Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 6

Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tekist á við kjör fyrsta varaformanns Bandalags starfsmanna ríkis og bæja Sjöfn sigraði Björgu með 149 atkv. gegn 59 Morgunblaðid/Ásdís FULLTRÚAR á 38. þingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sem lauk með stjórnarkosningu síðastliðinn sunnudag. Skiptar skoðanir á samningi SFR TEKIST var á um embætti fyrsta varaforseta BSRB við stjórnarkjör á lokadegi þings BSRB á sunnu- dag. Kjörnefnd þingsins klofnaði í tillögugerð til þingsins, meirihluti nefndarinnar gerði tillögu um Sjöfn Ingólfsdóttur, formann Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, en hún var fyrsti varafor- maður á síðasta kjörtímabili. Minnihluti kjörnefndar mælti hins vegar með Björgu Bjarnadóttur, formanni Félags íslenskra leik- skólakennara. Úrslit atkvæðagreiðslu á þing- inu urðu þau, að Sjöfn sigraði og fékk 149 atkvæði en Björg fékk 59. Ragnhildur Guðmundsdóttir sem verið hefur annar varaformað- ur BSRB, gaf ekki kost á sér og gerði kjörnefnd tillögu um Jens Andrésson, formann Starfsmanna- félags ríkisstofnana. Ekki komu fram önnur framboð og var Jens sjálfkjörinn. Ögmundur Jónasson var endurkjörinn formaður BSRB á þinginu. í kjöri 18 fulltrúa í stjórn BSRB féll Guðmundur V. Óskarsson, Landssambandi slökkviliðsmanna, sem var á lista yfir þá sem kjör- nefnd gerði tillögu um, og í hans stað var Ragna Jóhannsdóttir, Starfsmannafélagi Sauðárkróks, kjörin í stjórn BSRB. „Fagfélögin biðu lægri hlut“ Að mati Bjargar Bjarnadóttur biðu fagfélögin innan BSRB lægri hlut í stjórnarkosningum fyrir full- trúum blönduðu aðildarfélaganna. Hún sagði í samtali við Morgun- blaðið að fagfélög innan BSRB hefðu staðið á bak við framboð hennar og hún hefði litið á sig sem talsmann þeirra. „Ég túlka niður- stöðu kosninganna þannig að áfram sé mikill meirihlutavilji fyrir því innan bandalagsins að tals- menn þessara hópa eigi ekki að vera í framvarðarsveitinni. Það kom einnig í ljós í stjórnarkjörinu en þar var annar fulltrúi þessara hópa felldur og inn kom áttundi fulltrúi samflotsfélaga starfs- manna sveitarfélaga," segir Björg. Aðspurð segir Björg að í vetur hafi verið vangaveltur um framtíð- arskipulag og stefnu Félags ísl. leikskólakennara, þar sem m.a. hafi verið rætt um með hvaða hóp- um hagsmunum félaganna væri best borgið. Sagði hún að þessar niðurstöður og málin í heild sinni yrðu rædd á fulltrúaráðsþingi fé- lagsins 9. og 10. maí. Málefnalegur ágreiningur Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að skiptar skoðanir hafi verið innan hreyfingarinnar um árabil í hvora áttina ætti að ganga, að varðveita og efla bland- aða félagsformið eða efla fagstétt- arfyrirkomulagið. „Um þetta er málefnalegur ágreiningur sem menn telja að hafi birst í kosningum til stjórnar. Þetta er sjónarmið sem ber að virða en hins vegar vil ég leggja áherslu á að það má ekki alhæfa um of. Innan stjórnarinnar eru fulltrúar úr fagstéttarfélögum og blönduð- um félögum," segir Ögmundur. STAÐAN í samningamálum kom lítiö til umræðu á nýafstöðnu þingi BSRB. Mörg aðildarfélög eiga enn ósamið en um það leyti sem þingið hófst skrifaði stærsta aðildarfélag- ið, Starfsmannafélag ríkisstofn- ana, undir nýjan kjarasamning við ríkið. Af rnáli nokkurra þingfull- trúa mátti ráða að skiptar skoðan- ir eru á samningnum. „Frá því fyrstu samningar voru gerðir var vitað að viðsemjandinn myndi reyna að koma öllum í svip- aðan farveg. Út úr honum fara menn ekki í neinum grundvallar- atriðum nema með átökum, ef þeir eiga ekki eitthvað upp á pallborðið hjá viðsemjandanum að öðru leyti,“ segir Ögmundur Jónasson, formað- ur BSRB. „Áhugi félaganna er mjög mis- munandi á að fara inn á nýjar braut- ir varðandi launakerfisbreytingar. Það er komið undir hverju félagi fyrir sig hvernig það metur stöðuna að þessu leyti,“ segir Ögmundur. Björg Bjarnadóttir, formaður Fé- lags leikskólakennara, segir að lítið hafi miðað í kjaraviðræðum félags- ins við viðsemjendur. „Viðræður eru rétt að fara af stað eftir að Reykja- víkurborg lagði loksins til hliðar hugmyndir sínar um nýtt launa- kerfí," segir hún. Björg segir samn- inga SFR engin áhrif hafa á kjara- viðræður félagsins. „Við höfnum alfarið þessu launakerfi," segir hún. Ályktun BSRB um sjávarútvegsmál Ríkið taki gjald fyr- ir afla- heimildir „BSRB telui' að sníða eigi gallana af fiskveiðistjórnuninni og breyta kerfinu þannig að ríkið taki gjald fyrir aflaheimildir. Allur afli skal fara um innlenda fískmarkaði, svo eðlileg verðmyndun verði á aflanum auk þess sem eftirlit verður skilvirkara," segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á þingi BSRB um efnahags- og atvinnumál. í kafla ályktunarinnar um sjávar- útvegsmál er áréttuð sú stefna bandalagsins sem samþykkt var á bandalagsráðstefnu í nóvember 1995. í ályktuninni sem samþykkt var á þinginu um helgina segir m.a. „Núverandi fískveiðistjórnunarkerfí hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Kvótinn hefur safnast á fáar hendur, umgengnin við auðlindina er slæm, sóunin í kerfmu er mikil og kerfið hefur stuðlað að því að útgerðarmenn eru farnir að líta á kvótann sem sína eign. Þar af leiðandi er kerfið lokað og engin endurnýjun á sér stað meðal útgerðaraðila." Styður veiðileyfagjald Morgunblaðið spurði Ögmund Jónasson, formann BSRB, sem er jafnframt þingmaður Alþýðubanda- lagsins og óháðra, hvort hann styddi þá stefnu að ríkið taki gjald fyrir aflaheimildir. „Já, ég styð það,“ sagði Ögmundur. „Ég er mjög ein- dregið þeirrar skoðunar að taka verði fiskveiðistjórnunarkerfið til endurskoðunar og tel að það sem er að gerast á þessu sviði, brask með auðlindina og lög sem treysta yfirráð útgerðarinnar yfir kvótanum, með því að heimila þeim veðsetn- ingu, sé mjög alvarlegur hlutur,“ svaraði Ögmundur. Uppstokkun í stjórn Landsvirkjunar í kjölfar breytinga á lögum um fyrirtækið TALSVERÐ uppstokkun varð í stjórn Landsvirkjunar á ársfundinum í gær í kjölfar þeirra breytinga sem gerðar voru á lögum um fyrirtækið á síðasta alþingi. Skipt var um stjóm- arformann; Jóhannes Geir Sigurgeir- son, fyrrum alþingismaður og stjóm- arformaður KEA, tók við af Helgu Jónsdóttur, borgarritara, en hún hafði gegnt formennsku síðan í júlí 1995 þegar Jóhannes Nordal lét af formennsku. Iðnaðarráðherra skip- aði nú í fyrsta skipti sjálfur alla full- trúa ríkisins í stjóm fyrirtækisins og skipun hans sætti í gær harðri gagn- rýni Svavars Gestssonar alþingis- manns, sem nú gekk úr stjórninni. Hann sakaði Finn Ingólfsson um að ijúfa drengskaparsamkomulag um að fulltrúar allra stjómmálaflokka ættu aðild að stjóm fyrirtækisins. Þar til nú hafa setið níu manns í stjórn Landsvirkjunar; fjórir til- nefndir af ríkinu, sem á 50% hlut í Landsvirkjun, þrír tilnefndir af Reykjavíkurborg, sem á 44,525% og einn af Akureyrarbæ, sem á 5,475%. Níundi maðurinn var for- maður og um hann komu eigendur sér saman. __________ Eftir að lögum var breytt í desember sl. eru stjórnarmenn sjö. Reykjavík á áfram þijá fulltrúa og Akureyrar- — bær einn en fulltrúar ríkisins eru nú þrír, og er einn þeirra formaður með tvöfalt atkvæðavægi. Áður kaus Alþingi fulltrúa ríkisins til fjögurra ára í senn en nú eru þeir allir, að formanni meðtöldum, til- nefndir af iðnaðarráðherra. Eins og fyrr sagði er Jóhannes Geir Sigurgeirsson nýr formaður en hann hefur setið í stjórn Landsvirkj- unar í 2 ár. Auk hans tilnefndi ráð- Ráðherra sakaður um að rjúfa samkomulag Breytingar á umhverfi Landsvirkjunar herra í stjómina Árna Grétar Finns- son, hæstaréttarlögmann, sem setið hefur lengi í stjórninni, og Sigfús Jónsson, fyrrum bæjarstjóra á Akureyri. Svavar Gestsson alþingismaður sat einnig í fyrri stjórn sem fulltrúi ríkisins og einnig Sturla Böðvarsson alþingismaður. Ekki varð breyting á fulltrúum sveitarfélaganna á ársfundi Lands- virkjunar í gær. Fulltrúar Reykja- víkurborgar eru eftir sem áður Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Pétur Jónsson og Kristín Einarsdóttir. Fulltrúi Akureyrarbæjar er Jakob Björnsson. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, sagðist í samtali við Morgunblaðið _________ fyrst og fremst mundu byggja í starfi sínu sem stjórnarformaður á þeirri reynslu sem hann hefði fengið af 2 ára stjómar- “1"" setu. „Fyrirtækið er í mjög föstum skorðum og það eru mjög stór verkefni í gangi,“ sagði hann. Jóhannes Geir sagði ljóst að ýmsar breytingar væru að verða á umhverfi Landsvirkjunar. „Við erum farnir að sjá nú þegar aukna samkeppni um raforkuframleiðsl- una þótt ég telji að sígandi lukka sé best á því sviði." Helga Jónsdóttir, fráfarandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, sagði að sér fyndust mannaskipti í stjórn fyrirtækisins eðlileg afleiðing lagabreytingarinnar. Ríkið eigi nú eingöngu þijá fulltrúa í stjórn og eigi réttinn á að skipa eitt og sér stjórnarformann. „Ég verð að segja það að mér finnst það út af fyrir sig afskaplega eðlilegt að það sé ekki borgarritarinn í Reykjavík," sagði Helga. Hún tók við for- mennsku 1. júlí 1995 og sagði að auðvitað væru það ákveðin von- brigði að hafa verið valin til starfs í fjögur ár og telja sig vera að taka við því í fjögur ár og þurfa síðan að hverfa frá því á miðju tímabili. Brotið blað Svavar Gestsson, alþingismaður og fráfarandi stjórnarmaður í Landsvirkjun, Iagði fram bókun á ársfundi fyrirtækisins í gær þar sem segir að með skipun ráðherra í stjórn Landsvirkjunar sé brotið blað í sögu fyrirtækisins. Leitast hafi verið við að tryggja að stjórn Landsvirkjunar endur- speglaði hinn pólitíska vilja lands- manna enda sé fyrirtækið þjóð- areign. „Hefur tekist nær alltaf frá stofnun að tryggja breiða pólitíska aðild að stjórn fyrirtækisins þar sem öll helstu stjórnmálaöfl lands- ins hafa átt fulltrúa," segir í bókun- inni. „Hér hefur verið um að ræða drengskaparsamkomulag milli for- ystumanna flokkanna sem allir hafa lagt áherslu á að halda." Síðan segir að frá þessum árs- fundi hafi skipt um. Samtök um kvennalista hafi einn mann í nýrri stjórn, Framsóknarflokkurinn þijú atkvæði þegar á reynir, Sjálf- stæðisflokkurinn tvö og Alþýðu- flokkurinn tvö en Alþýðubandalag- ið ekkert. „Hér er því brotið blað í sögu fyrirtækisins." „Lagabreytingarnar sem voru knúnar fram sl. vetur byggðust að sögn iðnaðarráðherra á því að skapa leið til faglegri skipunar stjórnar fyrirtækisins. Hann hefur nú sjáifur hafnað þeirri leið með því að skipa varaþingmann Fram- sóknarflokksins í formennsku með tvígilt atkvæði í stjórn___________________ Landsvirkjunar. í um- |\|ýt| og ferskt ræðunum um þessar h■ nA inn í breytingar á Alþingi var- . aði Alþýðubandalagið við Tyrirtæklö því mikla valdi sem væri mín ákvörðun," sagði hann að- spurður um ástæður mannabreyt- inga í formennsku og stjórn. Þetta var niðurstaðan „Ákvörðunin byggist á því að halda inni í fyrirtækinu mönnum sem hafa langa reynslu af setu í stjóm fyrirtækisins, fá inn mann sem hefur mikla reynslu sem stjómarformaður fyrirtækis, sem er Jóhannes Geir, og líka nýtt og ferskt blóð inn í fyrir- tækið en auk þess þekkir Sigfús Jónsson fyrirtækið mjög vel frá því hann var bæjarstjóri á Akureyri. Þetta var niðurstaðan." Finnur sagði að þótt breytingin væri talsverð teldi hann að Helga Jónsdóttir hefði staðið sig „alveg gríðarlega vel sem stjórnarformaður fyrirtækisins þessi tvö ár. Það kann að koma á óvart að verið sé að gera breytingar núna þegar verið hefur eitt besta ár í sögu félagsins en Helga Jónsdóttir er borgarritari og þess vegna starfsmaður Reykja- víkurborgar. Borgin á þijá fulltrúa í stjórninni og með því að skipa hana líka sem formann var ég _ hræddur um að það gæti skapast óþarfa tortryggni milli landshluta um þetta fyrirtæki. Það hefur örlað á slíkri tortryggni í kring- um þessar lagabreytingar með þessu lagt í hendur ráðherra. Augljóst er nú að þessar áhyggjur Alþýðubandalagsins voru á rökum reistar,“ segir í bókun Svavars. Finnur Ingólfsson, iðnaðarráð- herra sagði að það hefði verið ákvörðun Alþingis í samráði við eignaraðila að fækka í stjórn fyrir- tækisins. „Þá stendur maður frammi fyrir því að velja úr hópi hæfileikaríkra manna og þetta var og ég vildi koma í veg fyrir að það mundi gerast.“ Hann kannaðist ekki við óskráð drengskaparsamkomulag um að all- ir stjórnmálaflokkar ættu ítök í stjórninni. Sagði að Þjóðvaki ætti ekki fulltrúa í núverandi eða fráfar- andi stjórn og að bæði Kvennalisti og sennilega einnig Alþýðuflokkur hefðu verið án fulltrúa í stjórn Landsvirkjunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.