Morgunblaðið - 29.04.1997, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/N.P. Arskog
BALDUR Hjaltason, framkvæmdastjóri Lýsis hf., og Xia Yan, forstjóri China Peace Corporation, undirrita samstarfssamning um sölu ís-
lenzkra lýsisperlna í Kína. Á meðal þeirra, sem fylgjast með, eru Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og Hjálmar W. Hannesson,
sendiherra Islands í Kína.
Viðhöfn við undirritun samnings um sölu íslenzks lýsis til Kína
Islendingar fá hlýrri
móttökur en Danir
Islendingar fá ólíkt hlýrri móttökur í Kína þessa
dagana en Danir, skrifar danski blaðamaðurinn
Niels Peter Arskog, sem fylgdist með undirritun
samnings við Lýsi hf. í Peking.
Stöðvuðu
drukkinn
viðskiptavin
STARFSMÖNNUM veitingahúss
við Hraunberg leist illa á ástand
drukkins viðskiptavinar sem þar
var síðdegis á sunnudag, þegar
ljóst var að hann hygðist aka á
brott. Þeim tókst með útsjónarsemi
að hindra viðskiptavininn í að halda
af stað á bifreið sinni.
Maðurinn lét ekki segjast við
fortölur svo starfsmennirnir
brugðu á það ráð að taka kveikju-
þráð úr bifreiðinni og gera hana
þannig ógangfæra.
Viðskiptavinurinn sá sitt
óvænna og neyddist til að fara
gangandi heim til sín. Heimili hans
reyndist vera spölkorn frá.
-----♦ ♦------
Pörupiltar í
þjófnaði o g
íkveikju
TVEIR ellefu ára drengir voru
færðir í hendur foreldra eftir að
hafa verið staðnir að því að stela
veski af konu í verslun við Brautar-
holt um helgina.
Þá voru tveir piltar handteknir
í Vonarstræti við ráðhúsið eftir að
hafa kveikt þar í rusli. Ekkert tjón
hlaust af. Piltarnir voru fluttir á
lögreglustöð þangað sem foreldar
þeirra sóttu þá.
Loks voru þrír ungir piltar staðn-
ir að því að reyna að brjótast inn
í birgðageymslu í Mosfellsdal. Þeir
voru færðir í hendur foreldra sinna.
-----♦ ■«-----
Slys á skíða-
mönnum
STÚLKA féll á skíðum í Skálafelli
á föstudag með þeim afleiðingum
að hún var talin hafa fótbrotnað
og var því flutt á slysadeild.
Önnur stúlka datt á skíðum í
Bláfjöllum og meiddist á mjöðm.
Hún var einnig flutt á slysadeild.
Loks fór skíðamaður í Bláijöllum
úr axlarlið eftir byltu.
LÝSI hf. undirritaði á föstudag sam-
starfssamning við kínverska fyrir-
tækið China Peace Corporation, um
innflutning og markaðssetningu á
lýsisperlum fyrirtækisins. Undirrit-
un samningsins var slegið upp af
hálfu kínverskra stjórnvalda og at-
höfnin haldin í þinghúsi Kína, Al-
þýðuhöllinni við Torg hins himneska
friðar. Viðstödd voru Ingibjörg
Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra ís-
lands, og Yin Da Kui, aðstoðarheil-
brigðisráðherra Kína.
Danmörk sett
út í kuldann
Kínveijar telja að á meðal 1.200
nnlljóna landsmanna sé mikil þörf
fyrir lýsisvörur. Lýsisperlurnar
verða fyrsta íslenzka merkjavaran,
sem seld verður í stórmörkuðum um
allt Kínaveldi.
Athöfnin sem 90 íslenzkum og
kínverskum gestum var boðið til, var
í hróplegri mótsögn við þá meðferð,
sem önnur norræn þjóð fær í Kína
þessa dagana. Kínversk stjórnvöld
hafa sett Danmörku, sem annars
hefur haft mjög vinsamleg sam-
skipti við Kína frá því snemma á
sjötta áratugnum, út í kuldann eftir
að Niels Helveg Petersen utanríkis-
ráðherra lagði fram ályktunartil-
lögu, sem var harðorð í garð Kína,
í mannréttindaráði Sameinuðu þjóð-
anna í Genf fyrir hálfum mánuði.
Heimsóknum danskra ráðherra
hefur verið aflýst og nýhöfnu sam-
starfi Danmerkur og Kína í dóms-
málum hætt. Dönsk fyrirtæki í Kína
hafa tapað pöntunum fyrir milljónir
danskra króna eftir hið umdeilda
frumkvæði dönsku stjórnarinnar.
Þrátt fyrir að íslenzka ríkisstjórn-
in hafi stutt ályktun Dana um mann-
réttindi hafa Kínveijar tekið bæði
íslenzka heilbrigðisráðherranum og
íslenzkum athafnamönnum opnum
örmum.
Framkvæmdastjóri Lýsis, Baldur
Hjaltason, og forstjóri China Peace
Corporation, Xia Yan, undirrituðu
samninginn um sölu íslenzks lýsis
til Kína. Bæði íslenzki og kínverski
ráðherrann létu við þetta tækifæri
í ljós vonir um aukið og enn nánara
samstarf og traustari vmáttu land-
anna tveggja.
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
FRA afhendingu fálkaorðunnar.
Heiðrað fyrsta sumardag
VIÐ athöfn á Bessastöðum sumar-
daginn fyrsta, 24. apríl, tilkynnti
forseti íslands að hann hefði sæmt
eftirtalda íslendinga heiðurs-
merki hinnar íslensku fálkaorðu:
Arnór Pétursson, riddarakrossi
fyrir störf að íþróttamálum fatl-
aðra; Björk Guðmundsdóttur, tón-
listarmann, riddarakrossi fyrir
tónlistarstörf; Guðríði Elíasdótt-
ur, fv. formann verkakvennafé-
lagsins Framtíðarinnar, riddara-
krossi fyrir störf að verkalýðsmál-
um; Jóhannes Jónsson, kaupmann,
riddarakrossi fyrir verslunar-
störf; Margréti Jónsdóttur, for-
stöðukonu, riddarakrossi fyrir
störf að félags- og velferðarmál-
um; Olaf G. Einarsson, forseta
Alþingis, stórriddarakrossi fyrir
störf í opinbera þágu; Pétur Þor-
steinsson, fv. skólastjóra, riddara-
krossi fyrir störf á sviði tölvumála
og upplýsingatækni; Sigríði Ey-
þórsdóttur, leiksljóra og kennara,
riddarakrossi fyrir brautryðj-
andastarf að leiklist þroskaheftra;
séra Sigurð Helga Guðmundsson,
sóknarprest, stórriddarakrossi
fyrir störf að félags- og öldrunar-
máluni; Þórarin Tyrfingsson,
lækni, riddarakrossi fyrir for-
varnir og meðferð við áfengis-
og fíkniefnasjúka; Þórunni
Björnsdóttur, tónmenntakennara,
riddarakrossi fyrir störf að tón-
listar- og uppeldismálum.
Fjarverandi afhendingu fálka-
orðunnar voru Þórarinn Tyrfings-
son og Björk Guðmundsdóttir sem
eru erlendis og Arnór Pétursson
vegna veikinda. Móðir Bjarkar
Guðmundsdóttur tók við fálkaorð-
unni fyrir hennar hönd.
Um 90 manns ætla að skrá sig úr Ingólfi í Hveragerði
Ihuga að stofna félag
sjálfstæðislaunþega
TÆPLEGA 90 manns voru búnir
að skrá nafn sitt á undirskriftalista,
í gær, þess efnis að þeir ætli að
segja sig úr Sjálfstæðisfélaginu Ing-
ólfi í Hveragerði, að sögn Ingu Lóu
Hannesdóttur, einnar þeirra sem
standa að undirskriftasöfnuninni.
Inga Lóa segir að með þessu séu
menn fyrst og fremst að mótmæla
þeim vinnubrögðum sem viðhöfð
voru af hálfu stjórnar sjálfstæðisfé-
lagsins á íélagsfundi í síðustu viku,
þegar stjórnin kom með tillögu um
að vísa öllum fjórum bæjarfuiltrúum
Sjálfstæðisflokksins úr Sjálfstæðis-
félaginu Ingólfi og einnig að dag-
skrárbreyting hefði verið gerð, „öll-
um að óvörum“, á sama fundi þess
efnis að kosið yrði þegar í uppstill-
inganefnd vegna sveitarstjórnar-
kosninga í maí 1998.
Inga Lóa segir að söfnun undir-
skriftanna standi enn yfir og að
þeim verði væntanlega skilað til
Björns S. Pálssonar, formanns Sjálf-
stæðisfélagsins Ingóifs, á næstu
dögum.
Björn sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í gær ekki geta tjáð sig
um undirskriftasöfnunina þar sem
hann væri ekki búinn að fá uppsagn-
irnar í hendur. Hann sagðist hins
vegar hafa fengið tvær skriflegar
úrsagnir úr sjálfstæðisfélaginu eftir
félagsfundinn í síðustu viku, en ríf-
lega 250 manns eru nú skráðir í
sjálfstæðisfélagið.
íhuga að stofna félag
sjálfstæðislaunþega
Gísli Páll Pálsson, forseti bæjar-
stjórnar og einn fjórmenninganna
sem var vikið úr félaginu, segir að
til standi að stofna nýtt sjálfstæðis-
félag í Hveragerði, en ekki væri
búið að taka ákvörðun um hverrar
tegundar slíkt félag yrði.
I skipulagsreglum Sjálfstæðis-
flokksins segir að ekki megi stofna
og starfrækja fleiri en eitt sjálfstæð-
isfélag sömu tegundar á sama fé-
lagssvæði. í Hveragerði eru tvær
tegundir sjálfstæðisfélaga, annars
vegar almennt félag sjálfstæðisfólks,
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur og hins
vegar félag ungs sjálfstæðisfólks.
Samkvæmt skipulagsreglum væri
einnig hægt að stofna félag sjálf-
stæðiskvenna og félag sjálfstæðis-
launþega, þ.e. félag sjálfstæðisfólks
innan launþegasamtaka, eins og
ASÍ, BSRB og fleiri. Gísli Páll segir
að til greina komi að stofna félag
sjálfstæðislaunþega, en ekki sé enn
búið að ákveða hvort eða hvenær
svo verði.
-----♦■■♦ ♦----
Hallgr ímskir kj a
Sex sóttu
um stöðu að-
stoðarprests
SEX umsækjendur voru um stöðu
aðstoðarprests í Hallgrímspresta-
kalli, en umsóknarfrestur rann út
15. apríl síðastliðinn.
Þeir sem sóttu um prestakallið
voru Guðmunda Inga Gunnarsdóttir
guðfræðingur, séra Guðný Hall-
grímsdóttir, Hans Markús Haf-
steinsson guðfræðingur, Haukur
Ingi Jónasson guðfræðingur, séra
Sigurður Pálsson og séra Þórir Jök-
ull Þorsteinsson.