Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 16

Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hagnaður Landsvirkjun- ar 1.740 milljónir króna Samþykkt að greiða 204 milljónir í arð til eigenda fyrirtækisins HAGNAÐUR Landsvirkjunar nam alls 1.740 milljónum króna á síðasta ári og er þetta besta rekstrarafkoma í sögu fyrirtækisins frá upphafi, en á árinu 1995 var 628 milljóna króna tap á fyrirtækinu. Þessa góðu af- komu má einkum rekja til þess að raunvextir voru lágir á síðasta ári vegna hagstæðrar gengisþróunar, að því er fram kemur í ársskýrslu Landsvirkjunar, en ársfundur fyrir- tækisins var haldinn í gær. Sam- þykkt var að greiða eigendum fyrir- tækisins arð samtals að upphæð 204,2 milljónir króna, en ríkið á helmingshlut í fyrirtækinu á móti Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ. Gjaldskrá Landsvirkjunar var hækkuð um 3% 1. apríl síðastliðinn og hafði þá verið óbreytt frá upp- hafi árs 1994. Fjármagnskostnaður lækkar um 2,3 milljarða Rekstrartekjur Landsvirkjunar námu alls rúmum 7.738 milljónum króna á síðasta ári samanborið við 7.663 milljónir króna árið áður. Þar af nam raforkusala til almennings- veitna 5.270 miiljónum króna og jókst um 180 milljónir milli ára. Raforkusala til stóriðju nam 2.425 milljónum króna, sem er rúmlega 100 milljónum króna minna en raf- orkusala til stóriðju var árið áður, en þá nam hún 2.528 milljónum króna. Rekstrargjöld alls námu samtals 5.997 milljónum króna samanborið við 8.292 milljónir króna árið 1995. Rekstrarkostnaður fyrirtækisins eykst milli ára um rúmar 60 milljón- ir í 5.358 milljónir króna, en fjár- magnskostnaður lækkar hins vegar mjög mikið milli ára eða úr rúmum 3 milljörðum króna á árinu 1995 í 640 milljónir í fyrra eða um rúma 2,3 milljarða króna. Þar munar mestu um gengismun og verðbreyt- ingartekjur. Heildareignir Landsvirkjunar námu 77,1 milljarði króna í árslok. Þar af var eigið fé 27,8 milljarðar króna eða 36,1% af heildareign og óx um rúman 2,1 milljarð króna milli ára. Skuldir alls námu 49,3 milljörðum króna og Iækkuðu um 1,5 milljarða króna milli ára. Fjár- festingar námu 1.778 milljónum króna á síðasta ári og afborganir lána 2.315 milljónum króna, sem er 4,7% af langtímaskuldurn Lands- virkjunar í árslok 1995. Á árinu voru greidd upp lán vegna lengingar lánstíma og breytinga á vöxtum að upphæð 3.254 milljónir króna. Handbært fé frá rekstri nam 2.270 milljónum króna og lántökur á árinu 5.868 milljónum króna. Aukning varð á rafmagnssölu til almenningsveitna milli áranna 1995 og 1996 um tæp 2% og sala til stór- iðju jókst um 2,5%. Heildaraukning- in nemur tæpum 2,3%. Heildarraf- orkuframleiðslan á árinu nam 4.760 GWst en heildarsalan 4.550 GWst, sem er 93,1% af raforkunotkuninni í landinu. Arðgreiðsla skiptist þannig milli eigenda Landsvirkjunar að 102,1 milljón króna kemur í hlut ríkisins, 90,9 milljónir króna koma í hlut Reykjavíkurborgar og tæpar 11,2 milljónir króna koma í hlut Akur- eyrarbæjar. Morgunverðarfundur miövikudaginn 30. apríl 1997 kl. 8.00 - 9.30 í Sunnusal, Hótel Sögu LIFEYRISSJOÐIR - valfrelsi eða skylduaðild Verslunarráö efnir til morgunverðarfundar um lífeyrismál í tilefni af fyrirliggjandi frumvarpi á Alþingi um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóöa. • Stenst frumvarpiö félagafrelsis- og eignarréttarákvæöi stjórnarskrárinnar? • Skerðir frumvarpiö óhóflega valífelsi einstaklinga? • Eru aðrar aöferöir mögulegar til aö ná fram samtryggingu í lífeyrismálum en sameignarsjóöakerfiö? FRAMSÖGUMENN: Árni M. Mathiesen, alþingismaður Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankans hf. Baldur Guðlaugsson, formaður Samtaka áhugafólks um lífeyrissparnað. Umræöur og fyrirspurnir að framsögum loknum. Fundargjald er kr. 1.200,- (morgunveröur innifalinn). Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram í síma Verslunarráösins 1917-1907 588 6666 (kl. 8.00 - 16.00). *úT~X sfn i/ VC i ml VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS Cmmmm IIp ot'ccLirrclii 1QQR Ur ársskýrslu 1996 Rekstrarreikningur 1996 1995 Breyt. Rekstrartekjur Milljónir króna 7.738,1 7.663,1 +1,0% Rekstrarqjöld 5.997,7 8.291,6 -27,7% Rekstrarhagnaður (-halli) ársins 1.740,5 (628,5) Efnahagsreikningur 31. des. 1996 1995 Breyt. I Eianir: \ Veltufjármunir Milljónir króna 2.449,2 1.606,0 +52,5% Fastafjármunir 74.632,1 74.771,2 -0,2% Eignír samtals 77.148,3 76.496,3 +0,9% I Skuldir og eigiO fé : | Skammtímaskuldir 1.421,8 1.657,9 -14,2% Langtímaskuldir 47.901,6 49.176,7 -2,6% Eigið fá 27.824,9 25.661,7 +8,4% Skuldir og eigið fé samtals 77.148,3 76.496,3 +0,9% Lífleg hlutabréfa- viðskipti ÞINGVÍSITALA hlutabréfa hækkaði um 2,99% í gær og er það fjórða mesta dags- hækkun í sögu hennar. Metið er 4,59%, sett fyrir nákvæm- lega þremur árum. Mikil við- skipti voru á hlutabréfamark- aði í gær og námu heildarvið- skipti dagsins tæpum 227 milljónum króna á Verðbréfa- þingi íslands og Opna tilboðs- markaðnum. Mest viðskipti voru með hlutabréf í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar, 44,7 milljónir króna, og hækkaði gengi þeirra um 6,33%. Viðskipti nieð hlutabréf í SR-mjöli námu 38,4 milljónum og hækkaði gengi þeirra um 14,73%. Við- skipti með hlutabréf í Islenska fjársjóðnum námu 24,6 millj- ónum króna og hækkuðu þau um 3,62%. Alls námu viðskipti með hlutabréf í Flugleiðum 13,3 milljónum króna og hækkaði gengi þeirra um 2,59%. Vi?skipti me? Sam- herjabréf námu alls 11,5 millj- ónum króna og voru bréfin seld á genginu 12,90-13. Lífeyrisfrum varpið harðlega gagnrýnt BENEDIKT Davíðsson, formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins, gagnrýndi frumvarp ríkisstjórnar- innar um lífeyrissjóði harðlega á aðalfundi sjóðsins í gær. Sagði hann alla málsmeðferðina hafa verið með ólíkindum, eins og það að frumvarp- ið skyldi hafa verið samið án nokk- urs samráðs við þá aðila sem ættu hlut að máli, svo sem samtök á vinnumarkaði, lífeyrissjóðina og samtök þeirra. Benedikt sagði frumvarpið fyrst og fremst hugnast þeim sem hefðu áhuga á að sýsla með þá fjármuni sem söfnuðust upp í lífeyrissjóðun- um. Sagði hann það ekki góðan kost fyrir lífeyrissjóðina og félaga í þeim að fara yfir til tryggingafé- laga því þar væri rekstrarkostnaður miklu hærri heldur en í lífeyrissjóð- unum. Algengt væri að rekstrar- kostnaður lífeyrissjóðanna væri á bilinu 2% til 6% af iðgjöldum, en hann þekkti engin dæmi um rekstr- arkostnað hjá líftryggingarfélögum sem væri lægri en 20% af iðgjöldum. Þannig hefði rekstrakostnaður hjá Líftryggingafélagi VÍS verið 22%. Þá vék Benedikt einnig að um- sókn Sameinaða lífeyrissjóðsins til fiármálaráðuneytisins um að fá að stofna séreignadeild til viðbótar við þá sameignardeild sem sjóðurinn rekur nú, en nokkur ár eru síðan sjóðurinn sótti fyrst um það. Máls- meðferð fjármálaráðuneytisins hef- ur nú verið kærð til umboðsmanns Alþingis og rakti Benedikt þá sögu. Sagði hann alla framgöngu ráðu- neytisins vera með eindæmum og ætti sér enga lagastoð, því afgreiða ætti erindið á grundvelli ósettra laga. Minnti málsmeðferðin meira á stjórnarfar í bananalýðveldi heldur en stjónarfar í stjórnkerfi þar sem þrískipting valdsins væri í heiðri höfð. 117 millj- óna króna hagnaður HAGNAÐUR SÍF hf. nam tæpum 117 milljónum króna á síðasta ári, sem er tæplega 53 milljóna króna minni hagnaður en árið 1995 eða um 31%. Gunnar Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri SÍF, segir minni hagnað skýrast af lakari afkomu Nord-Morue, dótturfélags SÍF í Frakklandi, heldur en árið á undan. „Þjónustutekjur frá Nord-Morue námu 107 milljónum króna árið 1995 en 1996 námu þau 54 miiljónum króna. Eins er um að ræða reiknað gengistap upp á 17 milljónir króna í fyrra á móti 500 þúsund króna gengishagnað árið 1995.“ Hagnaður fyrir skatta nam 147 milljónum króna en nam 226 millj- ónum króna árið 1995. Rekstrartekj- ur samstæðunnar jukust um tæpan milljarð og námu 10,3 milljörðum í fyrra. Rekstrargjöldin jukust einnig um tæpan milljarð og námu 10,1 milljarði í fyrra. Eigið fé eykst úr 827 milljörðum króna árið 1995 í 1,3 milljarða árið 1996. Arðsemi eig- in fjár minnkar úr 20,5% í 9% á milli ára. Að sögn Gunnars Arnar eru horf- urnar ágætar fyrir árið 1997. „í SOLUSAMBAND ISLENSKRA FISKFRAMLEIÐENDA HF. Úr reikningum ársins 1996 Rekstrarreikningur Mntjónir króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 10.304,5 9.473,7 +8,8% Rekstrargjöld 10.125,7 9.242,4 +9,6% Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) Haanaður fyrir skatta (44,2) 147,3 (16,5) 226,2 +167,9% -34,9 Skattar ársins 30,6 56,9 -46,2% Hagnaður ársins 116,7 169,2 -31,0% Sjóðstreymi Milljónir króna 1996 1995 Breyting Veltufé frá rekstri 263,0 229,5 +14,6% Efnahagsreikningur 31. des.: 1996 1995 Breyting Eignir: Veltufjármunir Milijónirkr. 4.072,2 3.547,8 +14,8% Fastafjármunir 1.026,6 839,1 +22,3% Eignir samtals 5.098,8 4.386,9 +16,2% Skuidir Skammtímaskuldir 3.426,8 3.244,6 +5,6% og eigiO fé: Langtímaskuldir Eigið fé 377,9 1.294.1 1 315,0: 827.3 +20,0% +56.4% Skuldir og eigiö fé samtals 5.098,8 4.386,9 +16,2% Kennitölur 1996 1995 Veltufjárhlutfall 1,19 1,09 Eiginfjárhlutfali 25,4% 18,9% Arðsemi eigin fjár Hagnaður sem hlutf. af rekstrartekjum 9,0% 1,13 20,5% 1,79 rekstraráætlunum gerum við ráð fyrir 144 milljónum króna í hagnað ársins eftir skatta." Mikil veltuaukn- ing hefur orðið á þessu ári hjá Nord- Morue eða 21%. Fyrstu þijá mánuði ársins nam salan rúmiega 89,4 millj- ónum franka eða rúmum milljarði króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.