Morgunblaðið - 29.04.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.04.1997, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Sífellt stærri hlutar islands ÞAÐ er kannski orðið tímabært að söðla um, sleppa Pacardinum og strútaræktinni og snúa sér að skipum eyðimerkurinnar, kameldýrunum??? Fimm hrepptu fyrsta vinning í Lottóinu Rétt röð seld í söluturn- inum Gerplu í ellefta skipti FYRSTI vinningur í Lottóinu á laugardaginn varð 34 milljónir króna í sexföldum potti, sem er hæsta upphæðin í sögu íslenskrar getspár. 1,6 milljónir raða seldust í söluturnum landsins og væntan- lega var áhorf á Lottó 5/38 í Sjón- varpinu óvenjumikið þetta kvöld, en fimm hrepptu pottinn og fá 6,8 milljónir hver. Réttu tölurnar voru seldar í Kaupfélaginu á Hvammstanga, Bílanesti Mosfellsbæ, Shellskálan- um á Höfn, Bónusi Holtagörðum og Gerplu við Sólvallagötu í Reykja- vík og er það í ellefta skiptið sem fyrsti vinningurinn fellur viðskipta- vini þar í skaut. Raðir seldust fyrir 30 milljónir á Sólvallagötunni. í Gerplu voru líka handhafar tveggja bónusvinninga en 17 hlutu hann og verða tæplega 150 þúsund krónum ríkari. 421 lottóspilari fékk 10 þúsund krónur fyrir fjóra rétta. AR FOSTUDAGINN 2. MAI KL. 20.00 Helgi Hjörvar formað- ur Blindrafélagsins • • Oryrkjar fá ekki lág- markslaun Glæsileg hljómsveitamk sem kynnt vetða á tónleikunum Skemmtun - fræðsla - upplifun Síðast kom Sigrún Hjálmtýsdóttir óvænt fram, hvað verður nú? SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS(®) Háskólabíói viö Hagatorg, sími 562 2255 MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HLJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN HELGI Hjörvar var kosinn formaður á aðalfundi Blindrafélagsins sumar- daginn fyrsta. Aðrir í framboði voru Halldór S. Guðbergsson og Ómar Stefánsson. Helgi tekur við af Ragn- ari R. Magnús- syni. Á aðalfundin- um vár samþykkt að gera kröfu um að örorkubætur fylgi lágmarks- launum í landinu sem á næstu árum verða 70 þúsund krónur. „Ráðamenn hafa sagt að lífeyris- þegar fái meðaltalsprósentuhækkun úr kjarasamningum,“ segir Helgi Hjörvar. „Lágmarkslaun eru hins vegar að hækka miklu meira en laun Helgi Hjörvar að meðaltali. Þetta er orðaleikur til að skilja öryrkjana eftir, svo þeir hafi minna á milli handanna en aðr- ir sem lág laun hafa. Örorkubæturn- ar verða þegar fram í sækir 10-20% undir lágmarkslaunum.'1 Einnig var samþykkt á fundinum að rýmka aðalfélagsaðild og geta sjónskertir nú orðið aðalfélagar. Vöruþróun 1997 Þróun hug- myndar í mark- aðshæfa vöru Sævar Kristinsson VERKEFNIÐ Vöru- þróun 1997 er sjötta vöruþró- unarverkefnið sem Iðn- tæknistofnun hefur umsjón með frá árinu 1988 en verkefnið er hluti af „Átaki til atvinnusköpunar" sem er samstarfsverkefni iðn- aðar- og viðskiptaráðu- neytis, Iðnlánasjóðs og Iðn- þróunarsjóðs. Sævar Krist- insson, verkefnisstjóri hjá Iðntæknistofnun, hefur umsjón með verkefninu Vöruþróun 1997. —Hvað felst í verkefninu Vöruþróun 1997 „í verkefninu Vöruþró- un 1997 gefst fyrirtækjum úr öllum starfsgreinum kostur á að fá aðstoð við að þróa vöru frá hugmynd að markaðsfærslu, vöru sem get- ur til að mynda verið hlutir, hug- verk, unnin efni eða þjónusta. Þátttakendum verður veitt fjár- hagsleg og fagleg aðstoð við þró- un vörunnar svo þau geti komið samkeppnishæfri vöru á markað innan tveggja ára frá upphafi verkefnisins. í verkefninu verður lögð áhersla á faglega aðstoð, bæði við stjórnun verkefnisins og þró- un viðkomandi vöru. Jafnframt verður reynt að vinna á þann hátt að þróunartíminn verði sem stystur svo að varan komist á markað sem fyrst innan þeirra tveggja ára sem verkefnið hefur til að skila árangri. Við leggjum mikla áherslu á markaðsþáttinn því fyrirtæki geta haft góðar hugmyndir en gera sér ekki grein fyrir því hvernig hægt er að koma hug- myndinni á framfæri og gera hana söluhæfa. Við leiðbeinum þátttakendum í gegnum allt ferl- ið, frá þróun hugmyndar í mark- aðshæfa vöru. I fyrsta lagi að- stoðum við fyrirtækin við að þróa vöruna í þau tvö ár sem verkefn- ið stendur yfir. í öðru lagi erum við að innleiða hjá þeim ákveðna hugmyndafræði þar sem við kom- um inn sem einskonar þróunar- stjórar og aðstoðum þátttakendur við að breyta hugmynd í vöru m.a. með því að fá starfsmenn fyrirtækisins til þess að skilja mikilvægi markaðsstarfs og vöruþróunar. Hins vegar reynum við ekki að hafa vit fyrir mönnum enda hafa þeir miklu meiri þekk- ingu á viðkomandi hugmynd en við. Þegar verkefninu lýkur eftir tvö ár þá væntum við þess að aðferðafræðin sem við höfum verið að innleiða á meðan verk- efnið stendur yfir sitji eftir og hún verði áfram til staðar innan viðkomandi fyrirtæk- is.“ —Hvaða fjárhagslega stuðning fá verkefnin? „Þau verkefni sem verða samþykkt hljóta styrk er nemur 25% af viður- kenndum kostnaði, en þó að há- marki eina milljón króna. Jafn- framt geta verkefnin fengið áhættulán frá Iðnlánasjóði eða Iðnþróunarsjóði samkvæmt regl- um sjóðanna, sem nemur 50% af áætluðum kostnaði. Með lánveit- ingu sjóðanna er komist hjá því að vöruþróunin trufli rekstur fyr- irtækjanna fjárhagslega. Þetta ► Sævar Kristinsson er fædd- ur 8. ágúst 1960 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamra- hlíð 1980 og lauk námi í við- skiptafræði frá Háskóla ís- lands 1986. Sævar var fram- kvæmdastjóri hjá Max í 16 ár en hóf störf sem verkefnis- stjóri hjá Iðntæknistofnun i júlí 1996. Sævar er kvæntur Eygló Jónsdóttur, söluráðgjafa hjá Halldóri Jónssyni og eiga þau tvo syni. gerir það að verkum að fyrirtæk- in geta farið út í miklu stærri verkefni en þau gætu að öðrum kosti. Þannig að þau geta komið á markað vöru sem að öðrum kosti væri ekki mögulegt að þróa. Því miður komast einungis tíu fyrirtæki að í Vöruþróun 1997 en fyrri verkefni sem hafa tekið þátt í henni eru um sjötíu talsins og þau hafa skilað hundraða milljóna króna veltu inn í þjóðfé- lagið. Þannig að vöruþróunar- verkefnin hafa sannað gildi sitt.“ —Hvetjir geta sótt um þátttöku? „Eins og hér kom fram að ofan þá er Vöruþróun 1997 opin öllum starfsgreinum. Fyrirtæki sem búa yfir hugmynd að vöru eða þjónustu, sem þau telja að feli í sér verulegt nýnæmi og ábata fyrir rekstur sinn, geta sótt um. Við krefjumst þess af hugsanleg- um þátttökufyrirtækjum að þau geti sýnt fram á fjárhagslegan styrkleika við að Ijúka þróunar- vinnunni og að þau geti og vilji ná viðunandi árangri. í fyrri vöruþróunarverkefnum hafa fyrirtækin sem hafa tekið þátt komið úr ýmsum áttum s.s. hugbúnaðargeiranum, smiðjur, sjávarútvegsfyrirtæki og svo mætti lengi telja. Umsóknarfresturinn rennur út núna 1. maí en umsóknareyðu- blöð er hægt að nálgast hjá Iðntæknistofnun og öllum iðn- og atvinnur- áðgjöfum á landinu. Starfsmenn Iðntækni- stofnunar og atvinnur- áðgjafar aðstoða við að fylla út umsóknina sé þess óskað. Við mat umsókna gilda reglur Iðnlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs. Allar umsóknir eru teknar til at- hugunar hjá stjórn verkefnisins. Reynt verður að flýta umfjöllun stjórnar þannig að væntanlega mun niðurstaða stjórnar um hveijir komast að í Vöruþróun 1997 liggja fyrir í lok maí.“ Veitt fjár- hagsleg og fagleg aðstoð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.