar bænir í von um að geta þannig komið í veg fyrir þessar umdeildu framkvæmdir. Forystumennirnir sam- þykktu um helgina að senda bréf til allra safnaðanna 1.350 til að hvetja þá til að taka virk- an þátt í baráttunni gegn gas- orkuverunum. Samdar verða sérstakar bænir af þessu tilefni og stefnt er að því að farið verði með þær við guðsþjón- ustur í öllum kirkjunum á næstu vikum og mánuðum. áður en hann sneri aftur til London. Hann sagði að hættan, sem fylgdi því að Verkamannaflokkurinn næði völdum væri tvíþætt, annars vegar að hann mundi semja af sér þegar fundað yrði um Evrópumálin í Amst- erdam og hins vegar að hugmyndir flokksins um að auka völd Skota og Walesbúa myndu leiða til þess að Bretland leystist upp. „Ef Blair færi til Amsterdam yrði haldin hollensk útsala á breskum hagsmunum," sagði Major og nefndi meðal annars að áætlanir Blairs um að undirrita félagsmálasáttmála Evrópu myndu grafa undan velmeg- un Breta. „Sú stefna Verkamanna- flokksins að veita velska og skoska þinginu aukin völd mundi leiða til sjálfstæðis Skotlands. Hættan er tvíþætt og Bretland gæti leyst upp. Skilaboð mín til bresku þjóðarinnar eru að það eru 72 klukkustundir til stefnu að bjarga sambandinu." Stefnir í stórsigur The Daily Telegraph birtir í dag skoðanakönnun, sem bendir til þess að Verkamannaflokkurinn vinni stórsigur í kosningunum. 51% að- spurðra sagðist ætla að kjósa Verka- mannaflokkinn og 29% Ihaldsflokk- inn. Verði þetta niðurstaða kosning- anna fengi Verkamannaflokkurinn mesta þingmeirihluta sem einn flokkur hefur fengið á Bretlandi á öldinni. ■ Baráttan harðnar/30 Saddam Hussein mærður TUGIR þúsunda íraka tóku þátt í skrúðgöngu í tilefni af 60 ara afmæli Saddarns Husseins Iraks- forseta í heimabæ hans, Tikrit, í gær. „Með blóði okkar og sál skulum við verja þig, Saddam!“ hrópaði mannfjöldinn að við- stöddum öllum æðstu embættis- mönnum landsins, að Saddam sjálfum undanskildum. Ný moska var vígð í bænum í tilefni af afmælinu og hornsteinn að annarri lagður í Bagdad. Dag- blöðin birtu ljóð og greinar þar sem Saddam var lofsunginn sem „blessun frá guði“ og í forystu- greinum var honum hrósað fyrir baráttu gegn „ofríki Bandaríkja- stjórnar" og viðskiptabanni Sam- einuðu þjóðanna vegna innrásar- innar í Kúveit. Hungrirsneyð í Norður-Kóreu Ótti við mannát Peking. Reuter. HUNGURSNEYÐIN í Norður- Kóreu er svo mikil, að fólk reynir að selja utan af sér flík- urnar fyrir mat; sumir læðast yfir til Kína til að stela skepnu- fóðri og dæmi eru um, að fólk bíði með að jarðsetja látna ást- vini sína af ótta við, að líkin verði grafin upp og étin. Er þetta haft eftir fólki, sem er nýkomið frá landinu. „Astandið er skelfilegt. Fólk hefur engin önnur matvæli en korn og lítið af því. Þess vegna reyna sumir að selja utan af sér fötin fyrir mat,“ sagði kín- versk kona af kóreskum ætt- um, sem nýlega heimsótti syst- ur sína handan landamæranna. Astandið er langverst í norð- urhluta N-Kóreu. Kínveijar segja, að ástandið versni stöð- ugt. Nefna þeir sem dæmi, að n-kóreskir bændur bíði með að grafa látna ástvini sína þar til líkin hafi þornað upp og því ólíklegra, að þau verði grafin upp og étin. Járnvír í nefið Eitthvað er um, að N-Kóreu- menn komist yfir landamærin til Kína en náist þeir er þeim refsað harðlega. „Norður-kór- esku lögreglumennirnir setja járnvír I gegnum nefið á þeim, sem reyna að flýja, þannig, að þeir eru eins og brennimerkt- ir,“ hafði kínverskur ferðamað- ur eftir íbúa í n-kóresku landa- mæraborginni Yanji. Sagði hann, að börnum væri ekki hlíft við þessum pyntingum. Catherine Bertini, fram- kvæmdastjóri Matvælaaðstoð- ar Sameinuðu þjóðanna, sagði í Róm í gær, að yrði ekkert að gert, væri hætta á meiri harm- leik í N-Kóreu en dæmi væru um í marga áratugi. Þúsundir rúandískra hútúa snúa aftur í flóttamannabúðir í norðausturhluta Zaire Flúðu grimmileg- ar árásir þorpsbúa Nairobi, Kisangani. Reuter. ÞÚSUNDIR rúandískra hútúa sneru aftur í flóttamannabúðir sunnan við borgina Kisangani í Zaire í gær og sögðust hafa flúið þaðan vegna grimmilegra árása íbúa þorpa í grenndinni og upp- reisnarmanna. Starfsmenn hjálparstofnana og fréttamenn fengu að skoða búðirn- ar og sáu þar tugi rotnandi líka hútúa, sem höfðu verið of veik- burða til að geta flúið. Mörg lík- anna voru augljóslega með sár eft- ir sveðjur. Um 100.000 rúandískir hútúar flúðu í skóga nálægt búðunum í vikunni sem leið og um 5.000 þeirra sneru aftur í gær. Nokkrir þeirra sögðu að hundruð tíka væru í skóg- unum og starfsmenn hjálparstofn- ana sögðu að tugir flóttamanna til viðbótar lægju fyrir dauðanum vegna sjúkdóma eða sára. Veikuni börnum rænt Laurent Kabila, leiðtogi upp- reisnarmannanna, samþykkti á sunnudag að heimila hjálparstofn- unum að leita að flóttamönnunum og krafðist þess að þær flyttu hútú- ana aftur til Rúanda innan tveggja mánaða. Talsmenn hjálparstofnana sögðu það ógjörning að verða við þeirri kröfu á svo skömmum tíma. Auk flóttafólksins nálægt Kis- angani er enn ekkert vitað urn afdrif 300.000 flóttamanna frá Rúanda og Búrúndí í Zaire. Hjálparstofnanir skýrðu frá því í gær að menn í herbúningum hefðu rænt 50 rúandískum börnum úr sjúkrahúsi í bænutn Lwiro á yfirráðasvæði uppreisnarmanna í austurhluta Zaire á laugardag. Óttast er að börnin hafi verið myrt. Reuter VANNÆRÐUR rúandískur hútúi býður eftir matvælum í flótta- mannabúðum nálægt borginni Kisangani í Zaire. Hann er á með- al 5.000 hútúa seni sneru aftur í búðirnar í gær og sögðust hafa flúið þaðan í vikunni seni leið vegna árása íbúa nálægra þorpa sem hefðu notið aðstoðar uppreisnarmanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.